Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 66
66 31. maí 2019
E
ftirminnilegt partí á vegum
Landsbankans var haldið í
Mílanó í september 2007.
Tvær einkaþotur flugu með
300 boðsgesti til ítölsku borgar-
innar þar sem gist var á einu allra
flottasta hótelinu, Principe di
Davoia. Auk þeirra var 20 öðrum
boðið sem komu sjálfir til Ítalíu á
einkaþotum. Allir helstu stjórn-
endur Landsbankans voru að
sjálfsögðu í partíinu sem haldið
var í 15. aldar hallargarði. Það
sem vakti hvað mesta athygli voru
þó veitingarnar sem boðið var
upp á, en þar á meðal var risotto
með gullflögum.
Að gefnu tilefni rifjar DV hér
upp nokkur eftirminnileg „bruðl“
sem ratað hafa í fjölmiðla undan-
farin ár og þá ekki síst á árunum
fyrir hrun.
Tom Jones skemmti gestum
Nýárspartí Ármanns Þorvalds-
sonar, þáverandi forstjóra Kaup-
þings í Bretlandi, urðu fræg á góð-
æristímabilinu. Toppnum var þó
líklega náð um áramótin 2005 til
2006.
Í veislunum árin á undan hafði
Ármann stigið á svið og sungið lög
Tom Jones. „Why get the cheap
Icelandic version if you can get
the real act?“ sagði Ármann við
veislugesti í partíinu þann 1. jan-
úar 2006. Því næst steig Tom Jo-
nes sjálfur á svið ásamt tuttugu
manna hljómsveit og skemmti
gestum í rúmlega klukkutíma.
Ári síðar hélt Ármann ennþá
veglegra partí og að þessu sinni
sá rokksveitin Duran Duran um
að skemmta gestum.
Á þessum árum rötuðu fleiri
glæsiveislur íslenskra auðkýf-
inga í fréttir hér heima og er-
lendis. Fertugsafmæli Björg-
ólfs Thors Björgólfssonar var á
meðal þeirra sem stóðu upp úr.
Þannig var því lýst í frétt DV í
október 2008:
„Hann sérpantaði farþega-
flugvél fyrir gesti sína en vél-
in var öll innréttuð eins og
lúxus-farrými í einkaþotu.
Gestirnir voru 130 talsins en
þeir vissu ekkert hvert ferðinni
væri heitið þegar þeir mættu
út á Keflavíkurflugvöll. Það
eina sem fylgdi boðinu var að
fólki var bent á að hafa létt-
an klæðnað og strandfatn-
að meðferðis. Flugstjórinn tók
stefnuna á Jamaíka þar sem
afmælið var haldið í gríðar-
stórum kastala sem ber nafnið
Trident. Skemmtikraftarn-
ir í afmælinu voru ekkert slor.
Aðalnúmerið var bandaríski
rapparinn 50 Cent sem, eins
og Björgólfur Thor, byrjaði
á botninum en vann sig síð-
an upp og er nú einn af tekju-
hæstu tónlistarmönnum í
heimi.“
Fimmtugsafmæli athafna-
mannsins Ólafs Ólafssonar í
ársbyrjun 2007 var heldur ekki
af verri endanum. Afmælið var
haldið í Ísheimum, kæligeymslu
á vinnusvæði Samskipa í Kjalar-
vogi í Reykjavík og var hún sér-
útbúin fyrir afmælið.
Frystivörumiðstöðin var in-
réttuð sem veiðikofi með tilheyr-
andi kostnaði, enda Ólafur ann-
álaður veiðiáhugamaður. Ólafur
flutti meðal annars inn kokka frá
hinu fræga veitingahúsi Nobu í
London til að elda ofan í gestina,
auk þess sem matreiðslumenn
frá Argentínu og Þremur Frökk-
um komu að veislunni. Meðal
annars var boðið upp á gíraffa og
sebrahestakjöt. Síðast en ekki síst
var sjálfur Elton John fenginn til
að skemmta gestunum en Ólafur
er sagður hafa greitt söngvaran-
um milljón dollara, um 70 millj-
ónir króna á þeim tíma, fyrir að
spila í afmælinu.
200 gestir til Mónakó
Þá er komið að Baugsdeginum
fræga og veisluhöldunum. Í maí
2007 var yfir 200 starfsmönnum
og viðskiptafélögum Baugs flogið
út til Mónakó á einkaþotum. Gist
var á lúxushótelinu Monte Carlo
Bay Hotel í tvær nætur.
