Morgunblaðið - 21.06.2019, Page 20

Morgunblaðið - 21.06.2019, Page 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2019 ✝ Ægir-Ib Wessmanfæddist 12. sept- ember 1963. Hann lést ásamt eiginkonu sinni Ell- en Dahl Wessman og syni Joni Emil Wessman 9. júní 2019. Börn Ægis og Ellenar eru Ida Björg Wessman, fædd 30. júní 1989, Thor Ib Wessman, fæddur 4. október 1994, og Jon Emil Wessman, fæddur 10. ágúst 1998, dáinn 9. júní 2019. Foreldrar Ægis eru Inga Þóra Herbertsdóttir Wessman, fædd 6. nóv- ember 1935, og Elof Ib Wessman, fæddur 30. desember 1934. Systkini Ægis eru Bergþóra Laila Wessman Søreide, fædd 8. mars 1960, og Flemming Gauti Wessman, fæddur 11. febrúar 1972. Hálfbróðir Ægis sammæðra er Einar Ingþór Einarsson, fædd- ur 14. desember 1954. Elsku vinir, við minnumst ykkar og allra dýrmætu stund- anna sem við áttum með ykkur, Ægir æskuvinurinn úr Garða- bæ með Ellen sér við hlið og gleðigjafann Jon Emil. Við minnumst ykkar sem tryggra og traustra vina. Við minnumst þess þegar við vorum í heimsókn hjá ykkur, hvort sem það var í Torskils- rup, á Strandvejen eða á Grett- isgötunni, þar ríkti gleði og gestrisnin var aðalsmerki ykk- ar. Þegar krakkarnir okkar voru litlir vorum við ósjaldan í heimsókn hjá ykkur í Dan- mörku. Eftir ferðalög um Þýskaland eða Danmörk þá var gott að koma til Ægis og Ell- enar. Á sumarkvöldi stóð Ægir við grillið og undir hljómaði ís- lensk dægurtónlist, ekkert var til sparað í mat og drykk. Börnin okkar og við nutum þess að eiga saman huggulegar stundir. Það var ósjaldan sem við Íslendingarnir vöknuðum við ilm af nýbökuðu brauði og bollum sem beið okkar á eld- húsborðinu. Ellen hafði vaknað eldsnemma til þess að baka fyr- ir svefnpurkurnar, en hún var löngu farin til vinnu þegar við komum fram. Við minnumst stóra tjaldsins og tengdamömmuboxins sem Ægir kom skellihlæjandi með í „handfarangri“ frá Kaup- mannahöfn handa okkur hjón- um og allra ferðalaganna með fjölskyldunni. Við minnumst allra þeirra fjölmörgu og skemmtilegu tíma sem við átt- um saman á ferðalagi um Ís- land. Ævinlega var Ægir með eitthvert nýtt áhald með sér til að trompa okkur hin, eitt sinn var það „tosterinn“, áhald til að rista brauð á prímus. En viti menn, í næstu útilegu var Ægir búin að tryggja okkur hinum þetta undratæki. Við minnumst fjórhjólaferðarinnar sem við fórum saman upp í Hrafntinnu- sker fyrir allt of löngu síðan og alltaf stóð til að endurtaka þá ferð, sérstaklega eftir að slík farartæki voru komin í tækja- safnið í Múlakoti. Við minnumst símhringing- anna um hver áramót og ára- mótakveðjunnar frá ykkur. Þrátt fyrir að oft væri langt á milli okkar og þið fjölskyldan annaðhvort í Danmörku eða á faraldsfæti einhvers staðar um heiminn, þá fór þar innihaldsrík og gleðileg vinakveðja. Þannig náðum við að upplifa áramótin saman þrátt fyrir fjarlægðina. Og alltaf var viðkvæðið að um næstu áramót ætluðum við að þiggja heimboð ykkar hjóna og vera með ykkur yfir áramótin og upplifa hina einu sönnu Wessman-áramótastemningu. Páll minnist síðasta símtals- ins við Ægi fyrir nokkrum dög- um en þá voru þau Ellen nán- ast flutt í Múlakot. Það mátti svo sannarlega greina að í Múlakoti leið ykkur hjónum vel og þú varst stoltur af því hve vel þér gekk að byrja fram- kvæmdir við sumarhús fjöl- skyldunnar, þar sem flugvélin átti