Morgunblaðið - 05.06.2019, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2019
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Forsvarsmenn mótmælenda í Súdan
kölluðu í gær eftir fjöldamótmælum
og allsherjarverkfalli til þess að
koma herforingjastjórn landsins frá.
Sögðust þeir ekki hafa um neitt að
semja við herinn eftir að mótmæla-
búðir í höfuðstöðvum hans í Kharto-
um voru ruddar með valdi í fyrradag.
Fyrr um daginn hafði hershöfðing-
inn Abdel Fattah al-Burhan tilkynnt
í sjónvarpsávarpi að vikið hefði verið
frá fyrri áformum um að herfor-
ingjastjórnin, sem tók sér völd í apríl
síðastliðnum,
sæti í þrjú ár og
afhenti svo völdin
til borgaralegra
afla. Boðaði Bur-
han þess í stað til
þingkosninga
innan næstu níu
mánaða. Sagði
Burhan að kosn-
ingarnar myndu
fara fram undir
eftirliti alþjóðlegra aðila, en að jafn-
framt yrði öllum viðræðum við mót-
mælendum um valdaskiptin hætt.
Lofaði Burhan því í ræðu sinni að at-
burðir mánudagsins yrðu rannsak-
aðir og fól ríkissaksóknaraembætti
Súdans það verkefni.
Herforingjastjórnin sagði enn-
fremur í sérstakri yfirlýsingu að hún
harmaði atburði mánudagsins og að
aðgerðir hersins, sem áttu að ryðja
mótmælendum frá höfuðstöðvum
hersins hefðu „farið úrskeiðis“, en
tala látinna var í gær sögð hafa
hækkað upp í 35 manns.
Öryggisráðið kom saman
Nokkur spenna ríkti enn á götum
Khartoum í gær eftir atburði mánu-
dagsins og gengu hermenn fylktu liði
um götur borgarinnar. Mótmæli
voru leyfð, en leiðtogar mótmælanna
hvöttu fólk til þess að fagna Eid al-
Fitr, síðasta degi Ramadan sem er í
dag, degi of snemma til þess að
„biðja fyrir píslarvottunum“ og mót-
mæla á friðsaman hátt.
Öryggisráðið fundaði í gær að
beiðni Breta og Þjóðverja um málið,
en Bandaríkjamenn og Bretar for-
dæmdu aðgerðir hersins á mánudag-
inn. Fór fundur ráðsins fram bak við
luktar dyr. Antonio Guterres, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
hefur hins vegar krafist rannsóknar
á atburðum mánudagsins.
Boðað til kosninga í Súdan
Forsprakkar mótmælenda kalla eftir allsherjarverkfalli í kjölfar „blóðbaðs“
Abdel Fattah
al-Burhan
Donald Trump Bandaríkjaforseti fundaði með Theresu
May, forsætisráðherra Bretlands, í gær og lofaði henni
„undraverðum“ viðskiptasamningi eftir að Bretar
gengju úr Evrópusambandinu.
Trump sagði jafnframt að hann hefði neitað að hitta
Jeremy Corbyn, leiðtoga Verkamannaflokksins, en
Corbyn flutti ræðu á mótmælum í miðborg Lundúna
gegn komu Trumps í gær.
AFP
Bretlandsheimsókn Bandaríkjaforseta
Lofaði May „undraverðum“ samningi
Danir ganga að
kjörborðinu í dag,
á þjóðhátíðardegi
sínum. Nýjustu
skoðanakannanir
benda til þess að
Mette Frederik-
sen muni leiða
jafnaðarmenn og
vinstriblokkina til
sigurs. Flokkur
hennar hefur
mælst með um 29% fylgi í síðustu
könnunum en hann fékk 26,3% í
kosningunum 2015. Miðhægriflokk-
urinn Venstre, flokkur forsætisráð-
herrans Lars Løkkes Rasmussens,
mælist næststærstur allra flokka
með um 18% fylgi, en hann fékk
19,5% í síðustu kosningum.
Hins vegar er því spáð að Danski
þjóðarflokkurinn, sem varð næst-
stærstur árið 2015 með 21,1% fylgi,
muni nú einungis hljóta um 10% at-
kvæða. Hafa vinstriflokkarnir því
rúmlega 58% fylgi en hægriflokk-
arnir um 41%. Umhverfismál hafa
verið mjög í deiglunni í kosninga-
baráttunni til þessa og önnur mál
fallið nokkuð í skuggann.
