Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2006, Blaðsíða 34

Skessuhorn - 29.11.2006, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 Landbúnaðarháskóli á lida íslandi stýrir fjölþjóðlegu verkefni Konur kenna konum að auka lífsgæði í dreifbýli Þeir sem í dreifbýlinu búa hafa orðið þess varir að Lifandi landbún- aður, í samvinnu við Landbúnaðar- háskóla Islands og Bændasamtökin hefur verið að hvetja fólk í dreifbýl- inu til að taka þátt í ýmsum verkefn- um í gegnum fjarnám og staðamám, íbúunum sjálfum til heilla. Blaða- mann Skessuhoms langaði til að fræðast um hvað þessi verkefni ganga út á og hver væri kveikjan að öllu saman. Óveðursdag fýrir skemmstu, var sest niður í „gamla“ skóla á Hvanneyri og vom þær Asdís Helga Bjarnadóttir á Hvanneyri, verkefiússtjóri ffá LBHI og Ragn- hildur Sigurðardóttir á Álftavatni, verkefiússtjóri LL spurðar spjörun- um úr um fjölþjóðlegt verkefni sem snýr fyrst og ffemst að því að bæta hag kvenna í dreifbýli og spoma gegn því að fækki í sveitum. Gullið heima er svo verðmætt „Ásdís Helga Bjamadóttir er verk- efnisstjóri yfir fjölþjóðlegu verkefhi rtieð sex aðildarlöndum en hug- myndin er komin ffá Lifandi land- búnaði," hefur Ragnhildur viðtalið. „Upphafið að öllu saman er að kon- ur úr landbúnaði víðsvegar af land- inu hittust á hótel Glymi árið 2002 og ræddu hvað hægt væri að gera til að snúa við þeirri þróun að fólk sem byggir hinar dreifðu byggðir, flytur í burtu. Hvemig mætti gera gullið heima, þ.e. að hjálpa fólki til að sitja áffam jarðir sínar en auka tekjumar. Stundum þarf einungis smávegis að- stoð tdl þess að fólk fari í gang með að virkja þær hugmyndir eða mögu- leika sem þeirra umhverfi/jörð býð- ur upp á. I ljósi þessa landslags var ákveðið að ráða verkefiússtjóra Lif- andi landbúnaðar efrir neitunina en þó var ákveðið að skoða málin upp á nýtt, ráðinn var nýr verkefhastjóri og þá kemur Landbúnaðarháskóhnn inn í máhð,“ segir Ragnhildur. Lbhí leiðir verkefinið Leitað var til Landbúnaðarháskól- ans á Hvanneyri, sem nú heitir Landbúnaðarháskóli Islands, um samstarf. Hugmyndin var jú íslensk, ffá konum í íslensku dreifbýli. Lík- lega er þetta fyrsta Evrópuverkefrii sinnar tegundar sem Landbúnaðar- háskólinn sfyrir. Gefrim Ásdísi Helgu, verkeffús- stjóra orðið: „Á þessum tímapunkti var leitað til Landbúnaðarháskólans um hvort hann hefði áhuga á að koma að þessu verkefrii. Vinna um- sókn í samráði við Lifandi landbún- að og stýra verkefninu, ef jákvætt svar bærist ffá Leonardosjóðnum. Það var talið sterkara fyrir umsókn- ina og verkefnið í heild að hafa há- skóla í forystu. Og Landbúnaðarhá- skólinn á Islandi er einfaldlega beð- inn vegna þess að hugmyndin er ís- lensk, upphafið er héðan. Magnús B. Jónsson, þáverandi rektor, sam- þykkti beiðnina og fól mér að vera verkeffússtjóri. Fyrsta verkið var að fara í gegnum fyrri umsókn og móta verkefriið enn ffekar. Nokkrir fund- ir voru haldnir með fulltrúum Lif- andi landbúnaðar og einnig Bænda- samtökunum sem komu inn sem samstarfsaðilar. Leonardoskrifstofan hér á landi var líka