Skessuhorn - 22.11.2006, Síða 1
VIKUBLAÐ ÁVESTURLANDI 47. tbl. 9. árg. 22. nóvember 2006 - Kr. 400 í lausasölu
Tíundu bekkingar í Grunnskóla Borgarfjarðar héldu í starfs- og skólakynningaiferS til Reykjavíkur ogAkraness í liðinni viku. Til-
gangur ferðarinnar var að kynnast ólíkum starfsgreinum og ólíkum gerðum framhaldsskóla enda liggur fyrir þeim að íhuga og velja
síðan fratnhaldsnám nœsta vetur. Sjáfrásögn bls. 16. Ljósm. HSS
Vinna grunnskólabama
farin að bitna á námi þeirra
/ .... ■ \
Meðal
efnis:
Dramatík á
Bifröst.........Bls, 8
Skólastjóri á
teppinu.........Bls. 12
Sparisjóður í
víking..........Bls. 2
Of kalt fyrir
æfingar.........Bls. 23
• Lögregla í hæstu
hæðum..........Bls. 14
• Óbreytt
forusta XD........Bls. 6
• Lögregla skrifar
foreldrum.........Bls. 4
• Grenndargámar
fyrir rusl........Bis. 9
• Setti þrjú
drengjamet.....Bls. 22
• Sjóðheit
körfuboltalið ...Bls. 23
• Annir í ófærð...Bls. 24
• Sameining
styrkir SpOI...Bls. 10
• Fyrsti bíll sinnar
tegundar.......Bls. 10
• Meiri áhyggjur af
flokknum.......Bls. 6
• Endurskoða
skóiaakstur.......Bls, 2
• Sameining
tölvufyrírtaekja...Bls. 4
• Barnið alltaf í
fyrirrúmi......Bls. 11
• Hætta við
hækkun.........Bls. 16
• Umhverfismál
MS.............Bls. 15
ATLANTSOLIA
Dísel »Faxabraut 9.
Samhliða auknu framboði at-
vinnu í þenslu undanfarinna ára
hafa börn á grunnskólaaldri í vax-
andi mæli farið að stunda vinnu
samhhða námi og eru vísbendingar
um að það sé farið á bitna á námi
þeirra. I könnun sem ffamkvæmd
var á síðasta ári kom ffam að yfir
helmingur nemenda framhalds-
skóla stundar vinnu samhliða námi.
Slíkt þykir sjálfsagt mál enda í flest-
um tilfellum verið að tala um ein-
staklinga 17-20 ára. Sambærileg
vísindalega unnin könnun hefur
ekki verið gerð meðal yngri nem-
enda skólastigsins, þ.e. grunnskóla-
nemenda, svo vitað sé, enda ekki
þess að vænta að stór hópur þeirra
taki virkan þátt á vinnumarkaðin-
um. Slíkt er auk þess beinlínis ólög-
legt skv. Evróputilskipun sem Is-
lendingar hafa undirgengist. Vís-
bendingar eru nú uppi um að börn
í elstu bekkjum grunnskóla séu í
auknum mæli að taka að sér mikla
vinnu sem jafhvel er farin að bitna á
ástundun og námi.
I svokölluðum föstudagspósti
sem Elís Þór Sigurðsson, umsjón-
arkennari eins 10. bekkjar Grunda-
skóla á Akranesi sendi foreldrum
fyrir síðustu helgi segir hann m.a.:
„Sérkennilegt er hve margir nem-
endur eru farnir að vinna með
skóla; fara með strætó suður í
Smáralind, í Bónus Mosfellsbæ, í
Borgarnes og víðar og vinna þar
a.m.k. aðra hverja helgi. Mat mitt
er að þetta geti ekki gengið." Eh's
Þór segir í samtali við Skessuhorn
að algengt sé að nemendur geti
ekki skilað heimavinnu eða öðrum
verkefnum með viðimandi hætti því
vinnan kalli og við það bætist í
mörgum tilfellum álag vegna tón-
listarstarfs og ekki síður íþróttaiðk-
unar sem stundum krefst æfinga off
í viku. Elís Þór segir að nú sé svo
komið að hann hvetji foreldra og
uppalendur til að staldra við og
ræða þetta sérstaklega við börn sín
og hjálpi þeim við að skipuleggja
tíma sinn þannig að námið fái þann
tíma og sess í vinnudeginum sem
eðlilegt verði að teljast. )rMér of-
býður það þegar maður upplifir að
sjá nemendur sína í stórum hópum
við vinnu í öðrum sveitarfélögum,
vinnandi þar jafnvel langa vinnu-
daga á kvöldin og um helgar, en
þeir síðan beri fyrir sig tímaskorti
þegar ekki næst að skila verkefnum
sem fyrir þá eru lögð í skólanum.
Það hlýtur eitthvað að vera að í for-
gangsröðun."
Elís Þór segir að kennarar hafi
reynt að nálgast ástæður þess hjá
börnunum fyrir því af hverju þau
vinni svo mikið sem raun ber vimi.
Hann segir að svörin sem fáist séu á
þá lund að þau þurfi peninga til að
kaupa föt og kosta þá afþreyingu
sem þau vilji sækja. Þannig má segja
að lífsgæðakaupphlaupið svokallaða
sé farið að hafa neikvæð áhrif á eðli-
lega forgangsröðun grunnskóla-
barna.
MM
A myndinni eru hjónin Kjartan og Sig-
ríður Margrét, Jón Karl Ólafison, for-
maður SAF og Sturla Böðvarsson, sam-
gönguráðheira.
Landnámssetrið
fær nýsköpunar-
verðlaun SAF
Landnámssetur Islands í
Borgarnesi hlýmr nýsköpunar-
verðlaun Samtaka ferðaþjónust-
unnar (SAF) en verðlaunin voru
afhent við hátíðlega athöfh á
Hótel Holti í síðustu viku. I úr-
skurði dómnefndar segir að
Landnámssetrið hafi hlotið
verðlavmin fýrir vel útfærðar og
vandaðar sýningar sem efli
ímynd Islands og séu til þess
fallnar að auka menningar-
tengda ferðaþjónusm hér á landi
utan hins hefðbundna ferða-
tímabils.
Ástæða er til að óska þeim
hjónum Kjartani og Sigríði
Margréti til hamingju með
glæsilegt ffumkvöðlastarf og ný-
stárlega starfsemi í Borgarnesi
sem nú síðast endurspeglast í
þessari viðurkenningu Samtaka
ferðaþjónustunnar. MM
Fjárveitingum til
Sundabrautar
seinkað
Fjárveitingum þeim af sölu-
andvirði Landssíma Islands h£,
sem verja átti til gerðar Sunda-
brautar, seinkar um eitt ár sam-
kvæmt stjórnarfrumvarpi sem
lagt hefur verið fram á Alþingi.
Upphaflega var áætlað að verja
1.500 milljónum króna til verks-
ins árið 2007 og 2.500 milljón-
um króna árið 2008. Samkvæmt
frumvarpinu verður aðeins 100
milljónum króna varið til
Sundabrautar á næsta ári og
3.900 milljónum króna árið
2008.
Ekki tókst að ná sambandi við
Sturlu Böðvarsson, samgöngu-
ráðherra vegna málsins. HJ
niiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniii
•&SPM <
JrlVI SPARISJÓÐUR MÝRASÝSLU - HORNSTEINN I HERAÐI
Digranesgötu 2 • 310 Borganes » Síðumúla 27 * 108 Reykjavík • Sími 430 7500 • Fax 430 7501 • spm@spm.is • www.spm.is