Stefnir í sigur
vinstriflokkanna
Mette
Frederiksen
DANMÖRK
Volodymyr
Zelenskí, forseti
Úkraínu, heim-
sótti Brussel í
gær í fyrstu ut-
anlandsferð sinni
eftir að hann tók
við embætti.
Fundaði hann
með Jean-Claude
Juncker, forseta
framkvæmda-
stjórnar Evrópusambandsins, og
Jens Stoltenberg, framkvæmda-
stjóra Atlantshafsbandalagsins, en
einn tilgangur heimsóknarinnar
var að sögn Zelenskís sá að fá
stuðning Evrópuríkja til þess að
beita Rússa þrýstingi um að binda
enda á átökin í austurhluta Úkra-
ínu. Kallaði Zelenskí jafnframt eftir
því að friðarviðræður við Rússa
myndu hefjast á ný.
Vill að ESB þrýsti
á Rússa um frið
Volodymyr
Zelenskí
ÚKRAÍNA
Þess var minnst víða um veröld í gær
að þrjátíu ár voru þá liðin frá því að
kínversk stjórnvöld bundu blóðugan
enda á stúdentamótmæli á Torgi hins
himneska friðar í Peking. Á torginu
sjálfu var þess hins vegar vandlega
gætt að atburðanna yrði ekki minnst
með nokkrum hætti, og setti lögregl-
an upp vegtálma og skoðaði skilríki
allra sem áttu leið hjá torginu.
Þá máttu erlendir blaðamenn ekki
leggja leið sína á torgið, auk þess sem
lögreglumenn meinuðu þeim að taka
ljósmyndir, og var jafnvel hótað með
brottvísun úr landi.
Í Hong Kong, sem er sjálfstjórn-
arhérað innan Kína, var annað upp á
teningnum, en þúsundir manna
komu þar saman í gærkvöldi og
héldu minningarathöfn með kerta-
ljósum.
Kínverski kommúnistaflokkurinn
hefur reynt undanfarin þrjátíu ár að
ritskoða alla viðleitni til þess að
minnast atburðanna á Torgi hins
himneska friðar, en talið er að mörg
hundruð manns hafi látist þegar her-
menn og skriðdrekar leystu upp mót-
mæli stúdenta, sem krafist höfðu lýð-
ræðisumbóta.
Mætt með þögninni
30 ár frá mótmælunum á Torgi hins
himneska friðar Athöfn í Hong Kong
AFP
Mótmæli Þessi mótmælandi minntist atburðanna fyrir þrjátíu árum með því
að stilla sér fyrir framan gerviskriðdreka á lýðveldistorginu í París.
Fjórir eru látnir og einn særður
eftir að maður hóf skothríð í borg-
inni Darwin í norðurhluta Ástralíu.
Sá grunaði, 45 ára gamall karl-
maður, er í haldi lögreglunnar, en
talsmenn hennar sögðu að ekki
væri talið að um hryðjuverk væri
að ræða.
Maðurinn sem er í haldi lögregl-
unnar hafði áður setið inni, en lokið
afplánun í janúar síðastliðnum.
Árásin átti sér stað í vegahóteli, og
sögðu sjónarvottar að maðurinn
hefði farið herbergja á milli og
skotið gesti hótelsins með afsagaðri
haglabyssu. Hinir látnu voru allir
karlkyns en kona særðist. Að árás-
inni lokinni vatt maðurinn sér upp í
pallbíl og keyrði af vettvangi. Leit-
aði lögreglan árásarmannsins í
klukkustund áður en hún hafði
hendur í hári hans. Ástæður
mannsins voru enn ókunnar í gær.
Scott Morrison, forsætisráðherra
Ástralíu fordæmdi árásina og sendi
samúðarkveðjur til allra íbúa fylk-
isins sem Darwin er hluti af.
Fjórir látnir
eftir skotárás
í Darwin
45 ára gamall
maður í haldi lögreglu
ESTRO Model 3042
L 164 cm Leður ct. 15 Verð 345.000,-
L 198 cm Leður ct. 15 Verð 385.000,-
ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is