Morgunblaðið - 14.06.2019, Síða 22

Morgunblaðið - 14.06.2019, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 ✝ Hilmar Páls-son fæddist í Reykjavík 31. mars 1935. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Mörk 5. júní 2019. Foreldrar hans voru Hulda Guð- mundsdóttir f. 7. maí 1904, d. 21. júní 2000, og Páll Guðjónsson, f. 23. júlí 1904, d. 25. júní 1959. Systir hans og sammæðra: 1) Erna S. Noel, f. 1. október 1923, d. 21. október 2018, maki Dana E. Noel. Hilmar giftist Línu Lilju Hannesdóttur 1. október 1955. Synir þeirra eru: a) Hannes, f. 25. desember 1955, kvæntur Dóru Berglindi Torfadóttur, f. 28. september 1958. Börn þeirra eru: 1) Gunnar Torfi, f. 11. júní 1987, í sambúð með Victori Grétarssyni. 2) Hulda Lilja, f. 5. apríl 1994. 3) Hilmar Páll, f. 5. apríl 1994. 4) Lína Dóra, f. 1. júlí 1997. b) Páll Jó- hann, f. 10. mars 1962, kvæntur Kolbrúnu Jónsdóttur, f. 20. júní 1962. Börn þeirra eru: 1) Lilja Lind, f. 16. febrúar 1986. Barn hennar: Kolbrún Kara, f. 15.10. 2012. 2) Hilmar, f. 12. nóvember 1993 í sambúð með Áróru Eir Brunabótafélagsins frá 1. októ- ber 1996 til 30. mars 2001. Hilmar sat í stjórn VÍS og LÍFÍS og var um tíma formaður stjórnar. Hilmar var fulltrúi Brunabótafélagsins og VÍS í ýmsum iðgjalda- og skilmála- nefndum, fulltrúi Sambands ís- lenskra tryggingafélaga í um- ferðarráði, formaður skóla- stjórnar Tryggingaskólans, í stjórn Bifreiðaskoðunar hf., Fjárvangs hf., Brunamálastofn- unar ríkisins og Lýsingar hf. Hilmar var kennari og próf- dómari við Tryggingaskólann. Kenndi einnig á námskeiðum fyrir vátryggingamiðlara, í Tækniskólanum og Ritaraskól- anum. Hilmar lauk einkaflug- mannsprófi 13. júlí 1981. Hilmar og Lína bjuggu á æskuheimili Línu á Hverfisgötu 12 um tíma. Framtíðarheimili sitt byggðu þau á Hagaflötinni í Garðabæ og bjuggu þar í rúm 40 ár. Hilmar var virkur í sam- félaginu í Garðabæ, sat m.a. í sóknarnefnd, sat í kjörstjórn fyrir Garðabæ og þá var hann stofn- og heiðursfélagi í Rótarý- klúbbnum Görðum og einnig fé- lagi í Frímúrarareglunni. Hilmar og Lína fluttu í Hlíðarhús á Eir en eftir fráfall Línu bjó Hilmar á Hjúkrunar- heimilinu Mörk. Útför Hilmars fer fram frá Vídalínskirkju í dag, 14. júní 2019, og hefst athöfnin klukkan 15. Pálsdóttur c) Björn, f. 21. júlí 1964, kvæntur Guðrúnu Björk Gunnars- dóttur, f. 9. júlí 1967, synir þeirra eru: 1) Gunnar Bjarki, f. 20. febr- úar 1995. 2) Davíð Bjarni, f. 9. maí 1998. Hilmar bjó fyrstu árin á Stokkseyri en flutti síðan til Reykjavíkur með móður sinni. Hann lauk prófi frá Verzlunar- skólanum árið 1953, prófi í ýms- um tryggingagreinum frá Tryggingaskólanum, námsdvöl hjá Storebrand í Noregi 1969 og 1983, námsdvöl hjá Lloyd’s í London 1971, prófi og löggild- ingu sem fasteigna- og skipa- miðlari 1992. Hilmar hóf störf hjá Bruna- bótafélaginu 1. júní 1956, við al- menna vátryggingastarfsemi og sölu. Hilmar var deildarstjóri 1967, aðstoðarforstjóri BÍ 1981 og BÍ-líftryggingar g.t. 1985. Framkvæmdastjóri Vátrygg- ingasviðs VÍS 1989 