Morgunblaðið - 21.06.2019, Page 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2019
75 ára Margrét er
Reykvíkingur, ólst upp
á Njálsgötu en hefur
búið í Fossvoginum í
50 ár. Hún er snyrti-
fræðingur að mennt og
var förðunarmeistari
Íslensku óperunnar frá
upphafi þar til óperan flutti í Hörpu.
Maki: Sveinn Sveinsson, f. 1944, fram-
leiðslumaður.
Dætur: Steinunn, f. 1965, Sunna, f.
1968, og Sandra, f. 1971. Barnabörnin
eru sjö og langömmubörnin eru tvö.
Foreldrar: Alfreð Nielsen, f. 1906, d.
1982, bakarameistari og rak bakarí á
horni Njálsgötu og Barónsstígs, og
Steinunn Nielsen, f. 1910, d. 2005,
húsmóðir.
Margrét
Steinunn Nielsen
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Oft var þörf en nú er nauðsyn á að
þú gerir eitthvað fyrir sjálfa/n þig til að lyfta
þér upp andlega sem líkamlega. Vertu ekki
ósýnileg/ur í lífi annarra.
20. apríl - 20. maí
Naut Sýndu vinum og lífsförunaut þol-
inmæði og leggðu eyrun við því sem sagt er
við þig. Allt hefur sinn tíma og það á líka við
um mál tilfinninganna.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert í rómantískum hugleiðum
og ættir að gera þér glaðan dag með ástvini
þínum. Farðu varlega og þá mun þér vel
farnast því þú hefur hæfileikana með þér.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Óþroskað fólk sem tekur meira en
það gefur rænir þig tíma og krafti þegar til
langs tíma er litið. Mundu að á byrjunarstigi
getur hvert smáatriði haft þýðingu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ert hávær og stolt/ur en þarft ekki
að básúna það. Vertu sanngjarn/gjörn við
fólk og líttu á kosti þess.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Samskipti við stofnanir eða hið opin-
bera koma flatt upp á þig á einhvern hátt.
Það er auðvelt að sjá alltaf flísina í auganu
hjá öðrum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Nýjar hliðar á vandasömu verkefni
krefjast allrar þinnar athygli og atorku.
Snúðu þér að nútíðinni og láttu reynslu
þína verða þér og öðrum til góðs.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ert á rólegu nótunum en
kemur þó ýmsu í verk. Þú lendir í vandræð-
um með iðnaðarmann/menn, en gefðu
ekkert eftir. Kúnninn hefur alltaf rétt fyrir
sér.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Magn og gæði fara ekki alltaf
saman svo það er ekki einsýnt að þinn hlut-
ur sé mestur þótt fyrirferðarmikill sé. Þér
hefur tekist að bæta þig í langhlaupunum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú þarft að læra að gera þér mat
úr þeim tækifærum, sem þér bjóðast. Var-
astu að fara ekki fram úr þér þó þú sért í
fríi.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Kastljósið beinist að þér um leið
og þú opnar munninn. Mörgum mun þykja
meira til þín koma á eftir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það verður ekki bæði sleppt og
haldið svo þú þarft að gera það upp við þig
hvað þú raunverulega vilt.
rísku flugmálastjórninni. Fyrstu
GPS-aðflugin voru hönnuð hérlendis
um svipað leyti og eru nú algeng.
Undirbúningur að nýrri flug-
stjórnarmiðstöð á Reykjavíkur-
flugvelli og endurnýjun á fjarskipta-
kerfi hennar um allt land hófst 1989
og var hún byggð í framhaldinu. Með
tilkomu flugstjórnarmiðstöðv-
arinnar skapaðist traustur grunnur
fyrir því að Íslendingar haldi áfram
með veitingu flugumferðarþjónustu
fyrir alþjóðlegt flug yfir Norður-
Atlantshafi. Flugvellir ásamt búnaði
þeirra voru endurbættir víða um
landið og voru stærstu verkefnin
endurgerð flugbrauta og endurnýjun
aðflugs- og ljósabúnaðar á Reykja-
víkurflugvelli 1999-2002 og á
Akureyrarflugvelli 2008-2009.
