Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Qupperneq 13
FÓKUS - VIÐTAL 1331. maí 2019 Felipe, í Mexíkóflóanum og þetta er öðruvísi en margir stærri við- burðir, það er enginn að reyna að selja þér neitt, allir eru skemmti- legir og kammó, enginn eitt- hvað „fancy“. Sumir koma með 20 dollara fyrir nokkrum bjórum og sofa í tjaldi á ströndinni og jafnvel ekki í tjaldi. Á malarplani er útbú- in lítil keppnisbraut, sem kallast Circle of Death, brautin er meira fyrir dirtbike, en þarna eru þeir að koma á Harley-hjólunum og detta. Þetta er bara fyndið og skemmti- legt, þetta er pínu sama vinalega stemning og er á Eistnaflugi. Þú kemur þarna til að horfa á hina, hafa gaman og vera með. Strákarnir leigðu sér hjól úti og fengu stór og vegleg hjól, tölu- vert nútímalegri en margir aðrir mættu á. Á fimmtudegi voru hjól- in sótt og hjólað um Los Angeles. „Það er nauðsynlegt að kynnast hjólunum, umferðinni, vegakerf- inu og þeim reglum sem gilda þarna. Í LA má „lane sharea“, það er að keyra á milli bíla, sem kem- ur sér vel í mikilli umferð og gam- an að sjá hversu flestir sýna manni mikla tillitssemi og færa sig þannig að þú komist leiðar þinnar fyrr og örugglega, þó með undantekning- um,“ segir Birgir Axelsson. „Seinna á fimmtudegi var hist á House of Machines í miðbæ LA, flottur staður, og héldum við smá kveðjupartí með vinum klúbbsins. Og þess má geta að einkunnarrorð staðarins eru „Dont Be A Dick“ sem hljómar kunnuglega,“ segir Birgir, sem er einn eigenda rokk- hátíðarinnar Eistnaflug, þar sem einkunnarorðin eru „Ekki vera fá- viti“. „Á föstudeginum var mæting eldsnemma við Starbucks-stað í Burbank þar sem hópurinn hittist, við frá Íslandi, Rick og Chris frá LA- -hópnum ásamt þeim Nick Bara- nov úr hljómsveitinni Rattlehead og hinn Nick sem slógust í för með okkur er þeir fréttu að við vær- um að fara ásamt Melanie Ladish og annarri vinkonu sem komu á „chase vagon“ á eftir okkur með vistir og annað ef eitthvað skyldi koma upp á. Það er ekkert verra að vera fleiri en færri þegar farið er í svona ferð, sérstaklega þar sem Mexíkó er kannski pínu óútreikn- anlegt svæði en á sama tíma þá er þetta krefjandi ferð. Hættuleg um- ferð, mikill hraði og því nauðsyn- legt að menn séu vanir hjólarar og kunni að hjóla í hóp. Rick leiddi hópinn, fór yfir reglur hópkeyrsl- unnar, hvert yrði farið, hvaða leið og svo framvegis. Því næst lá leiðin beint út á næstu hraðbraut og brunað í átt að Calexico þar sem var stopp- að í hádegismat og til að kaupa mexíkóska tryggingu sem er nauðsynlegt að gera áður en þú ferð yfir landamærin, Við erum á dýrum hjólum og allt getur gerst. Landamæraeftirlit inn í Mexíkó er ekki merkilegt og flestir fara þar inn án þess að þurfa að stoppa mikið, hvað þá að sýna einhverja pappíra, og því er bara brunað þar í gegn, stuttu seinna er farið í gegnum hereftirlit og þar getur allt gerst en við fengum að bruna þar yfir líka. Þegar framhjá því er kom- ið blasir bara við íslenskur þjóð- vegur eins langt og augað eygir, þurrt sólríkt veðurfar, ryk og eyði- mörk, ásamt fallegum rauðgul- um bergklettum og kaktusum sem yndislegt er að hjóla í. Þar slakn- ar á stressinu eftir borgartraffíkina og cruise controlið sett á, maður kemur sér þægilega fyrir á hjólinu og finnur vindinn leika um sig í þessu framandi landslagi og stefn- an sett á San Felipe og vorum við komnir þangað um það leyti sem sólin var að setjast,“ segir Birgir. Keyrslan er 7–8 klukkustundir með stoppum frá Los Angeles og á leiðinni er margt hægt að skoða og bralla. Til dæmis að vinna sér inn „nektarmerki“ með því að hjóla nakinn fimm mílur. Í ár áttu þrír félaganna eftir að skella sér úr hverri spjör. „Tveir þeirra guggn- uðu, en Dóri er alltaf til í allt og tók fimm mílurnar eins og berserkur,“ segir Arnold. „San Felipe er fallegur bær við ströndina í Kaliforníuflóa þar sem búa um 18 þúsund manns. Við leigðum fallegt þriggja hæða hús við ströndina og ákváðum að taka þægindin á þetta þar sem margir af okkur erum að ferðast langa leið. Það má segja að allur mið- bærinn sé undirlagður af mót- orhjólum en aðalsvæði „ground zero“ El Diablo er Rubens Camp, þar sem ómar tónlist allan sólar- hringinn, hljómsveitir á kvöldin og nóttunni, fæstir sofa, baða sig í sjónum og halda gott partí. Margir leigja sér kojur í opnum kofum undir berum himni og aðrir tjalda á ströndinni og sumir bara með eitt teppi eða poncho til að leggja sig á,“ segir Birgir. Árið 2017 kynntust strákarnir flúrlistamanninum Michael Gu- adelupa Jordan og fengu sér flúr, í ár var sama hefð og allir fengu sér flúr með merki El Diablo Run. „Þetta er skemmtileg hefð sem vonandi er komin til að vera og við ætlum 100% aftur eftir tvö ár,“ segja þeir félagar. Enginn metinn eftir atvinnu sinni „Sportið er rosalega skemmtilegt og snýst ekki bara um að hjóla. Þetta felst líka í að grúska, spá og spekulera, sparka í dekk og menn geta stundað það einir eða með vinum og fjölskyldu. Þú spáir í sportið allt árið og ef það er ekki veður til að fara út að hjóla þá ertu bara að grúska í skúrnum eða klúbbhúsinu,“ segir Arnold. Það skemmtilega við þetta samfélag er að það er enginn að spá í hvað þú vinnur við, hvort þú ert bankakall, lögfræðingur eða at- vinnulaus. Fólk er að skoða hvern- ig hjóli þú sért á, hvað sé mikið af þræðinum eftir á dekkjunum hjá þér og öðru slíku. Við erum fyrst og fremst bara gaurar sem höfum gaman af mótorhjólum.“ n Umboðsaðilar: Húsgagnaval Höfn Bara snilld ehf. Egilsstöðum Hornsófi hægri eða vinstri Verð nú 49.950 kr.Verð nú 159.415 kr. Verð nú 59.415 kr. Verð nú 34.950 kr. Verð nú 59.940 kr. Verð nú 44.950 kr. Sorento tungusófi Roberto hvíldarstóll Malmö hvíldarstóll Stockholm hvíldarstóll 10% AFSLÁTTUR Verð nú 199.920 kr. 15%AFSLÁTTUR Verð nú 245.415 kr. Við erum fyrst og fremst bara gaurar sem höfum gaman af mótorhjólum Klúbbarnir sameinaðir Strákarnir í klúbbunum tveimur. Fengu sér allir merki hátíðarinnar Kiddi sáttur í stólnum hjá Jordan. Hringur dauðans (Circle of Death) Þar sem mótorhjólakappar koma saman verður að vera kappbraut.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.