eftir samein- ingu Brunabótafélagsins og Samvinnutrygginga. Fram- kvæmdastjóri Atvinnutrygg- ingasviðs VÍS frá 1991 til 1996 þegar hann tók við sem forstjóri Stundum er sagt að smæstu athafnir geti haft víðtæk áhrif síðar meir. Það var nefnilega þannig að við bræðurnir heyrðum oft þá sögu frá pabba að hann hefði ætl- að í Menntaskólann í Reykjavík, hins vegar eftir að faðir hans hafði keypt forláta ritvél og gefið honum var stefnan tekin í Verzl- unarskólann... og kannski sem betur fer því þar kynntist hann móður okkar. Með Ernu systur sinni ólst pabbi fyrstu árin upp á Stokks- eyri og var alltaf í upprifjun okk- ar bræðra kallaður „Prinsinn á Stokkseyri“. Hann átti það til að fara í Kaupfélagið og kaupa sæl- gæti og svo lét hann bara skrifa það á reikning foreldranna. Það gekk þó ekki lengi enda hlaut hann skammir fyrir. Pabbi var með frábært tón- eyra og lærði á píanó og gítar. Stokkseyri var alltaf í uppá- haldi hjá pabba og ófáar fjöl- skylduferðirnar farnar í seinni tíð til að skoða það sem hann kallaði „Perlu Suðurstrandar“. Á Verzlunarskólaárunum sett- ist pabbi oft í frímínútum við pí- anóið á ganginum og nemendur sungu hressilega með. Með sérstöku forsetaleyfi gekk pabbi að eiga Línu Lilju Hannesdóttur og hófst þá saga okkar bræðra. Hannes fyrstur, síðan Páll og loks Björn. Fyrst bjó fjölskyldan á Hverf- isgötu 12, en síðan var stefnan tekin í Garðabæinn þar sem við bræður ólumst upp með Vífils- staðalækinn og hraunið í bak- garðinum. Pabbi kom víða við, rak heild- sölu með vini sínum um árabil og flutti inn ljós og perur, opnaði bílasölu sem var eingöngu opin á kvöldin, lagði fyrir sig rósarækt í gróðurhúsinu, tók einkaflug- manns- og fasteignasölupróf svo fátt eitt sé nefnt. Pabbi sá jafnan skoplegu hliðarnar og með bros á vör gat hann átt snögg tilsvör sem jafnan hittu í mark. Hann var mikill húmoristi og sérlega snjall hagyrðingur og eru til fjöl- margar vísur sem hann gerði fyr- ir hinar ýmsu árshátíðir og mannfagnaði. Pabbi var þó fyrst og fremst sérfræðingur í vátryggingum, enda snerist ævistarfið um vá- tryggingar. Hann m.a. kenndi í Tryggingaskólanum ásamt því að vera með fjölmarga útvarpsþætti um vátryggingar hér áður fyrr. Þau voru óborganleg sum sím- tölin um miðja nótt frá trygging- artökum sem tilkynntu að allt væri að brenna og pabbi spurði sallarólegur til baka hvort búið væri að hringja í slökkviliðið... því ansi oft var það ekki. Stundum þegar tjónþolar hringdu æstir til að tilkynna tjón þá spurði hann „og er einhver dáinn“... og þegar því var neitað, þá sagði hann „nú þá er þetta allt í lagi“ og vissu- lega róuðust símtölin þá. Við bræður eigum foreldrum okkar margt að þakka fyrir upp- eldið, skólaárin og fyrir það að koma okkur út í lífið til að standa á eigin fótum, alltaf voru þau til staðar og studdu okkur með ráð og dáð. Pabbi dvaldi síðustu árin á 4. hæð á Hjúkrunarheimilinu Mörk. Hann var einstaklega þakk- látur allan þann tíma og sagði alltaf: „Ég gæti bara ekki haft það betra.