Í hverju herbergi var gjafapoki
fyrir gesti sem innihélt Perrier-
-Jouët-kampavín, kerti og bað-
olíur frá Jo Malone og sérpönt-
uð handklæði þar sem farið var
yfir dagskrána. Skemmtikraftarn-
ir voru ekki af verri endanum:
goðsögnin Tina Turner og breski
grínistinn Jonathan Ross. Þess
má geta að á þessum tíma var
Ross hæstlaunaði sjónvarpsmað-
ur Bretlands, með sex milljónir
punda í árslaun.
Borgaði 13 milljónir en fór
aldrei
Í maí 2005 greindi DV frá því að
Jón Ásgeir Jóhannesson hefði
borgað 13 milljóna króna þátt-
tökugjald til að fá að keppa með
Hollywood-stjörnum, milljarða-
mæringum og kóngafólki í hin-
um fræga glæsibílakappakstri
Gumball 3000 í Mónakó.
Það varð þó ekkert úr þátttöku
Jóns Ásgeirs þar sem hann ákvað
að fara frekar til Kína með forseta
Íslands og föruneyti hans. Hann
sendi því frændur sína, Vilhjálm
og Jón Þór Einarssyni, í staðinn
og lánaði þeim Aston Martin-bif-
reið sína.
Ari Eldjárn og Logi Bergmann í
fermingarveislu
Í apríl 2011 sagði DV frá íburðar-
mikilli fermingarveislu sonar auð-
mannsins Þórðar Más Jóhann-
essonar, fyrrverandi forstjóra
Straums-Burðaráss og Gnúps.
Samkvæmt heimildum DV bauð
fjölskyldan til heljarinnar veislu á
Hilton hótel Nordica af því tilefni.
Heimildir hermdu að um 150
manns hafi verið í veislunni sem
var mjög íburðarmikil og ekkert
var til sparað í mat eða drykk. „Mér
finnst þetta bara alveg gaga,“ sagði
heimildarmaður í samtali við DV
en sjónvarpsmaðurinn Logi Berg-
mann Eiðsson var veislustjóri og
Ari Eldjárn uppistandari sá um að
skemmta veislugestum.
Í júní 2007 sagði tímaritið
Sirkus frá því að athafnamaður-
inn Sigurður Bollason hefði tek-
ið sig til og leigt ballettsal og þrjá
kennara einu sinni í viku fyr-
ir þriggja ára gamla dóttur sína.
Ástæðan var sú að dóttir hans
vildi byrja að æfa ballett árið áður
en fékk synjun þar sem aldurstak-
markið er þriggja ára.
Það vakti sömuleiðis mikla
athygli í september 2007 þegar
Séð og heyrt birti frétt um að Jón
Ásgeir Jóhannesson hefði gefið
17 ára gamalli dóttur sinni Range
Rover bifreið og íbúð að gjöf.
Jón Ásgeir var einn af eigendum
Birtings á þessum tíma. Stuttu
seinna lét Mikael Torfason, aðal-
ritstjóri Fróða og ritstjóri Séð og
heyrt af störfum.
Glæsiveislunum hefur fækkað
síðustu ár en eitt nýlegasta dæm-
ið er fimmtugsafmæli Skúla Mog-
ensen, fyrrverandi forstjóra WOW
Air, í ágúst á síðasta ári. Veislan
var haldin í Hvammsvík í Kjósinni
og var öllu tjaldað til.
Jakob Frímann Magnússon
sá um veislustjórn og skemmti-
atriðin voru ekki af verri endan-
um. Stuðmenn léku fyrir dansi
og þá stigu einnig á svið söngv-
ararnir Daníel Ágúst og Högni Eg-
ils ásamt Dj Margeiri. Öllu var svo
slúttað með glæsilegri flugelda-
sýningu. Fréttir af veisluhöldun-
um rötuðu í fjölmiðla. Einhverj-
ir hristu hausinn og spurðu sig
hvort sagan væri að endurtaka
sig: Var þetta seinasta partíið áður
en allt færi á hausinn? Sjö mánuð-
um síðar var tilkynnt um gjaldþrot
flugfélagsins. n
FRÉTTIR - RÍKIR ÍSLENDINGAR
https://reykjavikdigital.is/
hallo@reykjavikdigital.is
419-0990
Við smíðum fallega, leitarvélavæna og
skilvirka vefi sem virka hnökralaust í
öllum tækjum og eru hannaðir til að
selja þína vöru eða þjónustu á netinu.
VEFSVÆÐIÐ ÞITT ER ÞAÐ
MIKILVÆGASTA SEM ÞÚ HEFUR TIL
ÞESS AÐ NÁ TIL ÞÍNS MARKHÓPS.
Settu vefmálin
í góðar hendur
Frægustu íslensku eyðsluf ylleríin
Það var engu til spar-
að í fimmtugsafmæli
auðmannsins.