Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 47

Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 47
MINNINGAR 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 ✝ Sigríður Jóns-dóttir fæddist 18. september 1931. Hún lést 26. apríl 2019 eftir stutt veikindi. Hún var dóttir Petreu Óskars- dóttur, f. 30.6. 1904, d. 27.12. 1999, og Jóns Sveinssonar, f. 14.5. 1887, d. 19.3. 1971. Sigríður ólst upp á Hóli í Sæmundarhlíð. Systkini sam- feðra: Sigurður, f. 11.8. 1916, d. 28.10. 1994, og Hallfríður Bára, f. 14.7. 1922. Alsystkini: Sveinn, f. 7.11. 1926, d. 15.11. 2016, Grétar, f. 9.6. 1928, Ósk- ar, f. 11.1. 1930, Bjarni, f. 10.6. 1937, Magnús, f. 12.9. 1938, Margrét, f. 25.6. 1945, d. 31.12. 1982. Sigríður gekk í barnaskóla sem var í raun farskóli. Oftar en ekki fór kennslan fram á Hóli. Veturinn 1948-1949 dvaldi hún í Reykjavík hjá Sigurði bróður sínum og Margréti konu hans. Gætti hún barna þeirra en stundaði jafnframt nám í kvöldskóla KFUM. Hlaut hún þar m.a. viðurkenningu fyrir góðan námsárangur. Veturinn eitt barn. 2. Helga, f. 7.3. 1954, m. Bjarki E. Tryggvas., f. 3.8. 1951. Börn þeirra: Sigríður Herdís, f. 24.11. 1976, m. Valdimar Búi Haukss., f. 10.8. 1972, Haraldur Tryggvi, f. 16.10. 1979, Jóhann Örn, f. 8.12. 1981, m. Ragnhild- ur Einarsd., f. 20.7. 1980, þau eiga eitt barn, Vildís Björk, f. 26.10. 1986, m. Samúel R. Kristjánss., f. 10.9. 1985, þau eiga þrjú börn. 3. Baldur, f. 25.5. 1962, m. Katrín María Andrésd., f. 28.12. 1968. Börn Baldurs af fyrri samböndum: Marta Birna, f. 14.11. 1979, m. Joseph Spiegel, f. 13.3. 1971, þau eiga eitt barn, Eva Pan- dora, f. 8.10. 1990, m. Daníel V. Stefánss. f. 4.4. 1988, barn þeirra er Benjamín, f. 5.2. 1995. 4. Jón Bjartur, f. 28.4. 1969. Eftir fráfall Haraldar flutti Sigríður til Sauðárkróks. Hóf þar störf á Saumastofunni Vöku og starfaði þar 1985- 1988. Þá flutti hún sig um set og starfaði við Heilbrigðisstofn- unina á Sauðárkróki til 2000. Síðustu æviárin bjó hún á Sauðárkróki ásamt syni sínum, Jóni Bjarti. Haustið 2018 hafði heilsu Sigríðar hrakað, fór hún til dvalar á Deild II á Heil- brigðisstofnuninni. Útförin fer fram frá Sauðár- krókskirkju í dag, 9. maí 2019, klukkan 14. 1949-1950 var Sig- ríður í Húsmæðra- skólanum á Löngumýri. Sótti hún ýmsa fræðslu eftir að formlegu námi lauk, m.a. á sviði ræktunar og garðyrkju. Á með- an Sigríður dvaldi á Löngumýri kynntist hún til- vonandi eigin- manni sínum, Haraldi Hró- bjartssyni múrarameistara frá Hamri í Hegranesi. Þau giftu sig 2. nóvember 1952 og hófu búskap á Hamri í félagi við tengdaforeldra hennar, mág og mágkonu. Höfðu þau ánægju af ferðalögum og á heimili þeirra var ætíð gestkvæmt. Sigríður starfaði lengi með Kvenfélagi Rípurhrepps og varð þar heið- ursfélagi. Á Hamri bjuggu Sig- ríður og Haraldur til ársins 1985 er Haraldur féll frá, langt um aldur fram. Börn Sigríðar og Haraldar eru: 1. Bragi Þór, f. 8.3. 1953, m. Sigríður J. Andrésd., f. 8.10. 1954. Börn þeirra: Þórdís Vil- helmína, f. 13.6. 1979, Jónas, f. 22.11. 1980, Halla Sigríður, f. 27.3. 