Morgunblaðið - 05.06.2019, Síða 25
ÍÞRÓTTIR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2019
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Nýr stór humar
Glæný stórlúða
Glæný smálúða
Stór humar
Túnfiskur
Klausturbleikja
Humarsúpa
Þegar keppnistímabilum fé-
lagsliða í boltagreinum lýkur þá
tekur gjarnan við lands-
leikjahrina í júní. Þetta ár er eng-
in undantekning.
Kvennalandsliðið í hand-
knattleik lék á Spáni í síðustu
viku og tekur á móti Spánverjum
í Laugardalshöllinni á fimmtu-
daginn. Eftir stórt tap ytra þá
þurfa okkar konur að sýna allar
sínar bestu hliðar til að komast
á HM í desember og slást þar í
för með Þóri Hergeirssyni sem
er kominn langleiðina inn í mótið
með norska landsliðinu.
Karlalandsliðið í knatt-
spyrnu mun leika heimaleiki
gegn Albaníu á laugardag og
Tyrklandi á þriðjudag í und-
ankeppni EM. Íslandi hefur geng-
ið vel gegn þessum þjóðum á
heimavelli í gegnum áratugina.
Bakvörður dagsins sá Ísland
vinna Albaníu 2:0 árið 1990. Sá
þá einnig nakinn áhorfanda
hlaupa inn á völlinn. Var það
upplifun út af fyrir sig. Ísland
vann einnig Albaníu 2:1 árið
2013. Ísland vann Tyrkland í
Laugardalnum 1981, 1989, 1991,
2014 og 2016. Sigrar gegn Alb-
aníu og Tyrklandi myndu koma
Íslandi í góða stöðu í riðlinum.
Karlalandsliðið í handknatt-
leik fer til Grikklands og leikur
þar 12. júní og gegn Tyrklandi
heima 16. júní en leikirnir eru í
undankeppni EM. Með fullri virð-
ingu fyrir því að þessar þjóðir
virðast vera að sækja í sig veðrið
þá ætti Ísland að vinna þessa
leiki og koma sér í góða stöðu í
riðlinum. Handknattleikur hefur
ekki verið forgangsmál á þess-
um slóðum eins og hjá okkur
enda vann Ísland örugga sigra í
fyrri leikjunum gegn þessum
þjóðum.
Gott framboð er því af lands-
leikjum fyrir íþróttaunnendur
hér á eyjunni á næstunni.
BAKVÖRÐUR
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
EM 2020
Andri Yrkill Valsson
yrkill@mbl.is
Það er ekki ofsögum sagt að Arnór
Sigurðsson hafi skotist hratt upp á
stjörnuhimininn. Þessi tvítugi
Skagamaður var að ljúka sínu
fyrsta tímabili með rússneska stór-
liðinu CSKA frá Moskvu og er nú
mættur til undirbúnings með ís-
lenska landsliðinu fyrir komandi
leiki gegn Albaníu og Tyrklandi í
undankeppni Evrópumótsins sem
fram fara á Laugardalsvelli 8. og 11.
júní.
„Við vitum að þetta eru mjög
mikilvægir leikir upp á framhaldið
að gera, gegn tveimur erfiðum and-
stæðingum og auðvitað stefnum við
á að sækja sex stig hérna heima.
Við vitum hversu sterkir við erum
hér og vonandi nýtum við okkur
það. Það er sól og flottur grasvöllur.
Ég held að þetta gerist ekki betra,“
segir Arnór þegar Morgunblaðið
ræðir við hann fyrir æfingu lands-
liðsins á Laugardalsvellinum í gær.
Arnór kemur fullur sjálfstrausts
til móts við landsliðið eftir fyrsta
veturinn í Rússlandi. Þangað var
hann keyptur síðasta sumar eftir
tæplega eins og hálfs árs dvöl hjá
Norrköping í Svíþjóð. Hann var
fljótur að láta til sín taka hjá CSKA,
skoraði meðal annars gegn ekki
minni liðum en Real Madrid og
Roma í Meistaradeildinni, og skor-
aði að auki fimm deildarmörk í 21
leik í Rússlandi. Hann var útnefnd-
ur leikmaður aprílmánaðar hjá
CSKA, en liðið hafnaði í fjórða sæti
deildarinnar og spilar í Evr-
ópudeildinni að ári.
Tek því hlutverki sem ég fæ
„Ég er búinn að vera virkilega
ánægður með þetta. Persónulega
var þetta gott tímabil hjá mér, en
smá vonbrigði að liðið náði ekki
Meistaradeildarsæti. En við förum í
riðlakeppni Evrópudeildarinnar og
getum alveg verið sáttir með það.
En nú er annað verkefni, þetta er
landsliðið en ekki CSKA, svo það
þarf að gíra sig upp í það. Maður er
fullur sjálfstrausts og 100% tilbúinn
í þetta,“ segir Arnór.