afar hjálpleg og benti meðal annars á að hægt væri að sækja um ferðastyrk til að hitta þær þjóðir sem voru samstarfsaðilar í fyrri umsókn. Við sóttum um til að fara og hitta dönsku aðilana. Þeir höfðu mikla reynslu af því að vera með í öðrum Evrópuverkefhum svo Skelltum okkur á * Italann Og Ásdís Helga heldur áffam. „Leonardo skrif- stofan hér var búin að láta okkur vita að eiginlega vantaði land frá Austur Evrópu inn í verkefnið. Það væri betra fyrir um- sóknina að þjóðir ffá öll- um hornum Evrópu væru með. Á frindinum í Þýska- landi var staddur ítali sem hafði gífurlegan áhuga á svona verkefrii, þ.e. fjar- kennslu fólks í dreifbýfi. Hann var einnig í góðum tengslum við grasrótina á sínum slóðum og vanur að setja upp námskeið og vinnuhópa. Svo við skellt- um okkur á Italann,“ segir Ásdís Helga og brosir, „enda bráð- nauðsynlegt að fá karlmann inn í hópinn.“ Ragnhildur Sigurðardóttir á Alftavatni og Asdís Helga Bjamadóttir á Hvanneyri „Konur vilja ekki taka pátt í kapphlaupi á hotninn, “ segir Ragnhildur Sigurðardóttir. andi landbúnaðar sem átti m.a. að sækja um styrk í starfsmenntasjóð Leonardo, einn af sjóðum Evrópu- sambandsins, til að koma á fót fjar- kennsluverkefni fyrir dreifbýlið. Konunum fannst að til þess að ná settum markmiðum um að breyta ríkjandi menningu og að auðvelda fólld í dreifbýh að sækja sér mennt- un heima, yrðu þær að komast í stærra samhengi, fara í samvinnu við fleiri þjóðir. Verkefiússtjórinn var kominn í samstarf við önnur lönd í Evrópu og allt leit vel út, þegar veik- indi verða til þess að aðrir urðu að klára umsóknina og senda hana. Umsókninni var hafriað. Hinsvegar fannst skrifstofu Leonardo hér á landi hugmyndin svo góð, þ.e. fjar- menntun fyrir dreifbýlisfólk, að hún hvatti Lifandi landbúnað til að senda inn umsókn að nýju. Nokkur vindur var úr seglum kvenna í stjórn Lif- það var akkur fyrir verkefriið að hafa þá með. Jafnvel yrði hægt að ganga frá umsókninni með aðstoð þeirra. Á þessum tímapunkti voru samstarfs- aðilar frá Tékklandi, Slóvakíu, Þýskalandi, Danmörku ásamt þrem- ur aðilum ffá Islandi, þ.e. Landbún- aðarháskólinn, Bændasamtökin og Lifandi landbúnaður. Þegar verið er að vinna umsóknina fyrir farar- styrknum kemur í ljós að Danimir ætla til Þýskalands til að hitta annan hóp sem þeir voru í samstarfi við á svipuðum nótum. Við fengum farar- styrkinn og vorum úti í viku. Fórum til Danmerkur, hittum þar m.a. danskar bændakonur og fórum síðan með Dönunum til Þýskalands á vinnufund. Það var afar athyglisvert því þar var staddur úttektaraðili ffá Evrópusambandinu svo við sáum hvernig sú vinna fór fram.