Fréttablaðið - 11.09.2019, Síða 16
Við erum afar
sérhæfð en við
erum að keppa við fyrirtæki
á borð við Microsoft. Við
erum því ekki að keppa við
neina aukvisa.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Efnisveitan Viaplay mun ekki geta sýnt frá Ensku úrvals-deildinni, Meistaradeildinni,
eða veitt aðgang að öðru efni sem er
háð sýningarrétti hér á landi. Þetta
er mat fjarskiptafyrirtækjanna
Símans og Sýnar.
Eins og greint var frá í fyrradag
hefur norræna f jölmiðlafyrir-
tækið Nordic Entertainment Group
(NENT) ákveðið að gera Íslending-
um kleift að gerast áskrifendur að
efnisveitunni Viaplay á fyrri helm-
ingi næsta árs.
Í fréttatilkynningu NENT kom
fram að í gegnum efnisveituna væri
hægt að nálgast beinar útsendingar
af fjölmörgum íþróttaviðburðum,
þar á meðal af leikjum í Ensku
úrvalsdeildinni og Meistaradeild-
inni. Síminn hefur sýningarrétt
á Ensku úrvalsdeildinni en Sýn á
Meistaradeildinni. Í svari Símans
við fyrirspurn Markaðarins segir
að Viaplay muni ekki geta sýnt frá
Ensku úrvalsdeildinni.
„Svona virka samningar um
sýningarrétt. Rétt eins og margir
þekkja að úrval efnis á Netf lix
Viaplay getur ekki sýnt frá Enska
boltanum eða Meistaradeildinni
er mismunandi eftir löndum allt
eftir því hvernig samningar um
sýningarrétt dreifast á milli aðila
og landa. Sama má segja um Ama-
zon Prime Video og í raun allar
streymisveitur. Viapla eru svo
með fleira efni í sinni veitu en bara
Enska boltann sem mun ekki verða
aðgengilegt á Íslandi þar sem við
eða aðrir erum með gilda samninga
hér á landi,“ segir í svari Símans. Þá
er tekið fram að Viaplay muni vafa-
laust virða þá samninga sem fyrir
eru.
Sýn tekur í sama streng. „Að
því marki sem um er að ræða efni,
sem Sýn á einkarétt til sýninga á
hér á landi, mun Viaplay ekki geta
streymt hlutaðeigandi efni hér á
landi. Þetta á meðal annars við
um Meistaradeildina,“ segir í svari
Sýnar. – þfh
Síminn hefur sýningarrétt á Enska til þriggja ára. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Verðbréfamiðstöð Íslands (VBM) hefur rekið sig á lagalegar og tæknilegar
samkeppnishindranir, og telur
fyrirtækið nauðsynlegt að við
fyrirhugaða lagasetningu verði
horft til samkeppnissjónarmiða.
Þetta kemur fram í umsögn VBM
um frumvarpsdrög sem ætlað er að
innleiða Evrópureglugerðina CSDR
en hún felur í sér auknar kröfur til
verðbréfamiðstöðva.
Starfsemi Verðbréfmiðstöðvar-
innar mun hefjast á næstu mánuð-
um og Nasdaq verðbréfamiðstöð að
því leyti eina virka verðbréfamið-
stöðin á íslenskum markaði. „Þess
má geta að eftir að VBM boðaði
innreið sína á markaðinn hefur
Nasdaq verðbréfamiðstöð a.m.k.
í þrígang lækkað gjaldskrá sína,“
segir í umsögninni. VBM bendir
á að Nasdaq hafi reynt að byggja
upp lagalegar og tæknilegar hindr-
anir sem standa í vegi fyrir flutningi
milli verðbréfamiðstöðva.
„Þess merki má raunar sjá í
reglum Nasdaq verðbréfamiðstöðv-
ar þar sem segir að óski útgefandi
afskráningar þurfi fullnægjandi
samþykki eigenda raf bréfanna
í stað þess að ákvörðun stjórnar
nægi líkt og þegar bréf eru tekin til
skráningar. Sömuleiðis, að Nasdaq
verðbréfamiðstöð leggur mat á það
hverju sinni hvort forsendur séu til
staðar til að afskrá bréfin. Miðað við
reglur Nasdaq gæti t.d. einn eigandi
raf bréfa staðið flutningi í vegi.“
VBM telur að einfaldasta leiðin til
að tryggja samkeppni á markaðin-
um sé sú að útgefandi raf bréfa geti
sagt upp útgáfusamningi og tekið
bréfin í heild sinni til skráningar í
annarri verðbréfamiðstöð. Hefur
fyrirtækið, sem er í eigu Arion
banka, Íslandsbanka, fimm lífeyr-
issjóða og einkafjárfesta, nú þegar
kært Nasdaq verðbréfamiðstöð til
Samkeppniseftirlitsins fyrir meinta
misnotkun á markaðsráðandi
stöðu. Misnotkunin felist í óbreyttri
varðveisluþóknun úr hendi reikn-
ingsstofnana, jafnvel þótt þær kjósi
að færa réttindaskráningu yfir til
VBM. Ákvað Samkeppniseftirlitið
að taka málið til sérstakrar skoð-
unar. – þfh
Vilja auðvelda flutning
milli verðbréfamiðstöðva
Sjóður í rekstri Stefnis, SÍA III, hefur keypt yfir 90 prósenta hlut í tækni-fyrirtækinu Men&Mice. Magnús Eðvald Björns-son, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins, og nokkrir aðrir
lykilstjórnendur eiga það sem eftir
stendur. Kaupverðið fæst ekki upp-
gefið.
