Morgunblaðið - 09.05.2019, Síða 72
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
laugardaga og sunnudaga 12-18
mánudaga - föstudaga 11-18:30
SUMAR
& SÓL
CANNES garðstóll. Svartur, grár, hvítur eða rauður. 16.900 kr.
Sönghópurinn Við Tjörnina kemur
fram á hádegistónleikum raðar-
innar Á ljúfum nótum í Fríkirkjunni í
Reykjavík í dag kl. 12 og syngur lög
eftir djasspíanóleikarana Gerorge
Shearing og Jan Lundgren, djass-
bassaleikarann Ike Sturm og Inga T.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. og tekið
fram að ekki er tekið við greiðslu-
kortum.
Við Tjörnina á ljúfum
nótum í Fríkirkjunni
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 129. DAGUR ÁRSINS 2019
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 670 kr.
Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr.
PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr.
KR setti met í körfuboltanum á Ís-
landi þegar liðið náði sjötta titl-
inum í röð. KR-ingar eru þó ekki
búnir að setja met í íslensku
íþróttalífi hvað þetta varðar en eiga
möguleika á því. Kvennalið Fram í
handknattleik sigraði sjö sinnum í
röð 1984-1990. Er það sem sagt
metið sem KR-ingar reyna að jafna
á næsta keppnistímabili. »59
KR vantar einn sigur til
að ná kvennaliði Fram
ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Margrét
Jónsdóttir
listmálari
opnar sýn-
inguna
Myndbirt-
ing þján-
ingarinnar
í SÍM-
Salnum,
Hafnarstræti 16, í dag kl. 14. Á sýn-
ingunni má sjá málverk á pappír, unn-
in út frá upplifun við að eldast og
slitna sem kona í íslensku menning-
arumhverfi, eins og því er lýst í til-
kynningu, en Margrét hefur unnið að
listsköpun í tæp 50 ár og stundað
kennslu í 27 ár bæði við framhalds-
skóla, grunnskóla og Myndlistarskóla
Kópavogs, unnið við grafíska hönnun
og rekið auglýsingastofu.
Myndbirting þjáning-
arinnar í sal SÍM
ytra. Þeir setja upp aðgerðaáætlun
og áætla kostnað. Hægt er að kom-
ast að hjá þeim eftir um það bil mán-
uð, aðgerðin tekur einn til tvo daga
og gisting er innifalin í pakkanum.“
Eiríkur segir að sem betur fer
þurfi menn ekki að skammast sín
lengur fyrir að vera með þunnt hár
eða skalla, þótt hárlos hafi alltaf ein-
hver áhrif á sálarlífið. „Ég er með
yfir 200 fasta viðskiptavini í hártopp-
um og hárígræðsla er í eðli sínu af
sama meiði, bara önnur lausn.“
Verðið fer eftir því hvað aðgerðin
er mikil, fjölda hársekkja. „Pakkinn
ytra getur kostað frá um 300.000
krónum upp í eina og hálfa milljón.
En þetta er spurning um val og útlit.
Fólk vill gjarnan viðhalda æskuljóm-
anum og það er það sem ég reyni að
aðstoða það við, enda hef ég alltaf
haft gaman af útliti og tísku.“
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Hárskerinn Eiríkur Ingi Lárusson
hefur unnið við iðnina í tæplega ald-
arfjórðung og er með traustan við-
skiptamannahóp. Hann keypti hár-
snyrtistofuna Greifann á Hring-
braut 119, vestast í Vesturbæ
Reykjavíkur, fyrir nokkrum árum,
hefur síðan leiðbeint og aðstoðað
fólk í sambandi við hártoppa og er
nú kominn í samstarf við ungversku
hárígræðslustöðina La Porta-Hair í
Búdapest.
„Ég sérsníð hártoppa á þunnhært
fólk og sérpanta þá svo að utan,“
segir Eiríkur og bendir á að sam-
starfið við Ungverjana sé eðlileg við-
bót við þjónustuna. Hann útskýrir
að hártoppar séu fyrir einstaklinga
sem hafa misst allt hárið en hár-
ígræðsla sé góð lausn fyrir þá sem
eru með há kollvik og þunnt hár í
hvirflinum. Stundum sé báðum að-
ferðum beitt; hártoppur á einum
stað og hárígræðsla á öðrum. Enn-
fremur veiti hann aðstoð við skegg-
ígræðslu. „Ég met stöðu hvers ein-
staklings, hvernig hárið þynnist og
hvað sé hægt að gera. Í stuttu máli
er ég með alhliða lausnir vegna hár-
loss.“
Sérfræðingar og staðlar
Eiríkur segir að svokallað FUE2-
hárígræðslukerfi sé það nýjasta í
þessum fræðum. Það sé upprunnið í
Bandaríkjunum og ungverska stöðin
sé í samstarfi við frumkvöðlana
vestra. Hársekkir séu teknir úr
hnakkanum eða hliðunum, þar sem
hárið sé þykkast, og græddir í hár-
svörðinn, þar sem hárið vantar.
Vegna sérstakrar meðferðar aðlagi
þeir sig nýja svæðinu, verði þar eðli-
legir og vaxi sem fyrr.
„Sérfræðingar í læknastétt,
skurðlæknar og fleiri, vinna á stöð-
inni í Búdapest og fylgja evrópskum
stöðlum,“ segir Eiríkur. „Eftir að ég
hef fengið upplýsingar um hárlos í
ætt viðkomandi einstaklings og met-
ið hárlos hans sendi ég myndir af
hársverði hans til sérfræðinganna
Viðheldur æsku-
ljóma viðskiptavina
Eiríkur hárskeri í samstarf við ungverska hárígræðslustöð
Greifinn Eiríkur Ingi Lárusson er kominn í samstarf við Ungverja.
Hárígræðsla Efri myndin sýnir hár-
ið fyrir aðgerð og hin eftir aðgerð.