“ Ávallt var starfsfólkið með hag hans að leiðarljósi og kom það berlega í ljós undir lokin þegar sí- fellt þurfti að mæla blóðsykur og fleira til að fylgjast með heilsunni hans. Við bræður sendum öllu starfsfólki, hjúkrunarfræðingum og læknum okkar innilegustu þakkir og kveðjur fyrir frábæra umönnun og umhyggju þessi fimm ár sem hann dvaldi á Mörk. Að sjálfsögðu verðum við bræður svo sérstaklega að þakka afa fyrir að hafa keypt þessa rit- vél! Elsku pabbi, takk fyrir allt! Hannes, Páll og Björn. Ég kom inn í fjölskyldu Hilm- ars fyrir rúmlega fjörutíu árum, sem væntanleg tengdadóttir. Þau hjón bjuggu í Garðabæ og má segja að þau hafi verið frum- byggjar þar. Þeim hjónum þótti ekki slæmt að ég var í Versló, líkt og þau höfðu verið. Ekki sá mað- ur mikið af Hilmari á þeim árum, því ef hann var ekki í vinnunni, þá var hann á fundum. Því þótti mér mjög vænt um að þegar ég var á meðgöngudeild áður en ég átti tvíburana kom hann í heimsókn til mín eftir vinnu, eins sjúkra- húsfælinn og hann var. Það var alltaf hægt að leita til Hilmars þegar við vorum að kaupa bíla eða jafnvel húsnæði. Hann var góður í samningum, enda maður með mikla reynslu. Það sýndi sig að eitt sinn, þegar hann var að selja bílinn sinn, var sett út á að það var reykingalykt í bílnum. Eftir það reykti hann aldrei í bílnum. Við hjónin bjuggum úti á landi í þrjú ár og þegar við flutt- um aftur í bæinn og keyptum okkur hús, þá hjálpaði hann okk- ur að standsetja það og fékk meira að segja mann systur minnar til að mála húsið að utan. Hilmar lagði mikla rækt við garð- inn sinn og eitt sinn gaf ég honum í afmælisgjöf lauk af bóndarós og sagði honum að hann myndi fá jafn marga afkomendur og rós- irnar yrðu. Þær urðu þónokkrar rósirnar. Það má segja að ég hafi kynnst tengdaföður mínum best eftir að hann var kominn á hjúkr- unarheimilið Mörkina og kom í mat til okkar á sunnudögum. Besta stundin var ef hann settist við píanóið og fór að spila, en það hafði ég ekki oft upplifað áður. Það vakti undrun okkar eitt sinn þegar norskur strákur var í mat hjá okkur, þá fór hann að tala norsku við hann, eins og ekkert væri. En hann hafði lært málið þar sem hann var í miklum sam- skiptum við norska kollega vegna vinnu sinnar. Að lokum vil ég þakka starfsfólkinu á Mörkinni fyrir góða umönnun, en Hilmar var sjálfur afar þakklátur fyrir að fá að dvelja þar í góðu yfirlæti þessi fimm ár sem hann dvaldi þar. Kveðja, Dóra Berglind. Fallinn er frá elskulegur tengdafaðir minn sem vakti yfir velferð okkar alla tíð. Hilmar var svo óendanlega stoltur af fólkinu sínu. Hann þreyttist seint á því að segja frá því hversu góða drengi hann ætti og taldi sig einnig vera ótrúlega heppinn að hafa eignast þrjár tengdadætur. Nú horfum við til baka og erum að rifna úr stolti yfir minningum um góðan föður, tengdaföður, afa, langafa og vin. Hilmar ólst upp á Stokkseyri og minntist hann ávallt æsku- stöðvanna með ást og hlýju. Hilmar gekk í Laugarnesskóla og tók síðan próf frá Verslunarskól- anum þar sem hann kynntist