Morgunblaðið - 09.05.2019, Blaðsíða 46
46 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019
Elsku systir og
mágkona.
Sárt er vinar að
sakna.
Sorgin er djúp og hljóð.
Minningar mætar vakna.
Margar úr gleymsku rakna.
Svo var þín samfylgd góð.
Daprast hugur og hjarta.
Húmskuggi féll á brá.
Lifir þó ljósið bjarta,
lýsir upp myrkrið svarta.
Vinur þó félli frá.
Góða minning að geyma
gefur syrgjendum fró.
Til þín munu þakkir streyma.
Þér munum við ei gleyma.
Sofðu í sælli ró.
(Höf. ók.)
Kæri Binni og fjölskylda, inni-
legar samúðarkveðjur. Megi
Guð styrkja ykkur í sorginni, en
minningin um góða konu mun
ætíð lifa.
Jenný og Reynir.
Elsku Svava frænka.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti,
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Þín er sárt saknað.
Elsku Binni, Dúddi, Fjóla,
Berglind og fjölskyldur, innileg-
ar samúðarkveðjur. Hugur okk-
ar og hjarta er hjá ykkur.
Anna María Reynisdóttir og
fjölskylda.
Við bræður fengum í vöggu-
gjöf að eiga frænku í næsta húsi
sem við gátum alltaf leitað til
hvort sem það var að sauma á
Svava Árný
Jónsdóttir
✝ Svava ÁrnýJónsdóttir
fæddist 21. mars
1952. Hún lést 20.
apríl 2019.
Útför Svövu fór
fram 3. maí 2019.
okkur jakka eða
gefa okkur að borða
eða bara vera í
heimsókn eins og
það var kallað þeg-
ar hún var að passa
okkur. Heima hjá
henni fundum við
alltaf að við vorum
velkomnir og minn-
ingin um þvotta-
lyktina er enn
fersk. Hjá henni
fengum við okkar fyrstu vinnu
við að hringa upp teina í bíl-
skúrnum. Alltaf sýndi hún okkur
ekkert nema kærleik og ást.
Svava var eina sanna frænka
okkar og mun minning um hana
lifa í hjörtum okkar um alla tíð.
Elsku Binni og fjölskylda, við
sendum ykkur innilegar sam-
úðarkveðjur.
Helgi Einar og Ármann.
Svo viðkvæmt er lífið sem vordagsins
blóm
er verður að hlíta þeim lögum
að beygja sig undir þann allsherjar-
dóm
sem ævina telur í dögum.
Við áttum hér saman svo indæla
stund
sem aldrei mér hverfur úr minni.
Og nú ertu genginn á guðanna fund
það geislar af minningu þinni.
(Friðrik Steingrímsson)
Þessi orð eiga vel við nú þeg-
ar við kveðjum kæra vinkonu
okkar, hana Svövu.
Við vissum auðvitað að hún
var búin að vera veik nokkuð
lengi en við áttum alls ekki von á
þessu svona fljótt. Kannski af
því að við heyrðum hana aldrei
kvarta, hún sagðist alltaf vera
bara ágæt, kannski svolítið
orkulaus en annað ekki.
Það er margs að minnast eftir
vinskap sem varað hefur í meira
en hálfa öld og aldrei borið
skugga á. Og enn hefur verið
höggvið stórt skarð í vinahópinn
okkar en þrjú eru farin á undan
henni.
Við minnumst allra skemmti-
legu ferðanna okkar bæði er-
lendis og ekki síður hér innan-
lands. Við Björg og Óli
minnumst yndislegrar ferðar til
Taílands með Svövu og Binna,
þar treystust vinaböndin enn
frekar.
Einnig er mjög minnisstæð
ferð þegar hópurinn fór í sigl-
ingu í Karíbahafinu og til Dóm-
iníska lýðveldisins, var það einn-
ig frábær ferð eins og reyndar
allar ferðirnar okkar saman.
