Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 40
40 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
2
1
4
5
PRÓFAÐU 100%
RAFBÍL Í 24 TÍMA!
RENAULT ZOE
Renault ZOE – verð: 3.790.000 kr.
TIL AFGREIÐSLU STRAX!
Hafðu samband við sölumenn Renault og tryggðu þér 100% rafdrifinn ZOE til reynslu í 24 tíma.
Renault ZOE hefur algjöra sérstöðu í þessum stærðarflokki rafbíla með 300 km uppgefið drægi.*
ZOE er að auki, eins og aðrir nýir Renault bílar, með ríkulegan staðalbúnað.
Taktu græna skrefið og prófaðu Reanult ZOE 100% rafbíl.
BL ehf
Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík
525 8000 /www.bl.is
Bílasalan Bílás
Akranesi
www.bilas.is
431 2622
Bílasala Akureyrar
Akureyri
www.bilak.is
461 2533
Bílaverkstæði Austurlands
Egilsstöðum
www.bva.is
470 5070
IB ehf.
Selfossi
www.ib.is
480 8080
BL söluumboð
Vestmannaeyjum
481 1313
862 2516
*Uppgefið drægi miðast við WLTP staðal.
Ríkisborgarar 28 landa Evrópu-
sambandsins, yfir hálfur milljarður
manna, halda Evrópudaginn hátíð-
legan í dag. Á þessum degi minn-
umst við yfirlýsingar franska utan-
ríkisráðherrans, Robert Schuman,
frá því í maí 1950, sem lagði
grunninn að því sem við þekkjum í
dag sem Evrópusambandið.
Evrópa var enn í sárum eftir
tvær hræðilegar styrjaldir á að-
eins þriggja áratuga skeiði.
Schuman gerði sér grein fyrir
þörfinni á því að skapa sterkt
samband milli fyrrverandi stríð-
andi fylkinga svo að slíkar hörm-
ungar myndu aldrei endurtaka sig.
Af þessari litlu rót, sem byrjaði
sem Kol- og stálbandalagið, hefur
vaxið ríkjabandalag sem engin for-
dæmi eru fyrir í mannkynssög-
unni.
Eins og Schuman sjálfur orðaði
það: „Evrópa verður ekki byggð á
einum degi, eða samkvæmt ein-
hverri einni áætlun. Hún verður
byggð með áþreifanlegum afrekum
sem verða grundvöllur raunveru-
legrar samstöðu.“ Schuman væri
yfir sig ánægður að sjá Evrópu-
sambandið sem við höfum búið til.
Saga Sambandsins er ótrúleg saga
velgengi, sem í meira en 70 ár hef-
ur stuðlað að friði og velmegun á
meginlandi sem áður var sundur-
tætt af átökum.
Sameinuð í fjölbreytileika
Í Evrópusambandinu starfa
saman 28 aðildarríki sem jafn-
ingjar og með góðum árangri.
Löndin deila fullveldi sínu þegar
og á þeim sviðum sem þau telja að
séu þeim til hagsbóta. Um leið er-
um við öll stolt af sögu, hefðum,
menningu og tungu okkar eigin
landa. Enda eru einkennisorð okk-
ar: „Sameinuð í fjölbreytileika.“
Evrópusambandið er byggt á sam-
eiginlegum gildum; mannlegri
reisn, frelsi, lýðræði, jafnrétti,
réttarríkinu og mannréttindum.
Evrópusambandið stendur ein-
arðlega með þessum gildum, þrátt
fyrir hávær áköll um sterka for-
ingja og aukinn sýnileika þjóðern-
ishyggju.
Sameiginleg saga okkar gerir
okkur kleift að standa þétt saman
gegn slíkum áskorunum. Þetta er
hinn viðvarandi styrkleiki evr-
ópskrar samvinnu og gerir okkar
fordæmi einstakt og þess virði að
verja það. Enda fékk Evrópusam-
bandið friðarverðlaun Nóbels árið
2012 fyrir að stuðla að friði, sátt-
um, lýðræði og mannréttindum í
Evrópu.
