Skessuhorn - 29.11.2006, Page 30
30
MIÐVIKUDAGUR 29. NOVEMBER 2006
^uisáunuiJi
Gamall draumur um bónda að rætast
Ármann Ármannsson, útgerðar-
maður og eigandi Mið - Fossa í
Borgarfirði vígir um næstu helgi
með formlegum hætti nýja reiðhöll
á jörð sinni. Um leið fær hesta-
mannafélagið Faxi og Landbúnað-
arháskóli Islands á Hvanneyri til
afnota aðstöðu til keppni, kennslu í
hestamennsku og námskeiðahalds.
Það dylst engum sem hafa átt
leið nálægt Mið - Fossum að þar
hefur staðið yfir gríðarleg upp-
bygging; fjósi og hlöðu hefur verið
breytt í hesthús fyrir 80 hross,
glæsilegur reiðvöllur hefur á liðn-
um árum litið dagsins ljós og í vet-
ur hefur á undra skömmum tíma
risið tilkomumikil reiðhöll. Aðal-
maðurinn á bak við þessar miklu
framkvæmdir er útgerðarmaður-
inn Ármann Armannsson. Blaða-
manni Skessuhorns lék forvitni á
að vita hver maðurinn væri, hvað-
an hann kæmi og hver væri fram-
tíðarsýn hans varðandi staðinn.
Við mæltum okkur mót í hest-
húsinu á Mið - Fossum og fljótlega
áttar maður sig á að Ármann er
ekki fyrir gauf af neinu tagi. Hann
er ffamkvæmdamaður, stundvís og
hefur í nógu að snúast. Við setjum
okkur niður í stórri kennslustofu
sem tilheyrir hesthúsinu, dreypum
á kaffi og fyrst er Ármann spurður
út í upprtmann.
Sveitapiltur á Skarði
„Ég er ættaður ffá Vestmanna-
eyjum, báðir foreldrar mínir voru
þaðan, en sjálfur er ég úr Reykja-
vík. Frá sex ára aldri fram á ung-
lingsár var ég í sveit á Skarði í
Landssveit og því vanur skepnum
af öllu tagi. Ég undi mér vel í sveit-
inni, vildi hvergi annarsstaðar vera
og fólkið þar var mér afar gott. Ég
hef alltaf sagt að í sveitinni lærði
maður að vinna, enda Skarð stórt
og myndarlegt bú og ekki þýddi að
koma sér undan verkum," segir
hann með áherslu. Armann heldur
áfram: „Þar vaknaði fyrst áhugi
minn á skepnum og sveitalífinu en
sjálfur stunda ég þónokkra hrossa-
rækt í dag.“ Aðspurður um hvort
einhver sérstök ræktunarstefna
höfði til hans fremur en önnur
svarar hann: „Ég er mikill Orra-
maður og á mörg folöld undan
honum en við getum sagt að þetta
sé fyrst og fremst áhugamál mitt
sem á eftir að þróast frekar.“
Vill að aðrir
njóti aðstöðunnar
En hvernig vildi það til að Ár-
mann kom sér fyrir á Mið - Foss-
um og hóf þar uppbyggingu?
„I upphafi keypti ég 35 hektara
lands af Gísla, fyrri eiganda Mið -
Fossa hérna hinum megin við veg-
inn þar sem við búum, ég og kon-
an mín Lára Friðbertsdóttir, en
seinna bauðst mér að kaupa jörð-
ina, greip það tækifæri og sé ekki
eftir því. Ég hef mikinn áhuga á
uppbyggingu staðarins, færa fram
mitt framlag til byggðarlagsins.
Mér finnst ekki sá kraftur í hesta-
mennskunni hér í Borgarfirði sem
vel gæti orðið.“
Athygli vakti þegar samningur
var gerður á milli Ármanns og for-
ráðarmanna Faxa að öll aðstaðan
sem félagið fær að nýta á Mið -
Fossum verður því að kostnaðar-
lausu sem verður teljast harla
óvenjulegt og höfðinglegt. Eina
skilyrðið sem sett var fyrir notkun-
inni var að vel yrði gengið um
staðinn og aðstöðuna. „Með samn-
ingnum vonast ég til
að hann geti orðið
lyftistöng fyrir félagið,
að t.d. barna- og ung-
lingastarf geti dafnað
með því að nýta reið-
höllina, reiðvöllinn og
aðra aðstöðu. Ég vil að
aðrir njóti þess sem ég
hef og get boðið upp
á,“ segir hann ákveð-
inn.