Siðastliðin þrjú ár hjá mér við um-
sjón með miklum framkvæmdum á
flugbrautasvæði Keflavíkurflug-
vallar fólust í mörgum áskorunum.
Flugbrautirnar voru afréttaðar og
malbikaðar ásamt því að endurnýja
öll aðflugskerfi og ljósabúnað.
Þekking og reynsla íslenskra sér-
fræðinga á sviði flugumferðar- og
flugvallamála er þekkt á alþjóð-
legum vettvangi. Var því leitað til
Flugmálastjórnar um aðstoð við að
endurbæta mannvirki og rekstur
unum hér til fróðleiks. Á árunum
fram undir 1990 var mikil gróska í
innanlandsfluginu. Nákvæm blind-
aðflugskerfi og ljósabúnaður voru
sett upp víða um land, sem styrkti
möguleika á lendingum í slæmu
skyggni. Tilkoma á nýju blindaðflugi
úr suðri til Akureyrarflugvallar var
til dæmis bylting í flugsamgöngum
þangað. GPS-tæknin hélt innreið
sína í flugleiðsögu um níunda áratug
20 aldar og 1998 átti ég þátt í að á
Keflavíkurflugvelli fóru fram saman-
burðarprófanir í GPS-flugleiðsögu
með flugvélum frá Flugmálastjórn,
bresku flugmálastjórninni og banda-
H
aukur Lynge Hauks-
son fæddist 21. júní
1949 í Reykjavík og
ólst upp í Kópavogi.
„Eftir að við Magnea
giftum okkur árið 1973 höfum við
lengst af búið í húsinu sem við
byggðum við Meðalbrautina í Kópa-
vogi á lóð foreldra minna neðan við
sögulegt hús þeirra, Bankasel, við
Skjólbraut. Ég var þrjú sumur í sveit
að Miðfossum í Borgarfirði, þar var
hestamennska í hávegum höfð og
þar kviknaði áhugi minn á því sviði.“
Haukur útskrifaðist frá Mennta-
skólanum að Laugarvatni 1969. Eftir
það hófst nám í fyrrihluta verkfræði
í HÍ og lá leiðin þaðan í Tæknihá-
skóla NTH í Þrándheimi, þar sem
hann útskrifaðist með meistarapróf í
rafmagnsverkfræði, Teleteknik,
1975. Hann var í námi á sviði fjar-
skipta- og leiðsögubúnaðar hjá
bandarísku flugmálastjórninni 1977.
Haukur hóf starf sem verkfræð-
ingur hjá Flugmálastjórn 1975 en
hann hafði með námi unnið sum-
arstarf þar í tæknivinnu. Haukur
gegndi stöðu framkvæmdastjóra frá
1978, í fyrstu hjá Flugmálastjórn,
sem 2007 varð Flugstoðir ohf. og
2010 varð Isavia ohf. „Fyrstu árin
var framkvæmdastjórastaðan með
ábyrgð á flugumferðarstjórn auk
fjarskipta- og leiðsögumála í flug-
umferðarþjónustu og á flugvöllum.
Síðar varð ábyrgðin með rekstur og
framkvæmdir á innanlands-
flugvöllum auk fjarskipta- og leið-
sögumála.“ Auk starfs framkvæmda-
stjóra var Haukur varaflugmála-
stjóri í 17 ár frá 1983.
Árin 1988-89 starfaði Haukur í
leyfi frá Flugmálastjórn sem tækni-
legur framkvæmdastjóri hjá ratsjár-
stofnun utanríkisráðuneytisins við
undirbúning á rekstri fjögurra rat-
sjárstöðva NATO á Íslandi. Haukur
var fulltrúi Flugmálastjórnar í fjölda
nefnda og á mörgum alþjóðlegum
ráðstefnum og fundum um flugmál.
