Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Blaðsíða 6
Á félagsvefjum verður vartþverfótað þessa dagana fyr-ir myndum af fólki sem lítur
kunnuglega út, en virðist í einu vet-
fangi hafa elst eða yngst um marga
áratugi, hafa skipt um kyn eða vaxið
skegg í einni svipan. Smáforritið,
sem gerir þetta kleift, nefnist
FaceApp og er búið til í Rússlandi.
Eftir því sem vinsældir smáfor-
ritsins hafa aukist hafa efasemdir
farið vaxandi og á miðvikudag krafð-
ist Chuck Schumer, leiðtogi minni-
hlutans í öldungadeild Bandaríkja-
þings, þess að fyrirbærið yrði tekið
til rannsóknar.
Áhyggjur í Póllandi
og Litháen
Á fimmtudag lýstu stjórnvöld í Pól-
landi síðan yfir því að þau hefðu haf-
ið rannsókn á því hvort það varðaði
við þjóðaröryggi að nota smáforritið.
Sagði í yfirlýsingu á vefsíðu þess
ráðuneytis, sem fer með stafræn
mál í Póllandi, að verið væri að
greina málið: „Ýmsir sérfræðingar
hafa bent á hættur sem fylgi tak-
markaðri persónuvernd notenda.“
Í kjölfarið fylgdi yfirlýsing frá að-
stoðarvarnamálaráðherra Litháens
um að þar í landi yrði málið tekið til
rannsóknar.
Smáforritið notar gervigreindar-
tæknina til þess að breyta myndum
notenda, bæta við nokkrum hrukk-
um eða draga frá nokkur ár. For-
ritið mun vera sérstaklega vinsælt
hjá frægu fólki og hafa einstaklingar
á borð við kanadíska tónlistarmann-
inn Drake, rapparann Cardi B og
körfuboltaleikmennina LeBron
James og Steph Curry sett inn
breyttar myndar af sér þar sem þeir
virðast hafa elst um mörg ár. Hefur
það ýtt undir hylli forritsins meðal
almennings.
Schumer skrifaði í bréfi, sem
hann birti á félagsvefnum Twitter,
að það væri „verulegt áhyggjuefni“
að persónulegar upplýsingar um
bandaríska ríkisborgara kæmust í
hendur „óvinveitts, erlends“ ríkis.
Skoraði hann á bandarísku alríkis-
lögregluna, FBI, og bandarísk sam-
keppnisyfirvöld, FTC, að rannsaka
hvort hætta væri á ferðum fyrir
þjóðaröryggi og persónuvernd.
„Aðsetur FaceApp í Rússlandi
vekur surningar um hvernig og hve-
nær fyrirtækið veiti þriðju aðilum,
þar á meðal mögulega erlendum rík-
isstjórnum, aðgang að upplýsingum
um bandaríska ríkisborgara,“ skrif-
aði Schumer í bréfi til FBI. „Það
væri verulegt áhyggjuefni ef við-
kvæmar persónulegar upplýsingar
um bandaríska ríkisborgara yrðu
veittar erlendu ríki, sem er virkt í
fjandsamlegum aðgerðum gegn
Bandaríkjunum á netinu,“ skrifar
hann.
Schumer er demókrati og hefur
flokkur hans ráðlagt frambjóð-
endum að fjarlægja smáforritið
samstundis úr tækjum sínum.
Öldrunarsían gerði útslagið
Um þessar mundir er FaceApp það
smáforrit sem mest er sótt á vef-
svæðinu Google Play og munu not-
endur vera rúmlega 100 milljónir.
Smáforritinu var hleypt af stokkun-
um fyrir tveimur árum og byrjaði að
rjúka út fyrir alvöru þegar bætt var
við öldrunarsíu og þekktir ein-
staklingar fóru nota það tól til að
breyta myndum af sér.
FaceApp komst í vandræði fyrir
tveimur árum þegar það kynnti síur,
sem gerðu kleift að breyta litarafti
og var boðið upp á „svarta“, „ind-
verska“ og „asíska“ síu. Gagnrýn-
endur héldu því fram að þetta væri
rasísk nálgun og fyrirtækið brást
þegar við með því að fjarlægja þess-
ar síur.
Framleiðandi FaceApp nefnist
Wireless Lab og höfuðstöðvar þess
eru í Skolkovo, sem er skammt frá
Moskvu og aðsetur margra hátækni-
fyrirtækja. Hefur bærinn stundum
verið kallaður Kísildalur Rússlands.
Wireless Lab hefur ekki svarað
bréfi Schumers, en framkvæmda-
stjóri fyrirtækisins, Jaroslav Gont-
sjarov, sagði í viðtali við blaðið
Washington Post að rússnesk yfir-
völd hefðu ekki aðgang að neinum
gögnum notenda FaceApp. Þá sagði
hann blaðinu að flestar myndir væru
þurrkaðar út af netþjónum fyrir-
tækisins innan 48 klukkustunda frá
niðurhali og þær væru ekki notaðar í
neinum öðrum tilgangi, en að breyta
þeim með smáforritinu.