Jafnvel
Fjórðungsmót
„Ég er með fullt af
hugmyndum í höfðinu
um frekari fram-
kvæmdir og meðal
þeirra er t.d. að reisa
bústaði fyrir fólk sem
vill dvelja á staðnum, Armann Armannsson á Mið - Fossum.
hvort sem það væri að
sumar- eða vetrarlagi.“ Ég spyr Ár-
mann hvort stefna hans sé sú að
geta haldið Fjórðungsmót á staðn-
um og er greinilegt á svörum hans
að það sé ekkert loku fyrir það
skotið. „Það vantar nú ekki mikið í
viðbót til að svo geti orðið.“
Samstarfið við Lbhl á
Hvanneyri
Nýverið gerði Landbúnaðarhá-
skólinn á Hvanneyri samning við
Ármann sem gildir næstu 12 ár og
þar munu kennarar og nemendur
geta nýtt aðstöðuna undir kennslu,
hvort sem er verkleg eða bókleg.
„Oll verkleg kennsla fer fram á
Mið - Fossum hér eftir en sam-
komulagið tók gildi þann 1. októ-
ber sl. og má þakka það mikið
Ágústi Sigurðssyni, rektori á
Hvanneyri sem hefur haft mikinn
metnað fyrir þessu verkefni. Það er
sem betur fer allt annað viðhorf til
hesta og hestamennsku í skólanum
í dag og með bættri aðstöðu munu
þær áherslur eiga eftir að eflast enn
frekar, vona ég“.
Líður vel í sveitinni
,JVIér líður ákaflega vel í sveit-
inni og þrátt fyrir að eiga annað
heimili í höfuðborginni og stunda
vinnuna að stórum hluta þaðan,
erum við hjónin mikið hér upp frá
og hérna líður okkur best,“ heldur
hann áfram. „Það er svo ágætt að
losna undan Reykjavíkuráreitinu,
njóta náttúrunnar og kyrrðarinnar
með því til dæmis að ríða út eða á
einhvern annan hátt. Við förum
alltaf í nokkrar hestaferðir á sumr-
in ásamt góðum vinahópi og það er
eitt af því skemmtilegasta sem ég
geri.“
Ármann segir að þegar hann hafi
verið yngri langaði hann alltaf að
verða bóndi og uppbygging sú sem
hann stendur fyrir á Mið - Fossum
sé farvegur í þá átt. „Ætli ég kaupi
mér ekki dráttarvélar og tæki í
framtíðinni og fari að sjá um hey-
skapinn sjálfur, slá tún eins og í
gamla daga og rækta sveitadreng-
inn í mér,“ segir hann að lokum,
sposkur á svip, orðinn greinilega
óþreyjufullur eftir að geta haldið
áffam því sem þarf að gera, enda
líklegast af nógu að taka.
Við kveðjum í bili þennan mikla
framkvæmdamann. Minnum á at-
höfnina á laugardaginn, sem verð-
ur óneitanlega einn af stóru dög-
unum í hestamennsku í Borgar-
r
Fimmtudaginn 30. nóvember verða teknar
í notkun 3 grenndarstöðvar vegna
sorpflokkunar á Akranesi, þrír gámar á
hverjum stað. í einn fer bylgjupappi, í
annan dagblöð og tímarit og í þann þriðja
fara fernur, plastumbúðir, málmar og
skrifstofupappír, en í þann gám þarf
innihaldið að vera aðgreint eftir flokkum
og í glærum plastpokum til að auðvelda
flokkun.
Staðsetning grenndarstöðvanna er við
Samkaup Strax, Skagaver og Bíóhöllina.
Innihaldinu úr grenndargámunum er svo
ekið í flokkunarstöð Gámaþjónustunnar hf.
að Berghellu í Hafnarfirði og þaðan er því
komið í endurvinnslu bæði hér heima og
erlendis.
Hver er tilgangurinn með því að flokka sorp?
Það er fyrst oq Tr
vrst ogTremst umhverfis-og náttúrvernd. Stóran hluta sorps er hægt að endurvinna. Við
getum ekki endalaust urðað allt sorp því við höfum einfaldlega ekki nægilegt landrými og kostnaður
við urðun er einnig mikill.
Við hvetjum þig til að taka þátt í þessu verkefni
og setja Akranes í fremstu röð sveitarfélaga
í umhverfismálum og náttúruvernd.
Akraneskaupstaður
Umhverfisnefnd Akraneskaupstaðar