Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Page 47
Brot af því besta 31. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ
„Hverri kistu fylgir
ákveðin tilfinning“
Litla trésmiðjan, líkkistuvinnustofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar árið
2010. Flestar kisturnar eru seldar
í gegnum Útfararstofu Kirkjugarða
Akureyrar, en einnig selur Litla
trésmiðjan út fyrir Akureyri. Fólk
kemur til Litlu trésmiðjunnar til að
skoða og segir eigandi hennar það
alltaf góða tilfinningu.
„Ég er aðallega að smíða
líkkistur,“ segir Sigurður Óli
Þórisson, trésmiður og eigandi
Litlu trésmiðjunnar. „Einnig smíða
ég glugga og opnanleg fög í eldra
húsnæði og stundum hurðir. Svo
eru húsgagnaviðgerðir hluti af
starfseminni, bæði á nýjum og svo
eldri húsgögnum.“
Sigurður Óli flutti 17 ára til
Akureyrar, lærði húsasmíði og fékk
meistararéttindi og hefur unnið
við trésmíðar meira og minna allt
sitt líf, eins og hann segir sjálfur.
Eftir hrun hannaði hann, ásamt
Sæmundi Friðfinnssyni, líkkistuna
sem fyrst var framleidd hjá Tréborg
á Akureyri. Árið 2010 ákvað
Sigurður Óli að halda einn áfram
með líkkistusmíðina og hefur hann
starfað við það síðan.
Umræðan um andlát orðin opnari
frá því sem áður var
„Það er opnari umræða í dag,
andlát og útfarir voru lítið rædd
á almannafæri áður fyrr. Nú er
fólk opnara fyrir þessum hlutum.
Það er betra að það sé þannig.
Eftir fæðingu verður dauðinn ekki
umflúinn. Hins vegar eru endalokin
ekki alltaf tímabær því miður.“
Íslensk hönnun smíðuð af
kostgæfni
Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar
úr MDFplötum og sprautaðar
hvítar. „Í gamla daga voru
líkkisturnar svartar, þá voru þær
bikaðar. Síðan urðu þær hvítar,
en ég hef einnig sprautað þær í lit
eftir óskum hverju sinni. Við hönnun
fórum við aftur í tímann með formið
og fólki finnst vel hafa til tekist.
Maður er ánægður og stoltur,“ segir
Sigurður Óli. „Maður er einn að
vinna við smíðina, þannig að hún
er íslenskt handverk og hönnun,
ekki verksmiðjuframleiðsla. Ég vinn
hverja kistu alveg frá upphafi til
enda, ég smíða krossa, alla fylgihluti
og bólstra kistuna. Gæðaeftirlitið
er þannig, að þegar ég er orðinn
ánægður með handverkið má
afhenda kistuna. Ein kista er
gott dagsverk. Stærri kistur eru
meiri vinna og því aðeins dýrari.
Samt stenst Litla trésmiðjan allan
verðsamanburð. Innflutningur er
stærsti keppinauturinn.“ n
LITLA TRÉSMIÐJAN:
Litla trésmiðjan er að Austursíðu 2, Akureyri.
Síminn er 898-7686 og heimasíðan er kistur.is.