Skessuhorn


Skessuhorn - 29.11.2006, Síða 38

Skessuhorn - 29.11.2006, Síða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006 §K2SSUli©BKj l/ÍHiAht’tfiið Gleðileg þvt gefiir jól - guð@himnum.com Fyrir nokkrum árum sendi Björn Þórleifsson skóla- stjóri á Akureyri ættingjum sínum og vinum jólakvæði sem oftar og þar í mun vera að finna þetta erindi um að- ventuna: Sumra athygli beinist að glimmer og greinum, glansandi skrauti og laglausum jólasveinum, sem textalaus jólalög kyrja kynlegum róm og kunna við það að birtast á strigaskóm. Þetta erindi minnir mig á ungan mann sem fyrir mörgum árum var staddur á jólatrésskemmtun og varð reiður mjög því ófétis jólasveinninn hafði „stolið bæði gítarnum og stígvélunum hans pabba“. Mátti móðir drengsins standa í ströngu að halda honum frá því að ganga í að endurheimta þessa muni en faðir hans hafði einhverra hluta vegna þurft að bregða sér frá um stundarsakir. Raunar er alveg merkilegt hvað þessi þjóð á mikið af jólasveinum og það í öll- um merkingum orðsins og ennþá merki- legra hvað það er mikið til af Jóla - ein- hverju sem við vissum ekki að væri lífs- nauðsynlegt fyrr en kaupmennimir voru svo góðir við okkur að upplýsa okkur þar um. Hallmundur Kristinsson orti ein- hvemtíman undir auglýsingalestrinum: Gerir mýkra geðið mitt og göngu dagsins létta. Jóla þetta og jóla hitt, jóla hitt og þetta. Hallmundur setti þessa vísu inn á „Leirlistann" og lét þess getið að vel hefði verið við hæfi að nota þarna brag- línuna „ekki er því að leyna“ sem hagyrð- ingar tala gjarnan um sem stórkostlegan hortitt eða einhvers konar superklúður. Sæmundur Bjarnason greip hugmyndina á lofti og bætti við: Eykur gleði útvarpsgarg, ekki er því að leyna. jóla hitt og þetta þvarg - þú veist hvað ég meina. Hvað sem líður auglýsingaflóðinu sem óneitanlega er tengt jólunum mun óhætt að fullyrða að hin fyrstu jól hafa verið allverulega frábrugðin þeim sem nú þekkjast. Barnaskólakennari einn sem þótti stundum óheppinn í orðum var að tala við nemendur sína og sagði: „Kannske hefur Jósef gefið Jesú lítinn bíl eins og pabbar ykkar gefa ykkur í jóla- gjöf.“ Af þessu tilefni kvað Rósberg Snæ- dal: Gullum missti ekki af, oft þó brysti skilning vina. Jesú Kristi á jólum gaf Jósef fyrstu bifreiðina. Mjög er það misjafht hvernig prestum tekst tál með ræður, svo á jólum sem í annan tíma enda raddstyrkur þeirra og flumingsmáti vissulega einnig misjafn. Rósberg Snædal hlýddi eitt sinn á pré- dikun hjá séra Finnboga Kristjánssyni í Hvammi en honum lá ekki hátt rómur: Rýfur ekki rómur þinn rjáfur kirkjuþaka. Viljann fyrir verknaðinn verður guð að taka. Ekki veit ég hvort menn stunda það enn að bera saman ræður og ræðustíl presta en Gestur Einarsson ffá Hæli bar saman ræður tveggja presta á eftirfarandi hátt: Annar lapskáss bar á borð og beinakex fyrir drottins orð, en hangikjöt og harðan fisk hinn kom með á silfurdisk. Á sama hátt er oft töluverður munur á því hvað prestar leggja mesta áherslu á í ræðum sínum og um einn ágætan klerk var sagt að hann litd sömu augum á hemptma og sannleikann, hvort tveggja væri of hátíðlegt til hversdagsbrúks. Við útgöngu úr sóknarkirkju sinni kvað Gestur Olafeson á Akureyri: Athuga þinn innri mann, er þar líkt hjá flestum. Sumir trúa á sannleikann, sumir trúa prestum. Þó kirkjusókn sé eins og gengur mis- jöfii við venjulegar messur má heita ör- uggt að