Morgunblaðið - 09.05.2019, Page 59

Morgunblaðið - 09.05.2019, Page 59
ÍÞRÓTTIR 59 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 Ég er ekki stuðningsmaður Liverpool og lít reyndar á liðið sem mína erkióvini en ég gat ekki annað en hrifist af frammi- stöðu þess í leiknum gegn Barcelona í undanúrslitum Meistaradeildarinnar á Anfield í fyrrakvöld. Liverpool pakkaði Spánar- meisturunum saman á mögnuðu Evrópukvöldi á Anfield og ég held svei mér þá að Messi og samherjar hans í Katalóníuliðinu hafi vanmetið andrúmsloftið á þessum sögufræga velli. Ég hef gríðarlega mikið álit á Jürgen Klopp, knattspyrnu- stjóra Liverpool, klókindum hans og útgeislun og hversu tilbúnir leikmenn eru til að spila fyrir Þjóðverjann og félag sitt. Það gerði útslagið í þessum leik. Ég heyrði í gömlum leik- mönnum Liverpool spjalla saman á Liverpool-sjónvarpsstöðinni eftir leikinn og þeir höfðu á orði að leikmenn Barcelona hefðu mætt inn í búningsklefann fyrir leikinn með hangandi haus þar sem værukærðin skein út úr and- litum þeirra. Þeir töldu forms- atriði að gera út um einvígið með 3:0-forystu í farteskinu. Liverpool mætir Tottenham í úrslitaleiknum á Wanda Metro- politano-vellinum í Madrid 1. júní en í ótrúlega dramatískum leik gegn Ajax í Amsterdam í gær- kvöld tryggði Tottenham sér far- seðilinn í úrslitaleikinn með sigurmarki á síðustu sekúndu leiksins. Ég ætla að spá Liverpool sigri og hver veit nema 29. eyði- merkurgöngu Liverpool í leit að Englandsmeistaratitlinum ljúki á sunnudaginn! Það er ekkert ómögulegt í þessari fallegustu og skemmtilegustu íþrótt í heimi! BAKVÖRÐUR Guðmudur Hilmarsson gummih@mbl.is KR Kristján Jónsson kris@mbl.is Ýmislegt sögulegt hefur gerst að undanförnu þegar vetraríþróttirnar hafa náð hámarki. Kvennalið Vals unnu alla stóru bikarana bæði í hand- knattleik og körfuknattleik á sama tímabilinu. KA vann alla stóru bikar- ana í blakinu bæði í karla- og kvenna- flokki. Skautafélag Akureyrar vann hvern einasta bikar sem keppt er um í íshokkíi. Ekki fór framhjá mörgum að KR varð Íslandsmeistari karla í körfuknattleik sjötta árið í röð. Marg- ir töldu að slíkt væri ekki gerlegt í hópíþróttum nútímans þegar fleiri fé- lög hérlendis leggja metnað í að ná árangri en gerðu ef farið er aftur í tímann. KR setti met í körfuboltanum á Ís- landi þegar liðið náði sjötta titlinum í röð. Karlalið ÍR sigraði tvívegis fimm sinnum í röð. Fyrst frá 1960-1964 og síðan frá 1969-1973. Kvennalið KR vann fimm sinnum í röð frá 1979- 1983. KR-ingar eru þó ekki búnir að setja met í íslensku íþróttalífi hvað þetta varðar en eiga möguleika á því. Karlalið Fram varð Íslandsmeistari í knattspyrnu sex sinnum í röð 1913- 1918. Kvennalið Vals í handknattleik varð Íslandsmeistari sex ár í röð 1964-1969 en kvennalið Fram vann einnig sex sinnum gerði gott betur í handknattleiknum og sigraði sjö sinnum í röð 1984-1990. Er það sem sagt metið sem KR-inga að reyna að jafna á næsta keppnistímabili. Sóttur í Stykkishólm Þegar Finnur Freyr Stefánsson lét af störfum síðasta sumar sem þjálfari KR var kallað í annan uppalinn KR- ing, Inga Þór Steinþórsson, sem búið hafði í Stykkishólmi frá sumrinu 2009. Ingi hafði gert karlalið KR að meist- urum árið 2000 og karlalið Snæfells vann tvöfalt undir hans stjórn 2010. Þá varð kvennalið Snæfells Íslands- meistari þrjú ár í röð undir hans stjórn 2014-2016. Ingi þurfti því ekkert að sanna sem þjálfari en margir töldu að erfitt yrði fyrir hann að koma vel út úr þessu keppnistímabili. KR-liðið hafði unnið fimm ár í röð og molnaði í sundur þeg- ar Brynjar Þór Björnsson, Darri Hilmarsson og Kristófer Acox yfir- gáfu félagið. Var það rakið í grein í mánudagsblaðinu hvernig KR-liðið tók svo breytingum í vetur og varð sterkara. Nýta þarf kóngana rétt Inga tókst að finna réttu formúluna og búa til meistaralið, nánast á síð- ustu stundu eða þegar úrslitakeppnin fór í hönd. Fram að því höfðu