Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 56

Morgunblaðið - 09.05.2019, Side 56
56 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 TE N G IT A U G A R Fallvarnarbúnaður Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Fjölbreytt og gott úrval til á lager Námskeið um fallvarnir fyrir viðskiptavini Skoðanir og eftirlit á fallvarnarbúnaði FA LLB LA K K IR BELTI 40 ára Guðbjörg er frá Ólafsvík en býr í Reykjavík. Hún er leik- skólakennari að mennt og er í meistaranámi í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands. Maki: Vignir Örn Sig- þórsson, f. 1978, framkvæmdastjóri hjá Johan Rönning. Börn: Jökull Örn, f. 2006, Hrafnhildur Steinunn, f. 2010, og Arna Guðrún, f. 2012. Foreldrar: Jón Þorbergur Oliversson, f. 1953, vinnur í vélsmiðjunni Framtaki, og Kolbrún Þóra Björnsdóttir, f. 1954, vinnur hjá Íslenskri erfðagreiningu. Þau eru búsett í Kópavogi. Guðbjörg Birna Jónsdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Regla dagsins hljóðar svo: Þú mátt bara hafa áhyggjur í fimm mínútur. Taktu frumkvæðið og bjóddu á stefnumót. 20. apríl - 20. maí  Naut Þú átt að hafa þann aga til að bera að rannsaka málin vandlega áður en þú segir af eða á. Taktu upp hanskann fyrir vin og þú munt slá í gegn. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú heldur að það sé ekki heilla- vænlegt að láta skrýtinn draum rætast eða nota sköpunarkraftinn. Á hverju bygg- irðu þá skoðun? Láttu slag standa. Tíma- setningin er lykilatriði. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þegar í öngstræti er komið er gott að hugsa málin alveg upp á nýtt. Settu þér það mark að tala fagurt mál og rita. Vinur biður um hjálp. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Ekki hlusta á þá sem segja að draumar þínir geti aldrei ræst. Þú átt hauk í horni í fjölskyldunni sem styður þig, sama hvað. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Réttlætistilfinningu þinni verður misboðið, íhugaðu hvað þú getur gert í því. Fólk hrífst af staðfestu þinni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Allt á sinn tíma og nú er aðalmálið að halda fast utan um budduna. Einhver óvænt útgjöld skjóta upp kollinum. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Sambönd úr fortíðinni gætu skotið upp kollinum í dag. Skoðaðu hvar þú ert núna og hvar þú vilt vera eftir fimm ár. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er eitt og annað sem þú átt ógert en verður að ráða fram úr því eins fljótt og mögulegt er. Fólk sem hugs- ar sér að vera á móti þér getur það hrein- lega ekki þegar á reynir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú vilt gefa öðrum ráð eða deila reynslu þinni með þér yngra fólki. Kannski ertu einum of ráðrík/ur við þína nánustu. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Það er allt í lagi að sýna tilfinn- ingar sínar við þá sem maður treystir og eru líklegir til þess að skilja þær. Börnin eru ekki upp á sitt besta þessar vikurnar. 19. feb. - 20. mars Fiskar Heimili, fasteignir og málefni fjöl- skyldunnar eru efst á baugi á þessu ári. Leyfðu málum bara að hafa sinn gang og njóttu lífsins með bros á vör. mikið til að flytja inn og að koma okk- ur vel fyrir. Eyrarbakki á stóran sess í hjarta mínu og ég hef einlægan áhuga á að leggja gott til samfélags- ins. Hafið og fjaran heillar mig ávallt og togar í með spennandi verkefni sem mig langar einnig að vinna að í náinni framtíð. Ég hef ákveðið að hrinda í fram- ásamt konu sinni verið að vinna að og þróa tvö nýsköpunarverkefni. „Það er heilsutengd ferðaþjónusta þar sem hafið er nýtt til ánægju og heilsueflingar og hitt er að vinna há- gæðaafurð úr broddmjólk kúa.