Morgunblaðið - 09.05.2019, Síða 46

Morgunblaðið - 09.05.2019, Síða 46
46 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 Elsku systir og mágkona. Sárt er vinar að sakna. Sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna. Margar úr gleymsku rakna. Svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta. Húmskuggi féll á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta. Vinur þó félli frá. Góða minning að geyma gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma. Þér munum við ei gleyma. Sofðu í sælli ró. (Höf. ók.) Kæri Binni og fjölskylda, inni- legar samúðarkveðjur. Megi Guð styrkja ykkur í sorginni, en minningin um góða konu mun ætíð lifa. Jenný og Reynir. Elsku Svava frænka. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Þín er sárt saknað. Elsku Binni, Dúddi, Fjóla, Berglind og fjölskyldur, innileg- ar samúðarkveðjur. Hugur okk- ar og hjarta er hjá ykkur. Anna María Reynisdóttir og fjölskylda. Við bræður fengum í vöggu- gjöf að eiga frænku í næsta húsi sem við gátum alltaf leitað til hvort sem það var að sauma á Svava Árný Jónsdóttir ✝ Svava ÁrnýJónsdóttir fæddist 21. mars 1952. Hún lést 20. apríl 2019. Útför Svövu fór fram 3. maí 2019. okkur jakka eða gefa okkur að borða eða bara vera í heimsókn eins og það var kallað þeg- ar hún var að passa okkur. Heima hjá henni fundum við alltaf að við vorum velkomnir og minn- ingin um þvotta- lyktina er enn fersk. Hjá henni fengum við okkar fyrstu vinnu við að hringa upp teina í bíl- skúrnum. Alltaf sýndi hún okkur ekkert nema kærleik og ást. Svava var eina sanna frænka okkar og mun minning um hana lifa í hjörtum okkar um alla tíð. Elsku Binni og fjölskylda, við sendum ykkur innilegar sam- úðarkveðjur. Helgi Einar og Ármann. Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins blóm er verður að hlíta þeim lögum að beygja sig undir þann allsherjar- dóm sem ævina telur í dögum. Við áttum hér saman svo indæla stund sem aldrei mér hverfur úr minni. Og nú ertu genginn á guðanna fund það geislar af minningu þinni. (Friðrik Steingrímsson) Þessi orð eiga vel við nú þeg- ar við kveðjum kæra vinkonu okkar, hana Svövu. Við vissum auðvitað að hún var búin að vera veik nokkuð lengi en við áttum alls ekki von á þessu svona fljótt. Kannski af því að við heyrðum hana aldrei kvarta, hún sagðist alltaf vera bara ágæt, kannski svolítið orkulaus en annað ekki. Það er margs að minnast eftir vinskap sem varað hefur í meira en hálfa öld og aldrei borið skugga á. Og enn hefur verið höggvið stórt skarð í vinahópinn okkar en þrjú eru farin á undan henni. Við minnumst allra skemmti- legu ferðanna okkar bæði er- lendis og ekki síður hér innan- lands. Við Björg og Óli minnumst yndislegrar ferðar til Taílands með Svövu og Binna, þar treystust vinaböndin enn frekar. Einnig er mjög minnisstæð ferð þegar hópurinn fór í sigl- ingu í Karíbahafinu og til Dóm- iníska lýðveldisins, var það einn- ig frábær ferð eins og reyndar allar ferðirnar okkar saman. Útilegur okkar vinanna eru óteljandi og allar geyma þær góðar minningar um söng, hlát- ur og gleði. Við vorum stundum spurð að því hvort við gerðum okkur grein fyrir hvað svona vinskapur væri mikilvægur en okkur fannst þetta bara svo sjálfsagt, hafði alltaf verið svona og við þekktum ekkert annað. Við vinkonurnar vorum flest- ar mjög virkar í Slysavarna- deildinni Þórkötlu og voru Björg og Svava þar í stjórn í mörg ár. Já það er margs að minnast og við vitum að við eigum eftir að sakna vinkonu okkar enda- laust. Við kveðjum þig með sára sorg í hjarta söknuðurinn laugar tári kinn. Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta dökkur skuggi fyllir huga minn. Í miðjum leik var komið til þín kallið klippt á strenginn þinn. Eitt af vorsins fögrum blómum fallið. (Hákon Aðalsteinsson) Hvíl í friði, kæra vinkona, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Elsku Binni, Dúddi, Fjóla, Berglind og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur. Missir ykkar er mikill en Guð gefi ykkur styrk. Stefanía Björg og Ólafur Þór, Elísabet og Daníel. Mér þykir afar sárt að þurfa að kveðja elskulegu vinkonu mína. Ég kynntist þeim hjónum Svövu og Binna fyrir rúmum fimmtíu árum þegar ég fluttist til Grindavíkur. Á þeim tímum byrjuðum við að byggja hlið við hlið á Staðarhrauni 13 og 15. Hófst þar vinskapur okkar Svövu sem aldrei hefur slitnað upp úr. Samgangur fjölskyldn- anna var einstakur og margar eru minningarnar er ég lít til baka. Öll ferðalögin, ferðirnar út í Knarrarnes, fjallaferðirnar þar sem mikið var hlegið og haft gaman. Upp úr standa samt sem áður erfiðu stundirnar þar sem Svava og Binni stóðu eins og klettur við hlið okkar, alltaf boð- in og búin að hjálpa, hvort sem það var að baka fyrir fermingu, taka strákana í ferðalög, passa eða hvað sem er. Eitt sinn sagði Svava við mig: „Sibba, ég skal passa alla nema hundinn“ og þáði ég það, og ekki leið á löngu áður en Tryggur var kominn yf- ir þröskuldinn og var orðinn fastagestur í mat hjá þeim hjón- um. Við vinkonurnar sátum löngum stundum saman í eld- húsinu hvor hjá annarri og spjölluðum um allt milli himins og jarðar. Ýmis samskipta- mynstur voru notuð í gamni, þar sem þau frændsystkinin Hörður og Svava kölluðu hvort annað Júlla og Júllu. Alla tíð voru þau Hörður mjög samrýmd sem lagði grunninn að því sambandi sem var í Staðarhrauninu. Svava var hörkudugleg og kvartaði aldrei og tókst á við veikindi sín af æðruleysi og þrautseigju og fannst mér mjög fallegt að sjá hve samrýmd þau hjónin voru og fjölskyldan á þessum tímum. Binni, Dúddi, Fjóla og Berglind, mig langar að senda ykkur og fjölskyldum ykkar mínar innilegustu samúð- arkveðjur og vona að Guð styrki ykkur í sorginni. Sigurbjörg Ásgeirsdóttir. ✝ Hörður Ein-arsson var fæddur á Skriðu- felli á Barðaströnd 26. desember 1923. Hann and- aðist á Landspítal- anum við Hring- braut 27. apríl 2019. Foreldrar Harð- ar voru Einar Ebenezersson, f. 1879 í Hvammi á Barðaströnd, d. 1952, og Guðríður Ásgeirs- dóttir, f. 1883 á Melsnesi á Rauðasandi, d. 1961. Þau bjuggu á ýmsum bæjum á trúa og forstöðukonu dagvist- unar Sjálfsbjargar. Börn þeirra eru: Steinunn F., f. 1950, fyrri maður hennar var Atli S. Ingvarsson og síð- ari maður hennar Sigurður G. Sigurðsson. Einar G., f. 1951, maki hans er Ólöf Anna Ólafs- dóttir, og Guðrún Alda, f. 1955, fyrri maður hennar var Maths Olaf Nesheim, d. 1981, og síðari maður hennar er Sig- urður Þór Salvarsson. Barna- börn Harðar eru átta og barnabarnabörnin 15. Hörður og Steinunn skildu. Seinni kona Harðar var Sigríður Eymundsdóttur, f. 1930, d. 2009, þau skildu. Lífsföru- nautur Harðar til 14 ára var Gunnhildur Kristjánsdóttir, f. 1930, d. 2015. Útför Harðar fer fram frá Áskirkju í dag, 9. maí 2019, klukkan 15. Barðaströnd, síð- ast á Brekkuvelli og voru oft kennd við þann bæ. Af fjórtán börnum þeirra komust ell- efu til fullorðins- ára. Þau Einar, Magnús, Guðrún Ásgerður, Bjarni Óskar, Svava, Númi Björgvin, Ármann, Ólafía Sigurrós, Þórður, Hörður og Búi Rafn. Öll eru nú látin. Hörður giftist Steinunni Finnbogadóttur, f. 1924, d. 2016, ljósmóður, borgarfull- Elsku pabbi, þú varst alltaf glæsilegur á velli, fallega klæddur, teinréttur og reffileg- ur. Hafðir mjög sterka nærveru og frá þér stafaði hlýju og góð- vild sem laðaði fólk að þér. Þú varst réttsýnn og hafðir