Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2019 LÍFSSTÍLL Fáir garðar eru jafn fallegir oggarðurinn þeirra. Svo virðistsem hvert strá sé á sínum stað og grasflötin er eins og á bestu pútt- völlum; grasið fagurgrænt og snögg- klippt, enda slegið vikulega. Blóm, tré og jurtir fylla garðinn, sem þó er ekki yfirhlaðinn, en yfir sex hundruð tegundir jurta má þar finna. Sumar plöntur eru eins og af öðrum heimi en einnig má finna hefðbundnar plöntur eins og rósir og bláklukku, svo eitt- hvað sé nefnt. Vínberjaklasar hanga á grein í garðskálanum og berja- runnar, peru- og eplatré vaxa í garð- inum og bera ávöxt þegar vel viðrar. „Við höfum búið hér í fimmtíu ár núna um verslunarmannahelgina,“ segir Sigrún Andrésdóttir tónlistar- kennari. „Við fluttum inn 2. ágúst 1969, en við byggðum húsið alveg frá grunni,“ segir eiginmaður hennar, Sigurður Þórðarson verkfræðingur. Hjónin urðu bæði áttræð á árinu og njóta nú efri áranna við garðrækt og söng eftir langa starfsævi. Alin upp við garðækt Hjónin segjast ekki hafa byrjað strax að huga að garðinum fyrstu árin í húsinu. „Þetta var bara gras og hekk í kring til að byrja með; við höfðum ekki ráð á neinu öðru,“ segir Sigrún. Hún segist hafa haft áhuga á garðrækt frá blautu barnsbeini. „Ég ólst upp í fallegum verðlaunagarði hjá foreldrum mínum á Skeggjagötu og hér í garðinum eru nokkrar plöntur þaðan. Ég var alltaf í garð- yrkju sem unglingur,“ segir hún. Sigurður segist einnig snemma hafa smitast af áhuganum. „Ég hafði alltaf gaman af ræktun,“ segir hann. Hjónin ganga með blaðamanni um garðinn sinn sem þau sýna með stolti, enda liggur að baki fimmtíu ára natni og vinna. Þau segjast ekki hafa hugmynd um hvað þau eyði miklum tíma í garðinum daglega. „Þetta gæti verið svona álíka langur tími eins og golfari eyðir í 18 holu golfhring á dag,“ segir Sigurður og hlær. Þau fara sjálf reglulega í garð- inn til að snyrta og dytta að plöntum, slá og reyta arfa og þiggja þau sjald- an hjálp, nema að síðustu árin hafa Hjónin Sigurður og Sigrún hafa búið allan sinn búskap á Markarflötinni í Garðabæ og átt ómældar gleðistundir í garðinum sem þau sinna af alúð. Morgunblaðið/Ásdís Að rækta garðinn sinn í hálfa öld Hjónin Sigurður Þórðarson og Sigrún Andrésdóttir hófu bú- skap fyrir hálfri öld í húsi á Markarflöt í Garðabæ. Þau byrjuðu fljótt að vinna í garð- inum, sem er í dag sannkölluð paradís. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Í garðinum eru yfir 600 tegundir plantna og skráir Sigrún þær allar í tölvu. Bóndarósir blómstra fallega á Markarflötinni. Hjartablóm vaxa í garði Sigrúnar og Sigurðar. Falleg meyjarrós. Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is Bakteríuvörn Kvarts steinn frá Silestone er fáanlegur í fjölbreyttum áferðum og litum. Silestone bjóða einir upp á borðplötur með varanlegri bakteríu- og sveppavörn. Gefðu heimilinu ferskleika og líf á þínum forsendummeð Silestone. Blettaþolið Sýruþolið Högg- og rispuþolið Kvarts steinn í eldhúsið silestone.com

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.