lið eins og Stjarnan og Njarðvík þótt sigur- stranglegri en KR. Ingi Þór var með í sínum leikmannahópi afar reynda og sigursæla menn. Slíkt getur verið vandmeðfarið en hann virðist hafa unnið mjög farsællega úr því. Þjálf- arinn þarf að leyfa slíkum mönnum að koma að borðinu og setja fram sínar hugmyndir. Í hita leiksins er einnig hægt að nýta innsæi þeirra og leik- skilning til að meta stöðuna. En um leið þarf að vera ljóst að þjálfarinn stjórnar en ekki leikmennirnir. Hans er ábyrgðin og hann tekur endanlega ákvörðun. Stundum verður maður var við um- ræðu um sigursæl lið í íþróttum að þau séu nánast sjálfspilandi og litlu skipti hver þjálfi þau. Greinarhöf- undur hefur ekki mikla trú á þeirri kenningu. Lið verða ekki meistarar þegar leikmenn ráða för. Til þess er sjónarhorn þeirra of þröngt. Inn í þeirra sýn spilar þeirra eigin hlut- verk of mikla rullu til að þeir sjái heildarmyndina jafn skýrt og sá sem er á hliðarlínunni. Tenging við baklandið Afrek Inga er því merkilegt; að hafa náð að stýra flaggskipi KR í höfn með þeirri pressu sem því fylgir. Eins var afrek forvera hans Finns Freys Stefánssonar geysilegt. Til marks um pressuna sem fylgir því að stýra meistaraliði KR þá var Finnur nánast búinn á sál og líkama þegar mótinu lauk fyrir ári. Síðustu árin hefur KR gjarnan þótt sigurstranglegasta liðið. Ekki síst eftir að Jón Arnór Stefánsson ákvað að flytja heim. En þannig hefur það ekki endilega verið öll þessi sex tímabil. Þegar maður hugsar til baka þá var meistaralið KR 2014 til dæmis ekki samansafn af stórstjörnum á þeim tíma. En leikmenn eins og Martin Her- mannsson og Darri Hilmarsson sönn- uðu sig sem toppmenn þann veturinn. Öll sex tímabilin hafa þó margir af lykilmönnum liðsins verið uppaldir KR-ingar. Tengingin við baklandið er því fyrir hendi og það sést á stemn- ingunni í úrslitaleikjum. KR-ingar geta jafnað met á næsta tímabili  Kjarni uppalinna leikmanna með uppalda þjálfara er sigurformúla Morgunblaðið/Hari Þjálfarinn Ingi Þór Steinþórsson leggur línurnar í leikhléi. Birna Berg Haraldsdóttir, lands- liðskona í handknattleik, fékk högg á höfuðið um síðustu helgi í kapp- leik með þýska fyrstudeildarliðinu Neckarsulmer. Svo þungt var högg- ið að hún hlaut heilahristing. Þar af leiðandi leikur hún ekki tvo síðustu leiki liðsins í deildarkeppninni. Að- dragandi höggsins var óvenjulegur. Birna hafði lokið við að taka víta- kast í leiknum, sem hún skoraði úr, þegar hún sneri sér við til að hlaupa í vörnina þegar einn andstæðinga hennar lagði lykkju á leið sína og hljóp utan í Birnu auk þess sem svo virðist sem hún slái til hennar með olnboganum. Birna féll í gólfið og var síðan flutt á varamannabekkinn til frekari aðhlynningar. „Tíu mínútum síðar kom ég inn af varamannabekknum til að taka annað vítakast. Ég man ekkert eftir því frekar en öðru sem gerðist í fyrri hálfleik. Í hálfleik var ég flutt á sjúkrahús,“ sagði Birna Berg í samtali við Morgunblaðið í gær. „Í ljós hefur komið að ég hlaut heilahristing og var auk þess bara heppin að hafa ekki kinnbeins- brotnað til viðbótar,“ sagði Birna ennfremur en hún verður að hafa hægt um sig á næstunni meðan heil- inn jafnar sig. Engu er líkara en andstæðingur- inn rekist viljandi utan í Birnu. „Fyrst trúði ég ekki að þetta væri viljaverk en núna er ég búin að horfa á þetta nokkrum sinnum og það er eitthvað skrítið við þetta. En ég bara trúi því ekki að einhver sé svona vondur að gera svona vilj- andi,“ sagði Birna sem segist enn vera í áfalli eftir að hafa séð mynd- bandið af atvikinu, en það er m.a. að finna á mbl.is. Birna Berg gekk til liðs við Neck- arsulmer í byrjun árs og hefur átt drjúgan þátt í að liðið hefur bjargað sér frá falli í 2. deild. iben@mbl.is Man ekki eftir að hafa tekið vítakastið Morgunblaðið/Eggert Heilahristingur Birna Berg er frá keppni um nokkurt skeið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.