Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 47
Brot af því besta 31. maí 2019 KYNNINGARBLAÐ „Hverri kistu fylgir ákveðin tilfinning“ Litla trésmiðjan, líkkistu­vinnustofa og trésmiðja var stofnuð á Akureyri í janúar árið 2010. Flestar kisturnar eru seldar í gegnum Útfararstofu Kirkjugarða Akureyrar, en einnig selur Litla trésmiðjan út fyrir Akureyri. Fólk kemur til Litlu trésmiðjunnar til að skoða og segir eigandi hennar það alltaf góða tilfinningu. „Ég er aðallega að smíða líkkistur,“ segir Sigurður Óli Þórisson, trésmiður og eigandi Litlu trésmiðjunnar. „Einnig smíða ég glugga og opnanleg fög í eldra húsnæði og stundum hurðir. Svo eru húsgagnaviðgerðir hluti af starfseminni, bæði á nýjum og svo eldri húsgögnum.“ Sigurður Óli flutti 17 ára til Akureyrar, lærði húsasmíði og fékk meistararéttindi og hefur unnið við trésmíðar meira og minna allt sitt líf, eins og hann segir sjálfur. Eftir hrun hannaði hann, ásamt Sæmundi Friðfinnssyni, líkkistuna sem fyrst var framleidd hjá Tréborg á Akureyri. Árið 2010 ákvað Sigurður Óli að halda einn áfram með líkkistusmíðina og hefur hann starfað við það síðan. Umræðan um andlát orðin opnari frá því sem áður var „Það er opnari umræða í dag, andlát og útfarir voru lítið rædd á almannafæri áður fyrr. Nú er fólk opnara fyrir þessum hlutum. Það er betra að það sé þannig. Eftir fæðingu verður dauðinn ekki umflúinn. Hins vegar eru endalokin ekki alltaf tímabær því miður.“ Íslensk hönnun smíðuð af kostgæfni Líkkisturnar eru aðallega smíðaðar úr MDF­plötum og sprautaðar hvítar. „Í gamla daga voru líkkisturnar svartar, þá voru þær bikaðar. Síðan urðu þær hvítar, en ég hef einnig sprautað þær í lit eftir óskum hverju sinni. Við hönnun fórum við aftur í tímann með formið og fólki finnst vel hafa til tekist. Maður er ánægður og stoltur,“ segir Sigurður Óli. „Maður er einn að vinna við smíðina, þannig að hún er íslenskt handverk og hönnun, ekki verksmiðjuframleiðsla. Ég vinn hverja kistu alveg frá upphafi til enda, ég smíða krossa, alla fylgihluti og bólstra kistuna. Gæðaeftirlitið er þannig, að þegar ég er orðinn ánægður með handverkið má afhenda kistuna. Ein kista er gott dagsverk. Stærri kistur eru meiri vinna og því aðeins dýrari. Samt stenst Litla trésmiðjan allan verðsamanburð. Innflutningur er stærsti keppinauturinn.“ n LITLA TRÉSMIÐJAN: Litla trésmiðjan er að Austursíðu 2, Akureyri. Síminn er 898-7686 og heimasíðan er kistur.is.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.