Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 18

Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 ✝ Gísli Krist-jánsson Heimisson fæddist á Stórólfshvoli í Hvolhreppi 27. nóvember 1957. Hann lést á heimili sínu í Hverafold 31 í Reykjavík 6. júní 2019. Gísli var sonur hjónanna Heimis Bjarnasonar lækn- is, f. 2. ágúst 1923, d. 14. september 2014, og Maríu Gísla- dóttur húsmóður, f. 3. maí 1927. Systkini Gísla eru: Helga, f. 9. október 1949, Pétur, f. 2. nóvember 1954, Fanný Kristín, f. 20. júní 1956, Birna, f. 16. maí prófi frá Danmarks Tekniske Højskole 1984. Gísli starfaði lengst af fyrir fjármálafyrirtæki eða hugbúnaðarfyrirtæki tengd þeim, í fyrstu sem kerfisfræð- ingur og stjórnandi hjá Den Danske Bank og Hugbúnaði hf. Hjá Landsbréfum gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra rekstrar- og upplýsinga- tæknisviðs. Hann stofnaði Mens Mentis hf. ásamt fleirum og veitti því forstöðu, var fram- kvæmdastjóri rekstrar- og upp- lýsingatæknisviðs hjá Glitni banka og MP banka, fram- kvæmdastjóri MainManager ehf. og stýrði upplýsinga- tæknisviði Korta. Gísli var stjórnarformaður Verðbréfa- miðstöðvar Íslands og sat einnig í stjórn hjá Reiknistofu bank- anna, Teris, Auðkenni hf. o.fl. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 14. júní 2019, klukkan 13. 1959, Heimir, f. 10. nóvember 1960, og María, f. 2. febrúar 1964. Gísli kvæntist 24. júlí 1982 Þor- gerði Ragnars- dóttur, f. 30. októ- ber 1958. Börn þeirra eru María, f. 9. júní 1983, Grím- ur, f. 30. júní 1986, og Ragnar, f. 21. mars 1996. Gísli ólst upp á Djúpavogi og Hellu á Rangárvöllum, lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum á Akureyri 1977, BS- prófi í byggingarverkfræði frá Háskóla Íslands 1982 og MS- Hlýr, hugulsamur, skemmti- legur félagi, stóri bróðir, bak- hjarl, trúnaðarvinur – allt þetta var hann Gísli bróðir minn mér. Hann var líka drífandi frum- kvöðull sem jafnan hafði sann- girni og stórmennsku að leiðar- ljósi. Þegar sjúkdómur hans greindist og ljóst var hvert stefndi komu aðrir kostir hans svo sterkt fram: karlmennska og æðruleysi. Hann kvartaði aldrei undan hlutskipti sínu og átti allt fram á síðustu stundu styrk og hlýju að gefa okkur hinum. Það voru sjö ár á milli okkar systkinanna; þegar ég var barn var hann stór bróðir sem gat og vissi allt og sagði manni stund- um til syndanna. Með tímanum minnkuðu áhrif þessara ára sem skildu okkur að og tengsl okkar styrktust og þroskuðust, síðustu tuttugu ár vorum við mjög náin. Þegar góðar fréttir bárust hringdum við hvort í annað til að deila þeim. Og þegar við stóðum í erfiðum verkefnum eða fengum slæmar fréttir vorum við líka fljót að láta hvort annað vita, leita ráða um næstu skref eða bara njóta þess að fá skilning og hvatningu hvort frá öðru. Á síð- ustu dögum ævi sinnar vann Gísli mál fyrir Hæstarétti en við höfðum iðulega rætt þetta mál og framgang þess. Daginn fyrir væntanlegan dómsúrskurð fór- um við enn einu sinni yfir stöð- una og hann var viss um að hafa sigur. Það var greinilegt að við vorum bæði að fylgjast með því vart hafði ég séð dómsorðið á netinu er ég fékk skilaboð frá Gísla um að hann hefði unnið málið. Það var dýrmætt að geta samfagnað af þessu tilefni þó dimmur skuggi hvíldi yfir. Það var gott að leita til Gísla og hann var einstaklega hjálp- samur. Hann vildi hvers manns vanda leysa – ekki til að fá eitt- hvað í staðinn, heldur einfald- lega vegna þess að hann leit svo á að ef