Fréttablaðið - 11.09.2019, Síða 4
Ólíklegt er að Jón
Gunnarsson haldi for-
mennsku í umhverfis- og
samgöngunefnd enda á VG
réttinn nái minnihlutinn
ekki samkomulagi.
Sparaðu allt að 50-70%!
info@fedaszdental.huHafðu samband:
+ 36 70 942 9573 www.tannlaeknathjonusta.is
Fyrir
Eftir
Tannlækningar í Ungverjalandi
✿ Fyrstu tveir leggir Borgarlínunnar
Lækjartorg
Hamraborg
Ártún
SAMGÖNGUMÁL Framkvæmdir við
Borgarlínuna munu hefjast árið
2021 og liggja nú fyrstu tveir legg-
irnir fyrir, sem mætast á Lækjar-
torgi.
Er það annars vegar leiðin Lækj-
artorg-Ártún. Hún mun liggja upp
Hverfisgötuna og Laugaveginn að
Suðurlandsbrautinni. Þaðan yfir
nýja brú yfir Sæbraut og Geirsnef
að endastöð við Krossmýrartorg í
nýju Ártúnshverfi.
Hins vegar er það leiðin Lækjar-
torg-Hamraborg. Gengur hún, líkt
og leið 1 hjá Strætó, frá Lækjartorgi
að Háskóla Íslands og þaðan í gegn-
um Vatnsmýrina að fyrirhugaðri
brú frá Fossvogi yfir í Kópavoginn
að endastöð við Hamraborg.
Áætlað er að þessir tveir fyrstu
leggir muni koma til með að kosta
16,2 milljarða króna. Hver vagn
mun geta rúmað 150 farþega í einu.
– khg
Fyrstu leggir Borgarlínunnar skýrast
ALÞINGI Steingrímur J. Sigfússon,
forseti Alþingis, tilkynnti við upp-
haf þings í gær breytingar á stjórn-
un þingfunda.
Þingmanni úr sama f lokki og
ræðumaður verður framvegis ekki
heimilt að veita andsvar við ræðu.
Þá verða andsvör ekki heimiluð við
endurteknar fimm mínútna ræður
þingmanna. Er þetta gert til að
reyna að minnka óhóflega notkun
á andsvörum til að lengja umræður
í þinginu.
„Þetta er kannski fyrst og fremst
gert í þeim tilgangi að færa andsvör
aftur til þess sem þeim var ætlað í
upphafi, að vera raunverulega and-
svör. Vissulega getur það líka stytt
umræður en það verkfæri dugar nú
skammt því eftir sem áður verða
þingsköp óbreytt, það er að þing-
menn hafa óendanlega margar
fimm mínútna ræður,“ segir Stein-
grímur.
Áður fyrr átti hver þingmaður
tvær ræður við aðra umræðu laga-
frumvarpa og voru þær ræður án
tímamarka.
Þingsköpum var breytt í núver-
andi horf til að stemma stigu við
löngum ræðum þingmanna.
„Þær breytingar voru nú kannski
ekki hugsaðar til að stemma stigu
við málþófi heldur aðeins að koma
böndum á þessar löngu ræður,“
segir Steingrímur.
Áfram verður unnið að endur-
skoðun þingskapalaga í samvinnu
við alla þingflokka á Alþingi.
„Þessi vinna mun fara fram í
vetur og mikilvægt að sátt náist um
breytingar á þingsköpum. Það gæti
því orðið þannig að ný þingskapa-
lög taki gildi við upphaf nýs kjör-
tímabils,“ bætir Steingrímur við. – sa
Andsvör samflokksmanna á þingi verða bönnuð
Steingrímur J. Sigfússon.
STJÓRNMÁL Enn er ósamið milli
þingflokka stjórnarandstöðunnar
um formennsku í umhverfis- og
samgöngunefnd. Nái þeir ekki sam-
komulagi munu stjórnarflokkarnir
taka við formennsku í nefndinni.
Samkvæmt reiknireglu þingsins
ætti formennskan að falla VG í skaut
og herma heimildir Fréttablaðsins
að f lokkurinn muni gera tilkall til
formennskunnar nái minnihlutinn
ekki lendingu.
Formenn þingf lokks minni-
hlutans hafa fundað undanfarna
daga vegna óskar þingflokks Mið-
flokksins um breytingar á nefnda-
skipan. Krafan er tilkomin af því
að þingmönnum f lokksins hefur
fjölgað um tvo og er f lokkurinn nú
stærstur flokka í stjórnarandstöðu.
Í kjölfar kosninga fékk stjórnarand-
staðan formennsku í þremur þing-
nefndum samkvæmt samkomulagi
við stjórnarflokkana. Hafa Píratar
gegnt formennsku í velferðar-
nefnd og Samfylkingin í stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd en sam-
kvæmt samkomulagi f lokkanna
hafa þeir nú skipti á formennsku í
þeim nefndum. Miðflokkurinn fór
með formennsku í umhverfis- og
samgöngunefnd en Bergþór Óla-
son hefur ekki gegnt formennsku
í nefndinni frá því upp úr sauð á
fundi nefndarinnar við endurkomu
hans til þings eftir leyfi sem hann
tók í kjölfar Klausturhneykslisins.
Þingf lokkar minnihlutans gátu
ekki komið sér saman um hvern-
ig halda skyldi á formennsku í
umhverfis- og samgöngunefnd eftir
endurkomu Bergþórs og úr varð að
varaformaður nefndarinnar, Jón
Gunnarsson í Sjálfstæðisf lokki,
settist í formannsstól tímabundið.
