Fréttablaðið - 11.09.2019, Page 39
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
11. SEPTEMBER 2019
Viðburðir
Hvað? Menningarganga
Hvenær? 12.15-13.00
Hvar? Gerðarsafn og nágrenni
Jón Proppé listfræðingur gengur
um nágrenni Menningarhúsanna
í Kópavogi og dregur fram áhrifin
sem framandi menningarheimar
höfðu á listsköpun Gerðar Helga-
dóttur. Leiðsögnin er ókeypis og
allir velkomnir.
Hvað? Fikt á tilraunaverkstæði
Hvenær? 15.00-17.00
Hvar? Gerðuberg, Breiðholti
Starfsmaður getur leitt fólk
gegnum verkefni eins og að prenta
í þrívídd, skera límmiða og forrita.
Hvað? Kínverskur bíódagur
Hvenær? 18.30
Hvar? Veröld, hús Vigdísar
Boðið upp á kvikmynd byggða
á hinu sígilda kínverska bók-
menntaverki Thunderstorm.
Enskur texti. Ókeypis aðgangur og
allir velkomnir!
Hvað? Töfrum slungin
Hvenær? 17.00
Hvar? Borgarbókasafnið, Grófinni,
Ljósmyndasýning sem lýsir upp-
lifun Söru G. Amo, ljósmyndara
og kvikmyndagerðarkonu, af
Íslandi. Blanda af list- og heim-
ildaljósmyndun. Dúóið ƷƐb әnd
Iːwa (Jeb og Iwa) leikur blöndu af
vestrænu rokki og hefðbundinni
austurlenskri tónlist. Boðið upp á
veitingar og snakk fyrir grænkera.
Tónlist
Hvað? Öll píanóeinleiksverk John
Speigth
Hvenær? 15.00
Hvar? Hannesarholt, Grundarstíg
Peter Máté leikur sjö verk fyrir
einleikspíanó eftir John Speight.
Það nýjasta, samið 2018, verður
frumflutt á tónleikunum.
Hvað? Minningartónleikar um Loft
Gunnarsson
Hvenær? 20.00
Hvar? Háskólabíó
Loftur hefði orðið fertugur í dag,
hefði hann lifað. Fram koma: Pétur
Ben, Ragnheiður Gröndal, Syca-
more Tree, Elín Ey, Krummi, Teitur
Magnússon, K.K. og GÓSS. Öll
innkoma rennur í bættan aðbúnað
utangarðsfólks.
Orðsins list
Hvað? Skálholt á kaþólskri tíð og
lútherskri
Hvenær? 12.05
Hvar? Þjóðminjasafnið, fundarsalur
Helgi Þorláksson, fyrrverandi pró-
fessor, heldur fyrsta hádegisfyrir-
lestur haustsins á vegum Sagn-
fræðingafélags Íslands.
Hvað? Ljóðakaffi
Hvenær? 20.00-22.00
Hvar? Gerðuberg, Breiðholti
Skáldin Brynja Hjálmsdóttir,
Brynjólfur Þorsteinsson, Eva Rún
Snorradóttir, Haukur Ingvarsson
og Ragnar Helgi Ólafsson taka
þátt. Eftir hlé eru skáld meðal
gesta hvött til að lesa upp. Gestir
geta fengið sér kaffi og með því.
Allir velkomnir á meðan húsrúm
leyfir. Ókeypis aðgangur.
Kynning á deiliskipulagslýsingu:
Frístundasvæði
Miðdal Mosfellsbæ
Mosfellsbær auglýsir hér með til kynningar
deiliskipulagslýsingu, skv. 40. gr.
skipulagslaga nr. 123/2010:
Fyrir gerð deiliskipulags á 5 ha lóð, lnr. 213970 sem staðsett er
milli Nesjavallarvegar og Selvatns. Megin viðfangsefni deiliskipu-
lagsins er að skipta landinu upp í 5 lóðir, ákveða stærðir húsa,
staðsetja vegi, byggingareiti og vindmillur sem sjá eiga svæðinu
fyrir rafmagni. Í aðalskipulagi er lóðin á svæði sem skilgreint er
fyrir frístundabyggð, 530-F.