Magnús Eðvald segir í samtali við
Markaðinn að nýir hluthafar muni
styðja við frekari vöxt fyrirtækis-
ins. „Við erum að fá inn hluthafa
sem getur stutt við bakið á okkur í
vaxtarfasa.“
Seljendur eru meðal annars
Nýsköpunarsjóður atvinnulífs-
ins sem fór með 27 prósenta hlut
og stofnendurnir Jón Georg Aðal-
steinsson og Pétur Pétursson sem
áttu samanlagt 30 prósent.
52 prósenta vöxtur
Tekjur Men&Mice hafa vaxið hratt
á undanförnum árum og námu 7,5
milljónum dollara, jafnvirði 940
milljóna króna, á síðasta ári. Á milli
áranna 2017 og 2018 var vöxturinn
52 prósent. Hagnaður síðastliðins
árs var 2,2 milljónir dollara, jafn-
virði 276 milljóna króna.
Magnús bjó í 19 ár á Bostonsvæð-
inu í Bandaríkjunum. Hann er með
doktorspróf í tölvunarfræði frá
Brandeis-háskóla og starfaði síðast
sem stjórnandi í vöruþróun hjá
Oracle með 80 undirmenn í þremur
löndum.
Hann segir að Men&Mice auð-
veldi fyrirtækjum að hafa yfirsýn
yfir öll sín net og einfaldi stjórnun
netkerfa. Innan meðalstórra og
stórra fyrirtækja vinni teymi við
að tryggja að netið hjá þeim virki, til
dæmis tryggi að allt gangi snurðu-
laust fyrir sig þegar nýr vélbúnaður
sé tengdur og það geti ráðið tíma-
bundið við álagstíma. „Við búum
til tól sem hjálpar upplýsingatækni-
teymunum að sinna sínu starfi.“
Microsoft, Intel, Nestlé
Hvers vegna eruð þið á mikilli sigl-
ingu núna?
„Við höfum verið að fá nýja og
stærri viðskiptavini. Á meðal við-
skiptavina eru Microsoft, Intel,
Nestlé, Unilever, Comcast og McA-
fee. Nýjasti samningurinn, sem er
sá stærsti hingað til, er við Fedex.
Þeir sem stóðu að rekstri fyrir-
tækisins á árum áður gerðu krafta-
verk. Það er með ólíkindum að
þeim hafi tekist að komast inn fyrir
dyrnar hjá fyrirtækjum á borð við
Microsoft og Intel. Nýsköpunar-
sjóður atvinnulífsins á einnig heið-
ur skilið fyrir að hafa stutt við þessa
vegferð.
Ég gekk til liðs við fyrirtækið
sumarið 2016. Í kjölfarið hófst
stefnumótunarvinna og ákveðið
var að færa vöruna nær skýinu.
Það gerði það að verkum að auð-
velt var að tengjast þeim sem bjóða
upp á skýjaþjónustu eins og Ama-
zon, Google og Microsoft. Varan
er hönnuð til að vera sveigjanleg.
Fyrirtæki vinna nefnilega oft með
fleiri en eina skýjaþjónustu og reka
jafnvel til viðbótar netþjóna innan
veggja fyrirtækisins.“
Þið horfið til enn frekari vaxtar
með tilkomu nýs hluthafa?
„Fyrirtæki ganga í gegnum mis-
munandi æviskeið. Þau byrja sem
sprotar og höfuðáhersla er lögð á
að skapa vöru og fá staðfestingu á
að viðskiptahugmyndin gangi upp.
Stofnendur, englafjárfestar og sjóðir
eins og Nýsköpunarsjóður atvinnu-
lífsins fjármagna þá vegferð. Gangi
allt að óskum hefst vaxtarfasi og þá
þurfa oft aðrir fjárfestar, sem eru
fjársterkari, að leggja fram fé, eins
og til dæmis framtakssjóðurinn
SÍA III. Til að Men&Mice geti vaxið
þurfum við fjárfesti með fjármagn,
tengingar við aðra fjárfesta og rétt
hugarfar.