Þrátt fyrir að hafa slegið í gegn í
vetur hefur Arnór aðeins spilað þrjá
A-landsleiki fyrir Ísland, þann
fyrsta gegn Belgíu í Þjóðadeildinni í
nóvember. Hann vonast að sjálf-
sögðu til að fá tækifæri nú gegn
Albaníu og Tyrklandi, en er yfirveg-
aður í svörum.
„Já, maður vonast alltaf eftir því
að spila. En ég tek að sjálfsögðu því
hlutverki sem ég fæ og geri mitt
besta í því,“ segir Arnór, sem kom
aftur til landsins síðastliðinn föstu-
dag og fór á fyrstu æfinguna með
landsliðinu þegar það kom saman á
mánudag.
Ekkert staðfest frá Napoli
Það eru ekki bara áhangendur ís-
lenska landsliðsins sem eru spenntir
að sjá Arnór í landsliðsbúningnum
eftir frammistöðuna með CSKA í
vetur, heldur hefur framganga hans
vakið áhuga stórliða í Evrópu. Með-
al þeirra var talað um ítalska félagið
Napoli og Arnór staðfestir það.
„Það er bara áhugi, en ekkert
100% eins og var talað um,“ segir
Arnór og veit af orðrómi um að
hann gæti verið á förum frá Moskvu
í sumar. Hann er þó með hugann á
réttum stað fyrir komandi landsliðs-
verkefni.
„Einbeitingin hjá mér er núna
100% hér á þessa tvo leiki og svo
tökum við stöðuna. Auðvitað veit
maður aldrei hvað gerist í þessu.
Mér líður bara mjög vel í Moskvu
og er ekkert að spá í neitt annað
fyrr en þess þarf. Ég er ánægður
þarna, er með sjálfstraust og þjálf-
arinn treystir mér,“ segir Skaga-
maðurinn, sem þó stefnir sjálfur
lengra hvort sem það verður strax í
sumar eða síðar.
„Já, klárlega, og það var vitað áð-
ur en ég fór til CSKA að ég væri
með mjög háleit markmið og það
átti ekki að vera nein endastöð. Ég
stefni eins hátt og langt og ég get,“
segir Arnór Sigurðsson einbeittur á
svip í samtali við Morgunblaðið.
Stefni eins langt og ég get
Arnór Sigurðsson hefur slegið í gegn og kemur fullur sjálfstrausts frá Moskvu
Orðaður við stórlið í Evrópu en einbeitir sér alfarið að komandi landsleikjum
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Laugardalsvöllur Arnór Sigurðsson hitar upp í byrjun æfingar íslenska landsliðsins á þjóðarleikvanginum í gær.
Markvörðurinn Ingvar Jónsson var í gær kallaður til
móts við íslenska landsliðið í knattspyrnu fyrir komandi
leiki gegn Albaníu og Tyrklandi í undankeppni Evr-
ópumótsins sem fram fara á Laugardalsvelli 8. og 11.
júní. Ingvar kemur til móts við landsliðið á morgun,
fimmtudag.
Ingvar, sem leikur með Viborg í dönsku B-deildinni,
kemur inn í hópinn fyrir Rúnar Alex Rúnarsson, mark-
vörð Dijon í Frakklandi. Rúnar Alex meiddist þegar
hann var að æfa útspörk í upphitun fyrir leik með liði
sínu á sunnudag og var metinn óleikfær af læknateymi
landsliðsins eftir skoðun í gær.
Ingvar, sem verður þrítugur á árinu, á að baki átta landsleiki fyrir Ís-
lands hönd. Síðasta landsleik spilaði hann í janúar á þessu ári, vináttuleik
gegn Eistlandi sem fram fór í Katar, en þar áður spilaði hann vináttuleik í
nóvember 2017. Ingvar var með íslenska landsliðinu sem fór í lokakeppni
Evrópumótsins 2016 í Frakklandi. yrkill@mbl.is
Ingvar kallaður í landsliðið
Ingvar
Jónsson
Jóhann Berg Guðmundsson fann
fyrir meiðslum á æfingu íslenska
landsliðsins í knattspyrnu á mánu-
dag. Eru það meiðsli í kálfa sem
hafa plagað hann undanfarna mán-
uði og urðu meðal annars til þess að
hann missti úr leiki með Burnley í
ensku úrvalsdeildinni eftir áramót.
Jóhann hélt til Dublin í gær til
sérfræðinga sem unnu með honum
vegna meiðslanna fyrr í vor og því
er óvíst með þátttöku hans í kom-
andi leikjum í undankeppni Evr-
ópumótsins. yrkill@mbl.is
Óvissa með
Jóhann Berg
AFP
Ekki með? Jóhann Berg Guð-
mundsson fann fyrir meiðslum á ný.