Morgunblaðið - 14.06.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 14.06.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 Dýrabær Smáralind, Kringlunni, Reykjanesbæ og Akranesi | Byko Selfossi Fiskó Garðabæ | Heimkaup | Hundaheppni | Sími 511 2022 | dyrabaer.is NÁTTÚRULEG INNIHALDSEFNI bragðgott – hollt – næringarríkt – fyrir dýrin þín Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Sá skemmtilegi atburður varð á mið- vikudagskvöld að fjórir íslenskir Þýskalandsmeistarar komu í fyrsta sinn saman á ljósmynd, en allir urðu þeir meistarar á árunum 1984-1992. Þarna var um að ræða þá Krist- ján Arason handboltamann, sem tók myndina, Eyjólf Sverrisson fótbolta- mann, Ásgeir Sigurvinsson fótbolta- mann og Alfreð Gíslason handbolta- mann. Kristján varð sjálfur Þýskalandsmeistari í handbolta með Gummersbach árið 1988, Eyjólfur Sverrisson varð Þýskalandsmeistari í fótbolta með Stuttgart árið 1992, Ásgeir Sigurvinsson varð Þýska- landsmeistari í fótbolta með Stutt- gart árið 1984 og Alfreð Gíslason varð Þýskalandsmeistari í handbolta með TUSEM Essen árin 1986 og 1987. Myndinni var smellt af í Hörpu í Reykjavík í veislu sem þar var hald- in til heiðurs Frank-Walter Stein- meier, forseta Þýskalands, sem var hér á landi í opinberri heimsókn. Í veislunni voru bæði núverandi og fyrrverandi íþróttamenn auk ís- lenskra listamanna, stjórnmála- manna og annarra sem tengingu hafa við Þýskaland. „Það var gaman að koma þarna og hitta þessa snill- inga,“ segir Kristján í samtali við Morgunblaðið og gaf góðfúslegt leyfi fyrir birtingu myndarinnar. Fjórir meistarar saman á ljósmynd Ljósmynd/Kristján Arason Kátir Kristján Arason handboltamaður, Eyjólfur Sverrisson fótboltamaður, Ásgeir Sigurvinsson fótboltamaður og Alfreð Gíslason handboltamaður. Allir urðu þeir meistarar með liðum sínum í Þýskalandi frá 1984-1992. Íslenskir afreksmenn í íþróttum glöddust í veislu til heiðurs Þýskalandsforseta Óheimilt verður héðan í frá að hljóð- rita, taka myndir og birta fréttir í rauntíma úr dómsal nema með sér- stakri undanþágu dómara eftir að Alþingi samþykkti í gær frumvarp dómsmálaráðherra um meðferð einkamála. Helgi Hrafn Gunnarsson, þing- flokksformaður Pírata, segist ósátt- ur við þá aðför að tjáningarfrelsi blaðamanna sem felist í breyting- unni. Píratar sátu hjá við afgreiðslu málsins en höfðu, ásamt þingflokki Viðreisnar og Samfylkingar, lagt fram breytingartillögu þar sem gert var ráð fyrir að upptökur yrðu eftir sem áður leyfðar nema í undantekn- ingartilfellum. „Rök meirihlutans eru þau að hætta geti verið á réttarspjöllum séu upptökur leyfðar,“ segir Helgi, en með því er átt við að vitni gætu nýtt sér fréttaflutning af vitnisburði annarra til að breyta málflutningi sínum. „Ég á mjög erfitt með að fall- ast á þau rök,“ segir Helgi Hrafn. Fyrir sé heimild dómara til að setja fréttaflutningi í rauntíma hömlur, og hafi hún verið nýtt í viðkvæmum málum. Þá bendir Helgi á að þeir sem vilji spjalla réttinn geti hæglega gert það með símtæki í vasanum. Helgi segir upplifun sína þá að „kerfið“, svo sem lögregla og dóm- stólar, vilji oft geta ráðið hlutunum án þess að þurfa að gefa nokkur skýr rök fyrir ákvörðun sinni. Hins vegar væri að hans mati eðlilegra að upptökur væru leyfðar með möguleika á undantekningu, frekar en að þær séu bannaðar með mögu- leika á undantekningu. Torveldar vinnu blaðamanna Hjálmar Jónsson, formaður