Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 INNBYGGÐUM GUFUGLEYPI SPANHELLUBORÐMEÐ Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is LOSNAÐU VIÐ HÁFINN Þýska hönnunarfyrirtækið BORA hefur unnið til margra verðlauna fyrir BORA spanhelluborðin sem eru með innbyggðum gufugleypi. Sparaðu pláss njóttu um allt eldhús sem fylgir eldamennskunni. ÞÝSK VERÐLAUNAHÖNNUN Sjámyndbönd á friform.is 5 ára ábyrgð á öllum raftækjum FRÁBÆR NÝJUNG ENGINN HÁFUR EKKERTVESEN OPIÐ: Föstudaga kl. 09 til 17 Laugardagar kl. 11 til 15 Bandarísku sjónvarpsstöðvarnarvitna mjög í kannanir um meintar vinsældir stjórnmála- manna. Einkum eru forsetarnir mældir og meðaltöl helstu kannana svo birt reglulega.    Donald Trumphefur legið með sínar vinsældir nálægt 40% lungann af sínum fyrstu tveimur árum, sem telst vera í lægri kanti. Síðustu vikur hefur Eyjólfur þó hresst svo mælan- legt er.    Síðast var Trumpmeð 46% í mældum vinsældum og bent var á til samanburðar að Obama hefði á sama tíma sitt seinasta heila ár mælst með 44%. Þegar vinsælda- mælingunni var beint að efnahags- málum hækkaði skorið upp í rúm 51% hjá Trump. Margt er misjafnt sagt um Trump og fjölmiðlar sækja að honum og ekki síst þeir sömu og geymdu Obama í bómull bæði kjör- tímabil hans.    En sá stuðningur sem Trumpnýtur vegna fjármálastjórnar er mikilvægur í bandarískum kjör- þokka. Þetta snýst allt um „the eco- nomy, stupid“ sem var eignað Bill Clinton svo frægt varð.    Ský getur þó snögglega dregiðfyrir sólu vinsældanna eins og dæmi sanna. Í þessari viku féllu þannig bréf hratt í kauphöll við fréttir um að „viðskiptastríðið“ á milli Kína og Bandaríkjanna væri hlaupið í harðan hnút.    Kálið er sem sagt ekki endilegasopið, þótt landið hafi risið, eins og kerlingin benti svo iðulega á. Obama Landris Trumps STAKSTEINAR Trump Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hæstiréttur Íslands hefur veitt Barnaverndar- stofu leyfi til þess að áfrýja dómi í máli Freyju Haraldsdóttur gegn stofnuninni til Hæstaréttar, en Landsréttur kvað upp þann dóm fyrir skömmu að Barnaverndarstofa hefði mismunað Freyju vegna fötlunar og sneri þar með við dómi sem áður hafði fallið í héraði. Freyja hefur farið fram á að úrskurður úrskurð- arnefndar velferðarmála frá 2016 verði felldur úr gildi, en með þeim úrskurði var staðfest sú ákvörð- un Barnaverndarstofu að hafna umsókn Freyju um leyfi til þess að taka barn í varanlegt fóstur. Fram kemur í niðurstöðu Hæstaréttar um mál- skotsbeiðnina að Barnaverndarstofa hafi byggt beiðni sína um áfrýjunarleyfi á því að málið hafi verulegt almennt gildi um hvernig stjórnvöldum beri að beita jafnræðisreglunni og rannsóknar- reglunni og að niðurstaða málsins varði mikilvæga hagsmuni barna sem þurfi að setja í varanlegt fóstur. Þá hafi dómur Landsréttar verið bersýnilega rangur, þar sem litið hafi verið framhjá megin- markmiðum barnaverndarlaga um að börnum skuli tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst og samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins. Freyja sagði á facebooksíðu sinni í gær að áfrýj- unarleyfi Barnaverndarstofu væri henni „mikil vonbrigði“, enda hefði dómur Landsréttar verið bæði „skýr og afdráttarlaus“. „Áfrýjunarbeiðnin er yfir höfuð athyglisverð og enn önnur afhjúpun á því hvað kerfiskarlar (af öll- um kynjum) geta verið hræddir við fatlaða konu og hve mikil ógn fatlaður kvenlíkami er fyrir hug- myndir stjórnvalda og samfélagsins um móður- hlutverkið,“ skrifaði Freyja. Mál Freyju fer fyrir Hæstarétt  Vísað til barnaverndarlaga og samnings SÞ  „Vonbrigði,“ segir Freyja Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Hugtakið „flugviskubit“ komst nýverið inn í umræðuna hér á landi. Er með því vísað til þess þegar ferðalangar fá samviskubit yfir flug- ferðum sínum og því kolefnisfótspori sem þeim fylgir. Til að bregðast við þessari vakningu hafa ferðaskrif- stofur víða í Evrópu meðal annars hafið að bjóða upp á lestarferðir til framandi staða í stað flugferða. Jóhannes Þór Skúlason, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar (SAF), segir samtökin meðvituð um flugviskubit fólks. „Að þetta sé komið upp í um- ræðunni hér kemur okkur ekki á óvart. Í nágrannalöndum okkar, s.s. Svíþjóð og Danmörku, höfum við verið að sjá þá umræðu að ferða- menn hugsa töluvert um áhrif ferða- lags síns með tilliti til útblásturs. Þetta er ekki einungis tengt flugi heldur einnig öðru er varðar ferða- lög,“ segir hann og bætir við að ferðaþjónustan hér á landi þurfi því að horfa til þessa. „Við hjá Samtökum ferðaþjónust- unnar erum þegar byrjuð að horfa til þess hvernig við getum fótað okkur í þessum málum og almennt er mikill vilji hjá ferðaþjónustufyrirtækjum til að taka þátt í þessu, enda er ferðaþjónusta og náttúruvernd sam- ofin,“ segir Jóhannes Þór og heldur áfram: „Meðal þess sem við erum að horfa á hér er kolefnisjöfnun fyrir- tækjanna og hvernig hægt er að ýta undir orkuskipti í samgöngum.“ Þá segir hann uppi þá hugmynd að setja á stofn kolefnisjöfnunarverkefni sem beint er að ferðamanninum sjálfum svo hann geti með góðri samvisku ferðast til Íslands. „Það skiptir máli að fara í svona verkefni af fullum þunga,“ segir Jóhannes Þór. Flugviskubitið kem- ur SAF ekki á óvart  Ferðaþjónusta og náttúruvernd eru samofin, segir SAF Morgunblaðið/Hari Keflavík Farþegar velta sumir fyrir sér kolefnisfótspori sínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.