Það er líka ánægjulegt að Nýsköp-
unarsjóðurinn geti nú selt hlut sinn
og nýtt fjármagnið til að fjárfesta í
f leiri sprotafyrirtækjum.“
Taldir þú að fyrirtækið vantaði
vaxtarfjárfesti í hluthafahópinn?
„Þeir sem eru nú að selja sinn
hlut voru búnir að vera hluthafar
lengi og fannst kannski tímabært
að hverfa á braut. Það getur verið
hollt að gera breytingar og fá nýja
fjárfesta inn sem geta tekið við
kef linu og fylgt félaginu áfram.
Það er samhljómur á meðal okkar
um vegferðina sem við erum á og
hvert skuli stefna. Fyrirtækið er vel
rekið, það skilar hagnaði og er ekki
með vaxtaberandi skuldir. Varan er
f lott og við erum að þjónusta stór
og öflug fyrirtæki. Við erum líka á
stórum markaði sem er að vaxa um
10-20 prósent á ári. Það er því mikið
tækifæri til staðar sem hægt er að
grípa ef rétt er haldið á spilunum.
Fjárfestingarsjóðir eins og SÍA
III hafa hingað til einkum fjárfest í
rótgrónari rekstrarfélögum. Þetta
er í fyrsta skipti svo ég viti til sem
sjóður á borð við þennan fjárfestir
í þekkingarfyrirtæki. Nú er búið
að ryðja brautina fyrir önnur hug-
búnaðarfyrirtæki sem þurfa á fjár-
magni að halda til að vaxa. Það yrði
afar spennandi þróun. Það er fjöldi
öflugra íslenskra tæknifyrirtækja
með góða rekstrarsögu sem henta
sjóðum sem þessum.“
Fjölgi um tíu starfsmenn
Hversu mikið mun starfsmönnum
fjölga á næstu misserum?
„Ég vonast til þess að starfs-
mönnum muni fjölga um tíu á
næstu sex mánuðum í um 40. Nýju
starfsmennirnir munu starfa í
Bandaríkjunum, Þýskalandi og á
Íslandi. Um 70 prósent af áskriftar-
tekjunum koma frá Bandaríkjunum
og það sem eftir stendur frá Evrópu,
aðallega Þýskalandi. Við munum
því einkum vaxa í Þýskalandi og
Bandaríkjunum.
Það er varasamt að vaxa of hratt
en við reynum að gera það með
skipulögðum hætti.“
Eru keppinautarnir margir?
„Já, tíu til fimmtán fyrirtæki um
heim allan.“
Það hljómar nú ekki mikið?
„Við erum afar sérhæfð en við
erum að keppa við fyrirtæki á borð
við Microsoft. Við erum því ekki að
keppa við neina aukvisa.
Ráðgjafarfyrirtækið Gartner birti
skýrslu við upphaf árs þar sem fram
kom að Men&Mice væri eitt af fjór-
um markverðustu fyrirtækjunum
á þessu sviði. Við komum vel út úr
samanburðinum. Hér starfa um 30
manns en keppinautur okkar Info-
blox er með 1.500 starfsmenn og
BlueCat er með 400 til 500 starfs-
menn. Okkur tekst að standa uppi
í hárinu á þeim og hafa betur í
baráttunni um viðskiptavini. Intel
greindi til að mynda samkeppnina
og prófaði vörur frá tveimur fyrir-
tækjum. Þeim þótti okkar vara betri
miðað við þeirra þarfir.“
Það er áhugavert að Microsoft,
sem er keppinautur, sé á meðal við-
skiptavina ykkar?
„Já, mikið rétt. Þótt Microsoft
sé keppinautur þá er varan þeirra
sniðin að minni fyrirtækjum. Hún
hefur ekki þá virkni og sveigjan-
leika sem þarf fyrir stærra umhverfi
sem fyrirtæki á borð við Microsoft
þurfa.“
Sjóður Stefnis kaupir í Men&Mice
SÍA III getur stutt við fyrirtækið í vaxtarfasa. Men&Mice starfar á markaði sem vex 10-20 prósent á ári. Fjárfestingarsjóðir í rekstri
bankanna hafa hingað til einkum fjárfest í rótgrónari rekstrarfélögum. Horfa til vaxtar í Bandaríkjunum og Þýskalandi.
Magnús er doktor í tölvunarfræði og starfaði áður hjá Oracle með 80 undirmenn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
F
-7
4
2
8
2
3
B
F
-7
2
E
C
2
3
B
F
-7
1
B
0
2
3
B
F
-7
0
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K