Blaðamannafélagsins, tekur í sama streng. Lagabreytingin sé full- komið skilningsleysi á starfsemi fjölmiðla. Hann segist þó ekki hafa of mikl- ar áhyggjur af áhrifum laganna á fréttaflutning af dómhöldum. Blaðamenn sinni sínum skyldum, og geti enn mætt í réttarsal. Vinnan verði einfaldlega erfiðari. Hjálmar bendir á að Morgunblaðið og aðrir miðlar hafi til að mynda flutt dag- legar fréttir frá Geirfinnsmálinu þegar það stóð sem hæst, án nokk- urrar tölvutækni. „En þetta verður erfiðara, og umfjöllun gæti minnkað eitthvað, sérstaklega á netmiðlum þar sem allt snýst um hraða,“ segir Hjálmar. alexander@mbl.is Fréttir í rauntíma bannaðar úr dómsal  Skilningsleysi á starfsemi fjölmiðla Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að breikkun Vestur- landsvegar um Kjalarnes skuli háð mati á umhverfisáhrifum. Þetta kann að tefja það að hægt verði að hefja breikkun vegarins eins og mjög hefur verið kallað eftir til að auka umferðaröryggi. Nokkur alvarleg umferðarslys hafa orðið á veginum. Til stóð að hefja verkið að ein- hverju leyti í ár, á hliðarvegum, en þunginn kæmi á næsta ári – þ.e.a.s. þannig eru fjárveitingar í sam- gönguáætlun, samkvæmt upplýs- ingum G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðar- innar. „Við erum að skoða úrskurð Skipulagsstofnunar og jafnframt að meta fordæmisgildi hans,“ segir G. Pétur. Sú skoðun mun væntanlega leiða í ljós hve miklar tafir verði á því að breikkun Vesturlandsvegar hefjist. „Vegagerðin mun gera sitt til að taf- ir á verkinu verði í lágmarki enda er um mikilvæga framkvæmd að ræða sem mun bæta umferðaröryggi á hringvegi umtalsvert,“ bætir G. Pét- ur við. Nú er stefnt að samningum við Verkís varðandi verkhönnun í kjöl- far útboðs. Einnig er unnið að samn- ingum við landeigendur. Fram kemur í áliti Skipulags- stofnunar að með framkvæmdunum verði Vesturlandsvegur breikkaður umtalsvert og með tengdum fram- kvæmdum verði rask talsvert meira þar sem einnig sé áætlað að gera endurbætur á núverandi hlið- arvegum auk lagningar nýrra hlið- arvega, allt að 11 kílómetrar. Rask vegna þeirra verði að minnsta kosti 10 hektarar. Þá sé ótalið rask vegna annarra tengdra framkvæmda eins og reiðvega og göngu- og hjólastíga. Áhrif allra þessara framkvæmda gera það að verkum að umfang fyr- irhugaðra framkvæmda er töluvert meira en fyrir liggur í greinargerð. „Þetta mikla umfang vegalagn- ingar kallar á nánari skoðun og greiningu, m.a. er ekki gerð grein fyrir umhverfisáhrifum hliðarveg- anna sem kunna samkvæmt fram- lögðum gögnum að verða umfangs- mikil,“ segir Skipulagsstofnun. Á meðan á framkvæmdum stend- ur er ráðgert að koma fyrir haug- setningarsvæði á framkvæmda- svæðinu þar sem uppgrafið efni verði geymt þar til hægt sé að nota það. Ljóst sé að hér sé um mikið efn- ismagn að ræða sem nota þarf til framkvæmda og kalli þetta á frekara mat og greiningu. Þá kemur fram að samkvæmt hljóðvistarútreikningum aukist hljóðstig, samanber umsögn Reykja- víkurborgar, óásættanlega miðað við viðmiðunarmörk hávaðareglugerðar við 17 hús í nálægð Vesturlands- vegar þegar framkvæmdum lýkur. Þetta kalli á nánari mælingar og skoðun á mótvægisaðgerðum. Morgunblaðið/Ómar Vegurinn Umferð um Vesturlandsveg á Kjalarnesi er oft gríðarmikil. Breikkun Vesturlandsvegar kann að tefjast  Vegurinn fari í umhverfismat  Vegagerðin skoðar úrskurðinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.