Morgunblaðið - 21.06.2019, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.06.2019, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2019 Veronika S. Magnúdóttir veronika@mbl.is Orkudrykkjaneysla framhalds- skólanema jókst mikið á árunum 2016 til 2018, en hlutfall þeirra sem neytti orkudrykkja daglega eða oftar fór úr 22% í 55%. Nið- urstöðurnar eru úr rannsókninni Ungt fólk á vegum rannsóknar og greiningar við Háskólann í Reykjavík. Þar kemur að auki fram að fjórfalt fleiri stúlkur í framhaldsskóla neyttu orku- drykkja árið 2018 en árið 2016. Áhrifamikil markaðs- setning drykkjanna Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá embætti landlæknis, segir að samspil umsvifamikillar markaðs- setningar orkudrykkja og álags á ungu fólki sé meðal þess sem gæti skýrt aukninguna: „Orkudrykkirnir hafa verið markaðssettir á ákveðinn hátt og ungt fólk er undir álagi. Fram- haldsskólanemar ná ekki nægum svefni og raunin er að þeir vinna mikið með skóla,“ segir hún. Notendur sem búa yfir miklum fylgjendafjölda á samfélagsmiðlum fá gjarnan orkudrykki senda til sín og auglýsa drykkina fyrir stórum fylgjendahóp. Í því samhengi segir Dóra að klárlega sé um „trend“ að ræða og bætir við að lítil umræða fari fram um neikvæð áhrif koffíns. Greint var frá niðurstöðum rannsóknanna Ungt fólk í frétta- bréfi embættis landlæknis, Talna- brunninum, sem út kom á þriðju- daginn síðastliðinn en þar er einnig greint frá hættum of mik- illar koffínneyslu. Sé koffíns neytt í miklu magni geti það haft óæski- leg áhrif á heilsu og líðan fólks: til dæmis valdið hjartsláttartruflun- um, hækkuðum blóðþrýstingi, höf- uðverk, svima og haft neikvæð áhrif á svefn. Þar kemur einnig fram að auðveldara sé að innbyrða mikið magn orkudrykkja á stuttum tíma en til dæmis kaffis, sem drukkið er heitt og því neytt hæg- ar. Koffínneysla eykst með aldrinum Í rannsókninni Ungt fólk kemur fram að koffínneysla grunnskóla- nema aukist með hækkandi aldri; árið 2018 var hlutfallið 20% í 8. bekk, 29% í 9. bekk og 35% í 10. bekk. Spurð hvort aukningin leiði í ljós koffínfíkn meðal ungmenna segir Dóra að allar líkur séu á því og að rannsóknir sýni það að fyrir þann sem er ekki háður koffíni geri koffín lítið gagn. „Þegar fólk verður háð koffíni dettur það að- eins niður og koffínneyslan kemur því aftur upp. Það er langbest að neyta þess ekki yfirhöfuð því lík- aminn mun alltaf aftur þurfa koffín til að ná eðlilegu ástandi,“ segir hún. Samkvæmt lögum verður að merkja orkudrykki, sem innihalda 150 mg/l af koffíni eða meira, sér- staklega, þar sem tekið er fram að drykkurinn innihaldi mikið koffín- magn. Þó er ekki bannað að selja börnum og ungmennum þessar vörur. Hins vegar er ólöglegt að selja einstaklingum undir 18 ára aldri sterkari orkudrykki, sem innihalda 320 mg/l eða meira koff- ín. Matvælastofnun hefur veitt leyfi fyrir sölu á nokkrum slíkum vörum. Orkudrykkja neytt í miklum mæli  Hlutfall framhaldsskólanema sem neyttu orkudrykkja fór úr 22% í 55% á árunum 2016 til 2018  Fjór- falt fleiri stúlkur neyta orkudrykkja nú en áður  Ágeng markaðssetning áhrifavalda sennileg skýring Orkudrykkjaneysla framhaldsskólanema 30% 55% 2016 2018 STRÁKAR 14% 54% 2016 2018 STELPUR 55% 22% 2016 2018 ALLS Heimild: Rannsóknir og greining Á þriðja þúsund hlauparar voru skráðir í Mið- næturhlaup Suzuki sem fram fór í 27. sinn í gær- kvöldi og komu í mark við þvottalaugarnar í Laugardal. Sumarsólstöður eru í dag, 21. júní, en þá er sólargangur lengstur á norðurhveli jarðar. Sólstöður vísa til þess að sólin stendur kyrr eitt augnablik þegar Norðurpóll jarðar snýr næst sólu. Sumarsólstöðumínútan verður í dag klukk- an 15:54. Eftir hana fara dagarnir að styttast. Sumarsólstöðumínútan verður í dag klukkan 15:54 Morgunblaði/Arnþór Birkisson Á þriðja þúsund manns í Miðnæturhlaupi Brunavarnir Árnessýslu munu í næsta mánuði bæta við bílaflota sinn nýjum tankbíl sem mun geta sinnt verkefnum í sumarhúsabyggðum sem aðrir bílar gátu síður sinnt. „Við höfum verið með fjóra tankbíla og þetta er þá þriðji bíll- inn sem við endurnýjum,“ segir