að fá stærsta plássið í hús- inu. Það var sama hvað þið tók- uð ykkur fyrir hendur, kæru vinir, alltaf voru þið samstiga í ykkar verkefnum. Ég minnist okkar síðasta samtals þar sem ég lofaði að við kæmum fljót- lega í heimsókn til að taka út verkið og upplifa með þér og Ellen framtíðardraum ykkar verða að veruleika í Múlakoti. Við minnumst ykkar fyrir það líf sem við áttum saman og þökkum af alúð trygga og góða vináttu. Elsku Ida Björg, Thor Ib og fjölskylda, við sendum ykkur okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Páll og Kolbrún. Algjört áfall … eru einu orð- in sem komast nálægt þeim við- brögðum að heyra svona frétt- ir. Ég kynntist Ægi-Ib í skáta- starfi í Garðabæ þegar við vor- um guttar og fljótlega fórum við að vinna saman í skálanefnd skátaskálans Vífilsbúðar. Ægir var einstaklega dríf- andi, útsjónarsamur og verk- laginn. Ég og Páll bróðir minn urðum fljótt miklir vinir Ægis og grínuðumst með það að Æg- ir, sem var á milli okkar í fæð- ingarári, var sá eini sem var með okkur báðum í gegnum uppvaxtarárin. Ægir var mikill véladellukarl, átti mótorhjól, leigði bílskúr og keypti gamlan Camaro til að gera upp. Ægir fór ungur að vinna er- lendis á sumrin og stefndi á flugið alla tíð. Hann lærði flug hér á landi, en einnig í Dan- mörku, Noregi og Bandaríkj- unum. Þótt Ægir væri langt í burtu þá vorum við samt alltaf í góðu sambandi. Þegar Ægir kynnti Ellen til sögunnar og var farinn að vinna í Abu Dabi við flug, varð ljóst að þau væru ekki á heim- leið strax, en reglulega komu bréf til okkar með fréttum og sögum. Ellen og Ægir smullu strax saman og voru einstak- lega samhent í öllu því sem þau tóku sér fyrir hendur, Ægir sem flugstjóri hjá SAS og Ellen sem sjúkraþjálfari. Fjölskyldan bjó um tíma í Torskilstrup í Danmörku og alltaf var gaman að koma þangað í heimsókn. Þar úti í garði var lítið gesta- hús og sem tilvísun í nafn ská- taskálans forðum daga, þá gaf ég Ægi lítið útskorið skilti með nafninu „Björnsbúð“ – og svo var hlegið. Þegar Ægir og Ell- en byggðu húsið sitt á Strand- vejen nálægt Holbæk nefndi hann iðulega að búið væri að hengja upp skiltið góða í nýja gestaherberginu og við ávallt velkomin. Krafturinn í Ægi við húsbygginguna var mikill og hann er sá eini sem við þekkj- um sem hefur keypt stóra vél- gröfu til að hafa við höndina á byggingartíma. Hún var gömul og lúin og þá kom vélakunn- áttan sér vel, því Ægir nostraði við hana og gerði við ef þurfti – hann svona reddaði öllu. Þótt þau byggju erlendis, þá komu þau reglulega í litlu íbúð- ina sína á Grettisgötunni og þá var oft hóað í kaffi. Við hjónin nutum þess ávallt að koma í heimsókn til þeirra og drengirnir okkar sem voru á líkum aldri og þeirra léku sér mikið saman. Útilegur og jeppaferðir voru ótrúlegar enda Ægir mikill jeppakarl og alltaf var í gangi ítarlegur saman- burður á dekkjastærðum og vélarstærðum, en alltaf þó í óborganlegu gríni gert. Símtal á gamlárskvöldi varð að föstum lið og frábærar eru minningar úr heimsóknum okk- ar til þeirra til Danmerkur. Mætti nefna fertugsafmæli Ægis þegar húsið þeirra var rétt rúmlega fokhelt. Allir skemmtu sér konunglega og sérstaklega Ellen þegar gert var grín að Ægi í leikatriðum sem hún stýrði og þvílíkt sem var hlegið. Ægir og Ellen fluttu á ný til Íslands þegar hann varð flug- stjóri hjá