Dagblaðið Vísir - DV - 31.05.2019, Síða 80
80 31. maí 2019
S
ara María Aldrete fæddist
6. september, árið 1964, í
Matamoros. Fátt frásagnar-
vert er að finna í bernsku
og unglingsárum hennar, en á því
varð breyting þegar hún var rétt
skriðin yfir tvítugt.
Þá kynntist Sara manni að nafni
Adolfo Constanzo. Adolfo var af
kúbversku bergi brotinn. Hann
gaf sig út fyrir að vera spámað-
ur og var leiðtogi sértrúarsöfnuð-
ar. Í gegnum Adolfo komst Sara
í kynni við svartagaldur og hann
gaf henni viðurnefnið La Madrina,
Guðmóðirin, og hún var vígð inn í
söfnuð hans.
Fórnir og fornir helgisiðir
Innan sértrúarsöfnuðarins var
iðkaður hrærigrautur kúbversku
trúarbragðanna Santería, helgi-
siða stríðsmanna Asteka og Palo
Mayombe, trúarbragða sem áttu
rætur að rekja til afrískra þræla,
einkum frá Kongó.
Þetta samsull var síðan full-
komnað með blóðfórnum.
Hvað blóðfórnirnar áhrærði
leitaði Adolfo hófanna á meðal
eiturlyfjahöndlara sem urðu á vegi
hans. Hann nauðgaði þeim áður
en hann myrti þá. Líkamshluta
þeirra notaði hann í fórnarathafn-
ir sem fóru fram í gamalli vöru-
skemmu, skammt frá Matamoros.
Soðið í stórum potti
Við fórnirnar voru einnig notuð lík
fólks sem rænt var á götum úti, í
grenndinni eða annars staðar.
Stór hluti líkamshluta fórn-
arlambanna var soðinn í stórum
potti, „nganga“.
Adolfo skipaði Söru næstæðsta
leiðtoga söfnuðarins og fól henni
að sjá um fylgjendurna þegar
hann var fjarri, önnum kafinn við
að smygla maríjúana inn í Banda-
ríkin.
Árið 1989 urðu morðin tíðari,
en það var þó ekki fyrr en banda-
rískur ferðamaður, Mark J. Kilroy,
hvarf, sem söfnuðurinn fékk meiri
athygli en hann kærði sig um.
Óhugnanleg aðkoma
Mark þessi var nemi við Texas-há-
skóla og hvarf í vorfríi og það skipti
sköpum að hann státaði af öflugu
baklandi.
Rannsókn leiddi lögregluna að
„hofi“ söfnuðarins í Matamoros
og Adolfo og Sara lögðu á flótta og
söfnuðurinn allur fylgdi því for-
dæmi.
Í „hofinu“ fann lögreglan
mannshár, heila, tennur og höfuð-
kúpur og ljóst að þar hafði ýmis-
legt óhugnanlegt átt sér stað. Síð-
ar sagði einn lögreglumannanna:
„Þegar við nálguðumst [hofið]
þá fann maður fnykinn … blóð
og rotnandi líffæri. Í stórum potti
voru líkamshlutar af mönnum og
geitarhöfuð með hornum.“
Fylgsnið finnst
Þann 6. maí, 1989, fann lögreglan
fylgsni söfnuðarins í Mexíkó-borg.
Að sögn fyrirskipaði Adolfo fylgj-
endum sínum að tryggja að hann
lenti ekki lifandi í höndum lög-
reglunnar.
Í fylgsninu í Mexíkó-borg fann
lögreglan Söru, lík Adolfos og
Martins Quintana Rodriquez og
fimm meðlimi sértrúarsöfnuðar-
ins.
Við yfirheyrslur sagði einn
þeirra, Alvaro de Leon Valdez, að
Adolfo hefði skipað honum að
bana honum og helsta aðstoðar-
manni hans, Martin Quintana
Rodriques. Alvaro gerði eins og
honum var skipað og skaut þá til
bana með vélbyssu. Hann sagðist
einnig hafa tekið þátt í morðinu á
áðurnefndum Kilroy og fleirum.
Til verndar smyglstarfsemi
Sara sagðist hvorki hafa tekið þátt
í né orðið vitni að morðum að
minnsta kosti fimmtán manns. Þó
var talið nokkuð víst að hún og Ad-
olfo hefðu stýrt fórnarathöfnunum
og öðrum helgisiðum innan söfn-
uðarins. Þau hefðu talið að athafn-
irnar myndu vernda smyglstarf-
semina sem þau stunduðu.
Alvaro og Sara fullyrtu bæði að
Adolfo hefði framið stærsta hluta
morðanna sem framin voru á býl-
inu í Matamoros.
Sara María Aldrete fékk sex ára
dóm árið 1990 og árið 1994 var
hún sakfelld fyrir fjölda morða og
fékk 62 ára fangelsisdóm.
Alvaro de Leon Valdez var ekki
dæmdur fyrir Matamoros-morðin
en fékk hins vegar dóm fyrir
morðin á Adolfo og Martin Quin-
tana. n
SAKAMÁL
H inn 31. ágúst, 2006, staðfesti Hæstiréttur Indlands dauðadóm yfir systrunum Seema og Renuka. Þær höfðu í félagi við móður sína, Anjanbai, og eigin-
mann Renuka, Kiran Sinde, stundað smáþjófnaði.
Við iðjuna beittu þau fyrir sig ungum börnum. Þau töldu
ólíklegra að kona með ungt barn yrði talin þjófur. Því tóku
þau upp á því að ræna börnum og ef börnin urðu til trafala
voru þau einfaldlega myrt, oft á hinn óhugnanlegasta
máta. Í einu tilfelli hengdu þau tveggja ára dreng upp á
hvolfi og slengdu síðan höfði hans í vegg, þar til hann var
allur.
Systurnar voru handteknar í október 1996. Kiran var veiki
hlekkurinn og eftir þrýsting af hálfu lögreglunnar upplýsti
hann hana um hin ýmsu smáatriði í þessari skuggalegu
starfsemi. Systurnar neituðu sök og Anjanbai lést meðan
á réttarhöldunum stóð.
Þegar upp var staðið voru systurnar ákærðar fyrir níu morð
og sakfelldar fyrir fimm. Þær bíða örlaga sinna í fangelsi.
MANNFÓRNIR Í MATAMOROS
n Constanzo stundaði eiturlyfjasmygl n Sara María gekk í sértrúarsöfnuð hans
„Þegar við nálguðumst þá fann mað-
ur fnykinn … blóð og rotnandi líf-
færi. Í stórum potti voru líkamshlutar af
mönnum og geitarhöfuð með hornum.
Sara María
Aldrete Féll
fyrir Adolfo
og gekk í
söfnuð hans.
Adolfo
Constanzo
Stundaði mann-
fórnir til verndar
eiturlyfja smygli.
„Nganga“
Í stórum
potti voru
líkamshlutar
af mönnum.
Adolfo og Martin
Quintana Adolfo
vildi ekki lenda
lifandi í höndum
lögreglunnar.