sterkar skoðanir á þjóðmálum. Duglegur, starfsamur, list- rænn og mjög hagur, það lék allt í höndunum á þér. Elskaðir að vera úti í náttúrunni, varst næmur á umhverfi þitt og ein- staklega veðurglöggur. Lést ekki bugast, tókst mótlæti af miklu æðruleysi og fannst fljót- lega nýjar leiðir. Að lokinni starfsævi sem stýrimaður og skipstjóri fékkst þú þér lítinn bát og veiðistöng. Þegar þú gast ekki lengur ekið keyptir þú rafskutlu og hélst áfram gönguferðum í Sunda- höfn og Grasagarðinum. Tókst sprengitöflur þegar þess þurfti og lést verkina ekki stoppa þig. Þú kunnir þá list að lifa í núinu allt til loka. Þú vildir ekki flytja úr Jökul- grunni inn í aðalbyggingu Hrafnistu, fannst þú missa sjálfstæði og hélst að þú fengir færri heimsóknir, það var öðru nær. Ég man hvað þú varst stoltur þegar þú sagðir mér að starfsfólkinu fyndist svo gott að koma til þín, það væri svo hlý- legt hjá þér. Já, það var gott að koma til þín, fá smáknús, halda svo áfram eða horfa með þér á sjónvarpið – Attenborough, fréttirnar eða bara vera; orð voru ekki alltaf þörf eins og þú sagðir. Náttúru- og dýralífsþættir voru þitt yndi og til að geta not- ið þeirra sem best fékkstu þér 65 tomma sjónvarp síðasta sumar. Sjórinn og náttúran í öll- um sínum formum var órjúfan- legur hluti af þér. Sem barn gast þú dundað þér einn úti heilu dagana sagðirðu mér. Stundum fannst þú sofandi milli þúfna þegar komið var að háttatíma. Það var gaman að fara með þér í bíltúr niður að Sundahöfn eða gömlu höfninni og fá fræðslu um skipin, sjóinn og sjómennsku. Eða hitta þig á Kaffi Flóru, þú komst þangað á skutlunni, ég gangandi eða ak- andi. Minnisstæð er sigling á Hval 5 inn í Hvalfjörð þegar ég var 7-8 ára. Ég var svo stolt af pabba mínum sem var stýrimaður á þessu skipi. Á heimili okkar var málverk af Bolungarvík eftir þig, þú varst svo listrænn. Alls staðar þar sem þú starfaðir gaf efnivið- urinn í kringum þig tilefni til listrænnar sköpunar. Þegar þú varst á hvalbátunum gerðir þú lampa og skartgripi úr hvals- tönnum, á sanddæluskipunum gerðir þú listaverk úr kóröllum og í tengslum við stangveiðina og fluguhnýtingar urðu til næl- ur og eyrnalokkar. Á Hrafnistu gafst tækifæri til að skera út í við og þeir eru ófáir sem eiga fallegu útskornu bakkana þína. Þú áttir hugmyndina að Kúbuferðinni. Þið Gunnhildur voruð eins og ástfangnir ung- lingar, það geislaði af ykkur. Gunnhildur sem þú kynntist þegar þú fluttir á Jökulgrunn í þjónustuíbúð hjá Hrafnistu. Sagðir mér að þú værir búinn að eignast vin og allt í einu var alltaf á tali hjá þér. Þið lifðuð lífinu svo fallega saman. Voruð alltaf að gera eitthvað skemmti- legt. Fóruð til útlanda, ferðuð- ust um landið að ógleymdum veiðiferðunum. Þú hafðir ríka réttlætiskennd og vildir að farið væri fram af sanngirni. Þegar þú fluttir í Jökulgrunn var allur lífeyririnn tekinn af þér og þú fékkst vasa- peninga. Þér var stórlega misboðið, fannst þér sýnt mikið virðingar- leysi. Það var ekki spurning um að greiða fyrir kostnaðinn held- ur að fá ekki neina kvittun. Fórst í útvarpsviðtal og talaðir við ráðherra til að mótmæla þessu. Við börnin þín, ég, Einar og Guðrún Alda, eigum þér svo mikið að þakka, höfum svo margt lært af þér og átt svo margar yndisstundir með þér. Takk fyrir allt, elsku pabbi, og það fordæmi sem þú sýndir með lífi þínu sem mun alltaf lifa með okkur. Steinunn Harðardóttir, Einar Harðarson og Guð- rún Alda Harðardóttir. Með fráfalli Harðar Einars- sonar skipstjóra er mikill höfð- ingi og öðlingur genginn. Ég var svo lánsamur að kynnast honum Herði tvisvar um dagana, ef svo má segja. Fyrst upp úr 1970 þegar ég sem menntaskólastrákur var svo