Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Í lok ársfundar Árnastofnunar í
gær afhenti Guðrún Nordal, for-
stöðumaður stofnunarinnar, for-
manni og framkvæmdastjóra Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur, Jóhann-
esi Benediktssyni og Helga
Gíslasyni, plöntur sem skotið hafa
rótum í grunni Húss íslenskra
fræða (eða Húss íslenskunnar eins
og það mun heita) frá því að hann
var grafinn fyrir sex árum. Lét
Guðrún þess getið að um leið væri
búið að kolefnisjafna fyrir ársfund-
inn þar sem dreift var t.a.m. prent-
aðri ársskýrslu. Skógræktarmenn
veittu framtíðarskóginum viðtöku
og sögðust mundu sjá til þess að
ræktaður yrði upp trjálundur sem
minnti á auðlegðina sem felst í ís-
lenskum fræðum.
Stærsta trjáplantan sem þeir
höfðu á brott með sér var um 2,5 m
á hæð og hafði skotið djúpum rót-
um í grunninum. Lítið rask hefur
verið á svæðinu frá því að skóflu-
stungan var tekin í mars 2013 og
gróður því getað skotið rótum óá-
reittur um árabil. Samtals hafa
starfsmenn Árnastofnunar tekið
upp 100 sjálfsáðar plöntur og sett í
pott, en nóg er enn eftir af trjá-
plöntum í grunninum.
Framkvæmdir við Hús íslensk-
unnar eru nú að hefjast eftir að
ákveðið var að taka lægsta tilboð-
inu þótt það væri yfir kostnaðar-
áætlun. Húsið verður á þremur
hæðum, auk kjallara undir hluta
þess, samtals 6.500 fermetrar.
Byggingin er sporöskjulaga og er
formið brotið upp með útskotum og
inngörðum. Að utan er byggingin
klædd opnum málmhjúp. Húsið
mun hýsa fjölbreytta starfsemi
Stofnunar Árna Magnússonar í ís-
lenskum fræðum og Íslensku- og
menningardeildar Háskóla Íslands.
gudmundur@mbl.is
Skógræktarfélag-
ið fær 100 plöntur
úr grunninum
Rækta trjálund sem minnir
á auðlegð íslenskra fræða
Kæru landsmenn,
við úthlutum yfir 900 matargjöfum
í hverjum mánuði.
Reykjavíkurborg styrkir starfið
um eina milljón króna árið 2019
Félagsmálaráðuneytið styrkir
starfið um eina milljón árið 2019
Hjálpið okkur að hjálpa fátæku
fólki á Íslandi.
Margt smátt gerir eitt stórt.
0546-26-6609 kt. 660903-2590
Fjölskylduhjálp Íslands, Iðufelli 14 Breiðholti
og Baldursgötu 14 í Reykjanesbæ.
Neyðarsöfnun í matarsjóðinn
15-20% afsláttur
af ÖlluM AEG VÖruM OrMssOn
DAGAR
15%
afsláttur
15%
afsláttur
15%
afsláttur
ÞVOTTAVÉLAR ÞURRKARAR UPPÞVOTTAVÉLARSkoðaðu úrvalið okkar á
*SENDUM FRÍTT Í VEFVERSLUNLágmúli 8 | S: 530 2800 þú færð HeiMilstækin Hjá Okkur
SKOÐAÐU TILBOÐIN OKKAR Á
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU
AÐ LÁTA
GERA VIÐ?
Erlendur karlmaður var handtek-
inn í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
fyrir síðustu helgi eftir að í far-
angri hans fannst mikið magn af
sígarettum eða 32.800 stykki. Lög-
reglan á Suðurnesjum tók skýrslu
af manninum og kvaðst hann þá
hafa ætlað að verða sér úti um pen-
inga með því að selja sígaretturnar
hér á landi. Honum var sleppt að
lokinni skýrslutöku.
Þá hafa komið á borð lögreglu á
síðustu dögum nokkur fíkniefna-
mál, einnig frá flugstöðinni. Toll-
gæslan stöðvaði mann með neyslu-
skammta af LSD og annan sem var
með kannabisolíu í fórum sínum.
Síðastliðinn föstudag handtók
svo lögregla karlmann sem var að
koma frá London með umtalsvert
magn af verkjalyfinu oxycontin og
svefnlyfjum innan klæða.
Hann var færður á lögreglustöð
til skýrslutöku.
Tekinn með 32.800 sígarettur sem hann hugðist selja
Morgunblaðið/Eggert
Leifsstöð Í farangri fannst mikið
magn af sígarettum, 32.800 stykki.