allar kirkjur séu fullar af fólki á jólunum. Stefán Stefánsson frá Móskóg- um hafði þetta að segja um erindi kirkju- gesta, væntanlega þó á almennum sunnu- dögum: Kynslóðirnar koma og fara, klerkarnir af trúnni státa, en kerlingarnar koma bara í kirkju til að hósta og gráta. Guðffæðin mun vera merkilegt fag og ýmsar kenningar í gangi innan þeirrar ffæðigreinar þó ég hafi nú í einfeldni minni haldið að guð væri sá sami fyrir alla. Séra Jón Ragnarsson hlýddi á predikun hjá ónefhdum prestd sem vitn- aði óspart í þekktustu guðffæðinga sam- tímans og nokkra láma líka: Cuðspjallið út hann lagði af list, Ijóss var það bjartur geiri. Vitnaði bœði í Kung og Krist - og kannaðist við þá fleiri. Hálfdan Á. Bjömsson hafði þetta að segja um þá ágætu menn sem gera auka- atriðin að aðalatriðum, hver sem trú þeirra annars er: Það finnast enn farísear, frœðanna totta snuð, trúa á trúarbrögðin, taka þau fyrir guð. Það er nú svo með blessaða prestana sem aðra dauðlega menn að á einhverjum tímapunkti lýkur starfsævi þeirra. Um það leyti sem séra Emil Björnsson fór á eftirlaun hittust þeir Stefán Jónsson fréttamaður og ræddust við um stund og kom ffam í samtali þeirra hin sterka trú séra Emils og jafhffamt það að nú væri hann sestur í helgan stein. Þá orti Stefán: Ekki bilar enn hans trú, endast mun til loka. Séra Emil segist nú sestur í helgan poka. Undirbúningur jólanna hefur löngum reynt á taugar og tékkhefti okkar meðal- jónanna hvað þá á húsmæður sem gera örvæntingarfullar tilraunir til að tæma verkefnalistann áður en klukkan slær sex á aðfangadagskvöld þó stundum hafi manni dottið í hug að jólin kæmu nú fyr- ir því, enda orti Sigmundur Benediktson á Akranesi: í Mammonsveldi kærleiks hugsjón kól, það knýr á fast að lýður glysið borgi. Þó meistarinn gæfi máttug ffiðarjól, maðurinn gerði þau að sölutorgi. Björn Ingólfsson á Grenivík hefur greinilega verið búinn að búa sig vel undir jólin þegar hann orti: Ég er búinn að skreyta allan bœinn og búa mér vel í haginn, en verra er hitt að veskið mitt það verslaðist upp hérna um daginn. Sverrir Stormsker hefur greinilega verið að velta fyrir sér tilganginum með öllum þessum fyrirgangi í mannskepn- unni þegar hann orti: Flest hér virðist feta sama stig, fcestir vilja að náunganum hyggja. jörðin snýst í kringum sjálfa sig. - Sömuleiðis þeir sem hana byggja. Fyrir allmörgum árum, á upphafcárum kortabyltingarinnar flutti Hörður Þór- leifeson brag í góðra vina hópi um það merka fyrirbrigði VISA kortið sem bar nafiiið „Korthafans kæti og raun.“ VISA fyrirtækið komst á snoðir um tilvist bragsins og fékk leyfi til að prenta hann á jólakveðju fyrirtækisins. Starfcmenn voru byrjaðir að senda út jólakveðjur þegar forráðamenn fengu bakþanka og létu eyðileggja upplagið. I ffamhaldi af því mætti Hörður í viðtal í útvarpsþætti og varð heimsffægur í einn dag og líklega hafa fá skáld á Islandi fengið ljóð sín prentuð í níutíuþúsund eintökum til þess eins að vera síðan eyðilögð: Plastið er það ágœtt eitt, ég ekki þarf að borga neitt, efnahagsundur er oss veitt ef nýtti ég það sem bœrí. Með VISA söng í veskinu mínu hrœri. í bankakerfi að bót var gcett, blessað fólkið var svangt og mcett, kœtist nú gjörvöll Adams œtt og korti þeir veifa á fœri. Með VISA söng í veskinu mínu hrceri. Févana hreppa fögnuð hér, finna þeir björg í Desember, upplitsdjarfir um allt vort sker ofgnótt