Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2006, Side 8

Skessuhorn - 29.11.2006, Side 8
8 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 Fléttan valið nýtt byggðamerld Borgarbyggðar Fléttan ersögð verðugt merkifyrir Borg- arbyggð framtíðarinnar. Við hátíðlega athöfin í ráðhúsi Borgarbyggðar sl. miðvikudag voru kynntar niðurstöður dómnefndar í vali á nýju byggðamerki sveitarfé- lagsins Borgarbyggðar. Alls bárust 92 tillögur til nefndarinnar, en sam- staða var meðal nefndarmanna um að tdllaga Arnar Smára Gíslasonar bæri sigur úr bítum, en tillöguna kallar höfundurinn „Fléttuna." I umsögn dómnefhdar segir að merkið sé sérstaklega vel hannað. Formið er sterkt og afgerandi og nýtur sín jafht lítið sem stórt; hvítt á lituðum grunni sem í lit á hvítum grunni; jafnt í afmörkuðum fleti Þór Þorsteinsson fierir Emi Smára Gíslasyni hönnuði Fléttunnar verðlaun. sem utan hans. „Merkið er mjög sérstætt í flokki byggðamerkja. I stað þess að kalla sjálfkrafa ffam hugmynd um ákveðin einkenni t.d. í landslagi eða sögu eins og algengt er um slík merki, gefur það tilefni til fjölbreyttrar túlkunar og per- sónulegrar skírskotunar." Þá segir að höfundur merkisins, sem sækir formið í fomt fléttumynstur, hafi valið að hafa merkið þríeitt með til- vísun í menningu, menntun og sagnaarf héraðsins. I merkinu má líka sjá keiluform Baulu, Skessu- homs og Hafnarfjalls og boga Ei- ríksjökuls jafht sem gömlu Hvítár- brúarinnar. Það er tákn um sam- heldni og samvinnu íbúanna og um það hvernig ffamvinda mála veltur á þátttöku einstaklinganna. I merk- inu býr mikill kraffur og hreyfing en samt er það í fullkomnu jafii- vægi. Samofnir þættir þess sýna styrk sveitarfélagsins og þá festu sem hverju samfélagi er nauðsyn- leg. I niðurlagi umsagnar dóm- nefndar segir: ,,„Fléttan“ er verðugt merki fyrir Borgarbyggð framtíðar- innar.“ Asamt Þór Þorsteinssyni vora í dómnefnd um nýtt byggðamerki þau Bjami Guðmundsson, Sigur- björk Ósk Askelsdóttir, Bjarki Þor- steinsson og Ólafur Ingi Ólafsson og frá FÍT þeir Björn Jónsson og Atli Hilmarsson. Nýjar heimasíður opnaðar Þegar niðurstaða dómnefndar hafði verið kynnt um nýja byggðamerkið og verðlaun afhent, var ný heimasíða Borg- arbyggðar formlega opnuð á slóðinni www.borgarbyggd.is. Það var Nepal hug- búnaður ehf. í Borg- arnesi sem hannaði og vann nýja síðuna. Ymsar nýjungar er þar að finna ffá eldri útgáfum heimasíða sveitarfélaganna sem sameinuð vora í nýja Borgarbyggð sl. vor. Má þar nefha gagn- virkni og upplýsingasíður fyrir íbúa af erlendu bergi. Þá verða í tímans rás allar heimasíður stofnana á veg- um sveitarfélgsins hannaðar með sama yfirbragði og nýja heimasíða sveitarfélagsins. Við sama tilefni var Om Smári Gíslason, höfundur merkisins við merkið t Ráðhúsi Borgarbyggðar. Ljósm. ES heimasíða Grunnskóla Borgarfjarð- ar opnuð (www.gbf.is) og fyrr um daginn var heimasíða Menntaskóla Borgarfjarðar opnuð á slóðinni www.menntaborg.is MM Haukabergið kotnið eftir gagngerar endurbætur Gunnar Hjálmarsson, skipstjóri ásamt móður sinni Flelgu Þóru Amadóttur í brúnni. Ljósm. Sverrir Karlsson. Haukabergið SH-20 hefur verið í skipasmíðastöð í Póllandi ffá því síðla sumars þar sem ffam fóra gagngerar endurbætur á skipinu. Settur var á það skutur en við það gjörbreytist öll vinnuaðstaða aftur á dekld og skipið var lengt um tæplega 1,5 metra. Samfara þessum breyt- ingum til togveiða var sett ný Ca- terpillar aðalvél í skipið auk þess sem skipt var um stýri og skrúfu. Þá fékk Haukabergið kemur til hafnar sl. fóstu- dag. Ljósm. GK skipið andlitslyfidngu því sett var á það ný brú og endurbætur gerðar í matsal og eldhúsi. Haukabergið var smíðað á Akra- nesi árið 1974 fyrir Hjálmar Gunn- arsson útgerðarmann í Grundarfirði en byggt var yfir affurdekk þess árið 1997. Það er nú í eigu ekkju og af- komenda Hjálmars sem