Morgunblaðið - 05.06.2019, Page 4

Morgunblaðið - 05.06.2019, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2019 Þorsteinn Ásgrímsson thorsteinn@mbl.is Ábyrgðin á þeirri stöðu sem er komin upp eftir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE) í gær er ríkisins og það er þeirra að koma með leið til að greiða úr málinu. Þetta segir athafnamaðurinn Ólafur Ólafsson, sem er einn hinna fjögurra sem dæmdir voru í Al Thani-málinu. Fyrr í gær komst MDE að þeirri niðurstöðu að einn hæstaréttardómara sem dæmdu í málinu hefði ekki verið hlutlaus vegna fjölskyldutengsla hans, en eiginkona dómarans var varaformaður stjórnar FME þegar eft- irlitið rannsakaði Kaupþing og þá var sonur hans aðallög- fræðingur Kaupþings og síðar starfsmaður slitabús bankans. Ólafur segir það ekki geta verið hlutverk borgara að standa í því að stefna ríkinu til endurupptöku þegar ljóst sé að brotið hafi verið á mannréttindum fólks og það stað- fest af MDE. Segir hann það hlutverk dómsmála- ráðherra og forsætisráðherra að tryggja lýðræðisleg réttindi borgara og þeir verði að finna út hvað eigi nú að gera. „Þeir bera ábyrgðina á málinu,“ segir hann. „Þeir væru að dæma eigin störf“ Málið hefur farið fyrir héraðsdóm og Hæstarétt, en síðar var farið fram á endurupptöku málsins. Var það vegna fyrrnefndra fjölskyldutengsla, auk þess sem fjór- menningarnir töldu að brotið hefði verið gegn réttindum þeirra varðandi aðgang að gögnum málsins, hlerunum á símtölum við verjendur og að ekki hafi verið fullreynt að fá sjeik al Thani til að bera vitni við dómshaldið. Endur- upptökunni var hafnað og kærðu þeir málið til MDE. Dómstóllinn tók hins vegar ekki undir þessar aðfinnslur. Spurður hvort hann teldi rétt að endurupptökunefnd myndi fallast á endurupptöku málsins eftir dóm MDE segir Ólafur að núna sé sannarlega búið að dæma dóm- stólinn brotlegan. Hins vegar segist hann ekki treysta Hæstarétti lengur til að dæma í málum sér tengdum. Segir hann flesta dómarana sem dæmdu fyrr í málinu sitja áfram, utan Árna Kolbeinssonar, sem var sagður hafa skort hlutleysi, og Gunnlaugs Claessen, sem kom aftur til starfa tímabundið eftir að hafa verið kominn á eftirlaun. „Þeir væru að dæma eigin störf,“ segir Ólafur og bætir við að þegar ekki sé hægt að bera traust til ein- staklinga sem eigi að vera hlutlausir og faglegir þá velti hann alvarlega fyrir sér hvað sé hægt að gera. Segir ríkið bera ábyrgðina á málinu og næstu skrefum  Ráðherrar eigi að tryggja lýðræðisleg réttindi Morgunblaðið/Golli Vantraust Ólafur Ólafsson segist ekki treysta Hæsta- rétti Íslands til að dæma í málum sér tengdum lengur. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Ferðamaður sem alræmdur er fyr- ir utanvegaakstur á jarðhitasvæði í Bjarnarflagi við Mývatn þar sem hann festi bílaleigujeppa sinn á sunnudag greiddi að líkindum hæstu stöku sekt sem hefur verið greidd af þessu tagi á Íslandi. Borgaði hann alls 450 þúsund krónur fyrir brot á náttúruvernd- arlögum í fyrradag. Þetta segir Hreiðar Hreiðarsson, aðalvarð- stjóri lögreglunnar á Húsavík, sem kom að málinu. Ferðamaðurinn sem um ræðir heitir Alexander Tikhomirov og er sá vinsæl rúss- nesk samfélagsmiðlastjarna. Birti hann og föruneyti hans myndir af sér og skemmdunum á samfélags- miðlum. Hreiðar segir reglur um slík brot af skornum skammti og bend- ir á að ekki sé að finna neinn sekt- arramma á ákveðnum brotum í náttúruverndarlögum eins og finna megi í umferðarlögum. Segir hann að lögreglumönnum sé þó heimilt að gefa sektir á bilinu 10-500 þús- und krónur fyrir brot á náttúru- verndarlögum. Í þessu tilviki hafi sektin því verið í hæsta lagi. Heimila ekki harðari refsingu „Þetta var í algjöru hámarki þarna. Við höfðum 50 þúsund krón- ur upp á að hlaupa sem hámarks- sekt fyrir eitthvað hrikalegt,“ segir Hreiðar. „Ég reikna með að þetta sé hæsta staka sekt sem hefur ver- ið greidd af þessu tagi á Íslandi í dag.