heppinn að fá sumarpláss nokk- ur sumur, sem háseti á dælu- skipinu Sandey, en Hörður var þar stýrimaður og skipstjóri í afleysingum. Þar kynntist ég honum sem yfirmanni og stjórnanda, röggsömum og reffilegum manni sem kom fram við undirmenn sína af vin- semd og virðingu. Hörður var ekki margmáll við okkur strákana, en gaf sér þó af og til tíma til að tefla við okkur, og hafði jafnan sigur enda slyngur skákmaður. Um það bil tíu árum síðar kynntist ég Herði aftur, en þá sem verðandi tengdaföður þeg- ar ég og Guðrún Alda dóttir hans hófum sambúð og giftum okkur. Þá kynntist ég öðrum Herði, fjölskyldumanninum Herði, vingjarnlegum og við- ræðugóðum manni sem sýndi mér og mínum aldrei annað en alúð og elskulegheit til hinsta dags. Þá kynntist ég líka veiði- manninum og náttúruunnand- anum Herði, en hann var ástríðufullur veiðimaður, enda alinn upp við matarkistuna Breiðafjörð þar sem veiðiskap- ur var stór hluti lífsbaráttunn- ar, og honum í blóð borinn. Sjómennska og veiðar urðu líka ævistarf hans og svo tóm- stundir eftir að starfsævi lauk. Stangaveiði og allt sem henni við kom átti hug hans allan á efri árum, þannig stundað hann veiðar af kappi á sumrin og fluguhnýtingar á veturna allt fram yfir nírætt, svo mikill var hugurinn, þótt heilsan væri far- in að gefa sig síðari árin. Aldrei kunni Hörður betur við sig en með veiðistöng í hönd við friðsælt fjallavatn á fallegum sumardegi og ég trúi því að hann sé nú kominn á veiðilendur eilífðarlandsins, sáttur og sæll. Blessuð sé minning hans. Sigurður Þór Salvarsson. Í dag fylgjum við Herði okkar, Herði hennar mömmu, Herði kærasta til hinstu hvílu. Hörður kom inn í líf okkar fyrir tæpum 19 árum þegar mamma Gunnhildur kynnti hann hróðug fyrir okkur. Hún sjötug og hann 78 ára bæði nýflutt inn á Jökulgrunn Hrafnistu í Reykjavík. Samband þeirra var einstakt, kærleikur og vináttan skein ætíð úr augum þeirra og saman leiddust þau allt sem þau fóru. Og þau fóru sko víða, til Kúbu, Spánar, Kan- arí, um landið þvert og endi- langt. Flest sumur fóru í veiðiferðir því Hörður var mikill áhuga- maður um veiði og heilu dagana sat Gunnhildur á sólstól, prjón- aði og horfði á Hörð sinn veiða. Og alla daga sem viðraði fóru þau út í bíltúr og göngutúr og áttu sína uppáhaldsstaði. Grasa- garðurinn í Laugardal var þeirra staður og auðvitað nefndi Gunnhildur fallegasta tréð í garðinum Hörð. Skarfaklettur og Grótta voru tíðir áfangastaðir og brauð haft með í för til að fóðra svanga fugla. Saman áttu Hörður og Gunn- hildur 15 ár, en það var mikið tekið frá Herði þegar Gunnhild- ur féll frá fyrir rúmum þremur árum. En Hörður var áfram dugleg- ur að halda rútínu, hélt áfram að heimsækja staðina „þeirra“ á bílnum sínum meðan hann hafði bílpróf en á rafskutlunni góðu síðasta árið. Hörður var áfram hluti af okkar lífi þegar hann var orðinn einn, heimsóknir á báða vegu, ferðir vestur í Dali, og auðvitað heimsóttum við leiði Gunnhildar saman. Hörður valdi blómin á leiðið og fagurfífill varð fyrir valinu. Nú kveðjum við Hörð, okkar mæta mann og sjáum í huga okkar Gunnhildi taka á móti honum á stjörnunni sinni, með nýlagað kaffi með flóaðri mjólk og nýbökuðum hollustu- pönnslum. Við sendum hugheilar samúð- arkveðjur til barna Harðar, Steinunnar, Guðrúnar Öldu, Einars og fjölskyldna þeirra. Saknaðarkveðja, Sigrún og Gunnbjörn (Gunni). Hörður Einarsson Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Jón G. Bjarnason, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Sálm. 6.3 biblian.is Líkna mér, Drottinn, því að ég er magnþrota, lækna mig, Drottinn, því að bein mín tærast af ótta.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.