Bjart framundan
Og nú, árið 2019, er Evrópa að
reisa sig við eftir árabil af kreppu.
Í Evrópu eru nú 240 milljónir
manna í vinnu – fleiri en nokkru
sinni fyrr. Neytendur og fyrirtæki
njóta góðs af innri markaði Evr-
ópusambandsins, sem veitir þeim
meira val og lægra verð. Sameig-
inlegur gjaldmiðill okkar verndar
okkur gegn fjárhagslegum óstöðu-
leika. Evrópa er einstök þegar hún
tryggir að kostir okkar félagslega
markaðshagkerfis nái til allra
borgara hennar.
Evrópa vinnur að því að tryggja
öryggi íbúa sinna – meiri árangur
hefur unnist í innflytjendamálum,
landamæraeftirliti og í öryggis-
málum almennt á síðustu fjórum
árum heldur en á tveimur áratug-
um þar á undan. Þá er Evrópa
ábyrgur alþjóðlegur áhrifavaldur,
sem tekur forystu í að takast á við
loftslagsbreytingar, er talsmaður
friðar og sjálfbærrar þróunar á
heimsvísu, stuðlar að frjálsum og
sanngjörnum viðskiptaháttum og
setur staðla í mannréttindum, að-
stæðum á vinnustöðum, matvæla-
öryggi og gagnavernd.
Samstaða er lífsnauðsynleg
Svo að Evrópa blómstri, verða
lönd Evrópusambandsins að vinna
saman. Þau verða að vinna saman
ef þau vilja vernda evrópska lifn-
aðarhætti, viðhalda jörðinni okkar,
og styrkja áhrif okkar á alþjóða-
vísu. Aðeins með því að finna þann
styrk sem felst í einingu, mun
Evrópa geta haft áhrif á fram-
vindu alþjóðamála. Því er mikil-
vægt að við horfum til framtíðar,
lærum af mistökunum og byggjum
á velgengni okkar.
Í dag hittast leiðtogar Evrópu-
sambandsins í Sibiu í Rúmeníu, til
þess að ræða pólitískar væntingar
Sambandsins og undirbúa að-
gerðaáætlun til næstu fimm ára.
Þessi fundur á sér stað í aðdrag-
anda Evrópukosninganna, þar sem
yfir 400 milljón Evrópubúar kjósa
í stærstu lýðræðislegu fjölþjóða-
kosningu heims. Þessi fundur á
sér stað þrjátíu árum eftir endalok
kommúnismans og fall Berlínar-
múrsins, og fimmtán árum eftir
fordæmalausa stækkun Sambands-
ins, sem markaði endalok sorglegs
klofnings meginlandsins okkar.
Umræður leiðtoganna munu leggja
grunnstoðirnar að næsta kafla evr-
ópskrar samvinnu.
Til að fagna öllu þessu höldum
við Evrópudaginn hátíðlegan í dag
klukkan 17, í Ráðhúsi Reykjavík-
ur, með matar og menningarhátið.
Veislan er opin öllum.
Eftir Michael Mann, Håkan
Juholt, Graham Paul, Herbert
Beck, Ann-Sofie Stude og
Gerard Pokruszyński
»Evrópa er einstök
þegar hún tryggir að
kostir okkar félagslega
markaðshagkerfis nái til
allra borgara hennar.
Ann-Sofie Stude
Michael Mann er sendiherra
Evrópusambandsins, Håkan Juholt
er sendiherra Svíþjóðar, Graham
Paul er sendiherra Frakklands,
Herbert Beck er sendiherra Þýska-
lands, Ann-Sofie Stude er sendiherra
Finnlands, Gerard Pokruszyński er
sendiherra Póllands.
Graham Paul Gerard PokruszyńskiHerbert BeckHåkan JuholtMichael Mann
Evrópudagurinn – hátíð evrópskrar samvinnu