Línu sinni. Hilmar var séður, hann gat spilað á píanó og með því að spila í löngufrímínútunum í Versló þá kynntist hann fljótt skólafélögunum og væntanlega hefur tengdamamma heillast af þessum fjölhæfa pilti sem sat við píanóið. Á menntaskólaárum mínum kynnist ég Páli og að sjálfsögðu tók Hilmar á móti mér með virð- ingu og velvild sem var aðals- merki hans í samskiptum við alla menn. Oftar en ekki leitaði ég til Hilmars um aðstoð við úrlausn ýmissa mála tengdra námi og starfi. BS ritgerðirnar okkar Páls voru yfirfarnar af Hilmari og þar skein virðingin í gegn þegar hann sagði, ég yfirfór ritgerðina en leiðrétti ekki orðaval, því það er þitt. Hilmar naut virðingar og vel- gengni í störfum sínum. Hann helgaði tryggingum líf sitt og vann hjá Brunabótafélaginu og VÍS nánast alla sína starfstíð. Þegar hlutur Brunabótafélagsins í VÍS var seldur vakti það mikla athygli þar sem ekki höfðu farið fram eins stór viðskipti með eign- arhlut félags í íslensku viðskipta- lífi. Á síðu Frjálsrar verslunar ár- ið 1997 var fréttinni stillt upp sem „Salan mikla“. Þetta var söguleg sala á þessum tíma, ekki einungis m.t.t. fjárhæðar í við- skiptum, en ekki síður fyrir hversu leynt samningaviðræður fóru, ekkert kvisaðist út, vinnu- brögðin voru hröð og skipulögð. Þar mæddi mikið á Hilmari og vakti athygli að hann mætti einn á fundina fyrir hönd Brunabótar. Hilmar stóð traustur í brúnni fyr- ir hönd félagsins eins og ávallt. Af starfsferli Hilmars er af mörgu að taka en hann var á und- an sinni samtíð hvað varðar jafn- rétti kynjanna. Það var ósjaldan sem ég fékk hringingu frá honum þar sem hann bað mig um að að- stoða sig við að finna konur í stjórnir eða framkvæmdastjórnir félaga. Þar fór Hilmar ótroðnar slóðir, ó hvað tengdadóttirin var stolt og montin af þessum flotta tengdapabba. Í samúðarkveðjum til okkar birtast óteljandi lýsingarorð um glæsilegan, stórbrotinn, einstak- an og mætan mann. Takk, elsku Hilmar, fyrir allan þinn höfðingsskap og virðingu fyrir mönnum og málefnum. Kolbrún Jónsdóttir. Elsku Hilmar. Það er sárt að kveðja og mig langar með innilegu þakklæti að þakka fyrir öll árin sem ég hef verið hluti af fjölskyldu ykkar Línu. Minningarnar eru margar og dýrmætar. Ég kynntist þér og Bjössa okkar fyrir mörgum árum þegar við vorum öll í vinnu hjá VÍS. Ein af fyrstu minningum mínum af þér hjá VÍS var þegar þú stoltur sýndir mér myndir af fallegu rósunum úr gróðurhúsi ykkar Línu. Þú hafðir einstakt dálæti á rósarækt og voru garð- urinn og gróðurhúsið ykkar sælureitur. Þú hafðir auga fyrir fallegum hlutum og listaverkum og þar að auki sérfræðingur með málning- arpensilinn og má segja að þú hafir verið aðal gluggalökkunar- meistari fjölskyldunnar! Þið Lína nutuð þess að vera í faðmi fjölskyldunnar og matar- boð á Hagaflöt sem og fjölskyldu- ferðir á æskuslóðir þínar á Stokkseyri eru partur af mörgum dýrmætum minningum okkar og barnabarnanna. Þú varst aldrei spar á hrósið alveg fram á síðasta dag. Það var unun alla tíð að sjá hvernig þú gafst