Skessuhorn - 29.11.2006, Side 42
42
MIÐVIKUDAGUR 29. NOVEMBER 2006
.■.fcWIIH... I
*
í
Öm Ingi sér enga þröskulda þegar Grundfirðingar em annars vegar
Heimildamynd firumsýnd um bæjarhátíðina A góðri stundu
Fjöllistamaðurinn Örn Ingi
Gíslason er ekki við eina íjölina
felldur þegar kemur að listgreinum
og hefur daðrað við margar þeirra.
Upphaflega byrjaði hann sem
myndlistarmaður en einnig hefur
hann komið nálægt leiklist, list-
rænni stjórnun, námskeiðahaldi,
kvikmyndagerð og fleiru. Fyrir
skömmu frumsýndi hann, í sam-
starfi við Grundafjarðarbæ, heim-
ildamynd sína um sumarhátíð
þeirra „A góðri stundu,“ sem hann
tók upp sl. sumur. Auk þess er í
farvatninu hugmyndir um frekara
samstarf hans og bæjarins um
leikna kvikmynd á erlendri
grundu. Skessuhorn sló á þráðinn
til Arnar Inga, krafði hann svara
um hann sjálfan, hvernig áhugi
hans á Grundfirðingum hefði
komið til og af hverju hann héldi
því fram að Grundfirðingar væru
íslandsmeistarar?
Andsvar við stöðnuðum
formúlumyndum
„Ég hef komið víða við í listum
en byrjaði upphaflega sem mynd-
listarmaður og í mörg ár hef ég
rekið myndlistarskóla hér á Akur-
eyri. Þrátt fyrir að ég sé ekki með
menntun á bak við mig sem kenn-
ari né í listum almennt, hefur því
verið vel tekið sem ég hef haft að
segja. Það kemur vissulega fyrir að
ég finni fyrir hornauga fagaðila en
það skiptir mig engu máli, ég sé
enga þröskulda yfirleitt í lífinu né á
því sem mig langar að taka mér
fyrir hendur." Örn Ingi hefur
einnig tekið að sér leikstjórn, æv-
intýranámskeið fyrir krakka, heim-
ildamyndagerð, en stærsta verk
hans til þessa verður ótvírætt að
teljast kvikmyndin hans í fullri
lengd, Flóttinn, sem var ffumsýnd
á Akureyri í maí sl. „Sú mynd hafði
að skipa 40-50 leikendum og fékk
fína dóma hjá Ólafi Torfasyni,
kvikmyndagagnrýnanda RUV.
Hún fékk þrjár stjörnur, sem verð-
ur að teljast afar gott og ég er mjög
lukkulegur yfir. Ég held að það sé
kominn mikill leiði á því úrvali
sem kvikmyndahús höfuðborgar-
svæðisins hafa verið að bjóða upp á
undanfarin ár og eru mínar mynd-
ir liður í andsvari við þeim stöðn-
uðu formúlumyndum."
Tilviljun réði
Grundarfirði
En hvernig kom það til að Örn
Ingi kynntist Grundfirðingum og
fór að kvikmynda sumarhátíðina
þeirra; Á góðri stundu?
„Ég hef farið víða um land og
gert heimildamyndir um mannlífið
í kringum landið hér og þar en á
Grundarfjörð kom ég frekar óvænt
og meira af tilviljun. Þá stóð hátíð-
in þeirra í fullum blóma og fljót-
lega eftir að ég kom á svæðið fór ég
að kvikmynda það sem fyrir augum
bar. Þar sem ég er að mynda, vind-
ur sér að mér kona, kynnir sig og
býður mig velkominn. Þetta
reyndist vera Björg Ágústsdóttir,
sem þá var bæjarstjóri, og eftir smá
viðkynningu, ræður hún mig í
vinnu við að gera heimildamynd
um hátíðina en einnig að halda æv-
intýranámskeið fyrir krakkana árið
eftir.“
Leyfa sér að
vera bamalegir
Örn Ingi tók upp hátíðina árið
2005 og í upphafi byggði hann
myndina upp sem „grafalvarlega
heimildamjnd," eins og hann seg-
ir sjálfur. Árið eftir hafi hann hins-
vegar komið ásamt fjórum öðrum,
tekið upp af krafti, bæði hátíðina
sem slíka, spjallað við fólkið, ásamt
því að ramma inn myndina með
tilkomumiklu landslaginu í kring
og sá að þannig myndi kvikmyndin
koma best út. „Sko, Grundfirðing-
ar eru hreinlega íslandsmeistarar
hvað hátíðarhöld snertir hér á Is-
landi. A góðri stundu, er ein sú
besta hátíð sem ég hef upplifað hér
á landi og hef ég farið á þær marg-
ar.“ Aðspurður um af hverju hann
haldi því fram, segir hann: „Þarna
leyfa menn sér einfaldlega að vera
dálítið barnalegir. Þáttaka allra
bæjarbúa er mikil og keppni í
Fjöllistamaðurinn Öm Ingi ogfrú.
