Morgunblaðið - 14.06.2019, Side 32
32 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019
Eitt
ogannað
Cloé Lacasse, knattspyrnukona úr
ÍBV, er á lista allsherjar- og mennta-
málanefndar Alþingis yfir þá sem lagt
er til að öðlist íslenskan ríkisborg-
ararétt. Vonast er til að Alþingi sam-
þykki tillöguna fyrir þinglok og gangi
það eftir verður Cloé gjaldgeng í lands-
lið Íslands. Cloé, sem er 25 ára gömul,
er frá Kanada og leikur sitt fimmta
tímabil með ÍBV en hún hefur und-
anfarin ár verið með albestu leik-
mönnum íslensku úrvalsdeildarinnar.
Körfuboltamaðurinn Justin Shouse
hefur tekið fram skóna á ný eftir
tveggja ára hlé og mun næsta vetur
leika með Álftanesi, sem verður þá ný-
liði í 1. deild karla. Justin, sem er 37 ára,
lék lengi með Stjörnunni en hætti vorið
2017 að læknisráði.
Áfrýjunardómstóll KSÍ hefur stað-
fest fimm leikja bannið sem Björgvin
Stefánsson, leikmaður KR, var úskurð-
aður í af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ í
síðustu viku. KR áfrýjaði úrskurðinum.
Brynjar Þór Björnsson, körfubolta-
maður úr KR, braut bein í fæti fyrir
skömmu. Brynjar er nýkominn aftur í
KR eftir eitt tímabil með Tindastóli. Ingi
Þór Steinþórsson, þjálfari KR, sagði við
mbl.is að Brynjar yrði frá í 4-6 vikur.
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í
handknattleik, hefur verið tilnefndur í
kjöri á úrvalsliði spænsku 1. deild-
arinnar fyrir frammistöðu sína með
Barcelona á nýliðnu keppnistímabili.
EM 2020
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Umspilsleikur við Króata í Zagreb
27. mars á næsta ári? Sigur þar og
úrslitaleikur við Holland í Amst-
erdam þremur dögum síðar, um sæti
á EM 2020? Eins og staðan er akk-
úrat núna í undankeppni EM karla í
fótbolta er einmitt þessi möguleiki
til staðar. Að Ísland þurfi að fara í
umspil og slá út tvær þjóðir sem Ís-
lendingar eru farnir að kannast
ágætlega vel við á knattspyrnuvell-
inum.
Eflaust finnst mörgum of snemmt
að velta vöngum yfir umspilinu og
því hvernig það mun virka, þegar að-
eins fjórum leikdögum af tíu er lokið
í undankeppni EM. Baráttan um að
komast á EM er hins vegar aðeins
öðruvísi en síðustu skipti og kannski
vert að reyna að glöggva sig betur á
því hvernig hún virkar að þessu
sinni.
Meðfylgjandi mynd í blaðinu í dag
sýnir hvernig staðan er eftir fjórar
umferðir af undankeppni EM. Þar
er leikið í tíu riðlum og tvö efstu lið
hvers riðils komast beint á EM, eða
samtals 20 lið. Fleira þarf ekki að
hugsa um varðandi undankeppnina,
sæti 3-6 skipta ekki máli upp á að
komast á EM. Undankeppninni lýk-
ur 19. nóvember og þar er Ísland í
baráttu við Frakkland og Tyrkland
um tvö sæti, og eru öll liðin með 9
stig en Ísland er með verstu stöðu úr
innbyrðis leikjum.
Fjögur sæti laus í nóvember
Það flækir aðeins stöðuna í dag að
liðin fjögur sem léku í úrslitum
Þjóðadeildarinnar (Portúgal, Hol-
land, England og Sviss) hafa leikið
fáa leiki í undankeppninni og var
tekið tillit til þess í sviðsmyndinni
sem dregin er upp hér á síðunni.
Í nóvember munu því standa eftir
fjögur laus sæti á EM. Þá kemur hin
sívinsæla Þjóðadeild til skjalanna,
því lokastaða þjóðanna í þeirri
keppni ræður því hvaða lið fara í um-
spilið. Í Þjóðadeildinni var leikið í
fjórum deildum (A, B, C og D) og er
hugsunin sú að í hverri deild verði
fjögurra liða umspil um eitt laust
sæti á EM. Liðin 20 sem í nóvember
hafa tryggt sér sæti á EM þurfa
auðvitað ekki að fara í umspil, en lið-
in fjögur með bestan árangur þar
fyrir utan, í hverri deild, leika sem
sagt í umspili viðkomandi deildar.