„Það er einkenni þróunar í flug-
málum að tæknin er í stöðugum
framförum og breytingum. Verkefni,
sem ég hef komið að sem umsjónar-
aðili, hafa því verið fjölbreytt og
nefni ég nokkur af stærri verkefn-
flugvallarins í Pristina í Kósóvó,
þannig að þessi fyrrverandi herflug-
völlur uppfyllti alþjóðlegar kröfur
um borgaralegan flugvöll. Hlutverk
mitt var verkefnisstjórn á fram-
kvæmdum vegna mannvirkja flug-
vallarins ásamt þjálfun starfsliðs í
slökkviþjónustu og viðhaldi búnaðar.
Einnig uppsetning nauðsynlegra
gæða-, eftirlits- og upplýsingakerfa
og stóð verkefnið yfir 2004-2008.
Auk þessa verkefnis hef ég starfað
sem ráðgjafi á vegum Isavia og fyr-
irrennara, m.a. fyrir borgarstjórn
Færeyja við hönnun á nýjum flug-
velli á Glyvursnesi og við flug-
vallaverkefni í Mósambík og Bangla-
dess. Einnig var ánægjulegur
árangur að koma á samningi um
flugprófanir aðflugskerfa á flug-
völlum í Grænlandi og Færeyjum
með flugvél okkar.
Næsti kafli í verkefnum hjá mér
er almenn leiðsögumennska eftir
áhuga hverju sinni, eftir að ég lauk
námi í Leiðsöguskóla MK nú í vor,
en ég hef í mörg ár verið leiðsögu-
maður í löngum hestaferðum.“
Haukur hefur komið að félags-
málum, var m.a. formaður Körfu-
knattleiksdeildar Breiðabliks 1992-
98 og hlaut silfurmerki félagsins.
Hann var í stjórn Körfuknattleiks-
sambandsins 1993-99 og hlaut gull-
merki KKÍ. Hann var virkur í Rót-
arýklúbbi Kópavogs 1984-2017 og
var forseti 1993-94. Hann hlaut Paul
Harris-viðurkenningu Rótarý. Nú er
Haukur virkur í Lionsklúbbi Kópa-
vogs og var formaður 2017-2018.
Haukur var formaður sóknar-
nefndar Kársnessóknar 1995-2005.
„Áhugamál mín eru fjölskyldan, fé-
lagsmál og útivist, s.s. hesta-
mennska, veiði og skíðamennska.
Ekki má gleyma áhorfi á íþrótt-
irnar.“
Fjölskylda
Eiginkona Hauks er Magnea Ingi-
björg Kristinsdóttir, f. 3.2. 1951, rit-
ari og skjalavörður. Foreldrar henn-
ar voru hjónin Kristinn Magnússon
f. 3.3. 1925 , d. 30.3. 1999, húsasmíða-
meistari og Steinvör Fjóla Guðlaugs-
dóttir, f. 11.8. 1928, d. 6.9. 2018, hús-
freyja. Þau voru bús. í Reykjavík.
Haukur Hauksson verkfræðingur – 70 ára
Fjölskyldan Samankomin heima hjá Hauki og Magneu 17. júní síðastliðinn.
Verkefnin hafa verið fjölbreytt
Hjónin Haukur og Magnea.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
40 ára Anna Brynja
er uppalin í Efra-
Breiðholti og Kópa-
vogi og býr í Kópavogi.
Hún er leikkona frá
Rose Bruford College
og tók kennsluréttindi
í leiklist frá Lista-
háskóla Íslands. Hún er samskiptastjóri
hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Alfreð og er
athafnastjóri hjá Siðmennt og stýrir m.a.
giftingum, nafngjöfum og fermingum.
Dóttir: Ragna Björk Pledel Eymarsdóttir,
f. 2007.
Foreldrar: Baldur Sturla Baldursson, f.
1944, fyrrverandi slökkviliðsmaður og
húsasmiður, og Siggerður Þorvaldsdóttir,
f. 1947, fyrrverandi skrifstofustjóri. Þau
eru bús. í Kópavogi.
Anna Brynja
Baldursdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is