þeim plastið fceri. Með VISA söng í veskinu mínu hrœri. Lofum við kortsins mikla mátt, með því höldum jólin sátt, mörgum verður í maga brátt mikið af þessu lceri. Með VISA söng í veskinu mínu hræri. Þó gjör'ég oss von til úrlausnar, allt verði gott í Febrúar, í mínu hjarta ei veit par hver úrbótin skuldar væri. Með VISA söng í veskinu mínu hræri. Umbúðir allar út ég ber, ótta hrollur um húð mér fer, tek ég nú trúna nœrri mér tigna ég þig minn kæri. Með VISA söng í veskinu mínu hrœri. Yfir mig breiðist óttinn snar, æ meir er líður janúar, emja ég fullur iðrunar ei mig um kort nú kæri. Með VISA söng í veskinu mínu hrœri. Hermann Jóhannesson frá Kleifum frétti af manni sem eins og fleirum gekk dálítið illa að ná endum saman og greip þá til þess ráðs að lána sjálfum sér úr sjóði sem hann hafði umsjón með en upp komast tæknileg mistök um síðir og lá maðurinn undir töluverðu ámæli fyrir tiltækið. I tdlefhi þess kvað Hermann: Oft verða þeir loðnir um lófana sem leiðast í slagtog við þjófana. En ekki er þó greið til gróða sú leið og áhœttusöm fyrír óvana. Sjálfur er ég alinn upp á þeim tíma þegar epli fengust aðeins fyrir jólin og voru óaðskiljanlegur hluti þeirra. Kannske ennþá fasttengdari þeim í huga mínum en rjúpur eru hjá mörgum sem geta ekki hugsað sér jól án þeirra. Mér er enn í minni hvað ég varð reiður og hneykslaður 9 eða 10 ára pjakkur þegar ég ffétti að það ætti að fara að selja epli á öðrum árstímum. Slíkt var í mínum huga algjör eyðilegging á jólunum og ekkert annað. Reyndar veit ég ekki hvort böm em yfirleitt glaðari á jólum nú en á þeim tíma þó jólin stæðu þá aðeins í þrjá daga og aðventan hefði ekki þá stöðu sem hún hefur í dag. Allavega er mikill sannleikur í þessari vísu Sverris Stormsker: Óljós draumur djúpt í hvers manns geði drífur áfram lífið, fært í hlekki. Vonin eftir varanlegri gleði er varanleg - en það er gleðin ekki. Stórhátíðir hafa gjaman verið notaðar til tímasetningar ýmissa merkisviðburða á mannsæfinni og Guðmundur Sigurðs- son sendi vini sínum sem gifti sig á að- fangadagskvöld eftirfarandi heillaóska- skeyti. Ó, hvílík dýrð, er dagsins sól í djúpið leitar heims um ból og blómarós á brúðarkjól oss boðar náttúrunnar jól. Það em líklega milli 30 og 40 ár síðan einhver kaldhæðinn náungi setti saman eftirfarandi jólastemningu og kannske má finna samsvöran enn ef vel er gáð: Nú eru jól við norðurpól, norpa í skjóli rakkar. Herlega góla „Heims um Ból" heiðnir skólakrakkar. Jólin era heldur ekki öllum sífelld ánægja og gleði enda misjafnar aðstæður manna. Theódóra Thoroddssen orti: Fýkur í skjólin, skerpast hret, skefur af hól og grundum. Vart til sólar séð ég get, svona eru jólin stundum. Jólin era hátíð fjölskyldunnar og geta verið erfið þeim sem einhverra hluta vegna verða að vera einir og fjarri ástvin- um sínum. Á jólakvöld 1918 sat Jón S Bergmann einn með ketti sínum og orti: Þegar hríðarhretin svört himin byrgja öðrum, sé ég ávalt bjarma björt blik á skýjajöðrum. Þótt mér bregðist hyllin hlý hæfir ekki að kvarta, meðan ég á ítök í einu kattarhjarta. Við skulum svo ljúka þættinum með þessari ágætu vísu effir Stefán Vilhjálms- son: Nú er hátíð heims um ból og hœfir ekki að vera domm, gleðileg því gefur jól gud@himnum. com Með þökk fyrir lesturinn, Dagbjartur Dagbjartsson Refsstöðum, 320 Reykholt 5 849 2715

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.