“ Mikil vinna að koma umsókn í gegn Nú var búið að hitta hluta af sam- starfsaðilunum og þá hófst vinnan við umsóknina. Mikil vinna lá í tmd- irbúningi og launaðir starfsmenn gerðu gæfumuninn. ,Að koma umsókn í gegn er milril vinna,“ segir Ragnhildur. „Við fór- um í þessar frumheimsóknir, sem Ásdís sagði ffá áðan, til þess að finna hvar straumamir lágu, áður en um- sóknin var sett af stað. Hitta fulltrú- ana sem ætluðu að vinna með okkur, læra tungumálið sem á að nota við umsóknimar og annað eftir því. Það þarf að vera búið að ganga ffá öllum endum. Hvaða þjóð gerir hvað og hvemig. I raun þarf allt verkeffúð að figgja ljóst fyrir áður en hægt er að sækja um. Sjóð- urinn styrkir nefiúlega ekki hugmyndir, heldur vinnu- plön sem á að ffamfylgja. Það var ómetanlegt að fá Landbúnaðarháskólann inn í þetta verkefiú," bætir Ragnhildur við. „Háskóla- stofnanir hafa mikil áhrif og ekki síst á umhverfið í kringum sig og líklega mun meira en margur ger- ir sér grein fyrir. Og ef þú ætlar að vinna svona vinnu í sjálfboðastarfi, þá er það fyrirffam dauðadæmt. Sú staðreynd að Landbúnað- arháskólinn lagði til starfs- mann til verkefnisins, ásamt Bændasamtökunum varð auðvitað til þess að hægt var að vinna þetta áfram. Og svo auðvitað að ffum- kvöðlarnir, Lifandi landbúnaður, skyldu hafa efrii á því að ráða verk- eftiisstjóra fyrir sinn hatt, þó ekki væri nema í 20% starf.“ Islenska aðferðin virkar Ekki er hægt að sigra heiminn á einni viku. Hvemig gekk að klára þetta allt á meðan dvalið var erlend- is? Þær stöllur skellihlægja að endur- minningunni um það, en síðan segir Ásdís Helga: „Eklri er hægt að neita því að við vomm komnar með hnút í magann. Þegar við komum aftur til Dan- merkur var bara einn dagur eftir af dvöl okkar þar og ósköp fá orð kom- in á blað, nema okkar eigin. Við viss- um ekki hvemig við ættum að klára. Við ætluðum að vinna þetta með Dönunum, setja allt í afmarkaða vinnupakka og svoleiðis. En íslenska Frá Vinnujundi í Flórens. aðferðin virkar vel. Það var bara sest niður, allt sett á blað sem við átti að eta, eins og sagt er, og máhð klárað, allt á einxun degi. Umsóknin komin. Hugmyndin ffá Glym komin á blað. Búið að sækja um styrk fyrir tveggja ára verkefni. Ekki má gleyma því sem áður hefrir komið ffam að Dan- imir hafa mikla reynslu af svona samstarfcverkefrium, þannig að þeir kunnu tungumálið sem þarf að nota. Við höfðum hins vegar bjartsýnina sem okkar stærsta vopn sem fleytir okkur langt.“ Hrópin glumdu um Hvanneyrarstað Löng finnst þeim biðin sem bíður. „Við vomm alveg vissar um að umsóknin rynni í geng,“ heldur Ragnhildur áffam, „eftir vinnuna með Dönunum. Og við fundum al- veg taugina, ffá fundinum á Glymi 2002, sem lá yfir þessu öllu saman. En auðvitað er ekkert fast í hendi fyrr en svar kemur og það glumdu húrrahrópin á Hvanneyrarstað þeg- ar já-ið kom frá Leonardo 7. júlí 2005, það var ótrúleg stemning. Þá strax byrjaði hin mikla vinna að setja verkefnið sjálft á koppinn og fyrsti frindurinn var haldinn í Þýskalandi í byrjtm október, sama ár.“ Og Ásdís Helga bætir við. „Það em mikil fjármunir í þessu. Heild- arkosmaður verkefnisins er um 40 milljónir og af því veitir Leonardo um 28 milljónir í styrk. Því varð skólinn að gera samninga við hvern aðila fyrir sig, hvernig átti að skipta þessari köku og hver átti að vinna hvað. Hluti fer í laun, annað í vinnslu gagna og annað eftir því. Einnig var ákveðið hvenær yrði greitt út fyrir einstaka verkhluta. Landbúnaðarháskólinn gerði líka samning við Leonardo