WOW air, en þá þeg- ar voru öll börnin þeirra búsett hérlendis. Þau hjónin blómstr- uðu í afa- og ömmuhlutverkinu og mikil var tilhlökkunin fyrir byggingu sumarbústaðar í Múlakoti þar sem átti að vera hægt að keyra flugvélina inn í flugskýli, fara í inniskóna og hoppa inn í stofu. Þegar var bú- ið að ræða heimsóknir og úti- legur þangað. Síðan … algjört áfall … og Ægir-Ib, Ellen og Jon Emil horfin af sjónarsviðinu! Elsku Ida Björg og fjöl- skylda, Thor Ib, foreldrar, systkin og fjölskyldur, okkar innilegustu samúðarkveðjur, yndislegra vina er sárt saknað. Björn og Guðrún. Kveðja frá flug- fjölskyldunni í Múlakoti Öllum er okkur ætluð stund. Sum okkar nýta hana vel. Það gerðu vinir okkar. Glaðvær, já- kvæð, framkvæmdasöm, hug- rökk, brosmild, elskuð af öllum sem þekktu þau. Einnig þau sem eftir lifa. Ægir, Ellen og Jon Emil, við í flugfjölskyldunni í Múlakoti söknum ykkar. Við hefðum vilj- að njóta ykkar lengur. Við gleymum ykkur ekki meðan okkar stund varir, því við ætl- um að reyna að fylgja fordæmi ykkar, leggja gott til, nýta okk- ar stund meðan tími gefst. Gísli Einarsson. Erfitt er að trúa því að við séum að skrifa minningargrein um elskulega vini okkar, Ægi- Ib, Ellen og Jon Emil. Ég kynntist Ægi-Ib í apríl 1996 þegar ég hóf störf hjá SAS í Kaupmannahöfn. Ægir-Ib var starfandi flugstjóri hjá fyrir- tækinu, vinsæll og rómaður af áhafnarmeðlimum fyrir fag- mennsku, jákvæðni og gleði. Hann hafði frétt að búið væri að ráða íslenska flugfreyju, á sinn einstaka og glaðværa hátt mætti hann í áhafnaherbergið og sagði á íslensku: Hvar ertu? Þetta var upphafið að yndisleg- um vinskap og samvinnu til margra ára. Fljótlega kynnti Ægir-Ib okkur fyrir fjölskyldu sinni, sérlega yndisleg og já- kvæð nærvera Ellenar heillaði okkur Sigga strax. Með þeim hjónum og börnum þeirra stækkaði sá hópur sem við köll- um fjölskyldu. Ægir-Ib og Ellen voru ein- staklega jákvæð, brosmild og elskuleg, hvarvetna vakti það eftirtekt hversu samstiga og hamingjusöm þau voru. Þau geisluðu hreinlega af ást og hamingju með hvort annað og börnin sín þrjú. Sameiginlegur áhugi fjölskyldunnar á flugi og frelsi var sannarlega aðdáun- arverður. Þegar síminn hringdi og sýndi Ægir-Ib, þá vissi ég að lundin myndi léttast, því öll símtöl til og frá Ægi-Ib byrj- uðu með orðunum: Hæ, elsku vinkona. Þetta sagði hann í ein- stökum gleðitón og lagði með því línurnar að samtalinu sem undantekningarlaust var á já- kvæðum nótum. Það var ein- mitt í einu slíku símtali sem við ákváðum óvænt að fara öll út að borða. Það kvöld keyptum við bæði miða á tónleika með Rolling Stones í Edinborg í júní og ELO í Amsterdam um haustið. Báðar þessar ferðir voru frábærar, mikið spjallað, hlegið og dansað. Ægir-Ib og Ellen voru miklir föðurlandsvinir og lögðu mikla áherslu á að börnin þekktu ís- lenskar rætur sínar. Þegar fjöl- skyldan bjó í Danmörku fannst Ægi-Ib ekkert tiltökumál að stökkva upp í flugvél með Ellen sína og krakkana í sólahrings- ferð, til þess eins að fara í sund í einni af útilaugum Reykjavík- ur. Á sumrin ferðuðust þau um á jeppanum og sýndu börnun- um landið. Uppáhaldsstaður Ægis-Ibs og Ellenar var Múlakot. Þar höfðu þau mikil framtíðarplön fyrir fjölskylduna. Fyrir okkur var þessi Múlakotsheimur æv- intýri líkastur um verslunar- mannahelgar. Þarna er dásam- legt samfélag