þig á tal við fólk í kringum þig, það var ávallt stutt í húm- orinn og þú slóst gullhamra eða komst með fallegt hrós sem yljaði mörgum um hjartarætur. Síðustu árin þín þar sem þú dvaldir á hjúkrunarheimilinu Mörk var aðdáunarvert að sjá hversu jákvæður þú varst og þakklátur og yndislegt var end- urtekið að heyra hversu stoltur og þakklátur þú varst fyrir drengina þína þrjá og fjöl- skyldur. Takk fyrir allt, elsku tengda- pabbi. Guðrún. Þegar ég hugsa til baka um elsku afa Hilmar þá var hann þessi ljúfi, góði og hávaxni mað- ur. Hugsaði vel um allt fólkið sitt og heimilið þeirra ömmu og afa á Hagaflötinni. Heimili þeirra stóð okkur alltaf opið. Þau voru dugleg að bjóða stór- fjölskyldunni heim í mat sem var í raun ekkert minna en veislur. Það var sama hvenær við litum inn á Hagaflötinni, í stutta stund eða í lengri tíma til þess að þiggja veitingar. Veitingar voru alltaf bornar fram fyrir okkur og ekk- ert var til sparað. Afi var mikill matmaður og húmoristi en hann sagði ávallt þegar góðu molarnir eða eftirrétturinn var borinn á borð... þetta er dálitið súrt. Sem þýddi þá að það var eitthvað mjög gott á borðum. Með þessu vildi afi ekki aðeins tryggja sinn hlut af góðgætinu heldur miklu fremur gera okkur smá grikk. Yngstu meðlimir fjölskyldunnar voru í fyrstu hikandi við að smakka „súru“ réttina, féllu í gryfjuna, en voru svo fljót að átta sig á gríninu og tóku síðan fullan þátt í leikn- um. Oftar en ekki þegar að kveðjustund var komið og við stóðum í dyragættinni laumaði hann litlum seðli í höndina sína, tók í mína, laumaði seðlinum yfir til mín og faðmaði mig bless. Það má alveg segja að afi eigi stóran þátt í því að ég gat keypt mér bíl á sínum tíma en hann stofnaði framtíðarreikning á mínu nafni þegar ég fæddist og lagði reglulega inn á hann t.d. á afmælum, jólum eða við önnur til- efni. Við barnabörnin fengum t.d. andvirði páskaeggs lagt inn á reikninginn okkar um páskana en ekki páskaeggið sjálft. Þegar ég var yngri þá fannst mér þetta ekkert rosalega góð hugmynd með páskaeggið en ég er afa mjög þakklát fyrir fyrirhyggjuna því þetta auðveldaði mér svo sannarlega að fjárfesta í bíl. Afi talaði margoft um það hversu ríkur hann væri en það var vegna þess hversu flotta og stóra fjölskyldu hann ætti. Hann sparaði aldrei hrósin til okkar en þegar við hittumst sagði hann oft: mikið ertu falleg enda ertu skyld honum afa Hilmari. Nú í seinni tíð þegar hann kom í mat til mömmu og pabba þá settist hann við matarborðið, tók alltaf vel til matar síns og hrósaði mömmu fyrir matinn, mikið var þetta gott, elsku Kolla mín. Allt var veisla í hans augum, þó það væri bara mánudagsfiskur í matinn. Elsku afi. Takk fyrir framsýn- ina, stuðninginn og alla umhyggj- una fyrir mér. P.s. Engar áhyggjur, ég skal borða alla súru molana. Lilja Lind. Hilmar skipaði stóran sess í föðurfjölskyldu okkar alla tíð og okkur þótti öllum vænt um hann. Hilmar var sterkur persónu- leiki og glæsilegur maður. Í hon- um var listræn taug, hann var stemningsmaður. Tónlistin