1986, m. Arnar Ó. Arn- þórss. f. 7.12. 1973, þau eiga Okkur langar að minnast elsku ömmu okkar. Amma var ávallt hress, kát og lífsglöð með eindæmum. Hún var mjög óeig- ingjörn og setti alltaf fólkið í kringum sig í forgang. Við vor- um mjög mikið hjá henni sem börn enda stutt að labba yfir til hennar í Raftahlíðina. Þar var stjanað við mann og alltaf geng- ið úr skugga um að maður fengi nóg að borða: „Viltu ekki meira? Þú ert ekkert búin(n) að borða.“ Þetta heyrði maður sama hversu oft maður var búinn að setja á diskinn. Hún hafði alltaf tíma fyrir okkur og hafði mikinn áhuga á því sem við vorum að gera hverju sinni. Hún var líka góð fyrirmynd. Þegar hún varð óvænt ekkja á miðjum aldri þá lagði hún ekki árar í bát, heldur gerði ýmsar breytingar á lífi sínu. Hún flutti úr sveitinni, fór út á vinnu- markaðinn og tók bílpróf. Ef amma gat gert allt þetta við þessar erfiðu aðstæður þá get- um við brugðist við flestum erf- iðleikum sem verða á vegi okk- ar. Þótt heilsan hafi hægt á ömmu síðari ár var hún alltaf glöð og hress þegar við barna- börnin komum í heimsókn til hennar. Þrátt fyrir að vera að komast á níræðisaldurinn vildi hún ennþá allt fyrir mann gera. Hvíl í friði, elsku amma. Sigríður, Haraldur og Jóhann. Elsku amma. Við trúum því varla að þú sért virkilega farin. Það er undarleg tilhugsun sem erfitt er að sætta sig við en á sama tíma erum við frænkurnar fullar þakklætis í þinn garð því þú skilur svo sannarlega mikið eftir. Viðhorf þitt til lífsins var aðdáunarvert. Jafn einlæg já- kvæðni er sjaldgæf en þú varst alltaf brosandi og hlæjandi og þannig sjáum við þig ljóslifandi fyrir okkur. Þennan eiginleika þinn og viðhorf til lífsins munum við reyna að taka okkur til fyrir- myndar og kenna komandi kyn- slóðum. Það þarf aðeins eina sól til að lýsa upp allan heiminn og þú stóðst þig svo sannarlega vel í því. Við tvær eyddum miklum tíma með þér í æsku og eigum svo margar yndislegar minning- ar með þér en það sem stendur helst upp úr er pönnukökuilm- urinn úr eldhúsinu, ófáu kök- urnar sem þú reyndir ítrekað að koma ofan í okkur þrátt fyrir að við værum pakksaddar og allar sveita- og sundferðirnar. Sem börn áttuðum við okkur ekki endilega á því hversu ótrú- lega þolinmóð þú varst við okk- ur við þessi tilefni, til dæmis þegar við vorum hræddar við vatnið í sundi og fengum að hanga í hálsinum á þér allan tímann eða þegar við vorum óþolinmóðar í bílnum á leiðinni út í sveit og ýttum á alla takkana og þú sagðir ekki orð. Það er nefnilega merkilegt að hvorug okkar á eina einustu minningu af því að þú hafir nokkurn tím- ann skammað okkur. Við erum ekki vissar um að það segi mikið um hvernig börn við vorum, frekar um hversu góð og þolin- móð þú varst. Í seinni tíð var alltaf svo gott og notalegt að koma í heimsókn til þín í Rafta- hlíðina. Dyr þínar voru ávallt opnar og búrið alltaf vel útbúið kökum og góðgæti. Andrúms- loftið heima hjá þér var einstak- lega þægilegt, stundum svo þægilegt að maður fékk að leggja sig í rúminu þínu á meðan þú sast við hliðina á í lazy-boy stólnum þínum