Morgunblaðið - 14.06.2019, Page 28

Morgunblaðið - 14.06.2019, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 14. JÚNÍ 2019 Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Á liðnum misserum hafa systkini mín hvert af öðru farið í ferðalagið í Sumarlandið. Í dag Gunnar Magnússon ✝ Gunnar Magn-ússon fæddist 15. júlí 1931. Hann lést 5. maí 2019. Út- förin fór fram 29. maí 2019. kveðjum við Gunn- ar bróður. Við vor- um 12 systkinin sem fæddumst á Vestdalseyri við Seyðisfjörð, á árun- um 1922-1939, 5 systur og 7 bræður. Móðir okkar átti við veikindi að stríða og vegna þess sundraðist fjölskyldan. Öll náðum við þó saman á ný þegar fram liðu stundir og höfum í gegnum tíðina átt yndislegar stundir saman, m.a. á ættarmót- um og jólaskemmtunum. Mér er mjög minnisstæð sú ferð þegar ég var 15 ára gömul og Gunnar 19 ára og vorum samferða í strandferðaskipinu Heklunni frá Seyðisfirði til Reykjavíikur. Farið var norður fyrir land og m.a. komið við á Ísafirði, þar sem við hittum Guðnýju systur okkar eftir langan aðskilnað. Gunnar var einstakur maður, með eindæmum skemmtilegur og mikill húmoristi. Glettnisblik í auga fylgdi honum ætíð. Hann og Guðmundur eiginmaður minn áttu margt sameiginlegt og brölluðu ýmislegt saman í gegn- um tíðina. Sem ungir menn í alls kyns ótrúlegum fyndnum uppá- komum, sem lengi voru í minn- um hafðar. Einnig áttu þeir á seinni tím- um og þeirra fólk góða tíma saman í Grímsnesinu við leik og störf. Núna eru þeir í Sumar- landinu í sameiginlegri væntum- þykju og með glettnisblik í auga. Elsku Gunnar, ég er mjög þakklát fyrir allar góðu samvist- irnar sem fjölskyldur okkar hafa átt í gegnum áratugina. Ég sendi eftirlifandi eiginkonu þinni og afkomendum þínum öllum mínar innilegustu samúðar- kveðjur. Helga. Erlendína Kristjánsson ✝ ErlendínaKristjánsson fæddist 18. febrúar 1969. Hún lést 25. maí 2019. Útför Erlendínu fór fram 3. júní 2019. starfsmönnum laga- deildarinnar þótti það góð hugmynd að taka upp árshá- tíðarmyndband þar sem hluti starfs- manna reyndi sig við skautaiðkun. Þá kom sér vel að Er- lendína var reyndur þjálfari í listdansi á skautum. Hún hafði líklega sjaldan þurft að glíma við jafn óefnilegan hóp en leysti verkefnið af mikilli þol- inmæði. Með Erlendínu er genginn góður félagi sem gat sér gott orð við lagadeild HR og víðar. Þar var mikið lán fyrir skólann í heild sinni að fá hana þar til starfa. Að- standendum Erlendínu er vottuð innileg samúð. Fyrir hönd lagadeildar Há- skólans í Reykjavík, Eiríkur Elís Þorláksson. Erlendínu kynntist ég þegar dætur mínar hófu að æfa skauta, reyndar ekki í því félagi sem hún var starfandi í en allir sem komu með einhverju móti að íþróttinni í þá daga komust ekki hjá því að taka eftir þessari konu. Hún var þá starfandi í Birninum í Graf- arvogi sem þjálfari. Það var helst á skautamótum sem maður hitti Erlendínu. Hún var mannblendin og vin- gjarnleg við alla, sama úr hvaða félagi þeir komu, og gerði sér far Kveðja frá laga- deild Háskólans í Reykjavík Erlendína starfaði við laga- deild HR í um 15 ár eða nánast frá stofnun deildarinnar. Þá tók hún að sér kennslu við aðrar deildir innan skólans og ber ferill hennar vott um hennar mörgu góðu kosti. Við lagadeild kenndi hún einkum lagaensku en slík námskeið höfðu ekki mörg verið á boðstólum hér á landi áður. Má því segja að Erlendína hafi verið brautryðjandi á þessu sviði hér- lendis. Hún gat sér mjög gott orð sem kennari og naut trausts og vinsælda hjá nemendum. Á sama tíma gerði hún þó miklar kröfur til nemenda sinna. Námsmat hjá henni samanstóð oft af mörgum litlum verkefnum sem felur í sér mikla áskorun bæði fyrir nem- endur og kennara. Erlendína var jafnframt sérlega vel liðin af samstarfsfólki. Hún gaf mikið af sér og var auðvelt fyrir samkenn- ara hennar að leita til hennar á hennar sérsviði, lagaenskunni. Þá stóð ekki á