“ Við fjölskyldan höfum keypt okkur fal- legt hús á Eyrarbakka sem við erum að lagfæra og breyta og hlökkum G uðmundur Ármann Pét- ursson fæddist 9. maí 1969 í Reykjavík og bjó í Vogahverfinu, Sólheim- um og Álfheimum nánar tiltekið. „Foreldrar mínir kaupa Hús- ið á Eyrarbakka árið 1979 og hefjast handa við lagfæringar á því og endur- bætur. Ég flyt síðan á Eyrarbakka árið 1982 ásamt móður minni og bróður og þangað er ég fluttur á ný ásamt konu minni og börnum.“ Guðmundur gekk í Ísaksskóla og Æfingadeild Kennaraháskóla Íslands og frá árinu 1982 í Barnaskólann á Eyrarbakka. Hann var skiptinemi í Suður-Karólínuríki í Bandaríkjunum 1985-1986. Hann lauk námi í frum- greinadeild Háskólans á Bifröst 1989 og varð rekstrarfræðingur frá sama skóla 1991. Hann fór síðan í nám við Emerson College í lífefldri ræktun 2003 og lauk MSc-námi í arkitektúr, orku- og umhverfismálum við Uni- versity of East London 2004. Guðmundur byrjaði ungur að vinna, s.s. í fiskvinnslu, við brúar- smíði, sem verkamaður, á Litla Hrauni og á réttargeðdeildinni á Sogni. „Á Sólheimum starfaði ég með hléum frá árinu 1988 til ársins 2017, hafði á þeim tíma unnið í lengri eða skemmri tíma nánast öll störf í fjöl- breyttum rekstri þess samfélags, þar af framkvæmdastjóri í rétt tæp 15 ár.“ Guðmundur var kjörinn í sveitar- stjórn Grímsnes- og Grafningshrepps árið 2010 og á ný árið 2014 og sat til ársins 2018. Hann byrjaði ungur í skátahreyfingunni í skátafélaginu Skjöldungum og var þar virkur um árabil. Fór á tvö alheimsmót skáta í Kanada og Ástralíu, lauk Gilwell- þjálfun, hlaut forsetamerki, var for- maður Skátasambands Suðurlands og sat um tíma í stjórn Bandalags ís- lenskra skáta. „Ég kom að því að endurvekja skátastarf á Selfossi með skátafélag- inu Fossbúum ásamt góðu fólki og starfaði í félaginu um nokkurt skeið. Sonur minn er með Downs heilkenni og læt ég mig hagsmuni einstaklinga með Downs mjög varða, sat um tíma í stjórn Félags áhugafólks um Downs heilkennið og sit í stjórn Þroskahjálp- ar á Suðurlandi.“ Síðustu misseri hefur Guðmundur kvæmd hugmynd sem lætur mig ekki í friði en það er setja af stað kvik- myndahátíð. Sé fyrir mér að hátíðin verði árlegur viðburður og mun hún heita BRIM kvikmyndahátíð. Mark- miðið er að sýna myndir sem tengjast sjávarbyggðum og/eða hafinu. Á þessari fyrstu hátíð verða myndirnar um plast í hafinu. Ég hef náð sam- starfi við erlend samtök sem vinna með markvissum og upplýsandi hætti gegn plastnotkun og hreinsun á plasti úr hafinu. Ég mun kynna þetta verkefni fyrir Eyrbekkingum á næstunni og á ekki von á öðru en það verði vel tekið í hugmyndina.“ Fjölskylda Sambýliskona Guðmundar er Birna Guðrún Ásbjörnsdóttir, f. 28. apríl 1971, doktorsnemi í heilbrigðis- vísindum. Foreldrar hennar eru hjón- in Ásbjörn Kristófersson, f. 9. ágúst 1933, fv. kaupmaður, og Sigríður Guðmannsdóttir, f. 18. október 1932, vann á Landakoti. Þau eru bús. í Reykjavík. Börn: 1) Auðbjörg Helga, f. 23. Guðmundur Ármann Pétursson, sjálfstætt starfandi – 50 ára Fjölskyldan Nói Sær, Guðmundur, Embla, Birna Guðrún og Auðbjörg Helga fyrir utan Mosfellskirkju í Grímsnesi við fermingu Emblu Lífar í fyrra. Kominn heim á Eyrarbakka Afmælisbarnið Guðmundur við ostagerð í námi sínu á Englandi. 30 ára Torfi Geir er Garðbæingur og er að klára BA-nám í al- mannatengslum á Bif- röst. Hann er mark- aðsstjóri hjá leikhús- framleiðslufyrirtækinu Theater Mogul. Maki: Ragnheiður Dísa Gunnlaugsdóttir, f. 1989, leikskólakennari og deildarstjóri á Bæjarbóli. Dóttir: Þórhildur Sóldís, f. 2014. Systkini: Sólveig Dröfn, f. 1996, og Sigurður Einar, f. 1998. Foreldrar: Símon Bjarnason, f. 1966, málari, búsettur á Bíldudal, og Anna Lilja Torfadóttir, f. 1968, kennari, búsett í Garðabæ. Torfi Geir Símonarson Til hamingju með daginn Selfoss Silja Steinsdóttir fæddist 26. september 2018 í Reykjavík. Hún vó 4.102 g og var 55 cm löng. Foreldrar hennar eru Selma Harðardóttir og Steinn Vignir. Nýr borgari

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.