“ Hreiðar segir lögreglumenn ekki hafa neina heimild til að gefa harðari refsingu fyrir brot af þessu tagi. Hann segir til að mynda ekki hægt að svipta Tikhomirov öku- réttindum þar sem brotið heyrði ekki undir umferðarlög heldur náttúruverndarlög. „Þú getur skemmt náttúruna á svo margan hátt. Bíll er bara eitt af því sem þú getur notað til þess,“ segir Hreið- ar. Hann staðfestir þó að landeig- endum, sem sitji uppi með tjón af völdum utanvegaakstursins, standi lítið annað til boða en að kæra at- vikið sem þeir hafi þegar gert. Aðstoð í formi vinnuframlags Guðrún María Valgeirsdóttir, formaður landeigenda í Reykjahlíð, staðfestir að eigendur svæðisins hafi kært verknaðinn og lagt fram kröfu upp á tvær milljónir. Hún segist þó ekki bera neinar vonir um að fá eitthvað út úr henni enda ólíklegt að Tikhomirov verði á landinu þegar kröfunni verður fylgt eftir. Segir Guðrún umhugs- unarvert að engin betri úrræði skuli finnast í þessu tilfelli þar sem um kláran ásetning sé að ræða. „Þótt það væri ekki nema bara að skylda hann til að laga til eftir sig. Það getur bara ekki verið eðlilegt að landeigandinn sitji eftir með tjónið og fjárhagslegan skaða.“ Hún segist þó bjartsýnni eftir að hafa fengið boð frá ferðaklúbbnum 4x4 og Umhverfisstofnun um að- stoð í formi vinnuframlags til að laga skemmdirnar á svæðinu. Þetta staðfestir Umhverfisstofnun í samtali við Morgunblaðið, en stofnunin bauð landeigendum að- stoð í formi vinnuframlags síðdegis í gær. Tóku dráttarkaðla í leyfisleysi Marcin Kozaczek, ljósmyndari og starfsmaður fyrirtækisins Jóns Inga Hinrikssonar ehf., sem býður upp á dráttarbílaþjónustu og bíla- leigu í Mývatnssveit, var einn sá fyrsti á svæðið á sunnudaginn og sá um að grafa bílaleigubíl Tik- homirovs úr leirnum. Marcin segir í samtali við Morgunblaðið að sam- félagsmiðlastjarnan hafi tekið í leyfisleysi nokkra dráttarkaðla sem fyrirtækið geymdi í skúr í grenndinni. Segir hann Tikhomirov hafa verið að freista þess að leysa bílinn sjálfur með aðstoð vegfar- enda þegar Marcin kom að bíla- leigubílnum. Sýndi engin merki um iðrun Segist Marcin í upphafi hafa haldið að um slys væri að ræða. Því segir hann að Tikhomirov hafi svarað neitandi og segir hann ekki hafa sýnt nein merki um eftirsjá. „Hann sagðist bara vera með þennan bíl sem hægt væri að keyra utan vegar og hann hefði bara gert það,“ segir Marcin sem kallaði í framhaldi eftir lögregluaðstoð. Hann sá sjálfur um að leysa bílinn úr leirnum en dráttarbíl þurfti til þess. Marcin segir Tikhomirov sjálfan hafa staðgreitt fyrir björg- unina. Hann bætir við að þetta sé ekki í fyrsta skipti sem hann hafi þurft að aðstoða fólk sem festir sig við utanvegaakstur. „Á síðustu sex árum hef ég séð mikið af svona heimskupörum.“ 500 þúsund króna hámarkssekt  Aðalvarðstjóri lögreglunnar segir lagalega ekki hægt að svipta Tikhomirov ökuleyfi sínu  Formaður landeigenda bjartsýnni eftir boð um aðstoð frá Umhverfisstofnun og ferðaklúbbnum 4x4 Ljósmynd/Marcin Kozaczen Lögbrjótur Alexander Tikhomirov er ekki vinsæll meðal Íslendinga eftir að hann festi bílaleigubíl sinn rækilega við utanvegaakstur á jarðhitasvæði í Bjarnarflagi í Mývatnssveit. Sagt er að hann hafi ekki sýnt nein merki um iðrun. Vanvirðing Miklar skemmdir urðu á jarðvegi eftir utanvegaaksturinn. Mannanafnanefnd hefur samþykkt kvenmannsnöfnin Hrafnhetta og Erlenda og karlmannsnafnið Muggi. Nafninu Ingadóra var hafn- að og einnig karlmannsnafninu Ewald. Þá var eiginnafninu Kona hafnað á þeim forsendum að það væri samnafn og notað um kven- mann á ákveðnum aldri. Nokkur orð í þessum sama merkingar- flokki, sem tákna manneskju, eru á mannanafnaskrá, m.a. Karl, Dreng- ur og Sveinn. Í úrskurði nefndar- innar segir að þau orð hafi áunnið sér hefð sem eiginnöfn og eigi sér langa sögu í tungumálinu. Nefndin hafnaði beiðni um milli- nafnið Vatneyringur á þeim for- sendum að það hefði nefnifallsend- inguna -ur. Þá hafnaði nefndin millinafninu Zar því það væri ekki dregið af íslenskum orðstofni. Erlinda og Muggi leyfð, ekki Zar og Kona

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.