Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2006, Qupperneq 18

Skessuhorn - 29.11.2006, Qupperneq 18
18 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 ..rviiin... ; Jólasamkeppni meðal grunnskólabama á Vesturlandi Jólasögur og jólamyndir óskast! Skessuhom gengst nú annað árið í röð fyrir samkeppni meðal grann- skólabarna á Vesturlandi í gerð jólamyndar og jólasögu. Annars- vegar býðst öllum börnum á aldrin- um 6-10 ára (1.-5. bekkur) að senda irm teiknaðar og litaðar myndir (A4) þar sem þemað á að vera Jólin. Hinsvegar býðst bömum á aldrin- um 11-16 ára (6.-10. bekkur) að senda inn jólasögu. Lengd jólasög- unnar má vera hálf til ein síða A4 með 12 punkta letri. Valdar verða 3 bestu myndimar og 3 bestu jólasögumar að mati dómnefhdar og verða þær birtar í Jólablaði Skessuhoms sem kemur út 20. desember. Veitt verða þrenn verðlaun í hvomm flokki og fær vinningshafinn í hvoram flokki stafræna ljósmyndavél í verðlaun af gerðinni Olympus Mju 700 með 7,1 milljón pixla upplausn, hreyfi- myndatöku með hljóði og 19 Mb innbyggðu minni. Fyrir 2. sæti í bvomm flokki verður veitt 10 þús- xmd króna gjafabréf og 5 þúsund króna gjafabréf fyrir 3. sætið. Skilafrestur í samkeppnina er 10. desember nk. Myndir skulu sendar í pósti á heimilisfangið: Skessuhom ehf., Kirkjubraut 54, 300 Akranesi og munið að merkja vel myndirnar á bakhlið þeirra (nafn, aldur, síma- númer, heimib og skóli). Jólasög- urnar skulu sendar á rafrænu formi í tölvupósti á netfangið: skessuhorn@skessuhorn.is og einnig þar þarf að koma fram nafn höfundar, aldur, símanúmer, heim- ili og skóli. Skessuhorn hvetur alla krakka á Vesturlandi til að taka þátt í þessum skemmtilega leik, senda okkur myndir og sögur og hver veit - þú gætir unnið! Gangi ykkur vel Góð öryggisráð í bytjunjólaföstu Jólin era tími kertaljósanna, raf- magnsseríanna, en því miður oft slysanna. Skessuhorn spjallaði við Bjarna Þorsteinsson, slökkviliðs- stjóra í Borgarnesi til að fá góð ráð varðandi hvað við getum gert á að- ventunni til að tryggja okkur, og þeim sem okkur þykir vænt um, gleðileg og slysalaus jól. Kerti og skreytingar „Nú er tími kertaljósanna að renna upp. Það er nauðsynlegt að sýna aðgát í meðferð óvarins elds og mjög mikilvægt að skilja böm aldrei eftdr ein við kertaljós. Það er mikil hætta á því að þau fari sér að voða, til dæmis með því að kveikja í hárinu á sér. Þegar kemur að skreytingum þá þarf að vanda und- irlagið og passa að kerti og annað í skreytingum sé stöðugt. Kerti og skreytingar með kertum mega ekki vera úti í gluggum. Það þarf svo lít- ið tíl, ekki nema smá flökt eða gegnumtrekk, að eldurinn læsist í gluggatjöldunum og þá er herbergi ekki lengi að verða alelda. Gardín- ur em líka úr þannig efhum að þær em oftar en ekki sérstaklega eld- fimar.“ Slökkvitæki og annar búnaður „Það þ^rf að láta yfirfara slökkvi- tæki heimilisins eigi sjaldnar en þriðja hvert ár. Það er allur gangur á því hvar þétta er gert en er oft á þjónustumiðstöðvum sem era í einkageiranum. Við bjóðtun upp á þessa þjónustu hér á slökkvistöð- inni í Borgamesi og við fáum tæki allsstaðar af Vesturlandi. Eldvam- arteppi á svo einnig að vera til stað- ar á hverju heimib. Þau hafa reynst mjög vel þegar eldur kemur upp í eldhúsum og sjónvarpstækjum," segir Bjarni. Reykskynjarar Hann segir að það sé góð regla að hafa reykskynjara í hverju her- bergi. „Nú era oft tölvur og sjón- vörp í herbergjum ungs fólks og þar verður að vera reykskynjari. Það er góð regla að fara í það núna á aðventu að skipta um rafhlöður í reyk- skynjuram og endur- nýja. Það er ekkert mál að verða sér úti um þessi tæki, reykskynjarar fást í byggingavöraverslunum eða sams konar deildum í verslunum. Við emm til dæmis með lítið þjón- ustuhorn hérna á slökkvistöðinni sen hef- ur vakið smá athygb og mælst vel fyrir þar sem hægt er að fá öll þessi öryggistæki. Reyk- skynjarar hafa marg- sannað gildi sitt og er besta líftrygging sem þú getur fengið. Það er ekki svo dýrt að endumýja þá, þetta em svona þúsund krónur fyrir eitt stykki.