að horfa á sjón- varpið eða að prjóna, jafnvel hvort tveggja í einu. Það voru ákveðin viðbrigði þegar þú fórst inn á dvalarheim- ilið og við gátum ekki lengur heimsótt þig í Raftahlíðina en þegar þú brostir og hlóst þá skipti engu máli hvar við vorum, það var alltaf yndislegt að koma og knúsa þig. Við erum óend- anlega þakklátar fyrir að börnin okkar fengu að kynnast þér. Þú varst yndisleg langamma sem barnabarnabörnin elskuðu, þrátt fyrir að þú hafir verið „smá gleymin“, að þeirra sögn. Ástríkari manneskju en þig var ekki hægt að finna en það hlýjaði manni alltaf um hjarta- rætur að sjá hvað þú varst alltaf rosalega ástfangin af afa og saknaðir hans mikið, þrátt fyrir að hann hafi kvatt fyrir rúmlega þremur áratugum. Við hefðum svo sannarlega viljað hafa séð ykkur saman en okkur er mjög minnisstæð saga af ykkur tveimur þegar þú varst einhvern tímann hlæjandi eins og vana- lega og afi hristi hausinn og sagði „er ekki nóg fyrir þig að hlæja einu sinni á dag?“. Við trúum því að núna séuð þið afi loksins saman á ný og hlæið oft á dag. Eva Pandora Baldursdóttir og Vildís Björk Bjarkadóttir. Sigríður Jónsdóttir Ég mun aldrei gleyma þessum aukasekúndum hvert skipti sem ég faðm- aði þig, elsku afi. Þegar ég hugsa til baka gerðir þú mikið til þess að sýna okkur hinum ómetanlega óskuldbundna ást. En þú gerðir það á lúmskan hátt og ég sé það betur með hverjum deginum eftir að þú hvarfst inn í draumalandið hversu fallegt hjarta þú hafðir að geyma. Afi Valdi kenndi mér margt nyt- samlegt þessi ár sem við áttum saman. Það mætti segja að hann hafi skipað sérstakan sess í lífi mínu sem barn. Hann var alltaf tilbúinn að bardúsa með okkur barnabörn- unum og sýndi okkur mikla þolin- mæði og umhyggju. Okkur Söru frænku þótti yndislegt að eyða helgunum hjá afa og ömmu. Þá var öllu tjaldað til að gera hvern dag ævintýralegan, bæði á Hjarðarhag- anum og seinna á Stokkseyri. Afi Valdi átti gulu trilluna Pysju sem var staðsett við gömlu höfnina. Þorvaldur Kristinn Friðriksson Hafberg ✝ ÞorvaldurKristinn Frið- riksson Hafberg fæddist 19. júlí 1932. Hann lést 30. mars 2019. Útförin fór fram 16. apríl 2019. Oftar en ekki bauð hann mér, Söru og Ísaki með sér að veiða og voru túrarn- ir hver öðrum ævin- týralegri. Besta minningin um afa er þegar amma Nonný kom með okkur tveimur einn sólríkan dag í veiðitúr á gulu trillunni. Þau voru eitthvað svo krúttleg þennan daginn. Afi var alltaf að kyssa ömmu, þau voru að hlusta á gömlu rómantísku lögin og dansa. Það verðmætasta sem afi Valdi kenndi mér var að taka lífið ekki of alvarlega og að mikilvægast væri að elta drauma sína. Við lágum saman á túnsléttu eftir reiðtúr á Stokks- eyri einn sólríkan sumardag. Við lágum hlið við hlið í grasinu þar sem hann sagði mér að grafa fingurna alla leið ofan í moldina, loka aug- unum og anda inn fersku lofti í dá- góðan tíma – þessi upplifun fylgir mér og afi Valdi hefur fundið á sér að ég þyrfti að læra að jarðtengja mig. Ég á endalausar yndislegar minningar um þig, afi, og fyrir það verð ég ætíð þakklát. Nú ertu loksins kominn í draumalandið með elskunni þinni og Snúllu. Þórhildur Kristjánsdóttir. Ástkær eiginkona mín, móðir og stjúpmóðir okkar, INGVELDUR GEIRSDÓTTIR blaðamaður, lést á krabbameinsdeild Landspítalans föstudaginn 26. apríl. Útför hennar fer fram í Grafarvogskirkju þriðjudaginn 14. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Kristinn Þór Sigurjónsson Ásgeir Skarphéðinn Andrason Sigurjón Þór Kristinsson Kristín Þórunn Kristinsdóttir Gerður Freyja Kristinsdóttir Ástkær sambýliskona mín, móðir, tengdamóðir, amma og dóttir, SÚSANNA JÓNSDÓTTIR, lést á gjörgæslu Landspítalans við Hringbraut laugardaginn 20. apríl. Útför hennar fer fram frá Garðakirkju föstudaginn 10. maí klukkan 13. Haraldur Einarsson Þorvarður Helgi Haraldsson Agnieszka Olejarz Ásta Særós Haraldsdóttir Halldór Haukur Haraldsson Ásrún Dís Jóhannsdóttir Hákon Hjörtur Haraldsson Kristófer Freyr, Gabríella Guðlaug María Helena Ólafsdóttir Jón Þórðarson Ástkæri eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SÆMUNDUR REIMAR GUNNARSSON, Strandvegi 19, Garðabæ, lést þriðjudaginn 7. maí á Landspítalanum í Fossvogi. Jarðarför verður auglýst síðar. Þórunn Jónsdóttir Sigrún Sæmundsdóttir Merced Maldonado Jón Sæmundsson Laufey Ýr Sigurðardóttir Margrét Sæmundsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Okkar ástkæri, BRAGI SIGURÞÓRSSON verkfræðingur, lést á líknardeild Landspítalans sunnudaginn 5. maí. Útförin fer fram frá Neskirkju mánudaginn 13. maí klukkan 15. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið og Hjálparstarf kirkjunnar. Inga Björk Sveinsdóttir Sólrún Bragadóttir Þórdís Bragadóttir Þorbjörn Guðjónsson Friðrik Bragason María Guðmundsdóttir Ragnar Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR JÓN KRISTJÁNSSON, lést á gjörgæsludeild Landspítalans, Fossvogi, 27. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 13. maí klukkan 15. Guðrún A. Björgvinsdóttir Jón Bjarki Sigurðsson Laufey Sigurðardóttir Aðalbjörg E. Sigurðardóttir Einar Sigurðsson barnabörn og barnabarnabarn Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför KJARTANS BJÖRNSSONAR bónda á Hraunkoti, Aðaldal. Sérstakar þakkir fær starfsfólk sjúkradeildar Heilbrigðisstofnunar Norðurlands á Húsavík fyrir hlýja og góða umönnun. Snjólaug G. Benediktsdóttir Snjólaug G. Kjartansdóttir Borghildur Kjartansdóttir Börkur Kjartansson Kolbeinn Kjartansson Björn Kjartansson og fjölskyldur Okkar ástkæri GUNNAR MAGNÚSSON, áður til heimilis að Litlagerði 14, Reykjavík, lést sunnudaginn 5. maí á Hrafnistu í Reykjavík. Jarðarförin verður auglýst síðar. Didda Gíslína Þórarinsdóttir Guðbjörg Gunnarsdóttir Ólafur Guðjónsson Arnar Þór Gunnarsson Ester Guðbjörnsdóttir Harpa Gunnarsdóttir Guðmundur Baldursson Magnús Gunnarsson Margrét B. Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, SIGRÍÐUR SVAVA JÓNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu, Ísafold, í Garðabæ þriðjudag 30. apríl. Útförin fór fram í kyrrkey að ósk hinar látnu. Jón Þórður Stefánsson Mette Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.