stofnuðu fyrirtækið Hjálmar ehf fyrir nokkrum árum. Að sögn Gunnars Hjálmarssonar skipstjóra mun sldp- ið halda til togveiða fljótlega. GK Hlaut verðlaun Myndstefe fyrir glugga Reykholtskir Forseti Islands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í síðustu viku Valgerði Bergsdóttir myndlist- armanni heiðursverðlaun Myndstefs fyrir árið 2006 við athöfii sem ffam fór í Listasafni Islands. Viðurkenn- inguna hlaut Valgerður fyrir hönn- un og gerð steindra glugga í Reyk- holtskirkju og fyrir sýningarnar Teikn og hnit og AND-LIT í Gerð- arsafiú fyrr á þessu ári. Jafnffamt var hún heiðruð fyrir fjölþætt störf á vettvangi íslenskrar myndlistar sem kennari, stjómandi og myndhstar- maður. Heiðursverðlaun Myndstefs, Myndhöfundarsjóðs Islands, nema samtals einni milljón króna og var þeim nú úthlutað í annað sinn. I umsögn dómnefiidar kemur ffam að í steinglersgluggum Reykholtskirkju nálgist Valgerðtu aldagamalt hst- form á nýstárlegan hátt með því að leggja ffemur áherslu á formteikn- ingu en htaspil. „Frjálslega teiknuð og samfléttuð hringform mynda þar meginstef Valgerður tekur hér við verðlaununum úr ásamt mismunandi blæbrigðum hhðstæðra litatóna. Valgerður er í hópi færustu teiknara og í þessu verki tekst henni að yfirfæra frjálst og leikandi handbragð yfir í miðil glersins á þann veg sem ekki hefur áður sést,“ segir meðal annars í álitri dómnefhdarinnar. Efnt var til samkeppni um verk- efnið árið 1992 þar sem tillaga Val- gerðar var valin til útfærslu. Lokið hendi Olafs Ragnars Grímssonar, forseta. var við hringglugga á austur- og vesturstafni árið 2003 og á 10 ára vígsluafmæh Reykholtskirkju í sum- ar voru langgluggar á hliðarskipum afhjúpaðir. Þykir dómnefndinni að Valgerði hafi tekist afar vel að fella verk sitt að andblæ og innra rými kirkjunnar svo úr verði órofa listræn heild, um leið og hún feti nýjar brautir á sviði glerlistar. HJ Framboðslisti Samfylking- arinnar í NV-kjördæmi Á kjör- dæmisþingi Samfylking- arinnar Norðvestur- k j ör d æ mi sem haldið var í Reykjaskóla í Hrútafirði um helgina kynnti kjör- nefnd tillögu sína að ffamboðslista flokksins fyrir þingkosningarnar næsta vor. Var tillagan samþykkt samhlóða. Efstu sæti listans eru þannig skipuð: 7. Vanaa Sigurgeirsdóttir, lektor Sauðárkróki 8. Jóhannes Freyr Stefánsson, húsa- smiður Borgarbyggð 9. Bryndís Friðgeirsdóttir, svæðisfull- trúi Isafirði 1. Guðbjartur Hannesson, skólastjóri Akranesi 2. Se'ra Karl V. Matthíasson, Reykja- vík 3. Anna Kristín Gunnarsdóttir, al- þingismaður Sauðárkróki 4. Sigurður Pe'tursson, bæjarfulltrúi Isafirði 5. Helga Vala Helgadóttir, laganemi ogf ólmiðlakona Bolungarvtk 6. Ragnhildur Sigurðardóttir, lektor og umhverfisfrœðingur Snæfellsbæ Sjö þeirra sem skipa m'u efstu sætin tóku þátt í prófkjöri sem ffam fór á dögunum. Þau Vanda og Jó- hannes Freyr eru hins vegar ný á lista ef svo má að orði komast. Á kjördæmisþinginu flutti Guð- bjartur Hannesson oddviti listans erindi. Á fundinum fór fram stefnumótunarvinna tmdir kjörorð- inu „Fram til baráttu næsta vor“. Jón Baldvin Hannibalsson fyrrver- andi utanríkisráðherra var sérstak- ur gestur fundarins. HJ Kristrún Lind og Sturla Böðvarsson. Kristrún Lind nýr aðstoðar- maður samgönguráðherra Kristrún Lind Birgisdóttir, að- stoðarskólastjóri Lindaskóla í Kópavogi, hefur verið ráðin að- stoðarmaður Sturlu Böðvarssonar, samgönguráðherra. Hóf hún störf í ráðuneytinu í þessari viku. Kristrún Lind er fædd 1971. Hún lauk kenn- araprófi ffá Kennaraháskóla Islands árið 1998 og ffamhaldsnámi frá KHÍ 2004. Hún hefur starfað sem kennari og skólastjóri, meðal ann- ars við Grunnskóla Onundarfjarðar og víðar, við ráðgjöf og kennslu hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarðar og sem verkefnisstjóri hjá menntamála- ráðuneytinu. MM

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.