henni að aðstoða á öðrum sviðum og er skemmst að minnast þess þegar einhverjum um að kynnast sem flestum sem urðu á vegi hennar. Einskær áhugi hennar á íþróttinni og eld- móður í starfi var foreldrum úr öllum félögum hvatning að taka til hendinni sem sjálfboðaliðar. Það var svo nokkrum árum seinna að yngri dóttir mín ákvað að skipta um félag og bauð Er- lendína hana velkomna í Björn- inn haustið 2011. Ári síðar fylgdi hún dóttur minni á Junior Grand Prix í Þýskalandi, sem þjálfari hennar, þar sem aðalþjálfari Júl- íu gat ekki farið með. Erlendína innti þetta starf af- ar vel af hendi og reyndist Júlíu afar vel í aðdragandanum og í ferðinni og tókst að skapa létta og skemmtilega stemmingu þrátt fyrir erfiðar kringumstæður. Júl- ía minnist þess enn hve vel henni leið og hve afstressandi Erlend- ína gat verið undir álagi. Sam- starf okkar Erlendínu hélst alveg fram til þess að hún lét af störf- um fyrir íþróttina og unnum við síðast saman á Norðurlanda- mótinu 2017 en það var einnig upphafstími veikindanna. Við héldum sambandinu með því að fara saman út að borða og þar fylgdist ég með framvindu veik- indanna. Man ég sérstaklega eft- ir að hún sagði alltaf „mér finnst ég ekkert vera veik því ég finn ekkert til“ og fannst mér það ekkert skrýtið því hún leit alltaf einstaklega vel og hraustlega út. Ég heyrði síðast í henni í lok mars en þá var hún að kenna og gat ekki talað, „ég hringi í þig seinna“ sagði hún. Nú mun ég ekki heyra aftur í Erlendínu en þakkir kann ég henni fyrir samstarfið í gegnum tíðina og fjölskyldu hennar sendi ég mínar innilegustu kveðjur. Þóra Gunnarsdóttir. Elsku besti afi okkar. Þú sem tókst alltaf svo vel á móti okkur af þolinmæði og hlýleik. Það var áberandi fyr- ir afa hvað hann tók alltaf vel á móti manni. Handaband dugði engan veginn, þéttingsfast faðm- lag skyldi það vera og innilega einlæg ánægja að sjá mann. Frá því við munum eftir afa starfaði hann sem fótanuddari. Við máttum alltaf panta tíma hjá honum og var það frábær leið til þess að eyða tíma bara með hon- Hörður Sigurðsson ✝ HörðurSigurðsson fæddist 22. mars 1937. Hann lést 19. apríl 2019. Útför Harðar fór fram 11. júní 2019. um þar sem hægt var að ræða um hvað sem var, eða bara slappa af og jafnvel sofna á bekknum. Eftir nuddið var alltaf í boði pott- rétturinn sem eld- aður var á sunnu- degi og síðan borðaður alla vik- una. Fæturnir og líkaminn þakkaði manni alltaf vel fyrir eftir heimsóknina til afa Harðar. Í minningunni var pottréttur- inn alltaf eins, enda var Hörður ekki fyrir að flækja hlutina. Það er eitthvað notalegt við þennan einfaldleika sem skapar eflaust meira rými fyrir það sem skiptir meira máli. Svei mér þá ef pott- rétturinn verður ekki eldaður annað slagið í minningu afa Harðar og til þess að minna okk- ur á að staldra við og muna að það er ferðalagið sem skiptir máli, en ekki áfangastaðurinn. Það var yndislegt að geta allt- af pantað tíma hjá afa Herði. Hann var aldrei of upptekinn til þess að taka á móti manni og maður fann aldrei fyrir því að hann væri að drífa sig. Á þessum tímum þegar allir eru uppteknir eða annars hugar, er þetta alls ekki óvitlaust fyrirkomulag, að geta pantað tíma hjá hvert öðru. Þó við getum ekki öll veitt eins gott fótanudd og afi getum við öll gefið athygli okkar og hlýju. Við kveðjum þig með sorg í hjarta, elsku bestu afi okkar, en vitum um leið að þú ert kominn á betri stað. Minningin um hlýjar viðtökur og væntumþykju þína mun lifa í hugum okkar svo lengi sem við lifum. Þínir dóttursynir, Hörður Ingi, Arnar Björn og Helgi Davíð. Atvinnuauglýsingar Yfirvélstjóra vantar á Kristínu GK-457. Kristín er línuveiði- skip með beitningarvél. Nánari upplýsingar gefur skipstjóri í síma 856-5730 eða útgerðarstjóri í síma 856-5700. Einnig er hægt að sækja um á heimasíðu Vísis hf. á visirhf.is. Tilkynningar Notice of Ordinary General Meeting JPMorgan Liquidity Funds The meeting will be held at the location and time stated in the right-hand column. Agenda for Meeting and Shareholder Vote 1. Should John Li and Dan Watkins be re-appointed to the Board with effect from 26 April 2019 for the period ending at the Annual General Meeting to be held in 2020? 