maður væri svo lánsamur að geta hjálpað þá ætti maður að gera það. Enda eru þeir ófáir sem minnast hans nú með þakk- læti og hlýju. Gísli lék stórt hlutverk í okk- ar fjölskyldu, hann var náttúru- legur leiðtogi sem átti auðvelt með að fá fólk með sér og hugaði að þörfum allra. Hann reyndist öldruðum foreldrum okkar ein- stök stoð og stytta. Hann var guðfaðir sona minna beggja og uppáhaldsfrændi. Við ferðuð- umst mikið saman sem fjölskyld- ur og eigum yndislegar minn- ingar úr skíðaferðum erlendis, gönguferðum um óbyggðir Ís- lands og óteljandi öðrum sam- verustundum. En við deildum líka erfiðum stundum í lífi okkar beggja og enginn var betri en Gísli bróðir þegar á bjátaði. Hann vildi ekki eyða tíma í að tala um orðinn hlut heldur frek- ar ræða næstu skref og hvernig best væri að vinna úr erfiðri stöðu. Í öllu þessu naut hann stuðn- ings sinnar einstöku eiginkonu, Þorgerðar Ragnarsdóttur. Styrkur þeirra sambands end- urspeglaðist í hverju skrefi sem þau tóku saman í veikindum Gísla. Kærleikur, hlýja og birta umluktu bróður minn þessa síð- ustu daga og fyrir það þakka ég Þorgerði mágkonu minni og frændsystkinum mínum; Maríu, Grími og Ragnari. Einhvers staðar segir að við gjöldum kærleikann með sorg- inni. Það er svo sannarlega satt. Ég þakka Gísla bróður mínum samfylgdina. María (Maja) systir. Fyrir dauðanum getum við bara beygt okkur, en í Sum- arlandinu eigum við vísar sam- vistir á ný. Þar sameinumst við í kærleika og vinnum úr jarðvist- inni. Gísli bróðir minn er farinn til Atla, pabba og allra hinna en orka hans og minning lifir með okkur áfram. Gísli var mér bakhjarl í lífinu, og þvílíkt ríkidæmi að eiga sex systkini þó að einnig fylgdu því átök að vera mörg, full af vilja og ætlunum. Viðteknar kynja- hugmyndir ollu mér oft reiði og pínu, þegar stelpurnar áttu að bugta sig fyrir alls konar lög- málum, þá tóku strákarnir sig út, léku sér og skemmtu með hætti sem ekki þótti hæfa stúlk- um. Breytingaöfl sem herja í samfélaginu hverju sinni hljóta að ná inn í fjölskyldusamræður og það er gott að takast á við sína. Gísli var góður bróðir og vinur í raun. Um tíma fylgdumst við að í skóla, hann þó árinu yngri, við vorum því stundum eins og tvíburar. Til er mynd af mömmu og Gísla, tekin um miðjan júní 1977, þegar Gísli útskrifaðist sem stúdent. Mánuðinum áður út- skrifaðist ég sem fóstra. Þetta voru tímamót í lífi okkar, við urðum fullorðið fólk með maka, börn og skuldbindingar sem tíðkuðust á síðustu öld. Gísli var bóngóður og minnis- stætt er þegar hann kom og grillaði fyrir mig ofan í unglinga- hóp í 16 ára afmæli Högna, hann lánaði mér af bílakostinum sín- um og hann varð vinur barnanna minna, varð bakhjarl fyrir þau líka. Hann hrósaði mér fyrir verk mín og drifkraft. Sem miðjubarn tók hann svolítið yfir hlutverk pabba eftir að hann féll frá og orð Gísla höfðu meira vægi en margra annarra, enda alltaf falslaus og til þess sögð að gleðja, styrkja og hugga. Ég held að honum hafi stundum verið þungbært að hafa þetta hlutverk. Hann var sannkallað miðjubarn með systur, bróður og systur á hvora hönd eftir aldri. Lífið er yndisleg gjöf og það er mikil gæfa að vera jafn orku- ríkur og Gísli var, hann fékk gott líf. Hann var viljasterkur, en viðkvæmur, það gaf honum innsæi og samkennd. Hann deildi með sér, var vaskur til alls konar verka eða gat fengið aðra í lið með sér til að sinna þeim. Hann rak eigið fyrirtæki, varð farsæll í störfum sínum og fjár- sterkur, hann hafði