Morgunblaðið - 21.06.2019, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 21.06.2019, Blaðsíða 32
EVRÓPULEIKAR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Evrópuleikarnir verða settir í ann- að sinn í Minsk í Hvíta-Rússlandi á morgun. Ísland mun eiga sjö full- trúa í hópi þeirra rúmlega 4.000 keppenda sem taka þátt á mótinu, þar sem keppt er í 15 ólíkum íþróttagreinum. Íslendingarnir eru talsvert færri nú en í Bakú fyrir fjórum árum, þegar leikarnir voru fyrst haldnir, en þar spila breytingar á leikunum inn í. Keppnisgreinum hefur fækk- að um helming og keppendur voru tæplega 2.000 fleiri í Bakú en nú. Ísland var þá með 18 keppendur. Fulltrúar Íslands keppa í fimm ólíkum greinum, eða fimleikum, skotfimi, bogfimi, badminton og júdó. Yngsti keppandi Íslands er aðeins 14 ára en sá elsti 41 árs. Í Bakú átti Ísland einnig fulltrúa í badminton, júdó, karate, skylm- ingum, sundi og taekwondo, en ákveðið var að taka þrjár síðast- nefndu greinarnar af dagskrá fyrir leikana í ár. Ásgeir Sigurgeirsson og Hákon Þór Svavarsson, aldursforseti ís- lenska keppendahópsins, keppa í skotfimi rétt eins og þeir gerðu fyr- ir fjórum árum. Ásgeir, sem keppti einnig á Ólympíuleikunum 2012, keppir í loftskammbyssu af 10 metra færi en Hákon í leirdúfu- skotfimi (skeet). Ásgeir varð í 5. sæti í keppni með fríbyssu af 50 metra færi í Bakú, en ekki er keppt í þeirri grein núna. Valgarð og Agnes keppa í fimleikum Hin 14 ára Eowyn Marie Alburo Mamalias keppir í bogfimi, með trissuboga, en fyrir fjórum árum keppti Sigurjón Atli Sigurðsson í sveigboga og féll út í 1. umferð. Valgarð Reinhardsson mætir til leiks í áhaldafimleikum en hann hefur horft til möguleikans á að komast á Ólympíuleikana í Tókýó 2020 og keppt á heimsbikarmótum í vetur, en hann afrekaði það að ná 6. sæti í gólfæfingum á slíku móti í Slóveníu í byrjun mánaðarins, fyrstur íslenskra fimleikakarla. Í fyrra komst Valgarð í úrslit í stökki á EM og varð í 8. sæti. Agnes Suto, sem líkt og Valgarð er ríkjandi Ís- landsmeistari í fjölþraut, keppir einnig í áhaldafimleikum en þetta eru hennar fyrstu Evrópuleikar. Þær Dominiqua Alma Belányi, Norma Dögg Róbertsdóttir og Thelma Rut Hermannsdóttir voru allar með í Bakú en ekki nú. Kári Gunnarsson, fánaberi Ís- lands á lokahátíðinni fyrir fjórum árum, keppir í badminton. Hann vann einn leik af þremur í riðla- keppninni í Bakú og komst því ekki áfram í 16 manna úrslitin. Sara Högnadóttir keppti þá einnig í bad- minton og vann sömuleiðis einn leik af þremur. Sveinbjörn Iura er svo sá fimmti í íslenska hópnum sem keppir nú í annað sinn á Evrópuleikum en hann keppir í -81 kg flokki í júdó. Sveinbjörn féll úr keppni í 64 manna úrslitum fyrir fjórum árum en hann er meðal þeirra sem sett hafa stefnuna á að komast á Ólymp- íuleikana í Tókýó. Evrópuleikarnir fara fram á fjög- urra ára fresti og munu því eftir leikana í Minsk fara næst fram árið 2023, í Kraká í Póllandi. Leikar af sama meiði eru haldnir í öðrum heimsálfum. Fimm snúa aftur á Evrópuleika  Evrópuleikarnir verða settir í Minsk í Hvíta-Rússlandi í dag  Ísland á sjö fulltrúa á leikunum sem haldnir eru í annað sinn  Keppt í 15 ólíkum íþróttagreinum Morgunblaðið/Eggert Evrópuleikar Fimleikakappinn Valgarð Reinhardsson er einn sjö Íslendinga sem taka þátt í Evrópuleikunum. 