Óttinn við netnjósnir
Ótti við netnjósnir er ekki nýr af
nálinni og eru bandarísk yfirvöld
smeyk um að erlendar ríkisstjórnir
komist yfir og misnoti persónulegar
upplýsingar um milljónir Banda-
ríkjamanna. Mál kínverska símafyr-
irtækisins Huawei er eitt dæmi um
þetta. Annað er kaup kínversks
fyrirtækis, sem býr til leiki fyrir
snjallsíma, í maí á Grindr, sem er ein
vinsælasta stefnumótasíðan fyrir
samkynhneigða. Vegna þrýstings
frá bandarískum stjórnvöldum hef-
ur kínverska fyrirtækið sagst ætla
að selja Grindr fyrir júní á næsta
ári.
Hermt er að bandarískir embætt-
ismenn hafi óttast að reynt yrði að
kúga Bandaríkjamenn, sem hefðu
aðgang að leyniskjölum og notuðu
stefnumótasíðuna, ef kínversk
stjórnvöld krefðu fyrirtækið um
upplýsingar um viðskiptavini þess.
Svo virðist sem ekki sé alveg inni-
stæða fyrir uppnáminu yfir
FaceApp. Myndirnar sem smáfor-
ritið sækir séu geymdar á netþjón-
um sem bandarísk fyrirtæki reka,
og ekkert hefur komið fram um
tengsl fyrirtækisins við rússnesk
stjórnvöld.
Ein ástæðan fyrir tortryggninni í
garð FaceApp var fullyrðingar um
að forritið sækti allar ljósmyndir
notenda og opnaði fyrir eftirlit með
öllum athöfnum þeirra á netinu.
Greining á forritinu sýnir að þetta á
ekki við rök að styðjast, að því er
fram kemur í Washington Post.
Uppnám út af öldrunarappi
Gripið hefur um sig
æði á netinu þar sem
fólk setur inn myndir
af breyttri ásjónu sinni,
sumir með nýjan hárlit,
aðrir eins og þeir gætu
litið út í ellinni.
Smáforritið að baki er
rússneskt og vekur
það tortryggni.
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Smáforritið FaceApp
breytir andlitum á
ljósmyndum. Forritið er
rússneskt og hafa komið
fram áhyggjur af mögu-
legri misnostkun rúss-
neskra stjórnvalda.
AFP
Öldungadeildarþingmaðurinn Chuck Schumer hefur farið fram á það að
bandarísk samkeppnisyfirvöld og FBI rannsaki FaceApp.
AFP
HEIMURINN
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2019
Umræðan um hvernig farið
er með upplýsingar sem not-
endur láta af hendi þegar þeir
nota smáforritið FaceApp
hefur beint athygli að því
hvernig þessum málum er al-
mennt varið hjá fyrirtækjum.
Bent hefur verið á að fjöldi
fyrirtækja reyni að hafa heim-
ildir til að nota slíkar upplýs-
ingar sem víðtækastar.
„Fyrirtæki vita að nánast
enginn les stefnu þeirra í per-
sónuverndarmálum þannig
að þeir fara fram á eins víð-
tækan rétt og hægt er ef það
skyldi koma að gagni, jafnvel
þótt þau þarfnist þeirra ekki
miðað við núverandi áætl-
anir,“ segir Steven Murdoch,
sérfræðingur við University
College í London, við breska
ríkisútvarpið, BBC.
Í því sambandi má nefna
skilmála samskiptavefsins
Twitter sem dæmi: „Með því
að leggja fram, skrifa eða sýna
efni á eða gegnum þjónustuna
veitir þú okkur leyfi um allan
heim, án takmarkana, án höf-
undarréttar (með leyfi til
framsals) til að nota, taka af-
rit, endurgera, þróa, aðlaga,
breyta, birta, senda, sýna og
dreifa slíku efni í einhverjum
eða öllum miðlum eða með
öllum miðlunaraðferðum
(sem ekki þekkjast nú eða
verða þróaðar síðar).“
Þessi texti heldur áfram, en
þetta brot sýnir hversu afger-
andi afsal notenda getur verið
á vefnum á því sem frá þeim
kemur.
MEÐFERÐ UPPLÝSINGA
Áskilja sér
allan rétt
Twitter áskilur sér nánast allan
rétt til efnis frá notendum.
Landslag kr. 5.400
Snúrusnilld kr. 2.000 Hreðkuskálar kr. 2.900-13.500
Íslensk hönnun - Íslenskt handverk
Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990
www.kirs.is,
Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun
Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17