áhuga á mörgu og gat rætt við alls konar fólk. Ef ekki var til gott kaffi fannst honum vont kaffi gott, í því felst lífsviðhorf sem er gott að grípa til. Þegar Gísli veiktist og ljóst var að hverju stefndi var hann hugprúður og hélt áfram að drífa í alls konar hlutum, nenna að vera með og láta sig varða um menn og málefni. Hann hélt áfram að safna um sig fólki, spjalla og gefa af sér nánast fram í andlátið. Takk elsku Þorgerður, María, Grímur og Ragnar fyrir að gera þennan veikindatíma svo góðan fyrir okkur öll. Megi allt gott fylgja ykkur áfram veginn. Fanný. Það er svo ótímabært og sárt að horfa á eftir þér, elsku bróðir. Að eiga þig að var fjársjóður sem gott var að leita í jafnt í gleði og sorg, enda höfuð þitt og hugsun skýr og jafnan skrefinu á undan. Forystuhæfileikar þínir duld- ust engum er þig þekktu og þó þú værir ekki stóri bróðir okkar allra í skjóli aldurs, þá varstu okkur öllum stóri bróðir í krafti þinna einstöku hæfileika til frumkvæðis og að leiða fólk og laða að þér. Þú varst í senn glaður og góð- ur drengur, brosið blítt, alltaf stutt í húmorinn og ávallt til staðar þegar alvarlegri hluti bar að garði. Þú hafðir einstakt lag á að umgangast fólk sem gerði nær- veru þína svo notalega og öllum léttara að njóta sín. Við áttum hvert og eitt eðlilega mismarga samfundi með þér á seinni árum en þeir voru góðir og ávallt var gott og gaman að vera gestur á fallegu heimili ykkar Þorgerðar og barnanna. Eftir að foreldrar okkar tóku að reskjast varstu óþreytandi í umönnun þeirra og gerðir það á óeigingjarnan hátt. Það má segja að þú hafir á margan hátt verið límið á milli okkar systk- ina. Greiningu illvígs sjúkdóms sl. haust, þar sem bati var ekki í boði, tókstu af ótrúlegri still- ingu. Tímann sem þér var gefinn eftir það nýttir þú vel og ekki síst til að rækta alla þína og gera öllum auðveldara það sem í vændum var og alla leið varstu sameiningartákn í okkar hópi. Minningin um þann góða mann sem þú varst mun lifa í góðum samskiptum okkar öll þau ár sem okkur verða skömmtuð hverju og einu. Mömmu, Þorgerði konu þinni og börnum ykkar, Maríu, Grími og Ragnari, vottum við okkar dýpstu samúð. Þín systkini Pétur, Birna og Heimir. Gísli, vinur minn og frændi, er látinn eftir stutta en erfiða og oft á tíðum sársaukafulla sjúk- dómslegu. Við Jóhanna kynnt- umst Þorgerði og Gísla er við bjuggum á sama stúdentagarði í Kaupmannahöfn 1983. Fljótlega myndaðist vinátta milli okkar sem hefur styrkst mikið með ár- unum enda eigum við börn á svipuðum aldri og svipuð áhuga- mál. Samverustundir, hvort heldur með þeim hjónum einum eða þar sem fjölskyldur okkar hafa komið saman, hafa ein- kennst af glaðværð og hugguleg- heitum þar sem þáttur Gísla var mikill. Djúp vinátta sem aldrei hefur borið skugga á er okkur fjölskyldunni mjög dýrmæt og mikilvæg. Frá því að ég frétti lát Gísla hefur hann stöðugt verið í huga mér. Stórt skarð er höggvið sem ekki er hægt að fylla. Mig skort- ir orð til að setja á blað en erindi úr Hávamálum kom upp í huga mér sem segir miklu meira en mörg orð. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. Sorg og missir allra vina Gísla er mikill, en mest er sorg og missir Þorgerðar og barna þeirra, Maríu, Gríms og Ragn- ars, svo og móður Gísla, Maríu. Elsku vinir, við fjölskyldan á Akri vottum ykkur okkar dýpstu samúð. Gunnar (Gunni), Jóhanna og börn. Samverustund með Gísla, Þorgerði og þeirra yndislegu börnum og frændsystkinum okk- ar hefur alltaf verið mikil gleði- stund og skemmtilegheit í lífi okkar systkinanna. Þau hafa ávallt verið með eindæmum höfðingleg heim að sækja og dugleg að hóa saman fjölskyld- unni í gegnum árin. Gísli frændi var góður maður, ljúfur, greiðvikinn og heillandi persóna. Stutt í hlátur og Gísla- skrall, svona temmilega gamal- dags en hnyttin skot og brand- arar. Hann hafði góða og þægilega nærveru og átti auðvelt með að tala við fólk og hlusta. Eitt helsta aðalsmerki Gísla að okkar mati var áhugi hans og umhyggja fyrir fólkinu sínu. Hann tók ötulan þátt í lífi fólks- ins í kringum sig og höfum við systkinin sannarlega notið góðs af umhyggjusemi og stuðningi hans í gegnum árin. Það eru sönn forréttindi að hafa alist upp með jafn góðan frænda og Gísla sér við hlið. Það er sárt að kveðja – höggið er þungt og tímarnir fram undan eru erfiðir. En eins og Gísli hef- ur alltaf staðið þétt við bakið á fjölskyldunni munum við reyna að komast með tærnar þar sem hann hafði hælana og gera slíkt hið sama. Elsku amma, Þorgerður, María, Grímur og Ragnar, elsku pabbi okkar og systkini Gísla – okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Minning Gísla lifir sterk í hug okkar og hjarta. Mardís og Heimir Óli Heimisbörn. Gísli frændi minn Heimisson og Pétur bróðir hans voru hátt skrifaðir hjá mér allt frá því þeir leyfðu mér ungum dreng að aka – eða allavega stýra – Scout- jeppanum hans Heimis föður þeirra á söndunum við Hellu, en þar bjuggu þau Heimir og Maja frænka á þeim tíma sem um ræðir. Alla tíð síðan voru þeir bræður stjörnur í mínum huga. Gísla fylgdist ég með og dáðist að árangri hans í stofnun, stjórnun og rekstri fyrirtækja í hugbúnaðargeiranum. Leiðir okkar lágu svo saman fyrir tveimur árum, þegar Gísli léði máls á að ég kæmi til starfa í fyrirtæki sem hann veitti þá for- ystu. Við áttum um þetta mörg og skemmtileg samtöl og sam- skipti, en Gísli var bjartsýnn, drífandi og gefandi, og engin lognmolla var yfir þessum sam- tölum okkar. Þótt ekkert yrði af samstarfi okkar styrktist vinátta okkar og frændsemi aðeins við þetta. Þetta haust fyrir tveimur ár- um buðu þau Þorgerður okkur Rie út að borða í Kaupmanna- höfn. Það var yndislegt kvöld. Rie var þarna að hitta þennan frænda minn í fyrsta sinn, en það var nóg að tala um – um líf og störf og ekki síst börnin okkar. Gísla hitti ég svo í síðasta sinn milli jóla og nýárs. Hann var þá orðinn alvarlega veikur, en þótt greinilegt væri að af þessum glæsilega manni væri dregið var drifkrafturinn og framkvæmda- semin hin sama. Gísli hafði séð til þess að koma á rafrænt form minningum Gísla afa okkar og honum var mjög í mun að það væri framvinda í vinnslu og út- gáfu þessa efnis. Við hin þurfum nú að halda þessu verki áfram, þeir nafnarnir Gísli frændi og Gísli afi gerðu sitt. Elsku Þorgerður, María, Grímur og Ragnar og elsku Maja föðursystir og aðrir að- standendur. Við Rie sendum ykkur innilegustu samúðar- kveðjur. Ég mun minnast Gísla frænda míns sem kærs vinar. Eggert Tryggvason. Heiðríkja og ferskur andblær er yfir minningu frænda míns Gísla Kristjánssonar Heimisson- ar. Það var ætíð fagnaðarefni að vera í návist Gísla, eiga við hann samtal eða samfundi. Hann var svo einstaklega skemmtilegur maður og hlýr ásamt því að búa yfir djúphygli, frjóum anda og sterkum vilja framkvæmda- mannsins. Mín reynsla var sú að Gísli lét aldrei sitja við orðin tóm og var eldhugi þegar áhuginn var vakinn. Gísli var enda ætíð í forystusveit þar sem