Útilegur okkar vinanna eru
óteljandi og allar geyma þær
góðar minningar um söng, hlát-
ur og gleði. Við vorum stundum
spurð að því hvort við gerðum
okkur grein fyrir hvað svona
vinskapur væri mikilvægur en
okkur fannst þetta bara svo
sjálfsagt, hafði alltaf verið svona
og við þekktum ekkert annað.
Við vinkonurnar vorum flest-
ar mjög virkar í Slysavarna-
deildinni Þórkötlu og voru Björg
og Svava þar í stjórn í mörg ár.
Já það er margs að minnast
og við vitum að við eigum eftir
að sakna vinkonu okkar enda-
laust.
Við kveðjum þig með sára sorg í
hjarta
söknuðurinn laugar tári kinn.
Dregur ský á dagsins ásýnd bjarta
dökkur skuggi fyllir huga minn.
Í miðjum leik var komið til þín kallið
klippt á strenginn þinn.
Eitt af vorsins fögrum blómum fallið.
(Hákon Aðalsteinsson)
Hvíl í friði, kæra vinkona, og
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Elsku Binni, Dúddi, Fjóla,
Berglind og fjölskyldur, okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Missir ykkar er mikill en Guð
gefi ykkur styrk.
Stefanía Björg og Ólafur
Þór,
Elísabet og Daníel.
Mér þykir afar sárt að þurfa
að kveðja elskulegu vinkonu
mína. Ég kynntist þeim hjónum
Svövu og Binna fyrir rúmum
fimmtíu árum þegar ég fluttist
til Grindavíkur. Á þeim tímum
byrjuðum við að byggja hlið við
hlið á Staðarhrauni 13 og 15.
Hófst þar vinskapur okkar
Svövu sem aldrei hefur slitnað
upp úr. Samgangur fjölskyldn-
anna var einstakur og margar
eru minningarnar er ég lít til
baka. Öll ferðalögin, ferðirnar út
í Knarrarnes, fjallaferðirnar þar
sem mikið var hlegið og haft
gaman. Upp úr standa samt sem
áður erfiðu stundirnar þar sem
Svava og Binni stóðu eins og
klettur við hlið okkar, alltaf boð-
in og búin að hjálpa, hvort sem
það var að baka fyrir fermingu,
taka strákana í ferðalög, passa
eða hvað sem er. Eitt sinn sagði
Svava við mig: „Sibba, ég skal
passa alla nema hundinn“ og
þáði ég það, og ekki leið á löngu
áður en Tryggur var kominn yf-
ir þröskuldinn og var orðinn
fastagestur í mat hjá þeim hjón-
um. Við vinkonurnar sátum
löngum stundum saman í eld-
húsinu hvor hjá annarri og
spjölluðum um allt milli himins
og jarðar. Ýmis samskipta-
mynstur voru notuð í gamni, þar
sem þau frændsystkinin Hörður
og Svava kölluðu hvort annað
Júlla og Júllu. Alla tíð voru þau
Hörður mjög samrýmd sem
lagði grunninn að því sambandi
sem var í Staðarhrauninu.
Svava var hörkudugleg og
kvartaði aldrei og tókst á við
veikindi sín af æðruleysi og
þrautseigju og fannst mér mjög
fallegt að sjá hve samrýmd þau
hjónin voru og fjölskyldan á
þessum tímum. Binni, Dúddi,
Fjóla og Berglind, mig langar að
senda ykkur og fjölskyldum
ykkar mínar innilegustu samúð-
arkveðjur og vona að Guð styrki
ykkur í sorginni.
Sigurbjörg Ásgeirsdóttir.
✝ Hörður Ein-arsson var
fæddur á Skriðu-
felli á Barðaströnd
26. desember
1923. Hann and-
aðist á Landspítal-
anum við Hring-
braut 27. apríl
2019.
Foreldrar Harð-
ar voru Einar
Ebenezersson, f.