Bína
bálreiða
Ný barnabók eftir Asthildi Bj.
Snorradóttur er komin út. Bjarni
Þór Bjarnason myndskreytti. Þau
eru bæði kennarar við Brekkubæj-
arskóla á Akranesi.
I sögunni kemur fram að Bína er
oft reið vegna þess að hún kann
ekki rétta hegðun. Stundum kastar
hún sér í gólfið og öskrar. I bókinni
er sagt ff á því að Bína lærir ýmislegt
gagnlegt og þá líður henni mikið
betur. Bókin er ætluð 2.-5. ára
börnum. Hún styrkir boðskipta-
fæmi og kennir litlum fjörkálfúm
betri hegðun og er sögð góð bók
fyrir foreldra til að lesa með böm-
um sínum yfir jólin. MM
Forsíða Bínu bálreiðu.
Bjarni Þór Bjarnason
myndskreytti
Ásthildur Bj. Snorradóttir
íftm
Fulltrúi „Rauða hverfisins“ á bœjarhátíðinni A góðri stundu. „Þama leyfa menn sér ein-
faldlega að vera dálítið bamalegir - það gerir hátína sérstaka, “ segir Óm Ingi.
skrúðgöngum, skreytingum og at-
riða á sviði, er á milli hverfa. Ég
hef séð ólíklegasta fólk ganga af
göflunum og þó sér varla vín á
fólki, heldur er einfaldlega um
að sjá sjálfa sig á tjaldi en verandi
íslandsmeistarar, verða þeir nátt-
úrlega að bera sig heimsborgara-
lega, segir hann og hlær.“
Engu er eirtfyrir skreytingum á meðan hátíðinni stendur.
hreina gleði að ræða. Það besta við
hátíðina er jafnframt hversu inn-
anhéraðs hún er. Grundfirðingar
hafa ekki mikið gert í því ennþá að
auglýsa hátíð sína til þess að laða
að ferðamenn, en með því verður
hún einstök og andi yfir henni sem
ég hef ekki fundið annars staðar.“
Bera sig
heimsborgaralega
Og nú er komið að uppskeru?
,Já, nú er tími uppskeru í nánd, því
laugardaginn 18. nóvember fmm-
sýndum við heimildamyndina um
hátíðina. Ég er satt að segja mjög
ánægður með hana og verð stund-
um hreinlega að berja mig niður á
jörðina til þess að fara ekki á flug.
Það var gaman að sjá hvernig
Grundfirðingar brugðust sjálfir við
Leikin mynd?
En hvað um orðróminn um að
gerð verði leikin kvikmynd er
varðar hátíðina og þá á erlendri
grandu? „Ég get svo sem ekki mik-
ið sagt frá því að svo stöddu, en
hugmyndin er að fara lengra með
efnið og er ég búinn að gera drög
að leikinni kvikmynd og þar munu
Grundfirðingar og hátíð þeirra
leika stórt hlutverk. Þetta er hins
vegar allt í burðarliðnum, fjár-
magn þarf að finna og slíkt en það
veltur t.d. mikið á því hvernig
heimildamyndinni verður tekið og
því að Grandfirðingar trúi því í
einlægni sjálfir að þeir séu Islands-
meistarar. Ég segi ekki meira í bili
um málið en mér finnst margir
vera volgir," segir hann leyndar-
dómsfullur að lokum.
KH