hann starf- aði. Hann var hjartahlýr og bar hag og heill samferðafólks síns fyrir brjósti og sýndarmennska var ekki til í hans fari. Kímnigáfa Gísla var alveg ein- stök og engu lík, bjart kankvís- legt bros eða glott út í annað er mynd sem margir munu líka sakna og ætíð muna. Gísli var gæfumaður í sínu einkalífi og þá er mér efst í huga lífsförunautur hans og ást Þorgerður Ragn- arsdóttir og börnin þeirra, en þau Þorgerður eiga miklu barnaláni að fagna. Ég vil ekki láta hjá líða að minnast á það hversu mikinn þátt list og skapandi hugsun átti hjá þeim Gísla og Þorgerði og það ásamt öðru var auðvitað heillandi fyrir mig í þeirra fari. Ég vil einnig sérstaklega minnast á kærleiksríkan og sterkan streng milli Gísla og Maríu Gísladóttur móður hans sem sér nú á eftir góðum syni. Gísli átti líka einstakan syst- kinahóp sem einnig á um sárt að binda. Gísli lést allt of snemma því miður en huggun er í því að ég sé aðeins gróanda í lífssporum hans. Við Alda sendum fjölskyld- unni okkar innilegustu samúðar- Gísli Kristjánsson Heimisson Sálm. 86.7 biblian.is Þegar ég er í nauðum staddur ákalla ég þig því að þú bænheyrir mig. ✝ Ólafur Hösk-uldsson fædd- ist á Hvammstanga 15. desember 1939. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands 14. maí 2019. Foreldrar hans vou Höskuldur Helgason vörubíl- stjóri, f. 6 október 1909, d. 7. maí 1999, og Guðrún Gísladóttir húsmóðir, f. 4. júlí 1910, d. 29. janúar 1986. Systir Ólafs var Sigrún Höskulds- dóttir ljósmóðir, f. 27. september 1938, d. 1. september 2009. Eftirlifandi eigin- kona Ólafs er Þór- dís Ragnarsdóttir húsmóðir, f. 13. desember 1953. Ólafur stundaði sjómennsku frá unga aldri. Útför hans var gerð frá Akra- neskirkju 24. maí 2019. Óli frændi minn ólst upp hjá foreldrum sínum. Á heimilinu voru systir hans, afi og amma. Búskapur var stundaður með öðrum störfum, heyjað var á túnum og engjum fyrir kýr, kindur og hesta. Margur frændinn og frænkan voru á heimilinu um lengri eða skemmri tíma. Sjórinn heillaði, Óli fór á sjóinn og sótti fisk á bátum og togurum. Árin liðu og við tóku sigl- ingar á fraktskipum, fyrst inn- lendum en síðar erlendum. Segja má að Óli hafi siglt um öll heimsins höf með við- komu í óteljandi hafnarborg- um. Óli eignaðist snemma hljóm- flutningstæki og ófáar voru plöturnar sem fluttar voru heim að loknum siglingum. Oft var setið og hlustað á plöturnar hans en sjálfur var hann sjald- an til staðar. Skip gerðu stuttan stans og ekki minnist ég sumarleyfa í þá daga. Óli lét sig varða um ættingja sína. Hann kom færandi hendi úr siglingum og einkum áttu þau yngri hug hans. Óli festi snemma kaup á íbúð á Granda. Útlit blokkarinnar og allur frá- gangur innanhúss er minnis- stæður, ekki er síður minnis- stætt, þegar Óli kaupir hús í Grafarvoginum, hversu vandað var til húss og lóðar. Hann kunni vel til verka. Um 1990 kynnist Óli Þórdísi sinni og bjuggu þau lengst af saman að Dúfnahólum 4 í Breiðholti. Óli er að störfum til sjötugs, seinni árin sem verkamaður í landi. Heilsubrestur ber þó að dyr- um hjá Óla, sem alla tíð hafði verið vel byggður og hraustur. Skammtímaminnið brestur, síð- ar verður erfitt að bera kennsl á ættingja og vini en enn sitja eftir minningar. Atvik frá fjarlægum heims- álfum sem rifjast upp og sagt er frá um leið og rissað er skipulega í teiknibók. Ólafur var góðmenni, eigi hann þakkir fyrir allt. Sverrir Jakobsson. ÓlafurHöskuldsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.