Pétur Pétursson, slökkviliðsstjóri Bruna- varna Árnessýslu. „Þetta er auðvitað bara endurnýjun á eldri bíl en hugsunin með þennan er að hann er aðeins léttari en hinir og er þá betri til þess að koma á sum- arhúsasvæði því þar eru ekki alls stað- ar vegir sem bera svona þung tæki eins og við erum með,“ segir hann og bætir við að í sumum sumarhúsabyggðum séu ekki veitur sem geta annað slökkvi- starfi. Þá sé mikilvægt að geta komið með sem mest slökkvivatn með sér. Pétur segir að þó að bíllinn muni vonandi nýtast vel í útköllum í sum- arhúsabyggð séu tankbílar eins og hinn nýi notaðir í flestöllum eldútköll- um, einnig innanbæjar. Spurður hvort tryllitæki eins og nýi bíllinn kosti ekki tugi milljóna segir Pétur að dælubílar geti verið á verð- bilinu „fjörutíu til hundrað plús- millj- ónir“. Tankbílar eins og sá nýi séu hins vegar í allt öðrum verðflokki, á bilinu tíu til fimmtán milljónir. teitur@mbl.is Nýr og létt- ari tankbíll  Nýtist í útköllum í sumarhúsabyggð samþykktar stjórnar hans um hækkun breytilegra vaxta verð- tryggðra sjóðfélagalána úr 2,06% í 2,26%, sem að mati stjórnarinnar gengur í berhögg við þá miklu áherslu sem lögð var á vaxtalækk- anir í nýgerðum kjarasamningi. Eftirfarandi tillaga sem borin var upp á fulltrúaráðsfundinum í gær- kvöldi vegna þessa máls var sam- þykkt með 20 atkvæðum gegn 2 en tveir sátu hjá: „Fundur í fulltrúa- ráð[i] VR hjá Lífeyrissjóði verzl- unarmanna samþykkir að trúnaðar- brestur hafi orðið milli VR og stjórnarmanna VR í Lífeyrissjóð verzlunarmanna og að umboð aðal- og varamanna VR í Lífeyrissjóði verzlunarmanna er afturkallað.“ Forganga um lækkun vaxta Í afsagnarbréfi til stjórnar VR segir Ólafur Reimar Gunnarsson, fráfarandi stjórnarformaður í Líf- eyrissjóði verslunarmanna, að hann hafi að fullu tekið þátt í því mikla verkefni VR að draga verulega úr fjármagnskostnaði heimilanna á undanförnum árum með því að sjóðurinn hafi boðið sjóðfélögum lán á samkeppnishæfum kjörum. Þar hafi sjóðurinn haft forgöngu um lækkun vaxta sem síðustu miss- erin hafi einkum komið fram á verðtryggðum lánum með breyti- legum vöxtum. Lánin hafi borið 3,99% vexti í upphafi árs 2015 en hafi jafnt og þétt lækkað og séu nú 2,06%. „Þetta er og hefur verið afar mikilvæg kjarabót fyrir félagsmenn VR og sjóðfélaga LV,“ segir Ólafur. Hann skýrir ástæður þess að orðið hafi að hækka breytilegu vextina um 0,2%. Segir að í því sem öðru hafi stjórn LV unnið af fullum heilindum og með hag allra sjóð- félaga að leiðarljósi. Illa að mér vegið „Ég tel því illa að mér og öðrum stjórnarmönnum sjóðsins vegið að væna okkur um óheilindi og bregð- ast við með svo harkalegum og ómálefnalegum hætti sem formaður VR og stjórn félagsins hafa gert, og nú síðast fulltrúaráð félagsins í LV. Vinnubrögð formanns og meiri- hluta stjórnar hafa verið forkast- anleg og get ég ekki hugsað mér að starfa lengur í þessum félagsskap og segi því hér með skilið við hann,“ segir Ólafur Reimar í yfir- lýsingu sinni. Samþykkt var á fundi fulltrúaráðs VR í gærkvöldi að afturkalla um- boð þeirra fjögurra stjórnarmanna sem sitja í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna fyrir hönd stétt- arfélagsins og var að auki sam- þykkt tillaga um nýja stjórnar- menn til bráðabirgða. Stjórnarmenn í lífeyrissjóðnum hafa brugðist hart við þessari ákvörðun. Stjórnarformaður Líf- eyrissjóðs verslunarmanna sem til- nefndur var af VR sagði af sér störfum sem stjórnarmaður í VR og um leið frá öllum trúnaðarstörf- um fyrir félagið. Stjórn VR hafði lýst yfir trún- aðarbresti gagnvart stjórnarmönn- um félagsins hjá sjóðnum vegna Formaður LV segir skilið við VR  Fulltrúaráð VR afturkallar umboð fulltrúa sinna í stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna  Fráfarandi formaður lífeyrissjóðsins segir vinnubrögð formanns og stjórnar VR forkastanleg 0,2% vaxtahækkun » Deilt er um ákvörðun Lífeyr- issjóðs verslunarmanna að hækka breytilega vexti verð- tryggðra sjóðfélagalána úr 2,06% í 2,26%. » Stjórn VR telur að trún- aðarbrestur hafi orðið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.