Með vísan til þess að Miðflokkur-
inn er orðinn stærstur stjórnarand-
stöðuflokka hefur hann haldið fram
rétti sínum til að eiga fyrsta val um
formennsku í nefnd og heimildir
blaðsins herma að þingflokkurinn
hafi sóst eftir formennsku í stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefnd.
Sú ósk hefur ekki mælst vel fyrir
hjá öðrum þingflokkum minnihlut-
ans, enda samkomulag milli Pírata
og Samfylkingar um að Píratar taki
við formennsku í nefndinni af Sam-
fylkingunni. Hefur Þórhildur Sunna
Ævarsdóttir tekið sæti í nefndinni
í stað Jóns Þórs Ólafssonar og að
óbreyttu tekur hún við formennsku
í nefndinni af Helgu Völu Helga-
dóttur, þingmanni Samfylkingar-
innar. Helga Vala tekur hins vegar
við formennsku í velferðarnefnd af
Halldóru Mogensen.
Lendingu um formennsku í
umhverfis- og samgöngunefnd
hefur enn ekki verið náð og munu
formenn þingflokka minnihlutans
funda áfram um málið í dag. Flestir
sem Fréttablaðið ræddi við segja
erfitt að líta fram hjá því að Mið-
f lokkurinn er stærstur stjórnar-
andstöðuf lokka og ólýðræðislegt
að synja honum um áhrif í samræmi
við þingstyrk sinn. Þá hafa nokkrir
þingmenn hreyft því sjónarmiði
að fyrst minnihlutinn geti fellt sig
við Þórhildi Sunnu á formannsstóli
þingnefndar sé erfitt að hafna Berg-
þóri Ólasyni eða öðrum þingmanni
Miðflokksins á formannsstóli á for-
sendum siðareglna.
Takist minnihlutanum hins vegar
ekki að ná saman um málið fellur
formennska í nefndinni Vinstri
grænum í skaut og mun Jón þá þurfa
að víkja fyrir nýjum formanni,
líklegast Ara Trausta Guðmunds-
syni sem er annar varaformaður
nefndarinnar. Guðmundi Inga Guð-
brandssyni umhverfisráðherra og
þingmönnum VG yrði án efa létt við
slík skipti enda langt frá því að Jón
Gunnarsson og Guðmundur Ingi
eigi samleið í málum ráðherrans
sem koma til umfjöllunar í nefnd-
inni, svo mjög reyndar að stjórnar-
slitum hefur verið hótað.
adalheidur@frettabladid.is
Formannsdagar Jóns á enda
Þingflokkar stjórnarandstöðunnar hafa ekki náð samkomulagi um hver gegna eigi formennsku í um-
hverfis- og samgöngunefnd. Nái þeir ekki lendingu fer formennska til Vinstri grænna eftir reiknireglu.
Hlé varð á formennsku Bergþórs í umhverfis- og samgöngunefnd eftir Klausturmálið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
BANDARÍKIN Donald Trump Banda-
ríkjaforseti tilkynnti á Twitter í gær
að hann hefði beðið þjóðaröryggis-
ráðgjafann John Bolton að segja af
sér.
„Ég lét John Bolton vita í gær-
kvöldi [fyrrakvöld] að þjónustu
hans væri ekki lengur óskað í Hvíta
húsinu. Ég var mjög ósammála mjög
mörgum tillögum frá honum, og
það á líka við um aðra í ríkisstjórn-
inni,“ skrifaði Trump.
„Því bað ég John að skila inn
afsagnarbréfi, sem ég fékk í hend-
urnar í morgun. Ég þakka John
innilega fyrir þjónustuna. Ég mun
útnefna nýjan þjóðaröryggisráð-
gjafa í næstu viku,“ skrifaði for-
setinn svo.
Bolton tók við stöðunni af hers-
höfðingjanum HR McMaster ekki
síst vegna herskárra skoðana um
samskipti Bandaríkjanna og Íran.
Studdi hann meðal annars ákvörð-
un Trumps um að segja Bandaríkin
úr kjarnorkusamningi vesturveld-
anna við Írani en svo virðist sem
hann hafi verið ósammála forset-
anum í helstu atriðum um málefni
Afganistans og Norður-Kóreu. –oæg
Trump búinn
að reka Bolton
Trump og Bolton í ágúst síðast-
liðnum. NORDICPHOTOS/GETTY
SAMFÉLAG Íslenska f lugfélagið Air
Atlanta f laug í gær með Frans páfa
heim til Rómar úr ferðalagi hans
til Afríku en í tilkynningu frá f lug-
félaginu kemur fram að páfinn hafi
verið bæði vingjarnlegur og auð-
mjúkur.
Páfinn hefur undanfarna daga
verið í heimsókn í austurhluta
Afríku og meðal annars heimsótt
Mósambík, Máritaníu og Mada-
gaskar. Hann er nú á heimleið með
flugvél íslenska flugfélagsins og var
haldin stutt athöfn fyrir brottför á
f lugvellinum áður hann gekk um
borð í vélina, sem er af gerðinni
Airbus TF EAB.
Kemur fram forsvarsmönnum
f lugfélagsins þótti þetta mikill
heiður. Páfinn hafi eins og áður
segir verið bæði vingjarnlegur og
auðmjúkur við brottför. – oæg
Páfinn flaug
með Atlanta
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
F
-6
A
4
8
2
3
B
F
-6
9
0
C
2
3
B
F
-6
7
D
0
2
3
B
F
-6
6
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K