2. Should Massimo Greco and Jacques Elvinger be re-appointed to the Board with effect from 26 April 2019 for the period ending at the Annual General Meeting to be held In 2021? To vote by proxy, use the proxy form at jpmorganassetmanagement.com/ extra. Your form must arrive at the registered office, via post or fax, by 1800 CET on 03 July 2019. To vote in person, attend the meeting in person. T H E M E E T I NG Location Registered office of the Fund (see below) Date and time Friday, 05 July 2019 at 14:00 CET Quorum None required Voting Agenda items will be resolved by a simple majority of the votes cast T H E F U N D Name JPMorgan Liquidity Funds Legal form SICAV Fund type UCITS Auditors PricewaterhouseCoopers Société coopérative Registered office 6, route de Trèves L-2633 Senningerberg, Luxembourg Fax +352 3410 8855 Registration number (RCS Luxembourg) B 25 148 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Opin smíðastofa kl. 9-15. Opið hús kl. 13-15. Bókabíllinn kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17. Opið fyrir innipútt og 18 holu útipúttvöll. Hádegismatur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni. Allir velkomnir. S. 535-2700. Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Morgunkaffi kl. 10- 10.30. Leikfimi kl. 12.50-13.30. Sumarhátíð Bólstaðarhlíðar kl. 17-20. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffispjall og blöðin við hring- borðið kl. 8.50. Opin listasmiðja kl. 9-16. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Gáfumannakaffi kl. 14.30. Hugmyndabankinn opinn kl. 9-16. Allir velkomnir óháð aldri. Nánari upplýsingar í síma 411-2790. Lokað mánudaginn 17. júní. Garðabær Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jóns- húsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30, og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl.10.30. Bókband með leiðbein- anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 20 félagsvist. Gullsmári Handavinna kl. 9. ATH.: leikfimi, fluguhnýtingar, ljósmynda-klúbbur, bingó og Gleðigjafarnir eru komin í sumar frí. Hraunbær Síðasta bingó fyrir sumarfrí kl. 13.15. Spjaldið kostar 200 kr. og öllum velkomið að taka þátt. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, söngstund með Þóru og Pálma kl. 13.30 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15, upplestur kl. 11-11.30, hádegisverður kl. 11.30-12.30, bingó kl. 13.30, bókasafnshópur kl. 14. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30, Leikfimi í salnum Skóla- braut kl. 11, spilað í króknum kl. 13.30. Minnum á spjaldtölvunám- skeiðið sem haldið verður í salnunm Skólabraut á þriðjudag og miðvikudag nk., skráning hjá Thelmu í síma 8663027. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–14. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Stangarhylur 4, Dansað sunnudagskvöld kl. 20-23. Hljómsveit húss- ins leikur fyrir dansi. Allir velkomnir. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bílar Volvo XC V70 til sölu Volvo V70 station. Árg. 2000. Mjög góður bíll. Vel viðhaldið. Smurbók frá upphafi. Skoðaður. Sjálfskiptur og með dráttarkrók. Fallegur bíll með góða aksturseiginleika og þægileg leðursæti. Góð sumardekk og ný Michelin nagladekk fylgja. Upp. í síma 893 7719 og 698 7563 Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Smá- og raðauglýsingar með morgun- Nú u þú það sem þú eia að á FINNA.is IÐNAÐARMENN VERSLANIR VEITINGAR VERKSTÆÐI BÓKHALDSÞJÓNUSTA OG FLEIRA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.