Dagblaðið Vísir - DV - 18.04.2019, Page 40
40 18. apríl 2019
Tímavélin Gamla auglýsinginTíminn 27. janúar 1965
Á
rið 1994 komu fram upp-
lýsingar um að KGB hefði
reynt að eyðileggja leið-
togafundinn í Höfða.
Yuri Shvets, fyrrverandi njósn-
ari KGB, sagði frá þessu í bók en
hann var þá í felum í Bandaríkj-
unum. Ástæðuna fyrir þessu sagði
Shvets vera deilur á milli KGB og
utanríkis ráðuneytisins og keppni
um hylli Mikhails Gorbachev.
Dulnefnið Sókrates
Yuri Shvets er einn þekktasti
njósnari Sovétríkjanna. Shvets er
úkraínskur að uppruna og lærði
njósnir með Vladimír Pútín. Báð-
ir störfuðu þeir fyrir leyniþjónustu
Sovétríkjanna, KGB, Shvets á ár-
unum 1980 til 1990. Nafn Shvets
komst í deigluna þegar hann var
vitni í máli njósnarans Alexanders
Litvinenko sem myrtur var með
eitri árið 2006.
Eftir að járntjaldið féll og
kommúnisminn í Austur-Evrópu
hrundi flutti Shvets til Bandaríkj-
anna og skrifaði þar bækur í fel-
um. Ein af þeim bar nafnið Was-
hington Station: My Life as a KGB
Spy og þar er reynslu hans af
njósnum í Bandaríkjunum lýst.
Shvets fór sjálfur í njósnaferðir
til Bandaríkjanna og þar réð hann
undirmenn sem störfuðu innan
bandaríska stjórnkerfisins. Einn af
þeim var Ástrali að nafni John Hel-
mer, sem fékk dulnefnið Sókrates.
Í viðtali frá árinu 1995 lýsti Shvets
hvernig Helmer hefði viljað nota
sínar upplýsingar til þess að kúga
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta á leiðtogafundinum í Höfða í
október árið 1986.
CIA og Medellin-hringurinn
Upplýsingarnar sem um ræðir
voru þær að CIA, bandaríska
leyniþjónustan, væri í samstarfi
við Medellin-eiturlyfjahringinn,
varðandi innflutning kókaíns
til Bandaríkjanna. Ágóðinn af
sölunni væri notaður til þess að
kaupa vopn fyrir skæruliða í Nik-
aragva.
Eins og flestir vita funduðu
Reagan og Mikhail Gorbachev,
leiðtogi Sovétríkjanna, um tak-
mörkun kjarnorkuvopna. Shvets
sagði:
„KGB notaði upplýsingarnar
hans og sagði Gorbachev að
nota þær til þess að beita Banda-
ríkjastjórn þrýstingi á leiðtoga-
fundinum í Reykjavík,“ og enn
fremur: „Það skipti KGB ekki máli
hvort upplýsingarnar væru sann-
reynanlegar, en þær voru kynntar
sem sannindi fyrir Gorbachev.“
Shvets segir að með þessu hafi
KGB viljað eyðileggja Höfðafund-
inn.
„Yfirstjórn KGB hafði mikl-
ar áhyggjur af því að utanríkis-
ráðuneytið hefði öll völd í utan-
ríkismálum Sovétríkjanna. Þeir
höfðu miklar áhyggjur af því að
starfsfólk utanríkisráðuneytisins
væri að spila leikinn eftir reglum
Bandaríkjamanna og létu stjórn-
ast. Þess vegna vildi KGB skemma
fundinn með öllum ráðum og láta
Gorbachev halda að utanríkis-
ráðuneytið hefði klúðrað honum.
KGB væri hins vegar stofnunin
sem hægt væri að treysta í utanrík-
ismálum.“ n
Á
rið 1995 stöðvaði slökkvi-
liðið í Reykjavík óvenju-
lega uppákomu í mið-
bænum. Eigendur
skemmtistaðarins Déjá Vu höfðu
pakkað staðnum inn í gjafa-
pappír í tilefni af eins árs afmæli
staðarins. Einn eigendanna var
Kiddi Bigfoot sem ræddi við DV
um þetta skemmtilega en jafn-
framt eldfima uppátæki.
Átta tíma vinna
Skemmtistaðurinn Déjá Vu, sem
stóð við Bankastræti, var opnað-
ur í mars árið 1994. Til að fagna
eins árs afmæli staðarins var
ákveðið að pakka honum inn
í umbúðapappír, líkt og húsið
sjálft væri afmælisgjöf. Var hug-
myndin sú að gestirnir gætu „kíkt
í pakkann.“
Kristján Jónsson, betur
þekktur sem Kiddi Bigfoot, var
skemmtanastjóri Déjá Vu og
einn af eigendum staðarins. Í
samtali við DV segir hann:
„Á þessum tíma vorum við
oft að fá mjög skemmtilegar
hugmyndir og framkvæmdum
margar af þeim. Déjá Vu var
þekktur fyrir brjálaðar uppá-
komur allar helgar og starfsfólkið
í gargandi stuði, dansandi uppi á
barborðinu. Þarna var eins árs af-
mælishelgi að hefjast. Staffið ók
á limma um bæinn við að dreifa
boðsmiðum og við vorum nokkr-
ir að pakka staðnum. Það tók um
það bil átta klukkutíma að pakka
honum inn. Þegar það var búið
stóðum við fyrir utan kófsveittir
en helsáttir við útkomuna.“
Löggan kölluð til
Þá kom aftur á móti babb í bát-
inn. Slökkviliðið mætti á staðinn
til að stöðva uppátækið. Enda
LEIÐANDI Í GREIÐSLULAUSNUM
Greiðslulausnir tengdar
helstu afgreiðslukerfum
Allir posar frá
Verifone taka
við snertilausum
greiðslum með
farsímum
Sjálfstandandi greiðslulausnir
og handfrjálsir posar
Hlíðasmára 12 201 Kópavogi verifone@verifone.is S: 544 5060
Pökkuðu skemmtistað í gjafapappír
Lögreglan og slökkviliðið mætti á svæðið
KGB vildi eyðileggja
leiðtogafundinn í Höfða„Það skipti
KGB
ekki máli hvort
upplýsingarnar
væru sann
reynanlegar
Kiddi
Bigfoot
Skemmt-
anastjóri,
plötu-
snúður og
eigandi.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Leiðtogafundurinn
Reagan og Gorbachev í Höfða.
Yuri Shvets Í
sjónvarpsviðtali
árið 1995.