Yfirgnæfandi líkur á að
varaleiðin haldist opin
Vonandi er þetta nógu einfalt, því
dæmið flækist ef færri en 4 lið í einni
deild eiga eftir að ná sæti á EM að
undankeppninni lokinni. Það má til
að mynda fastlega reikna með því að
úr A-deildinni fari 9-12 lið beint á
EM og þurfi ekki að fara í umspil.
Ísland lék í A-deild og endaði þar
neðst, eða í 12. sæti. Þess vegna er
nánast hægt að slá því föstu að Ís-
land eigi umspil sem varaleið takist
liðinu ekki að enda fyrir ofan Frakk-
land eða Tyrkland í undankeppn-
inni.
Með hvaða þjóðum
yrði Ísland í umspili?
En með hvaða þjóðum yrði Ísland
þá í umspili? Eins og fyrr segir er
staðan þannig núna að þrjár A-
deildarþjóðir (Hollendingar, Króat-
ar og Íslendingar) eru utan efstu
tveggja sæta í sínum riðlum í und-
ankeppninni (Svisslendingar og
Portúgalar eru það reyndar líka en
eiga leik eða leiki til góða). Einni
þjóð yrði bætt við þetta umspil og þó
að reglur UEFA séu svolítið loðnar
hvað þetta varðar gæti sú þjóð í
þessu tilviki verið Rúmenar (UEFA
flækir málin nefnilega enn frekar
með því m.a. að áskilja sér rétt til að
breyta röðun í umspil þannig að
gestgjafar EM séu ekki í sama um- spili). Það er vegna þess að engin
aukaþjóð gæti bæst við úr B-deild,
þar sem átta af 12 þjóðum færu
beint á EM, og vegna þess að Skot-
land, Noregur, Serbía og Búlgaría
(sem öll enduðu fyrir ofan Rúmeníu í
C-deild) færu í umspilið í C-deild.
Í þessu tilviki væri leið Íslands í
gegnum umspilið afskaplega torsótt.
Ísland myndi þurfa að spila á útivelli
gegn Króatíu í undanúrslitunum, því
Króatía endaði ofar í Þjóðadeildinni
(Holland náði bestum árangri í
Þjóðadeildinni og fengi „auðveld-
asta“ andstæðinginn í undanúrslit-
unum, í þessu tilviki Rúmeníu). Með
sigri á Króötum gæti Ísland svo
mætt Hollandi (eða Rúmeníu) í úr-
slitaleik og yrði dregið um hvor
þjóðin yrði á heimavelli. Ekki er sem
sagt leikið „heima og að heiman“ í
umspilinu, hvorki í undanúrslitum
né í úrslitum.
Leikið á Laugardalsvelli í mars?
Mikið vatn á eftir að renna til
sjávar áður en 19. nóvember rennur
upp og endanleg röðun liða í undan-
keppni EM verður ljós. Þá fyrst
verður sömuleiðis endanlega ljóst
hvaða 16 lið fara í þessi fjögur fjög-
urra liða umspil. Verði það örlög Ís-
lands að fara í umspil eru góðar líkur
á að liðið verði það eina, eða annað af
tveimur, úr A-deild til að fara í það.
Þá ætti Ísland rétt á heimaleik í
undanúrslitum umspilsins. Það eru
varla góðar fréttir fyrir grasið á
Laugardalsvelli sem vanalega er
ekki spilað á fyrr en í maí ár hvert,
en ljóst er að allt yrði reynt til að
hægt yrði að spila þar enda íslenska
liðið hvergi betra.
Ef Króatía kæmist til að mynda
upp fyrir Slóvakíu í sínum riðli, þá
myndi Ísland mæta Slóvakíu í und-
anúrslitum umspilsins miðað við að
annað héldist óbreytt í sviðsmynd-
inni sem hér hefur verið dregin upp.
