Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 16
H
anna Stína lærði innanhúss-
arkitektúr á Ítalíu og útskrif-
aðist frá ISAD í Mílanó 2002.
Síðan þá hefur hún fegrað heim-
ili landsmanna með smekkvísi
sinni. Hún er þekkt fyrir að
ganga alltaf aðeins lengra
með hönnun sinni og er
óhrædd við að nota liti
og svo elskar hún ef
hún getur keyrt
glamúrinn örlítið
upp.
„Húsið var mjög
fallegt þegar ég
fékk það verkefni
að endurhanna það
en það vantaði alla
liti og alla kontrasta.
Eigendur hússins vildu
litagleði, hlýleika og glæsi-
leika fyrir ára ásamt því að
fjölga baðherbergjum og í sameiningu
varð til þetta fallega heimili,“ segir Hanna
Stína.
Í grunninn er húsið í þeim
anda sem tíðkaðist hérlendis í
kringum 1935. Upprunaleg gólf-
borð voru pússuð upp og lökkuð og
þess var gætt að gólflistar, loftlistar og
gluggalistar fengju að njóta sín og svo var
allt tréverk stíflakkað. Stofa og borðstofa
eru máluð í hlýjum, ljósgráum tón en lita-
gleðin fær að njóta sín í húsgögnum í þess-
um tveimur stofum.
Í stofunni er ljóstúrkíslitaður sófi úr
hömruðuflaueli. Í honum eru fullt af púðum
sem passa vel við litapallettuna í málverkinu
fyrir aftan sófann. Á móti sófanum eru tveir
gulir stólar úr smámunstruðu flaueli.
„Ég lét sérsmíða sófann og stólana hjá Al-
ter London en hringlaga borðið kemur frá
Módern og er frá Minotti sem er ítalskt hús-
gagnamerki. Mér fannst skipta máli að vera
með hringlaga borð á móti þessum straum
Ljósmyndir/Gunnar Sverrisson
Innanhússarkitektinn Hanna
Stína fékk það verkefni að
endurhanna skipstjórahús
sem byggt var 1935. Eig-
endur hússins fengu hana til
að búa þeim fallega umgjörð
og sá innanhússarkitektinn
um allt frá hönnun innréttinga
upp í að láta sérsmíða hús-
gögn fyrir fjölskylduna.
Marta María | mm@mbl.is
Þótt heimilið sé litaglatt
passa litirnir saman og
enginn litur stingur í stúf.
Mjúkir tónar mætast í stofunni. Sófinn og stólarnir voru sér-
smíðaðir hjá Alter London. Borðið er frá Minotti og keypt í
Módern og ljósið er frá Tom Dixon og fæst í Lúmex.
Glamúrinn í forgrunni
í skipstjórahúsi frá 1935
SJÁ SÍÐU 18
Hanna Stína innan-
hússarkitekt út-
skrifaðist árið 2003.
16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019