1879 í Hvammi á Barðaströnd,
d. 1952, og Guðríður Ásgeirs-
dóttir, f. 1883 á Melsnesi á
Rauðasandi, d. 1961. Þau
bjuggu á ýmsum bæjum á
trúa og forstöðukonu dagvist-
unar Sjálfsbjargar.
Börn þeirra eru: Steinunn
F., f. 1950, fyrri maður hennar
var Atli S. Ingvarsson og síð-
ari maður hennar Sigurður G.
Sigurðsson. Einar G., f. 1951,
maki hans er Ólöf Anna Ólafs-
dóttir, og Guðrún Alda, f.
1955, fyrri maður hennar var
Maths Olaf Nesheim, d. 1981,
og síðari maður hennar er Sig-
urður Þór Salvarsson. Barna-
börn Harðar eru átta og
barnabarnabörnin 15. Hörður
og Steinunn skildu. Seinni
kona Harðar var Sigríður
Eymundsdóttur, f. 1930, d.
2009, þau skildu. Lífsföru-
nautur Harðar til 14 ára var
Gunnhildur Kristjánsdóttir, f.
1930, d. 2015.
Útför Harðar fer fram frá
Áskirkju í dag, 9. maí 2019,
klukkan 15.
Barðaströnd, síð-
ast á Brekkuvelli
og voru oft kennd
við þann bæ. Af
fjórtán börnum
þeirra komust ell-
efu til fullorðins-
ára. Þau Einar,
Magnús, Guðrún
Ásgerður, Bjarni
Óskar, Svava,
Númi Björgvin,
Ármann, Ólafía
Sigurrós, Þórður, Hörður og
Búi Rafn. Öll eru nú látin.
Hörður giftist Steinunni
Finnbogadóttur, f. 1924, d.
2016, ljósmóður, borgarfull-
Elsku pabbi, þú varst alltaf
glæsilegur á velli, fallega
klæddur, teinréttur og reffileg-
ur. Hafðir mjög sterka nærveru
og frá þér stafaði hlýju og góð-
vild sem laðaði fólk að þér. Þú
varst réttsýnn og hafðir sterkar
skoðanir á þjóðmálum.
Duglegur, starfsamur, list-
rænn og mjög hagur, það lék
allt í höndunum á þér. Elskaðir
að vera úti í náttúrunni, varst
næmur á umhverfi þitt og ein-
staklega veðurglöggur. Lést
ekki bugast, tókst mótlæti af
miklu æðruleysi og fannst fljót-
lega nýjar leiðir.
Að lokinni starfsævi sem
stýrimaður og skipstjóri fékkst
þú þér lítinn bát og veiðistöng.
Þegar þú gast ekki lengur ekið
keyptir þú rafskutlu og hélst
áfram gönguferðum í Sunda-
höfn og Grasagarðinum. Tókst
sprengitöflur þegar þess þurfti
og lést verkina ekki stoppa þig.
Þú kunnir þá list að lifa í núinu
allt til loka.
Þú vildir ekki flytja úr Jökul-
grunni inn í aðalbyggingu
Hrafnistu, fannst þú missa
sjálfstæði og hélst að þú fengir
færri heimsóknir, það var öðru
nær. Ég man hvað þú varst
stoltur þegar þú sagðir mér að
starfsfólkinu fyndist svo gott að
koma til þín, það væri svo hlý-
legt hjá þér. Já, það var gott að
koma til þín, fá smáknús, halda
svo áfram eða horfa með þér á
sjónvarpið – Attenborough,
fréttirnar eða bara vera; orð
voru ekki alltaf þörf eins og þú
sagðir.
Náttúru- og dýralífsþættir
voru þitt yndi og til að geta not-
ið þeirra sem best fékkstu þér
65 tomma sjónvarp síðasta
sumar. Sjórinn og náttúran í öll-
um sínum formum var órjúfan-
legur hluti af þér.
Sem barn gast þú dundað þér
einn úti heilu dagana sagðirðu
mér. Stundum fannst þú sofandi
milli þúfna þegar komið var að
háttatíma.
