Skessuhorn - 30.11.2005, Blaðsíða 15
gHÉSSUHŒH
MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 2005
15
Nýr framkvæmda-
stjóriíf
Ingimundur Birnir hefur tekið
við starfi forstjóra Islenska jám-
blendifélagsins ehf (Ij). Ingimund-
ur er efnafræðingur frá Háskóla Is-
lands og efnaverkfræðingur frá
Lund Tekniska Högskola. Stundaði
hann auk þess nám í rekstrar og
viðskiptaffæðum við Endurmennt-
tmarstofhun HI 1998. Að loknu
verkfræðinámi í Svíþjóð árið 1992
starfaði hann um fimm ára skeið
sem sérffæðingur hjá Islenska jám-
blendifélaginu. Frá 1997 til 1999
starfaði Ingimundur sem fram-
kvæmdastjóri framleiðslusviðs
Lyfjaverslunar Islands ehf. og firá
1999 til 2000 sem verksmiðjustjóri
Alpan ehf. Frá 2000 til 2003 sem
framkvæmdastjóri framleiðslusviðs
íj og ffá 2003 til 2005 sem fram-
kvæmdastjóri framleiðslu- og
tæknisviðs Ij.
Ingimundur er 43 ára gamall,
kvæntur Elínu Björkjóhannesdótt-
ur, nema. Þau eiga eina dóttur.
Johan Svensson fyrverandi for-
stjóri Islenska járnblendifélagsins
hefur tekið við starfi verkefnisstjóra
við byggingu rafskautaverksmiðju í
Mosjön í Noregi. Um er að ræða
viðamikið samvinnuverkefni Elkem
og Alcoa.
MM
Heimilt að fella niður
stimpilgjöld
í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir
árið 2005 sem kynnt hefur verið á
Alþingi er ákvæði þar sem heimilt
verður að fella niður eða endur-
greiða stimpilgjöld vegna endur-
fjármögnunar á lánum Spalar ehf.,
sem á og rekur jarðgöng undir
Hvalfjörð. Sem kunnugt er samdi
félagið við Islandsbanka hf. um
endurfjármögnun á lánum félagsins
fyrir um 3 milljarða króna í febrúar
á þessu ári. í ffamhaldi af því voru
veggjöld um göngin lækkuð veru-
lega. Vegna endurfjármögnunar-
innar voru gefin út skuldabréf sem
skráð eru í Kauphöll Islands. I
skráningarlýsingu sem birt var á vef
Kauphallarinnar kemur ffam að
þóknun umsjónaraðila og annar
kostnaður svo sem stimpilgjöld hafi
verið um 76 milljónir króna.
HJ
Snæfellsbær selur
fasteign á Hellissandi
Húsnæðisnefnd Snæfellsbæjar
hefur tekið kauptilboði í húseign-
ina að Bárðarási 3 á Hellissandi að
upphæð 7,1 milljón króna. Tillaga
kom ffam á fundinum um að ffesta
málinu en henni var hafnað. Það
vora Maria Florinda Peres og Karl
Thorleif Book sem lögðu fram til-
boðið. Formaður nefndarinnar
kynnti matsgerð frá Málflutnings-
stofu Snæfellsness ehf. vegna máls-
ins. Einn nefndarmanna, Þröstur
Kristófersson, lagði til að sölu hús-
eignarinnar yrði frestað þangað til
nefndin hefði skoðað eignina. Einn
greiddi tillögunni atkvæði, annar
greiddi atkvæði á móti en einn
nefndarmanna sat hjá. Tilboðið var
síðan samþykkt með tveimur at-
kvæðum gegn einu.
Húsið að Bárðarási 3 var byggt
árið 1968 og er rúmir 136 fermetr-
ar að stærð. Fasteignamat þess er
rúmar 8,3 milljónir króna og
brunabótamat er rétt rúmar 18
milljónir króna. Söluverðið er því
einungis 39,4% af branabótamati.
HJ
Frá vinstri: Ásgeir Asgeirsson, skrifstofustjóri SHA, MagnúsD. Brandsson útibússtjóri
og Guðjón Brjánsson, framkvœmdastjóri SHA.
SHA til Islandsbanka
i
Síðastliðinn föstudag skrifuðu
forráðamenn Sjúkrahússins og
heilsugæslustöðvarinnar á Akranesi
og útibússtjóri Islandsbanka á
Akranesi undir samning um banka-
viðskipti. SHA leitaði eftir tilboð-
um frá öllurb bankaútibúum á
Akranesi í viðskiptin og eftir yfir-
ferð á þeim ákváðu forráðamenn
SHA að taka tilboði ffá Islands-
banka. Samningurinn tekur ;:gildii
ffá og með 1. janúar 2006.- ! "
Ert þú ekki að missa af einhverju?
Áskríftarsíminn er 433 5500
www.skessuhorn. is
Fiskar / %e>* t
Fiiíflar t ** ^ k:m
úAföönog í£«í2f?aj;
fylgihlutum fyrir hesta, fugla,
fiska, nagdyr, hunda og ketti JSS&s*.
Furðufuglar og fylgifisfiar
Skólabraut 37 • Akranesí • sími 4313018
Iþrótta og
tískuföt
í úrvali
Tilvalin
íjólpakkana
borgorsport
hyrnutorgi - borgornesi - sími 437 1707
^ HANDVERKSBAKARI
Diqranesqöíii6 - Borqarnesi^sínii: 437 2020
Helgaríilboö:
Fullvéldiskaka kr. 890
, 2$ Kransahringur 550
Nýbökuð rúnstykki 2 fvrir 1 fró kl. 9-12
MargaLSortjfyafjSmákökum
Ljúfferígar lagtertur
Ekta ensk jólakaka
Laufabrauð
Opnunartím
IS^nuaagaTil; föstudaga kl. 9:00 -18:00
laugardaga og sunnudaga 9:00 -16:00