Skessuhorn - 29.11.2006, Qupperneq 46
46
MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 2006
§aæssi;ii@iæi
Er Akranes ferðamannabœr?
Það var fyrir nokkru að ég brá
mér af bæ, sem ekki er í ffásögur
færandi. Eftír ferðina spurði ég
sjálfan mig þessarar spumingar og
varð efins, þó ég hafi búið hér allan
minn aldur. Eftír þessa bæjarferð sá
ég nefnilega að Akranes getur verið
stór ferðamannabær en til þess þarf
visst átak og hugarfarsbreytingu.
En málið var sem sagt það að ég
fór í strætóferð tíl Reykjavíkur. Og
þar sem ég var bara í strætóferð en
ekki í verslunarleiðangri, legg ég í
að segja frá án þess að fá bágt fyrir.
Kominn niður í Austurstrætí gekk
ég inn á kaffihúsið Ömmukaffi þar
sem nokkrar ömmur hafa leigt
kaffihús og reka í sjálfboðavinnu sér
til gamans. Þar inni lenti ég í mjög
áhugaverðum hringborðsumræðum
um ferðamál. Kona ein í hópnum,
sem býr í Hafnarfirði, hafði tekið
sér far með strætó ásamt fimm vin-
konum sínum. Ferðinni var heitið
upp á Akranes, þræddar voru allar
búðir, matur og kaffi keypt á veit-
ingastað í bænum. Sagðist hún hafa
skemmt sér vel og ekki trúað, að
óreyndu, að það gætí verið svona
gaman að fara upp á Akranes. Önn-
ur kona spurði hvort strætóinn
hefði ekki kostað mikið. Þegar hún
ffétti hið sanna sagðist hún endi-
lega þurfa að gera þetta líka og taka
fjölskylduna með.
Þama er kjami málsins. Eg held
að við á Akranesi þurfum að átta
okkur á því að strætó gengur í báð-
ar áttir. Bæjaryfirvöld þurfa að girða
sig í brók ásamt verslunar- og
markaðstengdum atvinnugeira.
Láta Stór-Reykjavíkursvæðið vita
hvar Akranes er og hvemig hægt er
að komast þangað á sem ódýrastan
hátt. Akranes hefur margt upp á að
Ifremstu röð í umhverfismálum
Á morgun verður stigið stórt
skref í umhverfismálum Skaga-
manna þegar þrjár grenndarstöðvar
í sorpflokkun verða teknar í notk-
un. Fleiri slíkar verða teknar í notk-
un á næstu mánuðum. Þá mun bæj-
arbúum standa til boða á næstunni
að fá til sín sérstaka tunnu sem ætl-
uð er undir sorp tíl endurvinnslu.
Það skref sem nú er stígið kemur í
kjölfar samnings Akraneskaupstað-
ar og Gámaþjónustunnar hf.
Með þessu skrefi munu Skaga-
menn komast í fremstu röð sveitar-
félaga í flokkun sorps og endur-
vinnslu þess. Hér er því um að ræða
mikið framfaramál í umhverfismál-
um og náttúruvernd. Staðreyndin
er sú að stærstan hluta sorps er
hægt að endurvinna og það hefur
verið stefina meirihluta bæjarstjóm-
ar að Akumesingar leggi sitt lóð á
vogarskálina til þess að svo megi
verða. Því miður hafa margir Akur-
nesingar á undanförnum ámm lagt
talsvert á sig við flokkun sorps til
einskis því eins og alhr vita var allt
sorp urðað á sama stað. Nú verður
þar breyting á því sorp það sem í
grenndarstöðvarnar kemm fer til
endurvinnslu innanlands og utan.
Skagamenn munu ömgglega ekki
láta sitt eftir
liggja í sorp-
flokkun þeg-
ar þeir fá nú
vissu fyrir því
að flokkun
þeirra skilar árangri í endurvinnslu.
Þegar þetta skref hefur verið stigið
bíða fleiri spennandi skref í um-
hverfismálum sem meirihluti bæj-
arstjómar hefur heitið að stíga með
stuðningi bæjarbúa.
Gunnar Sigurðsson.
Höfundur erforseti
bœjarstjo'mar Akraness.
bjóða. Söguna, bæinn, náttúmna og
fleira. Þetta þarf að selja með öfl-
ugri markaðssetningu. Því hér hin-
um megin við flóann búa yfir
100.000 manns og ef við fáum bara
nokkra 6-10 manna hópa í hverri
strætóferð, verður Akranes ótrúlega
stór ferðamannabær, án þess að
nokkur eiginlega átti sig á því. Við
getum búið okkur til eitthvert gott
Pmmnn^
slagorð eins
og: „A Akra-
nesi færðu
allt.“ Eða: „Ef
það er ekki til,
reddum við
því.“
Kristján Heiðar Baldursson,
Akranesi
Frábœr matur ogþjónusta á
Hótel Glym í Hvalfirði
Sunnudaginn 26. nóvember sl.
bauð Hótel Glymur öllu starfsfólki
Fjöliðjunnar í jólahlaðborð. Það er
ekki hægt að segja annað en að
okkur í Fjöliðjunni hafi komið það
skemmtilega á óvart þegar okkur
barst boð um að koma til þeirra í
hið glæsilega jólahlaðborð sem
Hótel Glymur hefur upp á að
bjóða.
Hótel Glymur er ekki eins og
önnur hótel, andrúmsloftið er með
allt öðmm hætti en maður á að
venjast. Þegar komið er inn er mik-
ill hlýleiki í öllu, umhverfi og ekki
síður í starfsfólki, mjög persónulegt
og notanlegt í alla staði.
Þarna numm við tæplega 50
starfsmenn mikillar og góðrar
þjónusm og ekki var maturinn
síðri, hann glæsilega borinn ffam
og góður eftir því.
Þetta kvöld verður okkur öllum
ógleymanlegt og hvet ég alla sem
vilja gera vel við sig í mat og drykk,
endilega að kíkja til Hansínu og
hennar starfsfólks og láta þau dekra
við ykkur, þið verðið ekki fyrir von-
brigðum.
Enn og aftur kærar þakkir ffá
Fjöhðjtmni og starfcfólki hennar
fyrir yndislega kvöldstund á góðrnn
stað í fallegu umhverfi.
Þorvarður B Magnússon
Forstöðumaður Fjöliðjunnar
Fiskihornið
S:431-2595
Höfum opnað nýja og glæsilega fiskbúð að Ægisbraut 29
Akranesi. Fjölbreytt úrval af fiski og fiskréttum.
Opið frá 10-18
Verið Velkomin - Heddý og Jói