32 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. JÚNÍ 2019 ÚTILJÓSADAGAR afsláttur á völdum útiljósum 50% Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla | Sími: 585 2888 OPIÐ ALLA DAGA Mán. til fös. kl. 9–18. Laugard. kl. 10–16. Sunnud. kl. 12–16 Inkasso-deild karla Njarðvík – Afturelding..............................0:2 Ásgeir Arnþórsson 80., Alexander Davors- son 90. Haukar – Leiknir R. ...................................1:2 Sean Silva 7., rautt spjald 81. – Sævar Magnússon 34., Gyrðir Guðbrandsson 78. Staðan: Fjölnir 8 5 1 2 14:9 16 Þór 7 5 0 2 15:6 15 Keflavík 7 4 1 2 13:7 13 Víkingur Ó. 7 4 1 2 9:5 13 Leiknir R. 8 4 0 4 13:14 12 Fram 7 3 2 2 12:10 11 Grótta 7 3 2 2 12:12 11 Þróttur R. 8 3 1 4 15:13 10 Afturelding 8 3 0 5 12:18 9 Njarðvík 8 2 1 5 7:12 7 Haukar 8 1 3 4 8:14 6 Magni 7 1 2 4 9:19 5 2.deild karla Selfoss – Tindastóll.................................... 4:2 Þór Þórðarson 17., Hrvoje Tokic 37., Kenan Turudija 60., Jökull Hermannsson 72. – Ál- varo Cejudo 46., Benjamín Gunnlaugarson 90. Þróttur V – ÍR .............................................0:2 Reynir Haraldsson 50., André Solórzano 90. Kári – KFG ..................................................5:0 Hlynur Jónsson 19., Guðfinnur Leósson 31., Stefán Magnússon 38., Andri Júlíusson 58. (víti)., Róbert Erlingsson 72. Staðan: Selfoss 8 5 1 2 19:8 16 Leiknir F. 7 4 3 0 14:7 15 Víðir 7 4 1 2 15:10 13 Völsungur 7 4 1 2 11:11 13 Vestri 7 4 0 3 10:10 12 ÍR 8 3 2 3 10:9 11 Dalvík/Reynir 7 2 4 1 10:9 10 Fjarðabyggð 7 3 0 4 10:10 9 Þróttur V. 8 2 3 3 9:12 9 KFG 8 3 0 5 11:18 9 Kári 8 2 2 4 15:16 8 Tindastóll 8 0 1 7 8:22 1 3.deild karla Vængir Júpiters – Augnablik ....................3:0 Staðan: KV 7 6 0 1 17:8 18 Kórdrengir 7 5 2 0 17:6 17 KF 7 5 1 1 16:6 16 Vængir Júpiters 8 5 0 3 13:9 15 Reynir S. 7 3 2 2 12:10 11 Sindri 7 3 1 3 15:13 10 Álftanes 7 2 2 3 12:13 8 Einherji 7 2 1 4 8:10 7 Höttur/Huginn 7 1 3 3 8:11 6 Augnablik 8 1 3 4 12:18 6 Skallagrímur 7 2 0 5 8:18 6 KH 7 0 1 6 11:27 1 Ameríkubikarinn B-riðill: Kólumbía – Katar ....................................... 1:0 Duvan Zapata 86. Argentína – Paragvæ................................. 1:1 Linoel Messi 57. – Richard Sanchez 37. Staðan: Kólumbía 6, Paragvæ 2, Katar 1, Argentína 1. KNATTSPYRNA Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnu- kylfingur úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi, spilaði vel á fyrsta hring í Taílandi þar sem hún keppir á móti á Evrópumótaröð- inni. Hún hóf leik rétt fyrir klukk- an sex að íslenskum tíma í gær- morgun. Valdís Þóra fékk þrjá fugla og þrjá skolla á hringnum og lauk honum á 72 höggum eða á pari vallarins. Hún kom í hús jöfn fleiri kylfingum í 26. sæti, en Svíinn Lina Boqvist er efst á fimm högg- um undir pari. Valdís segir að völlurinn sé í ágætu standi, en rakinn sé mjög mikill og hitastigið yfir 30 gráður. Leikið er á Phoenix Gold Golf- keppnissvæðinu í borginni Patta- ya, alls fjórir keppnishringir. Fyrir mótið í Taílandi var Val- dís Þóra í 67. sæti á stigalista Evr- ópumótaraðarinnar. Ljósmynd/LET Á pari Valdís Þóra Jónsdóttir er í eldlínunni á móti í Taílandi. Fín byrjun hjá Valdísi Þóru í Taílandi  Lék á pari og er í 26. sæti eftir 1. hring

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.