Það var gaman að fara með
þér í bíltúr niður að Sundahöfn
eða gömlu höfninni og fá
fræðslu um skipin, sjóinn og
sjómennsku. Eða hitta þig á
Kaffi Flóru, þú komst þangað á
skutlunni, ég gangandi eða ak-
andi. Minnisstæð er sigling á
Hval 5 inn í Hvalfjörð þegar ég
var 7-8 ára.
Ég var svo stolt af pabba
mínum sem var stýrimaður á
þessu skipi.
Á heimili okkar var málverk
af Bolungarvík eftir þig, þú
varst svo listrænn. Alls staðar
þar sem þú starfaðir gaf efnivið-
urinn í kringum þig tilefni til
listrænnar sköpunar. Þegar þú
varst á hvalbátunum gerðir þú
lampa og skartgripi úr hvals-
tönnum, á sanddæluskipunum
gerðir þú listaverk úr kóröllum
og í tengslum við stangveiðina
og fluguhnýtingar urðu til næl-
ur og eyrnalokkar.
Á Hrafnistu gafst tækifæri til
að skera út í við og þeir eru
ófáir sem eiga fallegu útskornu
bakkana þína.
Þú áttir hugmyndina að
Kúbuferðinni. Þið Gunnhildur
voruð eins og ástfangnir ung-
lingar, það geislaði af ykkur.
Gunnhildur sem þú kynntist
þegar þú fluttir á Jökulgrunn í
þjónustuíbúð hjá Hrafnistu.
Sagðir mér að þú værir búinn
að eignast vin og allt í einu var
alltaf á tali hjá þér. Þið lifðuð
lífinu svo fallega saman. Voruð
alltaf að gera eitthvað skemmti-
legt. Fóruð til útlanda, ferðuð-
ust um landið að ógleymdum
veiðiferðunum.
Þú hafðir ríka réttlætiskennd
og vildir að farið væri fram af
sanngirni. Þegar þú fluttir í
Jökulgrunn var allur lífeyririnn
tekinn af þér og þú fékkst vasa-
peninga.
Þér var stórlega misboðið,
fannst þér sýnt mikið virðingar-
leysi. Það var ekki spurning um
að greiða fyrir kostnaðinn held-
ur að fá ekki neina kvittun.
Fórst í útvarpsviðtal og talaðir
við ráðherra til að mótmæla
þessu.
Við börnin þín, ég, Einar og
Guðrún Alda, eigum þér svo
mikið að þakka, höfum svo
margt lært af þér og átt svo
margar yndisstundir með þér.
Takk fyrir allt, elsku pabbi,
og það fordæmi sem þú sýndir
með lífi þínu sem mun alltaf lifa
með okkur.
Steinunn Harðardóttir,
Einar Harðarson og Guð-
rún Alda Harðardóttir.
Með fráfalli Harðar Einars-
sonar skipstjóra er mikill höfð-
ingi og öðlingur genginn.
Ég var svo lánsamur að
kynnast honum Herði tvisvar
um dagana, ef svo má segja.
Fyrst upp úr 1970 þegar ég sem
menntaskólastrákur var svo
heppinn að fá sumarpláss nokk-
ur sumur, sem háseti á dælu-
skipinu Sandey, en Hörður var
þar stýrimaður og skipstjóri í
afleysingum. Þar kynntist ég
honum sem yfirmanni og
stjórnanda, röggsömum og
reffilegum manni sem kom
fram við undirmenn sína af vin-
semd og virðingu.
Hörður var ekki margmáll
við okkur strákana, en gaf sér
þó af og til tíma til að tefla við
okkur, og hafði jafnan sigur
enda slyngur skákmaður.
Um það bil tíu árum síðar
kynntist ég Herði aftur, en þá
sem verðandi tengdaföður þeg-
ar ég og Guðrún Alda dóttir
hans hófum sambúð og giftum
okkur. Þá kynntist ég öðrum
Herði, fjölskyldumanninum
Herði, vingjarnlegum og við-
ræðugóðum manni sem sýndi
mér og mínum aldrei annað en
alúð og elskulegheit til hinsta
dags.
