Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Blaðsíða 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2019
Það er auðvelt að dást að fremsta fólki í langhlaupum eins og Lauga-vegshlaupinu, Reykjavíkurmaraþoninu og mörgum fleirum. Þettafólk hleypur oft á gífurlegum hraða sem fæstir gætu haldið uppi í
nokkrar mínútur, hvað þá í fleiri klukkustundir. Þetta fólk sýnir okkur hinum
hvað við gætum orðið ef við legðum bara nógu mikið á okkur. Nú, eða það
sýnir okkur hvað við gætum aldrei orðið því við viljum ekki leggja svona
mikið á okkur.
En fólkið sem gleymist í þessu samhengi er það sem rekur lestina.
Fólkið sem skráði sig fyrir löngu en komst aldrei almennilega til þess
að undirbúa sig. Fólkið sem uppveðraðist eitt kvöldið og skráði sig
rétt áður en skráningarfrest-
urinn rann út. Fólkið sem er að
ganga í gegnum krísu í einkalífinu
og finnst það bara þurfa að gera eitt-
hvað klikkað.
Reyndir hlauparar tala oft um að
lenda á vegg í langhlaupum, líkt og
kraftur þeirra sé þrotinn. En þeir
eru þó búnir að undirbúa sig andlega
fyrir vegginn. Fólkið sem ég er að
tala um veit ekkert hvað það er að
fara út í. Það ætlar bara að hafa
gaman. Þegar það rekst á vegginn
hlýtur það að vera mjög lýjandi,
draga úr því allan andlegan mátt.
Þetta fólk er ekki að keppa um sæti
eða að reyna að ná neinum flottum tíma. Og ef það hafði markmið um tíma er
það markmið löngu farið út um gluggann þegar það lendir á veggnum.
Samt heldur fólkið áfram. Það gefst ekki upp þrátt fyrir að góðar líkur séu
á því að það verði búið að taka saman endamarkið þegar það loks klárar
hlaupið. Þessu fólki finnst það ekki hreyfast, það bölvar sjálfu sér í sand og
ösku fyrir að hafa dottið þessi vitleysa í hug en það gefst ekki upp. Fólkið
langar rosalega að gefast upp, langar rosalega að stoppa og rölta restina af
leiðinni. En það hættir ekki. Þetta fólk klárar það sem það byrjar á. Fyrr
liggur það í rúminu næstu vikurnar en að hætta.
Þetta fólk á hrós mitt skilið. Það er ekki búið að æfa mörgum sinnum í viku
fyrir hlaupið, ekki búið að vakna eldsnemma á morgnana til að æfa, ekki búið
að færa eina einustu fórn. Það jafnvel fékk sér nokkra bjóra kvöldið fyrir
hlaupið. En hlaupið er ekki erfiðara fyrir neinn en þetta fólk. Andlega að
minnsta kosti.
Þetta eru hetjurnar okkar. Þau sýna okkur hvað mannshugurinn er fær
um því þrátt fyrir að vera í algjöru rugli andlega þá ýta þau sjálfum sér fram
á brún síns líkamlega þreks.
Gleymdu hetjurnar
Pistill
Böðvar Páll
Ásgeirsson
bodvarpall@mbl.is
’Fólkið langar rosalegaað gefast upp, langarrosalega að stoppa ogrölta restina af leiðinni.
En það hættir ekki. Þetta
fólk klárar það sem það
byrjar á.
Daníel Ingi Sigþórsson
Stór spurning! Ég væri til í að fá
Elton John.
SPURNING
DAGSINS
Hvern
myndir þú
vilja fá til
að syngja í
afmælinu
þínu?
Hulda Halldóra Tryggvadóttir
Beyoncé.
Jón Sigmundsson
Einar Selvik. Hann er norskur tón-
listarmaður.
Ragnheiður Halldórsdóttir
Frank Ocean.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Þú gefur út lagið í fjórum útgáfum. Af hverju
er það og hvert er markmiðið með hverri út-
gáfu?
Ég er með þessa remix-sýki. Þegar ég geri eitthvað sjálfur þá
vil ég remixa það í drasl. Ég á til fleiri remix sem ég ákvað að
sleppa að gefa út. Fyrsta útgáfan er poppútgáfa en restin á heima
í klúbbunum.
Þú kallar þetta „sad house“-tónlist. Hvað er það?
Þetta er tónlistargrein sem ég er að búa til. Þetta er danshæft en er mjög
þunglyndislegt og dapur undirtónn í þessu öllu saman. Þetta er eiginlega
„deep house“ nema það er miklu meira sungið. Þetta er meira popp heldur
en alvöru deep house-snillingar búa til. Sad house er í raun dansvænt
þunglyndispopp.
Mun Doddi gefa út fleiri lög á næstunni?
Já, Doddi er „on a roll“. Það eru tvö lög áætluð. Ég veit ekki hvort það
verði meira en ég er að vinna í tveimur lögum.
Hvað verður nú um Love Guru?
Love Guru kveður í haust með remix-plötu. Þaðan komu öll þessi remix í
hausinn á mér. Þar með ætla ég að hætta að gefa út sem Love Guru en ég
loka ekkert á að spila einhvers staðar ef fólk vill fá mig í það. Annars var
bara komið gott af tónlist frá honum.
Hvað er í gangi hjá Dodda litla?
Ég var að klára Grínland, hlaðvarpsþættina mína. Fyrir utan það er ekk-
ert mikið í gangi. Ég þarf að finna mér nýja hlaðvarpsþætti til að búa til.
Mun Doddi koma einhvern tímann fram?
Ég geri ekki ráð fyrir því. Ég á mjög auðvelt með að koma fram sem Love
Guru, klæða mig í gulan galla og hoppa um eins og hálfviti en ég veit ekk-
ert hvað Doddi ætti að gera, alltaf þunglyndur og leiðinlegur.
Forsíðumyndina tók
Ásdís Ásgeirsdóttir
Morgunblaðið/Hari
DODDI SITUR FYRIR SVÖRUM
Þunglyndur
og leiðinlegur
Útvarpsmaðurinn Þórður Helgi gaf nýverið út sitt fyrsta lag undir
nafninu Doddi en áður hefur hann komið fram undir nafninu Love
Guru. Söngkonan Una Stefánsdóttir syngur með Dodda í laginu.
Langar þig í ný gleraugu!
Smáralind – Sími 517 0317 – www.plusminus.is
PLUSMINUS | OPTIC