skrifstofuna varðandi utanumhald verkeffúsins, að standa sig, bæði gagnvart sam- starfsaðilum og einnig skrifstofunni sjálfri. Allir samningamir, við sam- starfsaðilana voru undirritaðir á þessum fyrsta fundi. Yfir 20 kyimingarfundir á einum mánuði Eitt og annað er hægt að gera á Islandi, vegna smæðar þjóðarinnar, sem erfitt er annars staðar. Eldmóði og bjartsýni okkar er viðbragðið. En það em ekki allir eins og við. „Líklega hefur það verið okkur til góða að við vissum ekki nóg hvað við vomm að fara út í. Við Islend- ingar spáum yfirleitt ekkert í svona hluti fyrr en eftir á. Hellum okkur bara í það sem þarf að vinna,“ segir Ragnhildur og skellihlær. „Við komum fullar af bjartsýni og eld- móði inn í samfélag sem er mikið Mynd Theodára Ragnarsdóttir formfastara en okkar. Fyrst vom allir auðvitað stífir en mikill munur var á milli frinda og þegar á leið hafði þessi íslenska bjartsýni smitað út frá sér. Við Islendingar erum hjartað í verkefninu, þetta er okkar hugmynd og brennandi áhugi Is- lendinga hefur gert málin einfald- ari. Fyrsta verkeftiið sem aðilar- löndin fóm með heim var að gera tvennt. Annars vegar virkja eða stofria tengslanet kvenna í dreifbýl- inu og hins vegar að gera þarfa- greiningu og vegna smæðar okkar er svo margt hægt hér. Við Ásdís Helga ásamt starfsmanni Bænda- samtakana sem kynnti verkefnið Sóknarfæri til sveita, fórum hring- ferð, héldum um 23 fundi um allt land. Við treystum það tengslanet sem til var, fengum duglegar konur til að vera fykilkonur á sínum lands- svæðum og kynntum okkur hvaða nám konur vilja helst smnda. Hér er nándin svo mikil að hægt var að virkja ótrúlega margar konur. Þetta var gert í öllum löndunum en þar er auðvitað ekki allt landið undir, heldur frekar hérað. Þýskaland er t.d. svo stórt að svona vinna væri ógemingur ef ætti að skanna allt landið í einu. En félögum okkar úti, fannst mikið til koma hvemig við leystum þetta,“ segja þær stöllur. Menntun virðir engin landamæri Á öðmm fundi, sem haldinn var í Prag í febrúar á þessu ári þá var staða kvenna í öllum löndunum kynnt. „Það er alveg ótrúlegt hvað þarf- irnar em svipaðar á milli landa," byrjar Ásdís Helga. „Viðfangsefnin era þau sömu en leiðimar era ólík- ar að markmiðinu. Þar spilar líka inn í mismunandi menning land- anna og fjárhagsstaða fólks. Sömu hlutir brenna á íbúum í dreifbýli allra þessara landa. Því var fyginni líkast hversu vel gekk að búa til námspakkanna, þótt um mismun- andi þjóðir væri að ræða. Staða dreifbýlisbúa er víða mun verri en hjá okkur. Sem dæmi má nefria að á Italíu er lítið um ráðgjöf til bænda og engin eiginleg Bændasamtök. Oll ráðgjöf er einkarekin og svo dýr að bændurnir hafa ekki ráð á að kaupa sér hana. Einnig era bændur bara rétt að byrja að eignast landið, sem þeir nytja, og víða er það síðan tekið af þeim eignarnámi undir járnbrautir og vegi óháð því hversu gæði landsins era mikil.“ Lifandi landbúnaður búinn að finna farveg Nú er ævintýrið að byrja og prafukeyrsla þegar átt sér stað á Is-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.