Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 2

Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 595 1000 Frábært verð! Bir tm eð fyr irv ar au m pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr étt til lei ðr étt ing aá slí ku .A th. að v COSTADEL SOL ve rð t 28.maí í 12 nætur Frá kr. 99.995 Flug frá kr. 59.900 Sæti báðar leiðirmeð tösku og handfarangri Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Humlur í hremmingum, skrifar Er- ling Ólafsson skordýrafræðingur á facebooksíðu sína, Heimur smádýr- anna. Hann segir að alla jafna fljúgi drottningarnar um á þessum tíma árs nývaknaðar af vetrardvalanum, iðnar við að lepja í sig hunangssafa víðireklanna, safna frjókornum þeirra og leggja drög að sumar- búskapnum. Mun minna hafi hins vegar farið fyrir þeim á suðvestan- verðu landinu en venjulega og lík- legt sé að rigningin samfellda síðast- liðið sumar valdi því. „Í fyrrasumar áttu þernur í erfið- leikum með að fljúga um og afla fanga í rennblautum blómunum. Framleiðsla nýrra haustdrottninga varð af þeim sökum með minnsta móti. Ef minnið er ekki að bregðast þá hefur viðjan oft verið iðnari við að blómgast en þetta vorið. Hún er humlunum í görðum okkar afar mikilvæg sem fyrsta orkulind. Nú er bara að vonast eftir góðri sumartíð svo humlurnar nái að byggja sig upp á ný. Fátt er sumarlegra en suðandi humlur flögrandi á milli blóma í góð- viðri,“ skrifar Erling. Til þessa segist hann aðeins hafa séð eina drottningu trjágeitungs og gæti ástandið verið svipað hjá þeim og humlunum, en þó sé heldur snemmt að fullyrða um það. Kóln- andi veður með kaldri tungu úr norðrinu sé víst til að tefja vorkom- una í smádýralífinu. Bobbi í garði forstjórans Fram kemur á facebooksíðu Nátt- úrufræðistofnunar að við vorverkin í garði sínum í Kópavogi fyrir skömmu hafi Jón Gunnar Ottósson, forstjóri NÍ, fengið óvæntan glaðn- ing. Þar var um að ræða myndar- legan kuðungssnigil með 3,5 cm kuð- ungshúsi. Hann lá í beði, falinn í gróðurleifum frá síðasta hausti, og spurning sé hvort snigillinn hafi ver- ið þar í dvala yfir veturinn. Um garðabobba var að ræða, en hann berst hingað af og til með varn- ingi og er mun stærri en íslenskir kuðungasniglar. aij@mbl.is Humlurnar í hremmingum  Rigningar síðasta sumars valda þeim vanda  Fátt er sumarlegra en suðandi humlur, segir skordýrafræðingur Ljósmynd/Erling Ólafsson Drottning Alla jafna lætur hús- humlan mest fyrir sér fara á vorin. Morgunblaðið/Hari Ráðherra Mynd frá kynningu Lilju á frumvarpinu í upphafi árs. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Breytingar sem gerðar hafa verið á fjölmiðlafrumvarpi mennta- og menningarmálaráðherra eru til þess fallnar að styrkja ritstjórnir meira en gert var ráð fyrir í drög- um frumvarpsins. Þetta segir Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- herra, en frumvarpið snýr að styrkjum til einkarekinna fjölmiðla. „Breytingarnar eru ekki um- fangsmiklar en með þeim er komið til móts við þær ábendingar sem hafa borist. Breytingartillögurnar miða að því að efla ritstjórnir enn frekar en var gert í fyrstu drögum. Megininntak, skilyrði og annað slíkt er svipað upprunalegum drög- um,“ segir Lilja. Lilja kynnti breytt frumvarp fyr- ir þingflokki Sjálfstæðisflokksins í gær. „Það var mjög góður fundur, ég fór yfir megininntak frumvarps- ins og hvaða breytingar hafa orðið á því.“ Hún segir þingmenn Sjálf- stæðisflokksins jákvæða fyrir breyttu frumvarpi en drög frum- varpsins voru gagnrýnd af nokkr- um þingmönnum flokksins þegar þau voru lögð fram í byrjun árs. „Ég tel að það sé alveg ljóst að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins, eins og þingflokkur Vinstri-grænna og Framsóknarflokksins, verði já- kvæður þegar endanleg kynning frá þeirra formanni hefur átt sér stað.“ Birgir Ármannsson, þingflokks- formaður Sjálfstæðisflokksins, gat ekki tjáð sig um viðbrögð flokksins við breyttu frumvarpi þegar Morg- unblaðið náði af honum tali í gær. Aftur til umræðu í vikulok Lilja vill ekki greina nánar frá breytingum á frumvarpinu að svo stöddu en ýmsar ábendingar bár- ust um það, þar á meðal varðandi aðgerðir sem þyrfti að ráðast í vegna umfangs RÚV á auglýsinga- markaði og kröfu um að fjölmiðlar sem hljóti styrki séu skrifaðir á ís- lensku. Lilja er bjartsýn á að frumvarpið verði samþykkt og segir um fram- haldið: „Formaður Sjálfstæðis- flokksins er erlendis, hann verður kominn aftur í vikulok og þá verður þetta aftur til umræðu. Ég er mjög þakklát fyrir samstarfið sem ég hef átt við stjórnarflokkana og hversu langt málið er komið.“ Frumvarpið verður lagt fram á Alþingi á þessu vorþingi, að sögn Lilju. Miða að frekari eflingu ritstjórna  Breytingar á fjölmiðlafrumvarpi til þess fallnar að efla ritstjórnir meira en áður var áætlað að sögn Lilju Alfreðsdóttur  Sjálfstæðisflokkurinn jákvæðari gagnvart breyttu frumvarpi en drögum þess Íbúar á Norðausturlandi vöknuðu upp við slyddu og gráa jörð í gær- morgun. Hálka var á fjallvegum og hömluðu snjór og hálka för þeirra sem komnir eru á sumar- dekk. Snjóinn tók upp þegar sólin skein og var horfinn af láglendi upp úr hádegi. Veðurstofan spáir því að él gangi yfir Norður- og Austurland á næstu dögum. Veðurfræðingur varaði þá sem sett hafa sumar- dekk undir bíla sína við hálku á heiðum og fjallvegum. Ökumenn á Norðausturlandi áttu að vera búnir að skipta út vetrardekkjum fyrir sumardekk fyrir miðjan apríl. Menn á þeim slóðum fara sér þó að engu óðs- lega og huga að þróun veðurs og færðar. Karl Ásberg Steinsson á verkstæðinu Mótorhaus á Þórs- höfn segir að um helmingur bílanna sé kominn á sumardekk. Þeir sem búnir eru að skipta aki aðeins innanbæjar og taki frekar bílaleigubíl á nöglum ef þeir fari í langferð. „Þetta bjargast allt sam- an,“ segir Karl. helgi@mbl.is Spáð er kulda og éljum á Norður- og Austurlandi fram á helgi Vöknuðu upp við él og snjóföl Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.