vina með sameiginlegt áhugamál – flug. Við vorum ofdekruð af þeim hjónum með útsýnisflugi, flug- tímum og fjórhjólum á daginn og með grilluðu lambi og dansi á kvöldin. Í Múlakoti smituðust synir okkar sannarlega af brennandi áhuga Jons Emils á öllu er viðkom flugi. Hann var einstaklega þolinmóður, ábyrgðarfullur og bóngóður ungur maður sem þreyttist aldrei á að útskýra fyrir þeim, taka þá í flugtúr og sýna þeim stoltið sitt, flugið. Ekki alls fyrir löngu sagði Ægir-Ib við mig: Ella, hvað getur lífið verið betra? Börnin okkar á grænni grein, landið okkar hér í Múlakoti og ég með Ellen mína mér við hlið. Takk fyrir samfylgdina, vin- áttuna og kærleikann, elsku vinir. Minning ykkar lifir í hugum okkar. Elsku hjartans Thor Ib, Ida Björg, Arnar, Þórunn og stór- fjölskylda. Sorg ykkar er mikil og hug- ur okkar hjá ykkur. Elín, Sigurður, Helen, Viktor og Theodor. Ægir-Ib Wessman Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þessi orð úr Hávamálum lýsa Ægi-Ib Wessman vel. Orð- spor hans var og er slíkt að margir íslenskir flugmenn vissu hver þetta var þrátt fyrir að hann hefði unnið svona lengi erlendis. Sannarlega setti Ægir mark sitt á flugsöguna á stuttri ævi. Það sést glögglega á hin- um ýmsu samfélagsmiðlum og höggvið hefur verið djúpt skarð í flugmannahópinn. Það var hvalreki fyrir WOW air að fá hann til starfa. Ég man vel eft- ir fyrstu kynnum okkar Ægis, sem voru á félagsfundi hjá Ís- lenska flugmannafélaginu, ÍFF. Við áttum gott spjall og talaði hann við mig um mikilvægi stéttarfélaga fyrir okkur flug- menn og hvað það skiptir miklu máli að halda góðu samstarfi milli þeirra og flugfélaganna. Talaði hann af þó nokkurri reynslu. Ég sannfærði hann um að samskipti ÍFF og WOW air væru með besta móti og vilji beggja aðila að halda þeim þannig áfram. Ægir var valinn til að gegna stöðu yfirflugstjóra hjá WOW air enda fáir í flugmannahópn- um með jafn grátt í vöngum og með jafn mikla flugreynslu og hann. Yfirflugstjóri þarf alla jafna að njóta virðingar sinna manna ásamt því að vera sann- gjarn og ákveðinn þegar á þarf að halda. Eins konar föður- ímynd. Að mínu mati hafði Æg- ir þessa mannkosti. Samskipti okkar hjá ÍFF og Ægis sem yf- irflugstjóra voru alltaf góð. Öll mál og málefni sem fóru okkar á milli leystum við í mesta bróðerni. Eftir rúmt ár í starfi yfirflugstjóra óskaði Ægir eftir því að verða aftur venjulegur flugstjóri því hann vildi hafa meiri tíma aflögu fyrir fjöl- skylduna, flugdelluna og sum- arhúsið í Múlakoti. Síðast þegar ég talaði við Ægi var það einmitt á skrif- stofu ÍFF skömmu eftir gjald- þrot WOW air. Áttum við langt og gott spjall og vissulega var gjaldþrotið áfall fyrir hann, eins og okkur hin hjá fyrir- tækinu, en Ægir sá samt það jákvæða í stöðunni því nú fengi hann meiri tíma með fjölskyld- unni og áhugamálunum. Jon Emil hafði ég hitt í tvígang þar sem hann kom með föður sínum á flugmannafundi. Við spjöll- uðum mikið saman við þrír og það sást greinilega að eplið hafði ekki fallið langt frá eik- inni enda mjög vandaður strák- ur með brennandi áhuga á flugi, eins og pabbinn. Það var svo auðséð að Ægir var mjög stoltur af syni sínum. Það varð úr að Jon Emil var ráðinn sem flugmaður til WOW air á haustdögum 2018, kláraði þjálfun en náði því miður aldr- ei að byrja að fljúga sökum samdráttar og síðar