Þá kynntist ég líka veiði-
manninum og náttúruunnand-
anum Herði, en hann var
ástríðufullur veiðimaður, enda
alinn upp við matarkistuna
Breiðafjörð þar sem veiðiskap-
ur var stór hluti lífsbaráttunn-
ar, og honum í blóð borinn.
Sjómennska og veiðar urðu
líka ævistarf hans og svo tóm-
stundir eftir að starfsævi lauk.
Stangaveiði og allt sem henni
við kom átti hug hans allan á efri
árum, þannig stundað hann
veiðar af kappi á sumrin og
fluguhnýtingar á veturna allt
fram yfir nírætt, svo mikill var
hugurinn, þótt heilsan væri far-
in að gefa sig síðari árin.
Aldrei kunni Hörður betur
við sig en með veiðistöng í hönd
við friðsælt fjallavatn á fallegum
sumardegi og ég trúi því að
hann sé nú kominn á veiðilendur
eilífðarlandsins, sáttur og sæll.
Blessuð sé minning hans.
Sigurður Þór Salvarsson.
Í dag fylgjum við Herði
okkar, Herði hennar mömmu,
Herði kærasta til hinstu hvílu.
Hörður kom inn í líf okkar fyrir
tæpum 19 árum þegar mamma
Gunnhildur kynnti hann hróðug
fyrir okkur.
Hún sjötug og hann 78 ára
bæði nýflutt inn á Jökulgrunn
Hrafnistu í Reykjavík. Samband
þeirra var einstakt, kærleikur
og vináttan skein ætíð úr augum
þeirra og saman leiddust þau
allt sem þau fóru. Og þau fóru
sko víða, til Kúbu, Spánar, Kan-
arí, um landið þvert og endi-
langt.
Flest sumur fóru í veiðiferðir
því Hörður var mikill áhuga-
maður um veiði og heilu dagana
sat Gunnhildur á sólstól, prjón-
aði og horfði á Hörð sinn veiða.
Og alla daga sem viðraði fóru
þau út í bíltúr og göngutúr og
áttu sína uppáhaldsstaði. Grasa-
garðurinn í Laugardal var
þeirra staður og auðvitað nefndi
Gunnhildur fallegasta tréð í
garðinum Hörð.
Skarfaklettur og Grótta voru
tíðir áfangastaðir og brauð haft
með í för til að fóðra svanga
fugla.
Saman áttu Hörður og Gunn-
hildur 15 ár, en það var mikið
tekið frá Herði þegar Gunnhild-
ur féll frá fyrir rúmum þremur
árum.
En Hörður var áfram dugleg-
ur að halda rútínu, hélt áfram að
heimsækja staðina „þeirra“ á
bílnum sínum meðan hann hafði
bílpróf en á rafskutlunni góðu
síðasta árið. Hörður var áfram
hluti af okkar lífi þegar hann var
orðinn einn, heimsóknir á báða
vegu, ferðir vestur í Dali, og
auðvitað heimsóttum við leiði
Gunnhildar saman. Hörður valdi
blómin á leiðið og fagurfífill varð
fyrir valinu.
Nú kveðjum við Hörð, okkar
mæta mann og sjáum í huga
okkar Gunnhildi taka á móti
honum á stjörnunni sinni, með
nýlagað kaffi með flóaðri mjólk
og nýbökuðum hollustu-
pönnslum.
Við sendum hugheilar samúð-
arkveðjur til barna Harðar,
Steinunnar, Guðrúnar Öldu,
Einars og fjölskyldna þeirra.
Saknaðarkveðja,
Sigrún og Gunnbjörn
(Gunni).
Hörður
Einarsson
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna Sálm. 6.3
biblian.is
Líkna mér, Drottinn,
því að ég er
magnþrota,
lækna mig, Drottinn,
því að bein mín
tærast af ótta.