Morgunblaðið - 17.05.2019, Blaðsíða 24
Allt til alls á baðinu
Þegar inn á baðherbergi er komið er bæði baðkar og sturta.
Ernu fannst það skipta mjög miklu máli. Á baðherberginu eru
líka góðir skápar fyrir handklæði og fleira dót sem fylgir bað-
herberginu.
„Svo kom þetta allt þegar ég byrja að skipuleggja rýmið.
Ég lagði mikið upp úr því að baðherbergið væri klassískt og
fallegt og með mjög góðri lýsingu.“
Aðspurð um innréttingar á baðherberginu segir Erna að
þær hafi verið sérsmíðaðar hjá Smíðaþjónustunni.
„Flísarnar heita INDUSTRAL SAGE SOFT og eru í
stærðinni 60X60 cm og við keyptum þær í Birgisson. Borð-
platan er úr gráum marmara og kemur hún líka frá Granít-
smiðjunni. Blöndunartækin á baðherberginu koma frá Vola og
koma þau frá Tengi, vaskur og klósett eru FLAMINIA og
koma líka frá Tengi,“ segir Erna. Spegillinn og sturtuglerið
var sérpantað hjá Samverk.
Aðspurð hvernig henni finnist heimili hafa þróast síðustu 20
ár segir hún að það hafi ótal margt breyst.
„Fyrir 20 árum þegar ég var að byrja þá var ég meira að
teikna bara eldhús eða baðherbergi, en núna er meira um að
fólk komi og biðji mig að taka allan pakkann til að fá heildar-
hönnun á húsið.
Fólk biður mikið um aðstoð með eldhús, baðherbergi, efn-
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stóllinn heitir
The Worker
og var keyptur
í Saltfélaginu
á sínum tíma.
Blaðagrindin
er úr Epal. SJÁ SÍÐU 26
Erna segir að gott eldhús
sé fallegt og í því sé gott
vinnupláss.
Í eldhúsinu er
fantaflottur
tækjaskápur.
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 2019