gjaldþrots félagsins. Ellen hafði ég bara einu sinni hitt og þekkti því lít- ið. Þeir félaga minna sem flugu með Ægi segja að hann hafi notið sín í starfinu og elskað að fljúga fyrir WOW air. Hann hafi verið fagmaður fram í fingurgóma og hvers manns hugljúfi. Samstarfsmenn af öðrum sviðum innan félagsins segja allir slíkt hið sama. Hann var sannur WOW-ari! Hans verður minnst með söknuði og hlýhug. Eftirlifandi börnum þeirra hjóna og systkinum Jons Emils sem og öðrum aðstandendum votta ég mína dýpstu samúð. Vignir Örn Guðnason, formaður Íslenska flugmannafélagsins. Ellen Dahl Wessman Í dag kveðjum við Ellen, kollega okkar og kæra sam- starfskonu. Ellen lést í hörmu- legu flugslysi í Fljótshlíð 9. júní síðastliðinn ásamt eigin- manni sínum Ægi og syni þeirra Joni Emil. Ellen hóf störf sem sjúkra- þjálfari á Landakoti fyrir rúm- um þremur árum, þegar hún og fjölskyldan fluttu til Íslands frá Danmörku. Ellen féll fljótt vel inn í vinnuhópinn með sinni góðu nærveru, glaðværð og bjarta brosi. Hún bjó yfir góðri fagþekkingu og hafði langa starfsreynslu sem sjúkraþjálf- ari í heimalandi sínu, sem nýtt- ist vel í starfsumhverfinu á Landakoti. Við hrósum happi yfir því að hafa eignast svo góðan vinnufélaga. Ellen var félagslynd og lífs- glöð og átti stóra og samhenta fjölskyldu. Ellen fylgdi and- blær og áhrif erlendis frá, hún hafði búið víða og talaði mörg tungumál. Hún flutti með sér dönsk áhrif inn í okkar starfs- mannahóp, var alltaf með eitt- hvert girnilegt nesti og góð- gæti að dönskum sið og nutum við vinnufélagarnir oft góðs af því. Það kom fljótt í ljós hvar áhugamálin lágu, útivist og ferðalög í íslenskri náttúru voru þar ofarlega á blaði. Á þessum þremur árum hef- ur Ellen verið mjög virk í starfi sjúkraþjálfara á Landa- koti og m.a. tekið þátt í klín- ískri kennslu nemenda í sjúkraþjálfun við Háskóla Ís- lands við góðan orðstír. Við minnumst hennar með djúpri virðingu og þakklæti. Eftirlifandi ættingjum vottum við okkar dýpstu samúð. Blessuð sé minning Ellenar, Ægis og Jons Emils. Fyrir hönd starfsfólks sjúkraþjálfunar á Landakoti, Jóhanna Soffía Mar Óskarsdóttir. Jon Emil Wessman Jon Emil Wessman eða Wessman eins og hann var allt- af kallaður af krökkunum í PPL-bekknum í Flugskóla Ís- lands var strákurinn sem öllum líkaði við. Við Wessman kynnt- umst sumarið 2015 þegar við hófum bæði nám í bóklegu einkaflugmannsnámi hjá Flug- skóla Íslands en Wessman var þá nýfluttur einn til landsins en foreldrar hans voru enn bú- settir í Danmörku. Með okkur tókst strax góð vinátta enda var hann frábær strákur með góðan húmor og hafði einstak- lega góða nærveru. Nafnið Wessman festist við Jon Emil strax þetta sumar því góður kennari okkar, Haukur Freyr heitinn, sem kenndi okk- Ægir-Ib Wessman Ellen Dahl Wessman Jon Emil Wessman júlí 1962, Leif Christen Dahl, fæddur 17. ágúst 1960, og Hans Dahl, fæddur 22. júlí 1959. Jon Emil Wessman fæddist 10. ágúst 1998. Útför þeirra fer fram frá Hall- grímskirkju í dag, 21. júní 2019, og hefst athöfnin klukkan 13. Ellen Dahl Wessman fæddist 26. júní 1964. Foreldrar hennar eru Doris Dahl, fædd 17. maí 1933, og Kristian Boalt Dahl, fæddur 11. febrúar 1932. Systkini Ellenar eru Jens Kristian Dahl, fæddur 14. mars 1968, Ursula Dahl Bach, fædd 19.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.