Fréttablaðið - 11.09.2019, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 11.09.2019, Blaðsíða 36
Ég held að fólk sakni þess að fara á Kefla vík ur flug völl til þess að stíga upp í fjólu bláa flug vél og fljúga eitt hvert. Michele Roosevelt Edwards, athafnakona Stjórnar- maðurinn 06.09.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 11. september 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar 2019 Er bókhaldið ekki þín sterkasta hlið? BÓKHALD | LAUN | SKATTUR | RÁÐGJÖF Tekjur Iceland Travel, dótturfélags Icelandair og einnar stærstu ferðaskrifstofu landsins, drógust saman um tæp 16 prósent á milli ára samkvæmt nýbirtum ársreikningi. Tekjur félagsins námu 88 milljónum evra, jafnvirði 12,2 milljarða króna, á síðasta ári samanborið við tæplega 105 milljónir evra á árinu 2017. Að sama skapi drógust rekstrargjöld saman um rúm 16 prósent. Iceland Travel hagn- aðist um 1,3 milljónir evra, jafnvirði 180 milljóna króna, á síðasta ári samanborið við 335 þúsund evrur á árinu 2017. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði 111 milljóna króna arður til eig- andans, Icelandair. Þá er gert ráð fyrir að söluferli á Iceland Travel hefjist í haust. Björn Víglundsson var nýlega ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Travel en hann kom í stað Harðar Gunnarssonar sem hafði leitt félagið í tæpan áratug. – þfh Samdráttur hjá Iceland Travel Björn Víglunds- son fram- kvæmdastjóri Afdráttarlausar yfirlýsingar menntamálaráðherra um að vilja Ríkisútvarpið út af auglýs- ingamarkaði hafa vakið nokkra athygli. Sem eðlilegt er hefur ráðherrann þó þann varnagla á að vilja vanda til verka og tryggja að þær auglýsingatekjur sem RÚV verður af renni ekki beinustu leið til alþjóðlegra risa á borð við Google og Facebook. Ráðherrann er ekki einn um að hafa áhyggjur af ægivaldi tækni- risanna. Evrópska samkeppnis- eftirlitið sektaði Google sem kunnugt er um 9 milljarða Banda- ríkjadala fyrir að hamla sam- keppni. Sama fyrirtæki sætir nú rannsóknum í Bandaríkjunum og er gefið að sök að vera í einokunar- stöðu á auglýsingamarkaði. Rann- sakendur segja að Google nýti yfirburðastöðu sína meðal annars til þess að stjórna f læði upplýsinga og frétta á netinu. Google og Facebook eru samanlagt með um 60% markaðshlutdeild í auglýs- ingasölu á netinu vestanhafs. Auðvitað er það alvarlegt ef einn aðili misnotar aðstöðu sína og síar út upplýsingar sem ekki eru þóknanlegar. Ekki síður alvarleg er hins vegar sú staðreynd að Google og Facebook hafa aftengt hið hefðbundna tekjumódel fjölmiðla. Tekjumódel inter- netrisanna byggist ekki síst á því að vísa í fréttir um málefni líðandi stundar. Fjölmiðillinn sem vann fréttina fær hins vegar ekkert greitt. Hefðbundnir fjölmiðlar eru því að stórum hluta orðnir fríar efnis- veitur fyrir internetrisana, og með því hefur skapast ákveðin til- vistarkreppa sem ekki hefur verið ráðið fram úr. Þessi vandi er enn greinilegri á smærri mörkuðum, eins og hér á landi. Sennilega er það sanngjarnt að þeir sem búi til efnið fái greitt fyrir það. Þá skekkju hefur markaðnum ekki tekist að leiðrétta. Raunar á það ekki einungis við gagn- vart fjölmiðlum, heldur einnig tónlistarmönnum til að mynda, sem hafa nánast ekkert upp úr streymisveitum eins og Spotify. Auðvitað er það rétt að RÚV á ekkert erindi á auglýsingamarkað. Hins vegar er það líka rétt hjá ráðherra að binda þarf þannig um hnútana að tekjurnar f læði ekki rakleiðis úr landi. Slík aðgerð yrði aðeins til að veikja innlenda fjöl- miðla enn frekar. Putti í stífluna 1 1 -0 9 -2 0 1 9 0 5 :2 6 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 B F -5 B 7 8 2 3 B F -5 A 3 C 2 3 B F -5 9 0 0 2 3 B F -5 7 C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 9 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.