Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2019
LÍFSSTÍLL
tveir sterkir dóttursynir þeirra
hjálpað þeim við erfiðustu verkin.
„Það er mest að gera á vorin í garð-
inum,“ segir Sigurður og segir að
sumrin fari í að halda garðinum við.
Það má með sanni segja að hjónin
hafi ræktað garðinn sinn í bók-
staflegri merkingu.
Er með rósadellu
Garðrækt, söngur og tónlist eru
aðaláhugamál hjónanna og segja
þau það fara vel saman; garðrækt á
vorin og sumrin og tónlistin og
söngurinn á veturna. Þau syngja í
kór Vídalínskirkju og voru lengi í
óperukórnum.
Spurð um uppáhaldstré eða
plöntu svarar Sigurður: „Mitt uppá-
haldstré er hlynur. Ég ólst upp við
að rækta hlyn alveg frá því ég var
unglingur. Síðan hafa þessi tré átt
hug minn allan.“
Sigrún segir rósir í uppáhaldi.
„Ég er með dálítið mikla rósadellu.“
Hjónin eru mjög skipulögð og
heldur Sigrún skrá yfir allar plöntur
garðsins og hvar þær eru. Listinn er
alltaf að breytast og þá þarf að upp-
færa hann jafnóðum. Þau vita nöfnin
á flestöllum plöntunum en fletta
þeim annars upp í skránni. Bæði
segjast hafa gaman af að lesa sér til
um garðrækt.
Garðurinn hefur þrisvar verið val-
inn einn af fallegustu görðum Garða-
bæjar, en garðar eru valdir eftir til-
nefningu.
„Fyrsta skiptið voru það börnin
okkar þrjú sem létu vita af garð-
inum; þeim fannst hann svo fal-
legur,“ segir Sigrún og hlær.
Græðlingur frá Færeyjum
Sigrún og Sigurður taka gjarnan
græðlinga þegar þau ferðast um
landið og planta svo í garðinn sinn
en annars kaupa þau yfirleitt litlar
plöntur og leyfa þeim að vaxa upp í
garðinum. Einnig fá þau oft plöntur
hjá blómavinum sínum.
„Í götukantinum eru meira og
minna íslenskar plöntur sem við
leyfum að vaxa villt. Það eru að
mestu leyti plöntur sem við höfum
tekið úti í móa,“ segir Sigrún.
Inni í garðinum sýna þau blaða-
manni plöntur með ævintýralegum
nöfnum; þar má finna fingur-
bjargarblóm, japanska lukt, ridd-
araspora, randagras, hjartablóm,
blóðbeyki, linditré, eik og Færeyja-
rifs. Það síðastnefnda á sér
skemmtilega sögu, en hjónin höfðu
með sér græðling til landsins af
bleikblómstrandi rifstegund, rúm-
lega tveggja metra hárri, þegar þau
voru á kórferðalagi í Færeyjum.
Græðlingurinn dafnaði vel og hafa
margir vinir þeirra fengið plöntur af
móðurplöntunni.
„Gurrý, Guðríður Helgadóttir
garðyrkjufræðingur, kom til okkar
og fékk eina plöntu og fjölgaði
henni. Nú er þessi planta komin út
um allt land undir nafninu Færeyja-
rifs vegna uppruna fyrsta græð-
lingsins.“
Sigurður og Sigrún eru samtaka hjón og njóta þess að stunda garðrækt.
Morgunblaðið/Ásdís
Fingurbjargarblóm vaxa fyrir utan stofugluggann og eru eins af öðrum heimi.
Garðurinn hefur þrisvar verið valinn fallegasti garður Garðabæjar og er ekki að undra.
Japönsk lukt vex fallega í potti.
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir líkama og sál
Laugarnar í Reykjavík
Frá
morgnifyrir alla
fjölskylduna
í þínu
hverfi t i l kvölds