Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Side 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.07.2019, Side 4
VIÐTAL 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.7. 2019 Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslandsfluttu Íslendingar 3.800 tonn af text-ílvörum til landsins árið 2015. Hugtakið „fast fashion“ eða hröð tíska er ríkjandi í vestrænu samfélagi og snýr að því að framleiða sem mest fyrir sem minnstan kostnað til þess að halda í við nýjustu tískustraumana. Skuggahliðar þessarar þróunar eru kannski helst þær að oft fær vinnuaflið ekki nægilega vel greitt og starfar við slæmar aðstæður. Síðan eru það vissulega áhrif sem slík offramleiðsla hefur á umhverfið, bæði hvað varðar sóun og mengun. Sífellt fleiri eru að verða meðvitaðri um þessa þróun og kjósa frekar að kaupa notaðan fatnað og minnka fatakaup almennt. Erfitt að réttlæta fatakaup „Eiginlega allt sem ég er í núna kemur úr fata- skáp pabba míns. Allir á heimilinu eru alltaf að stela fötum af pabba mínum,“ útskýrir Egill og hlær og tekur Vigdís undir enda sjálf klædd í buxur af föður sínum sem hann er hættur að nota. Vigdís og Egill segja fátt af því sem þau hafi keypt nýlega nýjan fatnað, að sokkum og nærfötum undanskildum. „Umræðan er svo hávær, sem gerir það svo erfitt að réttlæta fyrir sjálfum sér að kaupa fjöldaframleiddan fatnað,“ útskýrir Vigdís og bætir Egill við að barnaþrælkun, kolefnisspor og umhverfismengun séu helsta ástæða þess að þau kaupi nánast eingöngu notaðan fatnað. „Ég reyni að pæla ekki of mikið í því hvað margir gangi í fötum sem litlir krakkar saum- uðu, kannski bara fyrir viku. Það er bara alltof mikil framleiðsla og miklu meira en þarf,“ út- skýrir hann. Hvað varðar hugarfarsbreytingu fólks í kringum parið segja þau þróunina vera heldur hæga. „Helsti munurinn er kannski sá að þegar þú talar um umhverfismál og „fast fashion“ þá er ótrúlega sjaldan sem manneskjan sem þú ert að tala við veit hvað þú ert að tala um. Eða trúir þér ekki. Það hafa allir heyrt um og vita af þessu, það er bara spurning hversu sama fólki er í rauninni.“ Óþarfi að kaupa nýtt Egill segir að í Reykjavík, sér í lagi hjá ungu fólki, sé mikið pepp í kringum „second hand“, eða notuð föt. „Það er mjög breitt úrval af not- uðum fötum. Hertex er rosalega góð búð, Rauði krossinn líka, en síðan var verið að opna búðina Waistland sem ég er mjög spenntur að skoða.“ „Svo snýst þetta auðvitað ekkert bara um að versla mikið í second hand-búðum heldur bara að hætta að versla yfirhöfuð. Það er mikilvæg- ara að nota það sem maður á til,“ útskýrir Vig- dís. „Það eiga allir allt of mikið af fötum.“ Vigdís fór nýverið til útlanda og vantaði bik- iní. Í stað þess að kaupa nýtt auglýsti hún eftir því að fá bikiní að láni hjá fjölskyldumeðlimum. „Það þarf ekki að kaupa sér nýtt bikiní eða sumarkjól fyrir hverja utanlandsferð. Þetta er til, ef ekki hjá þér þá einhverjum í fjölskyld- unni.“ Aðspurð hvernig og hvort notuð föt hafi mót- að stíl parsins eru þau sammála um að svo sé. „Það er samt alveg fullt af fólki sem ég þekki sem kaupir aldrei neitt nema einstaka sinnum notað en er með allt öðruvísi stíl en við,“ segir Vigdís. „Ef þú vilt til dæmis vera fínn, eins og ég er byrjaður að vera meira í skyrtum, með bindi og í jakkafötum, þá er alveg hægt að finna jakkaföt í Hertex og hvítar skyrtur fást út um allt. Bara mjög fínar skyrtur sem virka nýjar. Þú getur fundið hvíta, flotta skyrtu í öllum second hand- búðum,“ útskýrir Egill sem nýverið keypti sér jakkaföt í Hertex á nánast engan pening. „Svo er alltaf ótrúlega gaman að kíkja í fata- markað Jörmundar, hann er með ógeðslega mikið af eldgömlum spariskóm til dæmis, en þar er allt notað. Það er hægt að klæða sig upp hjá honum. Að endurnýta hentar alveg öllum fata- stílum.“ Breikka úrvalið með því að gefa föt Aðspurð hvort parið lumi á ráðum fyrir fólk sem vilji verða umhverfisvænna í sínum neysluvenj- um hvað varðar fatnað svarar Vigdís: „Ef þú átt rosalega mikið af fötum þá virkar eins og þú eig- ir minna,“ útskýrir hún. „Það eiga allir flíkur sem þeir vilja losa sig við, tíma því ekki, en myndu aldrei nota. Bara það að taka til í skápn- um og gefa það sem maður hefur ekki notað síð- ustu sex mánuði, það breikkar strax úrvalið í skápnum. Þá hefur þú miklu skýrara val ef þú losar þig við fötin sem þú notar ekki en hefur bara fötin sem þú notar í skápnum. Maður er miklu frekar að kaupa sér eitthvað nýtt þegar fataskápurinn er fullur af flíkum sem maður fílar ekki. Ef maður hendir ekki gamla út, þá týnast líka oft bara nýju fötin,“ útskýrir Vigdís og bætir Egill við að það sé gríðarlega mikilvægt að fara með fötin sem maður vill losa sig við í nytjagám en ekki henda þeim. Mikilvægt að gefa frá sér notaðan fatnað Kærustuparið Egill Gauti Sigurjónsson og Vigdís Freyja Gísladóttir hefur um árabil nær engöngu keypt notaðan fatnað. Þau segja umhverfisverndunar- og siðferðissjónarmið stýra því að þau kjósi að kaupa bara notað. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Egill og Vigdís klæðast nánast eingöngu notuðum fatnaði. Morgunblaðið/Árni Sæberg ’Þá hefur þú miklu skýraraval ef þú losar þig við fötinsem þú notar ekki en hefur barafötin sem þú notar í skápnum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.