var honum í blóð borin, hann var lið- tækur á harmonikku, píanó og fleiri hljóðfæri. Ávallt var stutt í húmorinn þegar Hilmar var ná- lægt og margar skemmtilegar sögustundir eru okkur í fersku minni. Hilmar og Lína föðursystir okkar voru bæði samrýnd og samhent hjón. Smekkvísin var þeim eðlislæg. Þau byggðu sér hlýlegt og fallegt heimili á Haga- flöt í Garðabænum. Synirnir urðu þrír, þeir Hannes, Páll og Björn. Góðir synir og bræður sem þau unnu mjög. Það var ávallt gaman að koma á Hagaflötina og eigum við þaðan margar góðar minningar. Lína og Hilmar voru höfðingj- ar heim að sækja. Móttökurnar ógleymanlegar, allt svo fínt og fallegt hjá þeim. Þau sýndu gest- um sínum áhuga og öllum leið vel í þeirra návist. Upp í hugann koma margar hlýjar minningar, jólaboðin á Hagaflöt, hangikjöts- ilmur í lofti, fagurskorið laufa- brauðið. Gleðin var við völd eins og alltaf þegar fjölskyldan hittist og átti Hilmar ríkan þátt í því. Hann dró fram nikkuna þegar gengið var í kringum jólatréð og sungið hástöfum. Eftir dansinn var haldin afmælisveisla Hannes- ar og fagurskreyttar terturnar sviku engan. Þá eigum við öll svo fjölmargar hlýjar og góðar minningar úr fjölskyldureitnum okkar, þar sem ungir jafnt sem aldnir hafa ósjaldan hist í gegnum tíðina. Hilmar sinnti Línu af einstakri natni í veikindum hennar með stuðningi þeirra bræðra. Síðustu árin bjó Hilmar á Mörk, fór þó víða með sonum sínum, mætti í fjölskylduboð og mannfögnuði. Við kveðjum Hilmar pabba ykkar með söknuði, kæru frænd- ur. Við vottum ykkur, elsku Hannes, Palli og Bjössi, og fjöl- skyldum ykkar innilega samúð. Megi minning Hilmars og Línu lifa. Þórdís, Gerður og Áslaug Leifsdætur. Það var fyrir um 55 árum sem Garðahreppur varð fyrir valinu hjá þeim Hilmari og Línu þegar þau byggðu sitt fyrsta íbúðarhús- næði á Hagaflötinni, þá ung að árum. Við Guðrún urðum þeirrar gæfu aðnjótandi að fá einnig lóð á Hagaflötinni og voru lóðir okkar samliggjandi. Þar hófust okkar góðu kynni sem staðið hafa óslitið síðan og aldrei borið skugga á. Ungt fólk hafði tækifæri til að taka mun meiri þátt í byggingu síns húsnæðis á okkar bygging- artíma en nú er og hafði gott af. Ekki voru lóðir auðfengnar í Reykjavík og var því horft í aðrar áttir og hófust framkvæmdir okkar á Hagaflötinni 1963. Hilm- ar var fljótur að útvega sér vinnu- skúr sem settur var niður á lóða- mörkum okkar og fyrir velvild hans fékk ég þar inni. Þetta var sannkallaður kaffiskúr, en þar bárum við saman bækur okkar reglulega og ræddum heimsmál- in og þar tæmdust margir kaffi- bollar á byggingartímanum, sem var nokkuð langur. Stutt var á milli okkar þar sem við hófum okkar búskap, Hilmar og Lína á Hverfisgötu og við Guðrún á Lindargötu í Reykjavík og eftir kynni okkar var oft slegið í einn bíl suður í Garðahrepp til kvöld- Hilmar Pálsson Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síð- una. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu að- standendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.