Morgunblaðið - 17.05.2019, Side 10

Morgunblaðið - 17.05.2019, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019 Þ etta friðaða og fallega hús á sér langa og merkilega sögu. Það var byggt árið 1901 og hefur verið í sömu fjölskyldu frá upphafi. Eig- andinn eignaðist húsið frá móður sinni og tók það loforð að húsið færi aldrei úr fjölskyldunni en sjálf ólst hún upp í húsinu til 8 ára aldurs,“ segir Berglind. – Í hvernig ástandi var það þegar þið feng- uð þetta verkefni? „Húsið leit út eins og leikmynd að utan en var mjög illa farið að innan og þurfti því hreinlega að byggja húsið upp á nýtt. Þegar ráðist var í endurgerð á þessu fallega húsi var gætt að því að öll hönnunin tæki mið af anda og byggingarstíl hússins og að allar endurbætur væru í samræmi við aldur þess. Skipta þurfti til dæmis um alla glugga í hús- inu en passað var upp á að þeir væru nákvæm eftirsmíði af upprunalegum gluggum. Allir hurðarhúnar, slökkvarar og rofar eru til dæm- is í upprunalegum stíl frá aldamótum. Sama á við um allar hurðir og lista við gólf og loft til að ná fram sem upprunalegustu útliti og því yfirbragði sem einkenndi húsið upphaflega,“ segir Helga. Þess var gætt vel að allar innréttingar væru í anda hússins. Þær eru allar sérsmíðaðar hjá Örn ehf. í Vestmannaeyjum. Í eldhúsinu er til dæmis hvít sprautulökkuð innrétting með fulningum og eru ekki efri skápar heldur opn- ar hillur fyrir ofan vaskinn. Á einum vegg eru háir skápar með innfelldum ísskáp og tækja- skáp. Í eldhúsinu er stór og mikil gamaldags eldavél og eru höldurnar litlir hnúðar úr burstuðu stáli. Steinn er á borðplötunum og kemur hann úr Granítsmiðjunni. Eins og sést á myndunum er gott skápapláss í eldhúsinu. „Í húsinu býr fimm manna fjölskylda og var hugmyndin að búa til hlýlegt og persónulegt heimili þar sem að þarfir og óskir fjölskyld- unnar væru hafðar í fyrirrúmi. Breytingar voru gerðar á skipulaginu á neðri hæðinni Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson Lofaði að húsið færi ekki úr fjölskyldunni Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnadóttir, innanhúss- arkitektar FHI, endurhönnuðu hús sem byggt var 1901. Húsið hefur verið í eigu sömu fjölskyldu frá upphafi og var lagt mikið upp úr því að halda í upprunalegan stíl við endurbæturnar. Marta María | mm@mbl.is Gamaldags vaskur prýðir baðherbergið. Hringlaga speg- illinn tengir þetta um 120 ára gamla hús við nútímann. Berglind Berndsen og Helga Sigurbjarnardóttir sáu um að hanna húsið að innan og raða upp öllum húsgögnum. Berglind og Helga röðuðu upp öllum húsgögnum á heimilinu. Glugga- tjöldin eru sérsmíðuð hjá Skerma. Allar hurðir í húsinu eru sprautulakkaðar og hurðarhúnar eru í upprunalegum stíl.  SJÁ SÍÐU 12

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.