Nýliðar á ferð á EM
Þess má svo kannski að lokum
geta að þessi nýja útgáfa af umspili,
með tengingu við Þjóðadeildina, var
meðal annars gerð til að gefa smærri
knattspyrnuþjóðum álfunnar tæki-
færi til að komast á stórmót. Hvort
árangur Íslands á EM 2016, og sú
mikla athygli sem framganga liðsins
og stuðningsmanna vakti, hefur þar
einhver áhrif skal ósagt látið. Nú er
til að mynda ljóst að að minnsta
kosti eitt þessara landa; Georgía,
Norður-Makedónía, Kósóvó eða
Hvíta-Rússland, mun spila á EM
2020, en þessi lið náðu bestum ár-
angri í D-deild Þjóðadeildarinnar
síðasta haust. Ekkert þeirra hefur
spilað í lokakeppni stórmóts áður,
nema sem hluti af Sovétríkjunum
sálugu.
Undankeppni EM heldur áfram í
september en þá mætir Ísland liði
Moldóvu á Laugardalsvelli, laug-
ardaginn 7. september, og svo Alb-
aníu á útivelli aðeins þremur dögum
síðar.
Hvaða 24 þjóðir komast á EM 2020?
Lið á leið á EM miðað við stöðu í undankeppni.
Horft er til fjölda mögulegra stiga í riðlum Portúgals,
Hollands, Englands og Sviss, sem eiga leiki til góða
vegna úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar nú í júní.
Lið sem unnu sinn riðil
í Þjóðadeildinni og eiga
öruggt sæti í umspili komist
þau ekki beint á EM.
Lokastaðan í Þjóðadeildinni 2018-19
A-deild B-deild C-deild D-deild
Lið
Loka-
staða Lið
Loka-
staða Lið
Loka-
staða Lið
Loka-
staða
Portúgal 1 Bosnía 13 Skotland 25 Georgía 40
Holland 2 Úkraína 14 Noregur 26 N-Makedónía 41
England 3 Danmörk 15 Serbía 27 Kósóvó 42
Sviss 4 Svíþjóð 16 Finnland 28 Hvíta-Rússland 43
Belgía 5 Rússland 17 Búlgaría 29 Lúxemborg 44
Frakkland 6 Austurríki 18 Ísrael 30 Armenía 45
Spánn 7 Wales 19 Ungverjaland 31 Aserbaídsjan 46
Ítalía 8 Tékkland 20 Rúmenía 32 Kasakstan 47
Króatía 9 Slóvakía 21 Grikkland 33 Moldóva 48
Pólland 10 Tyrkland 22 Albanía 34 Gíbraltar 49
Þýskaland 11 Írland 23 Svartfjallaland 35 Færeyjar 50
Ísland 12 N-Írland 24 Kýpur 36 Lettland 51
Eistland 37 Liechtenstein 52
Slóvenía 38 Andorra 53
Litháen 39 Malta 54
San Marínó 55
Mögulegt umspil í mars 2020
A-umspil B-umspil C-umspil D-umspil
Holland Bosnía Skotland Georgía
Króatía Danmörk Noregur N-Makedónía
Ísland Austurríki Serbía Kósóvó
Rúmenía Wales Búlgaría Hvíta-Rússland
Undanúrslit umspils
Eitt lið kemst áfram úr hverju fjögurra liða umspili. Hvor undanúrslitaleikur umspils
er á heimavelli þess liðs sem endaði ofar í Þjóðadeildinni. Sigurlið undanúrslita hvers
umspils leika til úrslita um sæti á EM og dregið er um hvort þeirra leikur á heimavelli.
Holland–Rúmenía Bosnía–Wales Skotland–Búlgaría Georgía-Hvíta–Rússl.
Króatía–Ísland Danmörk–Austurríki Noregur–Serbía N-Makedónía–Kósóvó
Umspil við Króatíu og
Holland um sæti á EM?
Verði Ísland undir í baráttunni við Frakkland og Tyrkland blasir við umspil
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Kunningjar Ísland þekkir það vel að
mæta Króatíu á fótboltavellinum.
Í blaðinu í gær var rangt farið með
nafn eiginkonu Alfreðs Gíslasonar.
Heitir hún Kara Guðrún en ekki
Klara eins og ritað var. Er beðist
velvirðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Kara en ekki Klara