“ Seríur Bjarni segir að fólk verði að hafa það í huga að ofhlaða ekki fjöltengi. „Það er um að gera að kaupa viður- kennd og góð fjöltengi með jarð- Bjami Þorsteinsson. tengdri kló og svo er betra að hafa slökkvara á þeim. Það eiga allir að gefa sér tíma tíl að yfirfara seríurn- ar á heimibnu og athuga hvort þær séu orðnar gamlar og trosnaðar. Þá er bara að endurnýja þær, það kost- ar ekki mikinn pening í dag.“ Dreifum álaginu „A gamlárs- og aðfangadag er margfalt álag á rafmagnstöflum húsa. Það er tvöföld eða jafnvel þreföld notkun á við venjulega daga því allir em með seríumar í gangi og að vinna í eldhúsum. Ef fólk get- ur á einhvern hátt dreift álaginu þá er hægt að forðast bilanir svo albr hafi ljós.“ Komum í veg fyrir slysin „Það er mikilvægt að hafa þessa hluti í huga og sýna aðgát á þessum árstíma. Það er algjörlega óásættan- legt að það verði manntjón í elds- voða. Sem betur fer er fólk alltaf að verða meðvitaðra um þessi mál og tækin era líka endurnýjuð oftar og era vandaðri. Samt gerast sfysin og við verðum öll að gera okkar besta til að koma í veg fyrir þau. Hér hjá mér er alltaf til það nauðsynlegasta sem þarf til eldvarna fyrir heimibn. Ef einhver kemur í verslunarhug að luktum dyram er best að ná í mig í síma 437-2222,“ sagði Bjarni Þor- steinsson, slökkvibðsstjóri í Borg- arnesi að lokum. GG Tónleikamir verða í Reykholtskirkju, en með þeim erjafnan markað upphaf aðventu í Borgarfirði. Heilsum aðventu með gleði og fögrum söng Aðventutónleikar Tónlistarfé- lags Borgarfjarðar verða haldnir í Reykholtskirkju laugardaginn 2. desember næstkomandi og hefjast klukkan 20:30. Um árabil hafa þessir tónleikar verið samstarfs- verkefni Tónlistarfélagsins, Reyk- holtskirkju og Borgarfjarðarpró- fastsdæmis og sú hefð hefur skapast að halda þá á laugardagseftirmið- degi fyrir fyrsta sunnudag í að- ventu. Að þessu sinni reyndist þó nauðsynlegt að breyta tónleikatím- anum ffá því sem verið hefur og verða þeir því að kvöldlagi nú. Þessir tónleikar marka í huga margra Borgfirðinga upphaf að- ventu og hafa þeir ávallt verið vel sóttir. Meðal flytjenda á liðnum áram má t.d. nefria Kammersveit Reykjavíkur, Söngsveitina Fílharm- óníu, Karlakór Reykjavíkur, Op- erakór Hafnarfjarðar, Gradualekór Langholtskirkju auk fjölmargra þekktra hljóðfæraleikara og söngv- ara. Það er stjórn Tónlistarfélags Borgarfjarðar mikil ánægja að fá nú til bðs við sig bstamenn úr héraði, Kammerkór Vesturlands undir stjórn Dagrúnar Hjartardóttur. Kammerkórinn hefur á undanföm- um áram komið ffam við fjölmörg tækifæri innanlands og getið sér gott orð fyrir fágaðan söng. I vor hélt kórinn í sína fyrstu tónleika- ferð til útlanda og söng á tónleik- um í Lubljana, höfuðborg Slóven- íu. Einsöngvarar á aðventutónleik- unum verða úr röðum kórfélaga og undirleikarar era Jónína Erna Arn- ardóttir píanóleikari, Ewa Tosik- Warszawiak og Helga Steinunn Torfadóttir fiðluleikarar, Ornólfur Kristjánsson sellóleikari og Asgeir Steingrímsson trompetleikari. A tónleikunum í Reykholtskirkju flytur Kammerkór Vesturlands m.a. verk effir Johann Sebastian Bach, Georg Friedrich Handel, Andreas Hammerschmidt, Georg Phibpp Telemann og Febx Mendelssohn-Bartholdy auk þekktra laga sem tengjast aðventu og jólum. Tónleikunum lýkur með almennum söng; tónleikagestir taka undir með kómum og syngja lag Sigvalda Kaldalóns við hinn hugþekka sálm Einars Sigurðsson- ar í Eydölum Nóttin var sú ágæt ein. Tónleikarnir era öllum opnir meðan húsrúm leyfir. Aðgangseyrir er 1500 krónur fyrir þá sem ekki eru meðlimir í Tónbstarfélagi Borgarfjarðar og 1000 krónur fyrir börn og eldri borgara. I hléi verða kaffiveitingar í safhaðarsal Reyk- holtskirkju. (fréttatilkynning)

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.