Í deiliskipulagslýsingum kemur lögum samkvæmt fram hvaða
áherslur sveitastjórn hefur við skipulagsgerðina. Upplýsingar
um forsendur og fyrirliggjandi stefnu, fyrirhugað skipulagsferli
hvað varðar kynningu og samráð gagnvart íbúum og öðrum
hagsmunaaðilum. Þeir sem vilja kynna sér málið nánar eru
vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skipulagsfulltrúa.
Deiliskipulagslýsingin liggur frammi í þjónustuveri Mosfellsbæjar
á 2. hæð Þverholts 2, 270 Mosfellsbæ og hana má einnig finna á
heimasíðu bæjarins á slóðinni: mosfellsbaer.is/skipulagsauglysingar
Athugasemdum og ábendingum varðandi lýsinguna
má skila til þjónustuvers Mosfellsbæjar eða
til undirritaðs fyrir 2. október 2019.
11. september 2019
Skipulagsfulltrúi Mosfellsbæjar
olafurm@mos.is
Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is
Að mæla árangur með
hagvexti eða hamingju
Uppbygging
velsældarhagkerfa
Forsætisráðuneytið, í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið,
Wellbeing Economy Governments og OECD kynna alþjóðlega ráðstefnu
Aðalbygging Háskóla Íslands
Mánudaginn 16. september kl. 8:30-12:00
Aðgangur er ókeypis og fer ráðstefnan fram á ensku
Ísland, Skotland og Nýja Sjáland gengu til samstarfs um mótun velsældar-
hagkerfa undir yfirskriftinni Wellbeing Economy Governments (WEGo) árið
2018. Samstarfið felur í sér mótun sameiginlegrar sýnar á hvernig ríki geta
aukið vellíðan, jöfnuð og sjálfbæran vöxt. Á ráðstefnunni verður fjallað um
þetta starf og um endurskoðun þessara ríkja á mælikvörðum á velgengni
sem mun hafa áhrif á áherslur í allri opinberri stefnumótun.
Ráðstefnan leiðir saman alþjóðlega leiðtoga og sérfræðinga á sviði
velsældarmála. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, mun meðal annars
kynna tillögur nefndar að velsældarmælikvörðum fyrir Ísland sem verða
lýsandi fyrir hagsæld og lífsgæði á Íslandi.
Dagskrá
Kaffi og te í boði frá kl. 8:00
8:30-10:00 Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra
Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra
Derek Mackay, fjármála- og efnahagsráðherra Skotlands
Angel Gurría, framkvæmdastjóri OECD
Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
10:00-10:30 Kaffihlé
10:30-11:50 Pallborðsumræður með frummælendum
Dr. Gary Gillespie efnahagsráðgjafi skosku
heimastjórnarinnar stýrir pallborðsumræðum
Fundarstjóri er Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari
Hagvöxtur og þjóðarframleiðsla hafa um skeið verið hinir hefðbundnu
mælikvarðar á árangur hagkerfa. Í því samhengi hefur hins vegar láðst að
líta til annarra þátta sem mynda öflug og sjálfbær samfélög. Ósjálfbær
nýting auðlinda, aukinn ójöfnuður og framleiðslu- og neysluhættir sem
ýta undir loftslagsbreytingar valda óstöðugleika til framtíðar og ógna öllu
lífríki jarðar.
Stjórnarráð Íslands
Forsætisráðuneytið
FRETTABLADID.IS Ekki missa af neinu, fylgdu Fréttablaðinuá Facebook og Instagram
á frettabladid.is
hlustaðu þegar þér hentar
HelginLifum lengur Hismið
M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15M I Ð V I K U D A G U R 1 1 . S E P T E M B E R 2 0 1 9
1
1
-0
9
-2
0
1
9
0
5
:2
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
B
F
-6
5
5
8
2
3
B
F
-6
4
1
C
2
3
B
F
-6
2
E
0
2
3
B
F
-6
1
A
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
0
_
9
_
2
0
1
9
C
M
Y
K