Morgunblaðið - 09.05.2019, Page 61

Morgunblaðið - 09.05.2019, Page 61
ÍÞRÓTTIR 61 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 2019 www.gilbert.is VELDU ÚR MEÐ SÁL Frisland Classic  Benedikt Guðmundsson hefur valið æfingahóp kvennalandsliðsins í körfu- bolta sem kominn er saman til undir- búnings fyrir Smáþjóðaleikana í Svart- fjallalandi 27. maí til 1. júní. Um er að ræða fyrsta verkefni landsliðsins undir stjórn Benedikts sem valdi 26 manna hóp sem sjá má á mbl.is. Fimm leik- menn gátu ekki gefið kost á sér en það eru þær Birna V. Benónýsdóttir úr Keflavík, Guðbjörg Sverrisdóttir úr Val, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Ragnheiður Benónísdóttir úr Stjörn- unni, og Unnur Tara Jónsdóttir úr KR.  Forráðamenn sænska knattspyrnu- félagsins Hammarby hyggjast reyna hvað þeir geta að halda landsliðs- framherjanum Viðari Erni Kjart- anssyni í sínum röðum lengur en sem nemur lánssamningnum við rússneska félagið Rostov sem rennur út um miðj- an júlí. Hammarby á betri möguleika á að halda Viðari nú þegar félagið hefur selt hinn 18 ára gamla miðvörð Kossounou Odilon fyrir met- upphæð til Club Brugge í Belgíu, en Hammarby fær á bilinu 380-510 milljónir ís- lenskra króna vegna sölunnar. „Við munum alla vega reyna,“ sagði Jesper Jansson, yfirmaður íþróttamála hjá Hammarby, að- spurður hvort félag- ið gæti nú haldið Viðari. Viðar hefur skorað 3 mörk í fyrstu 7 leikjum tímabilsins í Sví- þjóð. Eitt ogannað Í EYJUM Guðmundur T. Sigfússon sport@mbl.is Eyjamenn jöfnuðu metin í einvígi sínu gegn Haukum í gærkvöldi þegar liðin mættust í fjórða sinn í undanúrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik. Liðin fara nú í oddaleik um sæti í úrslitarimm- unni næsta laugardag á Ásvöllum og sigurvegarinn þar mætir Sel- fossi. Leiknum í gær lauk 30:27 og voru Eyjamenn í raun með sig- urinn vísan mestallan leikinn. Eyjamenn hófu leikinn mjög vel og höfðu forskot frá upphafi en þeir leiddu með fjórum mörkum í hálfleik, 15:11. Umskipti í síðari hálfleik Það forskot var fljótt að gufa upp í seinni hálfleik þar sem Haukarnir hófu hann af miklum krafti, höfðu greinilega farið vel yfir hlutina í hálfleik. Haukar náðu aldrei forystunni á nýjan leik og hefði það líklega verið það sem þeir þurftu. Ef Eyjamenn hefðu lent undir hefð- um við getað séð brotið lið. Sigurbergur Sveinsson, Kristján Örn Kristjánsson og Dagur Arn- arsson skoruðu allir sex mörk í leiknum og léku vel. Hjá Hauk- unum var Orri Freyr Þorkelsson markahæstur með fimm mörk, öll úr vítum. Markverðir liðanna hafa allir átt betri leiki en samtals voru 18 skot varin í leiknum, níu hjá hvoru liði. Haukar sterkir á Ásvöllum Haukar hafa unnið báða heima- leikina sína gegn ÍBV í þessari rimmu nokkuð þægilega en Eyja- menn að því er virðist þurft að hafa meira fyrir sínum sigrum, sem báðir komu þó á þeirra heimavelli. Helsti munurinn á þessum leik og þeim fyrri var sá að Eyjamenn náðu að stoppa gríð- arlega öfluga seinni bylgju Hauka og fækka mörkum þeirra úr henni. Stuðningurinn í Vestmanna- eyjum var eins og best verður á kosið; Eyjamenn fylltu húsið og frábærir stuðningsmenn Hauka fjölmenntu einnig til Eyja. Það verður gaman að sjá hvort það sama verður upp á teningnum í næsta leik liðanna. Ekki kæmi það á óvart þegar sæti í úrslitum Íslandsmótsins er í húfi. Eins og áður segir hafa allir fjórir leikirnir unnist á heimavelli. Haukar komust yfir 1:0 og 2:1 en ÍBV hefur tvívegis jafnað. Vörnin betri en áður hjá ÍBV gegn Haukum  Eyjamenn knúðu fram oddaleik á Ásvöllum með sigri í fjórða leiknum í Eyjum Ljósmynd/Sigfús 6 mörk Kristján Örn Kristjánsson var drjúgur fyrir ÍBV og er hér kominn í skotfæri gegn Grétari Ara. Vestmannaeyjar, undanúrslit karla, fjórði leikur, miðvikudag 8. maí 2019. Gangur leiksins: 3:2, 6:4, 8:5, 10:8, 13:10, 15:11, 15:14, 17:17, 21:19, 24:23, 27:24, 30:27. Mörk ÍBV: Kristján Örn Kristjánsson 6, Dagur Arnarsson 6, Sigurbergur Sveinsson 6, Hákon Daði Styrmisson 4/2, Gabríel Martinez 3, Fannar Þór Friðgeirss. 3, Elliði Snær Viðarss. 2. Varin skot: Björn Viðar Björnsson 5, Haukur Jónsson 4. Utan vallar: 6 mínútur Mörk Hauka: Orri Freyr Þorkelsson ÍBV – Haukar 30:27 5/5, Adam Haukur Baumruk 4, Daní- el Þór Ingason 4, Brynjólfur Snær Brynjólfsson 4, Heimir Óli Heimisson 3, Tjörvi Þorgeirsson 2, Ásgeir Örn Hallgrímsson 2, Atli Már Báruson 1, Jón Þorbjörn Jóhannsson 1, Einar Pétur Pétursson 1. Varin skot: Grétar Ari Guðjónsson 8, Andri Sigmarsson Scheving 1/1. Utan vallar: 2 mínútur Dómarar: Jónas Elíasson og Svavar Ólafur Pétursson. Áhorfendur: 900.  Staðan í einvíginu er jöfn, 2:2, og liðin mætast í oddaleik á laugardag. Tottenham Hotspur mætir Liver- pool í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir ævin- týralega atburðarás í Amsterdam í gærkvöldi. Tottenham leikur til úr- slita í keppninni í fyrsta skipti í sögu félagsins. Tottenham sigraði Ajax 3:2 eftir að Ajax komst í 2:0 og fer áfram á fleiri mörkum skor- uðum á útivelli. Villtustu draumar stuðnings- manna Tottenham rættust í gær rétt eins og villtustu draumar stuðningsmanna Liverpool rættust á þriðjudagskvöldið. Tottenham þurfti að skora alla vega þrjú mörk í síðari hálfleik í gær og gerði það. Brasilíumaðurinn Lucas Moura sá reyndar alfarið um það með mörk- um á 55., 59. og þegar fimm mín- útur voru liðnar af uppbótartíma. Matthijs de Ligt og Hakim Ziyech skoruðu mörkin fyrir Ajax á 5. og 36. mínútu. Eftir fyrri leikina benti margt til þess að Ajax-Barcelona yrði úrslita- leikurinn en þess í stað verður það Tottenham-Liverpool. AFP Þrenna Lucas Moura hafði ástæðu til að fagna í Amsterdam í gær. Þrenna Moura kom Tottenham í úrslit

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.